Morgunblaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.07.2012, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012 Stuðningsmenn sandínista í Níkaragva fagna á La Fe-torgi í Managva að 33 ár eru liðin frá byltingunni sem steypti einræðisherranum Anastasio So- moza af stóli, en fjölskylda hans hafði drottnað yfir landinu frá árinu 1936. AFPFögnuður sandínista 33 ár liðin frá byltingunni í Níkaragva Bandarískum hermönnum verður í fyrsta skipti leyft að klæðast ein- kennisbúningum sínum í gleði- göngu samkynhneigðra sem fer fram í San Diego í Kaliforníuríki í dag. Í tilkynningu frá varn- armálaráðuneytinu kemur fram að leyfið eigi aðeins við gönguna í ár. Fjöldi hermanna tók þátt í göng- unni í fyrra en klæddist þá bolum sem á var letrað hvaða deild hers- ins þeir tilheyrðu. „Í dag er mikill gleðidagur. Bar- áttunni fyrir jafnrétti er ekki lokið og hún er ekki auðveld en þetta er risaskref í rétta átt,“ segir Dwayne Crenshaw, framkvæmdastjóri LGBT-samtaka í San Diego. Allt frá árinu 1993 mátti samkyn- hneigt fólk aðeins gegna her- mennsku ef það sagði ekki frá kyn- hneigð sinni opinberlega. Barack Obama forseti hvarf hins vegar frá þessari stefnu í september í fyrra. Mega klæðast her- búningi í gleðigöngu í fyrsta sinn AFP Gleði Hermenn hafa ekki mátt vera í einkennisbúningi í gleðigöngum. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Grímuklæddur maður vopnaður tára- gasi, riffli, skammbyssu og hníf, skaut að minnsta kosti tólf manns til bana og særði fimmtíu og níu í kvikmynda- húsi í bænum Aurora, nærri borginni Denver í Colorado-ríki í Bandaríkj- unum aðfaranótt föstudags. Börn allt niður í fjögurra mánaða gömul urðu fyrir skotum í árásinni. Miðnæturfrumsýning á nýjustu myndinni um Leðurblökumanninn var í gangi þegar maðurinn ruddist inn í kvikmyndahúsið með gasgrímu fyrir andlitinu. Vitni segja að hann hafi kastað táragasi inn í salinn áður en hann hóf skothríð á bíógestina. Ótengdur hryðjuverka- samtökum Fjöldamorðinginn var handtekinn á bílastæði í grenndinni skömmu eftir árásina. Auk þeirra vopna sem hann hafði á sér fannst skotvopn í kvik- myndahúsinu. Þá sagðist hann geyma sprengiefni í íbúð sinni. Íbúðarblokk- in var rýmd á meðan lögregla leitaði í íbúðinni. Að sögn lögreglu fannst þar gildra sem tengd var sprengibúnaði af einhverju tagi. Samkvæmt upplýsingum banda- rísku alríkislögreglunnar, FBI, er árásarmaðurinn 24 ára gamall banda- rískur karlmaður að nafni James Holmes. Hann er doktorsnemi í taugavísindum en ekkert bendir til þess að hann hafi tengsl við hryðjuverkasamtök. Sumir kvikmyndahúsagestanna héldu að reykurinn og skothríðin væru tæknibrellur sem fylgdu myndinni. „Í fyrsta hasaratriði mynd- arinnar kom svartklæddur náungi með svarta grímu inn hægra megin. Fyrst héldum við að þetta væri hluti af sýningunni,“ sagði eitt vitni við bresku fréttastofuna BBC. Fregnir hafa borist af því að skotin hafi farið í gegnum veggi og að ein- hverjir bíógestir hafi særst í næsta sal við hliðina á þeim þar sem morð- inginn lét til skarar skríða. Hætti við framboðsfund Barack Obama, forseti Bandaríkj- anna, stytti ferðalag sitt um Flórída- ríki þar sem hann var að kynna fram- boð sitt til endurkjörs vegna árásar- innar og sneri aftur til Hvíta hússins fyrr en áætlað var. Mitt Romney, frambjóðandi repú- blikana, lýsti einnig yfir hryggð sinni vegna fjöldamorðsins. Sérstakri frumsýningu sem átti að halda á Champs-Élyssés í París í gærkvöldi var frestað vegna árásar- innar. Þá var hætt við fjölmiðlaviðtöl sem stjörnur myndarinnar höfðu bókað í tengslum við hana. Blóðbað í kvikmyndahúsi  Árásarmaður lét skotum rigna yfir gesti á frumsýningu Leðurblökumannsins  Að minnsta kosti tólf eru látnir og tugir særðir  Frumsýningu í París frestað AFP Harmleikur Lögregluborði við Century 16-kvikmyndahúsið í Aurora þar sem ungur maður gekk berserksgang. Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is Það eru alltaf þjálfarar þér til aðstoðar … Heilsurækt fyrir konur Ég vinn á hjúkrunarheimili sem félagsliði. Ég byrjaði að æfa í Curves fyrir ári síðan, af því ég vildi léttast og styrkja mig. Ég hef æft ca. 3x í viku og líkar rosalega vel. Á þessum tíma hef ég losnað við 10 kg og er miklu hressari núna. Curves er frábær staður með frábæru starfsfólki. Ég þarf ekki að panta tíma, kem að æfa þegar það passar mér best. Paula HolmPaula Holm, 40 ára Æfingin hjá okkur tekur aðeins 30 mínútur Sumarið er tíminn! Komið hefur í ljós að arabískur texti á veggspjöldum með örygg- isleiðbeiningum fyrir Ólympíu- leikana sem breskt lestarfyrirtæki lét setja í lestir sínar er ólesandi. Stafirnir eru ekki tengdir saman, eins og venja er, og þeir snúa öfugt. Hefur lestarfyrirtækið sætt gagn- rýni fyrir klúðrið sem gefi ekki góða mynd af London. Fyrirtækið bendir hins vegar á framleiðanda spjaldanna sem hafi valið rangt letur fyrir textann sem hafi gert hann merkingarlausan. Birtu merkingarleysu á arabísku Peter Doyle, hagfræðingur sem starfaði hjá Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum í ára- raðir en hefur nú sagt starfi sínu lausu, gagnrýnir stofnunina og forsvarsmenn hennar harka- lega í bréfi sem hann ritar til að skýra uppsögnina. Hann segir illa hafi verið staðið að ráðningu framkvæmdastjóra sjóðsins undanfarinn áratug og Christine Lagarde, núverandi framkvæmdastjóri, sé ekki hæf. Þá gagnrýnir hann harðlega að stofn- unin hafi ekki varað nógu vel við þeim vandamálum sem voru undir- rót efnahagskreppunnar. „Eftir tuttugu ára starf skamm- ast ég mín á allan máta fyrir að hafa verið bendlaður við sjóðinn,“ skrifar Doyle. BANDARÍKIN Skammast sín nú fyrir að hafa starfað fyrir AGS Christine Lagarde Hisham Ikhtiar, þjóðarörygg- isstjóri Sýrlands, lést af sárum sín- um eftir sprengjuárás í miðborg Damas- kus á miðviku- dag. Sýrlenska ríkissjónvarpið greindi frá þessu í gær. Auk Ikhti- ar létust þrír háttsettir meðlimir stjórnar Bashar al-Assads, forseta, í árásinni Flóttamannastofnun SÞ greindi frá því í gær að allt að 30.000 Sýr- lendingar hefðu flúið yfir landa- mærin til Líbanons á síðustu tveim- ur sólahringunum á undan vegna aukinnar hörku í átökunum. Ör- yggisráð SÞ ákvað að framlengja umboð sendinefndar sinnar í Sýr- landi um þrjátíu daga í gær. SÝRLAND Tugir þúsunda hafa flúið land á tveimur sólarhringum Hisham Ikhtiar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.