Morgunblaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012
Sérsmíðaðar állausnir
Speglar • Gler • Hert gler
Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar
Sandblástur • Álprófílar
Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað
okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir í
álprófílum. Við bjóðum upp
á sérsmíðaðar skápahurðir,
rennihurðir, borð, skápa
o.m.fl.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit
yfir það sem er í boði.
Auk þess bjóðum við alla
velkomna í Vatnagarða
12 þar sem fagfólk veitir
góða þjónustu og allar þær
upplýsingar sem þarf.
Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922
SYSTEM STANDEX®
Álprófílar
Glerslípun & Speglagerð ehf.
Sunnudaginn 22. júlí mun sr. Þórir
Stephensen, fyrrverandi dóm-
kirkjuprestur og staðarhaldari í
Viðey, leiða gesti um eyjuna og
segja sögu hennar.
Fornleifauppgröftur í Viðey hef-
ur leitt í ljós merki um mannvistir
allt frá 10. öld. Í Viðey var reist
klaustur árið 1.225 og stóð það með
miklum blóma fram á miðja 16. öld.
„Faðir Reykjavíkur“, Skúli Magn-
ússon, fyrsti íslenski landfógetinn,
lét byggja Viðeyjarstofu sem emb-
ættisbústað sinn. Skúli stóð einnig
að smíði Viðeyjarkirkju sem var
tekin í notkun árið 1774 og er næst-
elsta kirkja landsins á eftir Hóla-
dómkirkju. Ferjan fer frá Skarfa-
bakka kl. 13.15 og 14.15 en gangan
hefst kl. 14.30 við Viðeyjarstofu og
tekur eina til eina og hálfa klukku-
stund.
Leiðsögnin er ókeypis.
Morgunblaðið/Arnaldur
Viðeyjarstofa Boðið verður upp á leið-
sögn og staðarskoðun í Viðey á morgun.
Séra Þórir leiðir
göngu um Viðey
Miðaldadagar á Gásum hófust í gær
og standa fram á sunnudag kl. 11-
18. Gásir eru við Eyjafjörð, 11 km
fyrir norðan Akureyri.
Á Miðaldadögum er reynt að end-
urskapa hið litríka mannlíf sem
blómstraði á 13. og 14. öld, en þá
voru Gásir mesta umskipunarhöfn
landsins og heilt þorp reis þar á
hverju sumri. Kaupmenn komu
siglandi víða að, flytjandi nauðsynj-
ar en ekki síður munaðarvöru og
tískuvarning. Á Gásum er iðandi
markaðstorg og lifandi handverk,
vígamenn ganga um og efna til ill-
inda, munkar tuldra latínubænir og
börnin æfa sig í því að skjóta í mark
með boga og örvum.
Litríkt mannlíf á
Miðaldögum
Taílensk-íslenska félagið stendur
fyrir komu dans- og tónlistarnema
á lokaári úr listadeildum þriggja
háskóla í Taílandi.
Flokkurinn, sem heldur þrjár
sýningar hér á landi, sérhæfir sig í
aldagamalli danshefð, svokölluðum
Khon-dönsum. Fram kemur í til-
kynningu að slíkir dansar voru
fram á miðja 18. öld einungis sýndir
við konungshirðina.
Hópurinn verður með tvær sýn-
ingar í Salnum í Kópavogi, á laug-
ardag kl. 13 og 19 og eina í Sand-
gerði á sunnudag kl. 13.
Taílenskir konungs-
dansar sýndir hér
STUTT
STANGVEIÐI
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Rangárnar eru að komast á hefð-
bundið flug, nú upp úr miðjum júlí,
og sjá má að Ytri-Rangá tyllir sér
efst á lista aflahæstu ánna, en þar
veiddust um 250 laxar í vikunni.
Fyrsti 50 laxa dagurinn var í ánni á
miðvikudag og búast má við því að
nú bætist aðeins við veiðina, enda
stórstreymt um helgina og göngur
að styrkjast. Systuráin, sú eystri,
kemur í humátt þar á eftir, með
rúmlega 200 laxa viku, en á milli
þeirra situr Norðurá. Þar veiddust
aðeins 65 laxar í vikunni, sem telst
lítið á þessum tíma sumars, en að-
stæður hafa verið erfiðar og hljóta
að batna nú þegar ský hefur dregið
fyrir sólu og tekið að rigna.
Ytri-Rangá hefur verið að vakna
hressilega til lífsins síðustu daga. Í
gærmorgun veiddist vel á öllum
svæðum í ánni. T.a.m. gaf neðsta
veiðisvæðið átta nýrenninga á
morgunvaktinni að sögn veiðimanns
sem staddur var í ánni.
Gæti farið í fullan
gang á allra næstu dögum
Leirvogsá hefur oft verið á meðal
gjöfulustu áa landsins ef miðað er
við afla á stöng. Miklir hitar og
þurrkar hafa gert veiðimönnum þar
lífið leitt í sumar en vonir standa til
að ástandið sé að breytast til batn-
aðar.
„Þetta er rosalega súrt fyrir
veiðimenn sem eru búnir að stíla
inn á góða daga og fá síðan ekkert
nema þessa mollu og stanslausa sól.
Ástandið hefur verið allt í lagi en
mun vonandi breytast mikið ef
þessi blessaða lægð sem er í kort-
unum lætur sjá sig. Nú ættum við
að vera á besta tíma í ánni en hún
hefur verið að gefa 5-6 laxa á dag
undanfarið en vanalega ætti áin að
vera að gefa 10-30 laxa,“ segir
Viðar Jónasson, veiðivörður í
Leirvogsá.
Mikið er af fiski úti í sjó og hann
er að sýna sig í ósnum að sögn Við-
ars. „Eins er neðsti hylurinn í ánni,
Fitjakotshylur, fullur af laxi, þetta
er stór hylur sem minnir helst á
stöðuvatn. Þessi lax dembir sér
núna upp ána með lægðinni og
strax eftir helgi gæti orðið frábært
ástand í ánni. Ef rigningin kemur
og eykst í ánni gætum við séð rosa-
lega daga jafnvel strax um helgina.“
Áin er viku á eftir miðað við eðli-
legt árferði og efri hluti hennar er
mjög daufur að sögn Viðars. Opnun
Leirvogsár var seinkað um viku og
var hún því ekki opnuð fyrr en 1.
júlí. Veiði fór vel af stað í ánni, 15
laxar veiddust fyrsta daginn, sem
er ein besta opnun í manna
minnum.
„Áin er klárlega á eftir áætlun og
því hljóta að vera spennandi tímar
framundan. Það er allt útlit fyrir að
ágúst verði góður.“ Þess má geta að
enn eru töluvert mörg veiðileyfi
laus í Leirvogsá í ágúst.
Viðar segir ástæður góðrar veiði í
ánni undanfarin ár vera marg-
víslegar. Hann vísar til þess að að-
eins sé veitt á tvær stangir í ánni og
nefnir að í öðrum sambærilegum
ám sé veitt á þrjár til fjórar stangir.
„Við ákváðum að taka þennan pól í
hæðina og hækka veiðileyfin aðeins.
Fiskurinn fær meiri frið og þetta
hefur komið mjög vel út hjá okkur.“
Hölkná leynir á sér
Hölkná í Þistilfirði er á sem
sjaldan heyrist mikið af. Bræðurnir
Baldur og Björn Snorrasynir
veiddu í ánni um síðustu helgi og
voru ljómandi ánægðir. „Það var lít-
ið vatn í ánni í kjölfar þurrkanna en
við náðum sex fiskum sem voru á
milli 80-90 cm,“ segir Baldur.
Hann mælir hiklaust með Hölkná
og segir hana leyna á sér. „Hún
geldur svolítið fyrir að árnar í
kringum hana eins og Svalbarðsá,
Sandá og Hafralónsá eru þekktari.
Þarna er mjög skemmtilegt að
veiða, áin býður upp á ýmislegt eins
og lítil og nett gljúfur. Þarna er
gaman að vera með minni og liprari
græjur.“ Björn segist hafa orðið var
við töluverðan fisk og hefur á orði
að örugglega verði mikið fjör í ánni
í næstu viku í ljósi veðurspárinnar.
Ágætisveiði í Eystri-Rangá
Ágætisveiði hefur verið í Eystri-
Rangá að sögn Einars Lúðvíks-
sonar veiðivarðar. Eystri-Rangá er
lindá og því koma þurrkarnir und-
anfarnar vikur töluvert minna við
ána en margar aðrar. „Hér er ágæt-
isveiði, svona 30-40 fiskar á dag.
Hér rigndi og snjóaði mikið í vetur
og grunnvatnsstaðan var há í vor.
Vatnsstaðan í ánni þessa stundina
er því góð.“
50 laxa dagurinn í Ytri-Rangá
Aðstæður batna nú þegar skýja tekur og rigning er í kortunum 250 laxar veiddust í Ytri-Rangá í
vikunni Systuráin sú eystri með rúmlega 200 laxa Spennandi tímar framundan í Leirvogsá
Góð veiði Agnes Viggósdóttir hampar 90 cm hrygnu sem hún veiddi á
gárutúpu í Efri-Eyrarhyl í Svalbarðsá. „Hrygnan dansaði um allan hyl og
lét hafa mikið fyrir sér,“ segir Júlíus Þór Jónsson, eiginmaður Agnesar, og
bætir við: „Þetta var æðislegur túr.“
Aflahæstu árnar
Heimild: www.angling.is
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Á sama
tíma í fyrra
366
1170
288
486
495
826
534
484
739
479
320
141
204
352
261
Staðan 20. júlí 2012
592
543
564
573
490
601
312
291
243
188
185
178
144
143
134
Ytri-Rangá & Hólsá (20)
Norðurá (14)
Eystri-Rangá (18)
Elliðaárnar (6)
Haffjarðará (6)
Blanda (16)
Selá í Vopnafirði (5)
Langá (12)
Þverá + Kjarará (14)
Miðfjarðará (10)
Brennan (Í Hvítá) (2)
Haukadalsá (5)
Hofsá + Sunnudalsá (7)
Laxá í Aðaldal (18)
Grímsá & Tunguá (8)