Morgunblaðið - 21.07.2012, Síða 25

Morgunblaðið - 21.07.2012, Síða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012 ✝ Helgi Jónassonfæddist á Grænavatni 8. febrúar 1922. Hann lést 10. júlí síðastliðinn á dval- arheimilinu Kjarnalundi á Ak- ureyri þar sem hann hafði búið ásamt Steingerði Sólveigu konu sinni síðan haustið 2010. Foreldrar Helga voru Jónas Helgason, bóndi og söngstjóri á Grænavatni, f. 6.9. 1887 d. 30.10. 1970 og kona hans, Hólmfríður Þórðardóttir, hús- freyja á Grænavatni, f. 11.5. 1890, d. 29.5. 1980. Systkini Helga: 1) Árni Jón- asson, f. 26.9. 1916, d. 12.3. 1998, kvæntur Jóhönnu Ingv- arsdóttur, f. 13.4. 1916, d. 16.3. 1998. 2) Þóroddur Jónasson, f. 7.10. 1919, d. 27.8. 1994, kvænt- ur Guðnýju Pálsdóttur, f. 18.7. 1924, d. 23.2. 2007. 3) Jakobína Björg Jónasdóttir, f. 26.3. 1927, gift Trausta Eyjólfssyni, f. 19.2. bóndi á Grænavatni, kvæntur Freyju Kristínu Leifsdóttur, leiðbeinanda í leikskóla. Börn þeirra eru Einar Már, bifvéla- virki á Akureyri, sambýliskona hans er Sigrún Arna Jónsdóttir; Anna Björk, nemi í ferða- málafræði í Danmörku, sam- býlismaður hennar er Peter Martin Røder, húsasmiður; Kristinn Björn, nemi í fjölmiðla- fræði við Háskólann á Ak- ureyri; Friðrik Páll grunn- skólanemi. c) Þórður, f. 15.8. 1960, verslunarmaður á Ak- ureyri, kvæntur Helgu Þyri Bragadóttur, iðjuþjálfa. Börn þeirra eru Bjarki, nemi í þýsku við Háskóla Íslands; Freyr, stálsmiður á Akureyri; Sólveig María, menntaskólanemi á Ak- ureyri; Ari, grunnskólanemi. d) Árni Hrólfur, f. 27.10. 1962, kennari á Akureyri, kvæntur Kristínu List Malmberg, kenn- ara. Sonur þeirra er Sveinn Áki, grunnskólanemi. Sonur Árna er Daníel Örn, landfræð- ingur í Danmörku, unnusta hans er Ene Bugge, nemi í landafræði. Dóttir Kristínar er Elísabeth, kennari í Reykjavík. Útför Helga fer fram frá Skútustaðakirkju í dag, laug- ardaginn 21. júlí 2012 kl. 14. 1928. 4) Kristín Þuríður Jón- asdóttir, f. 26.3. 1927, d. 9.10. 2011. Hinn 27.12. 1953 kvæntist Helgi Steingerði Sól- veigu Jónsdóttur. Foreldrar hennar voru Jón Stef- ánsson, smiður á Öndólfsstöðum, og kona hans Þórveig Kristín Árnadóttir. Synir Helga og Steingerðar eru: a) Jónas, f. 15.9. 1954, kennari á Akureyri, kvæntur Guðrúnu Bjarnadóttur, banka- starfsmanni. Synir þeirra eru Tómas, hugbúnaðarverkfræð- ingur í Kópvogi, kvæntur Sig- ríði Antonsdóttur, lyfjatækni og eiga þau börnin Anton, Patrek Jónas og Guðnýju Söru; Helgi, sölu- og markaðsfulltrúi á Ak- ureyri, kvæntur Þóru Ýri Árna- dóttur, matvælafræðingi og eiga þau börnin Kristínu Völu og Jóhann Óla; Bjarni, nemi í sagnfræði við Háskóla Íslands. b) Jón Haraldur, f. 4.9. 1956, „Hverra manna ert þú?“ Þessa spurningu fékk ég frá Helga þegar ég fór í fyrsta sinn með Árna mínum heim á Grænavatn. Eðli málsins sam- kvæmt var ég talsvert tauga- óstyrk þegar ég hitti Helga og Lillu í fyrsta sinn. Eftir að hafa svarað spurningunni hér að ofan var ég fljót að jafna mig, enda var með öllu ástæðulaust að ótt- ast þau hjónin. Þau hafa frá fyrstu stundu reynst mér af- skaplega vel. Við tók léttara hjal og í þessari heimsókn sýndi þessi verðandi tengdafaðir minn allar þær hliðar sem einkenndu hann. Hann var hinn mesti heið- ursmaður, einstakur ljúflingur sem aldrei skipti skapi. Hann var barngóður og ráðagóður. Síðast en ekki síst var Helgi bóndi með stóru bé-i og sinnti því starfi af alúð. Þær urðu æði margar stund- irnar við eldhúsborðið hjá Helga og Lillu þar sem rætt var um allt milli himins og jarðar. Þar sát- um við oft, nutum veitinga Lillu og áttum notalegar stundir. Helgi var afskaplega fé- lagslyndur og fannst gaman þegar gesti bar að garði. Mér er minnisstætt hvað hann ávallt sagði þegar við kvöddum með orðunum: „Sjáumst síðar.“ Þá svaraði hann um hæl: „Það vona ég svo sannarlega.“ Helgi var af þeirri kynslóð sem stóð sína plikt og það vel. Þegar Sveinn Áki okkar var lítill var hann oft á tíðum veikur sem varð til þess að við foreldrarnir þurftum að vera frá vinnu. Helgi hafði miklar áhyggjur af því og óttaðist að okkur yrði sagt upp. Dag einn þegar drengurinn var veikur enn einu sinni hringdi Helgi og sagði að þetta gengi ekki lengur, hann væri á leiðinni með Lillu og við skyldum bara hafa hana eins lengi og þyrfti. Næstu mánuði kom Lilla oft til Akureyrar og sinnti drengnum í veikindum og höfðu þau bæði gaman af. Helgi fylgdist mjög vel með sínu fólki og var umhugað um að öllum farnaðist vel. Hann spurði ávallt frétta af börnunum okkar og fylgdist því vel með þeim stóru sem eru flutt að heiman. Hann hélt því áfram fram í and- látið þrátt fyrir að Elli kerling hefði sett sitt mark á hann. Síðustu 2 árin bjó Helgi ásamt Lillu á Dvalarheimilinu Kjarnalundi og var þar hvers manns hugljúfi eins og honum einum var lagið. Flyt ég starfs- fólki Kjarnalundar þakkir fyrir góða umönnun. Blessuð sé minning elskulegs tengdapabba, ég á eftir að sakna hans. Kristín List Malmberg. Afi var algjör höfðingi sem allt gott vildi gera fyrir okkur bræð- urna, hvað sem tautaði og raul- aði. Það skipti litlu máli hversu erfiðir við strákarnir vorum í sveitinni í gamla daga, oftast féll það í skaut pabba okkar að sjá um skammirnar og uppeldið. Afi gamli sagði okkur hins vegar að fá okkur bleika köku, volga ný- mjólk úr álkönnu og lungamjúkar mömmukökur frá ömmu og að fara út að leika að nýju. Afi lét sig heimsbókmenntirn- ar mikið varða og þýddi heilu bunkana af dönskum Andrésar Andar-blöðum. Það var alveg sama hversu mikið var suðað um að fá að heyra þýðingarnar aftur og aftur, alltaf var karlinn vel upplagður til að setjast á harða bekkinn inni í stofu til að rifja upp ævintýr Andabæjar. Afi sá til þess að við vorum, er- um og verðum. Hann var upp- spretta óendanlegrar visku, lind lífs okkar líkt og lindin fyrir neð- an Grænavatn. Hefði afa gamla ekki notið við í lífi okkar bræðra, hefði það ekki verið jafn ríkt að leikjum, spilum, hamingju og gleði. Kveðja, Bjarni Jónasson, Helgi Jón- asson og Tómas Jónasson. Það er svo margs að minnast þegar ég læt hugann reika í gegnum árin sem ég var svo lán- samur að njóta með Helga föð- urbróður mínum, sem við kveðj- um í dag. Að ganga með honum til verka sumar eftir sumar frá fimm ára aldri og fram á ung- lingsár og eiga athvarf á Græna- vatni um helgar þegar ég var síð- ar í vinnu í Mývatnssveit, var sem draumur, því betri fyrirmynd var ekki hægt að hugsa sér. Stein- gerður hafði einhver tíma á orði að það væri ekki furða að ég hefði göngulagið hans eftir öll þessi ár. Helgi var einstakur maður, ég man t.d. ekki eftir að hafa heyrt hann reiðast eða tala hastarlega til nokkurs manns. Sjálfsagt þyngdist eitthvað tónninn þegar ég í kappi við rigningu lenti með eitt hjól rakstrarvélarinnar í gjótu svo hún varð ónothæf en það var bara drifið í að fá gert við. Helgi var maður sátta og sann- girni og frekar gaf eftir en standa í þrefi um hlutina en Steingerður hafði stundum á orði að hann hefði mátt halda sínum sjónar- miðum sterkar fram. En ég held að hann hafi einmitt unnið mörg- um málstað fylgi með rósemi og góðum og gildum rökum. Eitt sunnudagssíðdegi á slætt- inum ætlaði fjölskyldan að skreppa niður á bæi en ég varð að vera heima til að snúa og var ekki alveg sáttur við það, lagðist inn á bekk og snéri mér til veggjar. Helgi kom og spurði: „Ertu í fýlu, Doddi minn?“ Já, var svarið, „Vertu það bara, en það er leið- inlegast fyrir þig.“ Ég fór út að snúa og hef ekki farið í fýlu síðan. Helgi naut trausts og virðing- ar og tók þátt í málefnum síns samfélags með margháttuðum störfum, sem hreppstjóri, sveit- arstjórnarmaður og fulltrúi í ótal nefndum og ráðum. Ég minnist fundar sveitarstjórnar Skútu- staðahrepps og Náttúruverndar- ráðs í Mývatnssveit þar sem Helgi var fundarritari og í lok nokkurra klukkustunda fundar þar sem all hart var tekist á og skoðanaskipti ekki öll fallin til þess að aðilar næðu saman um málefni, las hann fundargerðina úr fundargerðarbókinni. Ég dáð- ist að því hvernig honum tókst að koma því til skila sem megin máli skipti, en hann sagði undir lokin að hann væri síðan með á blöðum mun ítarlegri texta með tilvísun- um í orð fundarmanna og bauð að þetta yrði hluti fundargerðarinn- ar. Það var samdóma álit allra að aðeins það sem hann hafði fært til bókar skyldi skráð. En nú er Helgi farinn og án efa alltof margt sem við áttum eftir að spyrja hann um til að fræðast um fyrri tíma. Þó skammtíma- minnið hafi verið búið að gefa sig undir lokin, voru minningar um atburði og ekki sé minnst á vísur, ljóslifandi í huga hans. Ég ræddi við hann síðast fyrir rúmum tveimur vikum og þakkaði hann mér fyrir að vera kominn til að hjálpa við smalamennskuna, það væri honum og Haraldi mikils virði. Ég get ekki hugsað mér betri kveðju frá manni sem ég á svo miklu, miklu meira að þakka. Steingerður, þið strákar og fjölskyldur ykkar, ég, Hulda, Harpa og fjölskyldur vottum ykkur innilega samúðar. Um leið þakka ég sérstaklega fyrir að ég fékk að deila Helga svo mikið með ykkur, allar þær stundir hafa verið mér mikilvægari en orð fá lýst. Þóroddur F. Þóroddsson. Helgi á Grænavatni hefur lagt yfir móðuna miklu. Hann er far- inn, ekki horfinn. Menn eins og hann hverfa ekki. Leiðir lágu saman í Mývatns- sveit um 30 ára skeið. Okkur sem komum í gamalgróið sveitarsam- félag, og fórum að vinna verk- smiðjustörf, var yfirleitt vel tek- ið. Mörgum var að kynnast. Víða á bæjum bjuggu sveitarhöfðingj- ar sem vissu hverjum var hvað. Á Grænavatni hjá Helga og Steingerði áttum við vísar höfð- inglegar móttökur. Kynni mín af Helga, réttsýn- um og sanngjörnum góðum dreng, urðu til þess að sjá mann- leg samskipti í stærra samhengi en ég ungur hafði íhugað. Hann leit ávallt til hins jákvæða í fari fólks. Eiginleikar hans urðu til að honum var treyst. Vart var sá fundur haldinn í Mývatnssveit, að ekki sé talað um fund sem búast mátti við ágreiningi á, sem oft var, að ekki væri leitað til Helga að stjórna honum. Í huga mínum lifir mynd af manni, glaðlegum, hispurslaus- um og jafnvel sposkum, í ægi- fögru umhverfi á Grænavatni, manni sem hafði bætandi áhrif á aðra, manni sem allir óskuðu að eiga að vini, manni sem mátti treysta. Minningin er mér kær. Gæfa mín var að hafa kynnst honum. Með fátæklegum eftirmælum votta ég Helga Jónassyni virð- ingu mína og fjölskyldu hans samúð. Sigurður Rúnar Ragnarsson. Á Grænavatni hefur í 120 ár þróast á helmingum jarðarinnar talsvert merkilegt sambýli fjöl- skyldna sem þangað komu árin 1890 og 1892. Fyrstu 70 árin bjuggu allar fjölskyldurnar í ein- um samhverfum stórbæ, oftast 30-40 manns í allt. Árin 1939-1945 færðu Mývetn- ingum heimstyrjöld, hernám og mæðiveiki – eins og öðrum Ís- lendingum – en Grænvetningum færðu þessi ár sérstaklega erfiða tíma. Á fáum árum féllu frá gömlu landnemarnir og auk þess fluttu Páll Jónsson og hans fólk í burtu og bræður, Kristján og Helgi Jónssynir, eiginmenn Dísu og Jönu dóu – löngu fyrir aldur fram. Árni bróðir Helga hvarf frá búskapnum. Auk þess herjaði uppblástur og sandfok á Suður- afréttinn og Sellöndin alveg sér- staklega. Inn í þessa gríðarlegu breytingu var Helgi kvaddur af foreldrum sínum – og faðir minn flutti að Grænavatni um svipað leyti og foreldrar mínir bjuggu þar samhliða Helga og Steingerði allan sinn búskap. Á Grænavatni reyndi mikið á samvinnu milli búanna við fjár- geymslu og smalamennsku í Sel- löndum einkum og stífluverk á engjum og fleira. Ég naut þess ungur að fá að vinna á móti Helga og býsna snemma sem jafningi til verka. Helgi alltaf reifur og tilbú- inn til að spana strákana – og brýna – með stökur á hraðbergi – eða sögur frá fyrri dögum – af öf- um og frændum – eða þá hann skellti saman vísu sem hæfði efni dagsins. Helgi var oft hraður í til- svörum og notaði knappan stíl sem einkenndi Þórð afa hans og fleiri afkomendur. Stundum var hann kannski næstum fljótfær og vildi stytta sér leið. Helgi var ekki fyrir hangs og ekki var tekinn neitt alltof langur tími í að borða nesti þegar verið við sameiginleg verk – þá var bóndi búinn að grípa upp sína rauðu KEA-tösku – skella í sig brauðsneið og súpa kaffið – og ganga frá aftur – albúinn að leggja af stað að nýju – áður en Hjörleifur eða við hinir bræður höfðum gert það upp við okkur hvenær réttast væri að borða. Helgi sagði það beint og óbeint að hvergi mundi betra að bera beinin eða ganga sína hinstu göngu en í Sellöndum eða við Suðurá og þá væri best við hæfi að hola honum þar niður. Ég er viss um að eilífðarvist Helga verður einmitt í Sellöndum – þar verður sálin í sólskini – hvar svo sem líkaminn verður lagður – þannig er átrúnaður Grænvetn- inga – án þess að slíku viðhorfi fylgi á nokkurn handa máta guð- leysi eða trúleysi. Steingerður og Helgi áttu sitt hús á vatnsbakkanum á Græna- vatni. Hvergi eru kvöldin fegurri og þessi dásamlega útsýni út á vatnið sumar sem vetur – þegar birta er í himni eða sól á lofti – yf- ir Birgisker – og þetta lifandi vatn sem engin illviðri leggja undir ís. Það er bara birta yfir minn- ingu Helga á Grænavatni – og ég trúi því að við munum öll sjá hann kvikan og röskan á efsta degi – á leiðinni í sinn hádegismat og vita að þá er klukkan að líkindum ná- kvæmlega 12. Benedikt Sigurðarson. „Hann fór vel,“ sagði Helgi um sveitunga sinn, sem fór fyrirvara- laust af þessum heimi í skammri elli. „Hann hefði aldrei haft skap til að vera á stofnunum, þar sem menn verða að hanga yfir engu og vita tæpast lengur hverjir þeir eru.“ Sjálfum var honum hins vegar orðin lífsnauðsyn að fá að deyja, nú þegar kallið barst nokkrum mánuðum eftir níræð- isafmælið, hafandi farið oft með þessa vísu sína og hina síðustu: Eitt er að vera ungur og frár annað hrumur, gamall. Yfir lífsins gjótur og gjár geng ég hægt, einsamall. Grænavatn er stór jörð og bú- skapur fyrirhafnarsamur. Jörðin liggur næst öræfum er ekki hent- ug til einbýlis, enda fleirbýlt til langs tíma. Í slíku nábýli skiptir samvinna og gott samkomulag mestu máli. „Við vorum mótbýlis- menn hér í meira en hálfa öld og aldrei kom það fyrir að við rif- umst, hvað þá flygjumst á, “ sagði Helgi við mig við jarðarför föður míns fyrir 11 árum. Báðir voru þó langt í frá skoðanalausir og ekki alltaf sammála. En þegar niður- staða var fengin um hvernig standa skyldi að verki unnu báðir heilshugar og samtaka að því og höfðu ekki fleiri orð um. Sem barn var ég fylgisamur Helga, enda gaf hann sér tíma til að sinna mér. Nokkrar myndir birtast í minningunni: - Ég er þriggja ára í heyskap. Nota hrífuna fyrir hest, ríð greitt og hneggja. Á næsta túni ríður Helgi til móts við mig á sinni hrífu. Hesturinn er óstilltur og prjónar ákaflega svo Helgi dettur af baki hrífunni. Viðbeinsbrot léttir honum ekki heyskapinn það sumarið. - Í suðurfjósi: Ég sit á skemli á tröðinni, en Helgi mjólkar Dimmu og heldur um leið uppi spurningaleiknum „Jurta-, dýra- og steina-“. Til marks um hug- kvæmnina þarf ég að finna lík- þorn á litlu tá á vinstra færi á Ei- senhower Bandaríkjaforseta. Í verðlaunaskyni fæ ég upp í mig mjólkurgusu, senda í boga beint úr kúnni. - 12 ára, í fyrsta sinn fullgildur gangnamaður, geng ég með Helga upp Bláfjallshala á hrím- köldum morgni. Engar kindur, en gangan á fótinn. Léttist þegar Helgi setur á mig fyrri parta og lætur mig botna. Eftir stendur bragur um atburði gærdagsins þegar „Snarlegur snjómaður/ sneri á Frambrunamenn.“ Helgi var allra manna röskast- ur til verka og óvílinn. Hélst það þótt hann fengi ekki annan með í verk en mig strákinn. Aldrei var fárast, þótt allt gengi ekki sem skyldi, heldur var ég alltaf hvatt- ur áfram og reyndi þá að gera betur. Og ég reyndi líka að tyggja jafnhratt og hann, þegar við tók- um upp nestisbitann. Þannig varð hann mér í flestu fyrirmynd sem átti drjúgan hlut að uppeldi mínu. Gömlu Grænavatnsbændur, Helgi og Siggi, höfðu göngur sem fag. Þar hófust smalamennskur snemma hausts og stóðu fram á jólaföstu að viðbættri fjárgæslu í Sellöndum. Síðustu árin sem báð- ir lifðu varð þeim tíðfarið í afrétt á jeppum sínum með hund og kerru, og komu þá oftar en ekki með kindur til baka. Jafnvel þótt báðir hafi skilið hjartatöflurnar eftir heima. Lengi hélt Helgi vinnuþreki og vinnulöngun. En eins og hann sagði oft: Við skulum hætta, þetta er orðið kappnóg. Erlingur Sigurðarson frá Grænavatni. Helgi Jónasson ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA G. HALLSDÓTTIR frá Gríshóli, Efstasundi 94, Reykjavík, sem lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli laugar- daginn 14. júlí, verður jarðsungin frá Áskirkju í Reykjavík miðvikudaginn 25. júlí kl. 13.00. Þorbjörg Kristvinsdóttir, Bjarni B. Sveinsson, Höskuldur Kristvinsson, Barbara J. Kristvinsson, Hallur Kristvinsson, Sigrún Einarsdóttir, Katla Kristvinsdóttir, Jóhann Thoroddsen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, HALLVARÐUR SIGURÐUR GUÐLAUGSSON húsasmíðameistari, frá Búðum, Hlöðuvík, til heimilis Furugrund 12, lést miðvikudaginn 18. júlí. Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 31. júlí kl. 11.00. Guðmundur Hallvarðsson, Anna Margrét Jónsdóttir, Lilja Dögg Guðmundsdóttir, Elvar Már Ólafsson, Hallvarður Jón Guðmundsson, Elfa Rún Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.