Morgunblaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 14
Styrking krónunnar » Íslenska krónan hefur styrkst umtalsvert á síðustu mánuðum. » Gengi krónunnar gagnvart evrunni hefur hækkað mikið á síðustu dögum. » Hagfræðingur segir styrk- inguna meiri en búist var við» » Hann segir menn sjá mikinn vöxt í innflutningi á vörum og í utanlandsferðum Íslendinga. » Hann býst við því að krónan fari að veikjast á ný þegar ferðamannatímabilinu lýkur í haust. FRÉTTASKÝRING Skúli Hansen skulih@mbl.is Gengi íslensku krónunnar hefur undanfarna mánuði styrkst þó- nokkuð gagnvart evrunni. Þannig var miðgengi evrunnar 166,70 ís- lenskar krónur 20. apríl síðastlið- inn en í gær mældist það 152,05 krónur. Þá virðist gengi krón- unnar gagnvart evrunni hafa styrkst til muna um miðbik þessa mánaðar en þann 12. júlí síðastlið- inn mældist gengið 157,45 krónur. „Krónan er búin að styrkjast um 4,5% á rúmum mánuði,“ segir Davíð Stefánsson, hagfræðingur hjá greiningardeild Arion banka. Að sögn Davíðs fellur stór hluti af viðskiptajöfnuðinum til yfir sum- armánuðina, fyrst og fremst vegna ferðamannastraumsins hingað til lands. Meiri styrking en búist var við „Það ánægjulega í þessu er að styrkingin er ívið meiri en við bjuggumst við,“ segir Davíð og bætir við: „Þessi styrking hefur verið alveg umtalsverð. Svo greiddi Landsbankinn fyrirfram um daginn og það kannski létti aðeins af þrýstingi og hjálpar við- skiptajöfnuðinum.“ Hann segir að eftir sem áður sé viðskiptajöfnuðurinn lítill og fari minnkandi. Því sé ólíklegt að krónan haldi sama styrk þegar tekur að hausta. „Það má búast við því að krónan fari að veikjast eitthvað á ný þeg- ar sumri lýkur, kannski frá og með lok september,“ segir Davíð. „Við sjáum það líka að þegar krónan styrkist um allt að fimm prósent á svona stuttu tímabili verður ódýrara að flytja inn vörur og þjónustu og ódýrara fyrir Ís- lendinga að fara til útlanda.“ Davíð segir menn sjá mikinn vöxt í innflutningi á vörum og eins utanlandsferðum Íslendinga og hækkun gengis krónunnar ýti enn meira undir þessa þróun. Krónan snýst við í haust „Seðlabankatölurnar staðfesta að viðskiptaafgangurinn er mjög lítill og fer hratt minnkandi, sér- staklega ef krónan styrkist eins og hún gerir núna því spár um viðskiptajöfnuð gera í flestum til- fellum ráð fyrir því að krónan sé óbreytt,“ segir Davíð og bætir við: „Núna ætti þetta að kynda undir innflutningi að einhverju leyti, að minnsta kosti auka hann eitthvað og þá minnkar afgangurinn af vöruskiptum. Þegar við förum inn í haustið stöðvast allt þetta gjald- eyrisinnflæði og innflutningurinn hefur aukist aðeins út af styrkingu krónunnar. Þá gengur þetta ekki lengur upp og krónan þarf að lækka.“ Gengi krónu gagnvart evru styrkist  Hagfræðingur í greiningardeild Arion banka telur líklegt að gengisþróunin snúist við í haust þegar ferðamannatímabilinu lýkur  Segir vöruinnflutning og utanlandsferðir færast í aukana Morgunblaðið/G.Rúnar Krónan styrkist Gengi íslensku krónunnar gagnvart evru hefur styrkst umtalsvert á síðustu þremur mánuðum. Líklegt er að krónan veikist í haust.                                         !"# $% " &'( )* '$* +,-./+ +0/.-1 +,2.21 ,3.-12 ,3./3, +4.0-+ +,1.41 +./5-1 +54.24 +/,.,- +,-.5+ +0/.0- +,2.4, ,3./,2 ,3./1, +4.00- +,4.++ +./50, +54.02 +/,.14 ,+2.05-0 +,/.++ +01.-, +,-.35 ,3./52 ,3.1,, +5.3-4 +,4.-1 +./025 +55.-0 +/2.+ 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012 Þjónustum allar gerðir ferðavagna Bílaraf www.bilaraf.is Strandgötu 75 • 220 Hafnarfjörður • Sími 564 0400 • bilaraf.is Opnunartími verslunar í sumar: 8–18 virka daga, 10-14 á lau. Gott verð, góð þjónusta! Umboðsaðilar fyrir Truma & Alde hitakerfi á Mover undir hjólhýsi 249.900 kr. Tilboð Tilboð áTruma E-2400 Gasmiðstöð 159.900 kr. Tilboð Mikið úrval vara- og aukahluta! Markísur á frábæru verði Ísskápur: Gas/12 Volt/ 220V – Mikið úrval Sólarsellur á góðu verði – Fáið tilboð með ásetningu BÆJARLÍFIÐ Sigurður Ægisson Siglufjörður Fyrirtækið Primex hlaut Ný- sköpunarverðlaun Íslands 2012 sem afhent voru á Nýsköp- unarþingi 18. apríl síðastliðinn. Það var stofnað 1997 og er staðsett hér í bæ.    Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn var í Miðgarði í Skagafirði 1. júní var Örlygi Krist- finnssyni afhentur Landstólpinn árið 2012. Taldi dómnefnd að Ör- lygur hefði með störfum sínum undanfarin ár vakið athygli á Siglu- firði á jákvæðan hátt. Hann væri t.a.m. einn af frumkvöðlunum að Síldarminjasafni Íslands, sem hefði hlotið viðurkenningar bæði innan- lands og erlendis, auk margs fleira.    Um miðjan júní hófust fram- kvæmdir við byggingu nýs golf- vallar í Hólsdal, þar sem jafnframt verður lögð áhersla á að fegra um- hverfið og gera að alhliða útivist- arsvæði.    Þjóðlagahátíð tókst vel eins og jafnan áður. Hún stóð frá 4. til 8. júlí. Hápunkturinn var flutn- ingur Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins, Háskólakórsins og átta einsöngvara á óperunni Don Giov- anni eftir W. A. Mozart, í íslenskri þýðingu og undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar.    Nikulásarmótið í knattspyrnu var haldið 13. til 15. júlí í Ólafsfirði. Þar spiluðu 7. og 6. flokkur drengja.    Töluverðar framkvæmdir hafa verið í sumar við þá nú miklu um- ferðaræð Snorragötu. Vegagerðin og Fjallabyggð standa á bak við þær. M.a. er búið að setja grjót- vegg fjörumegin, malbika þar gangstétt og laga svæðið og breyta á ýmsan hátt framan við Roaldsbrakka, Gránu og Bátahúsið og gera meira aðlaðandi. Hefur þetta tekist mjög vel og er til prýði og sóma.    Mikil hvalagengd er úti fyrir Siglufirði þessa dagana, sem er nokkuð óvenjulegt. Mest ber á hnúfubak. Er hann að vasast í ein- hverjum uppsjávartorfufiski.    Síldardagar eru framundan. Þeir verða haldnir frá 26. júlí til 2. ágúst og í beinu framhaldi af þeim Síldarævintýrið; það stendur frá 3. til 5. ágúst. Litlu síðar, 10. til 12. ágúst, verður Pæjumótið í knatt- spyrnu, ætlað 7., 6. og 5. flokki stúlkna.    Hin árlega tónlistarhátíð, Berjadagar, verður haldin í Ólafs- firði 17. til 19. ágúst.    Siglufjarðarkirkja á 80 ára vígsluafmæli 28. ágúst næstkom- andi. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Framkvæmdir Svona lítur aðkoma að Roaldsbrakka út eftir nýafstaðnar breytingar. Tilkomumikill inngangur. Miklar framkvæmdir í sumar í Siglufirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.