Morgunblaðið - 21.07.2012, Side 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012
✝ Guðný SæbjörgJónsdóttir eða
Sæbjörg eins og
hún var alltaf köll-
uð fæddist að
Sölvabakka í Engi-
hlíðarhreppi, Aust-
ur-Húnavatnssýslu
þann 14. nóvember
1926, látin 12. júlí
2012.
Sæbjörg er dótt-
ir hjónanna Jóns
Guðmundssonar f. 1892, d. 1992
og Magðalenu Karlottu Jóns-
dóttur f. 1892, d. 1972.
Sæbjörg var þriðja í röð 7
systkina. Þau eru: Jón Árni f.
1921, d. 1935. Guðmundur Jón f.
1925, d. 1983. Ingibjörg Þór-
katla f. 1928. Finnbogi Gunnar f.
1930, d. 2004. Sigurður Kristinn
f. 1933 og Jón Árni f. 1937, d.
2004.
Sæbjörg var í Kvennaskól-
anum á Blönduósi árin 1946 til
1947. Bæði fyrir og eftir þann
tíma vann hún ýmis störf víðs-
vegar um landið og m.a. var hún
kokkur á síldarbát.
Í maí árið 1955 réð hún sig
sem ráðskonu að Skerðings-
stöðum í Reykhólasveit og
kynntist þá eftirlifandi eigin-
dóttur er Hilmar Þór og á hann
4 börn. Börn Jóns Árna og
Steinunnar Ólafíu eru Guðný
Sæbjörg og Hrefna.
Börn Sæbjargar og Finns eru:
A) Kristján fæddur 8. maí
1956, giftist Guðnýju Guð-
mundsdóttur og eru þau skilin.
Börn þeirra eru Sjöfn, hún á
eina dóttur, og Finnur Guð-
mundur. Núverandi kona Krist-
jáns er Margrét Ásdís Bjarna-
dóttir, börn hennar eru Helga
Sigurrós og á hún eitt barn,
María Kristín, hún á eitt barn,
og Bjarni sem á eitt barn. B)
Finnur Ingi fæddur 20. febrúar
1958, dáinn 8. desember 2005.
Sonur hans og Nönnu Jóns-
dóttur er Steindór, hann á eina
dóttur. Finnur giftist Ásdísi Ár-
nýju Sigurdórsdóttur og saman
eignuðust þau börnin Ásu Guð-
rúnu, hún á tvö börn, Halldór og
Bryndísi. Finnur og Ásdís
skildu.
C) Karlotta Jóna f. 1. maí
1959, hennar maður er Ásgeir
Þór Árnason og eiga þau saman
dæturnar Guðnýju Sæbjörgu og
Ásdísi, fyrir á Ásgeir Þór börnin
Ásgeir Bjarna hann á 3 börn,
Ágúst, hann á 4 börn, og El-
ísabetu Ósk, hún á 2 börn.
D) Agnes f. 20. maí 1965,
hennar maður er Pálmi Jónsson
og eiga þau dæturnar Særúnu
Ósk og Hörpu Rán.
Útför Sæbjargar verður gerð
frá Reykhólakirkju í dag, laug-
ardaginn 21. júlí 2012 kl. 13.
manni sínum, Finni
Kristjánssyni, sem
þá var að taka við
búi foreldra sinna
og gengu þau í
hjónaband þann 16.
ágúst 1956. Þau
bjuggu allan sinn
búskap á Skerð-
ingsstöðum utan
eitt árið sem búfé
var skorið niður í
sveitinni og voru
þau þá í Mosfellsbænum.
Sæbjörg vann ýmis störf með-
fram húsmóðurstarfinu. Árið
1979 tók hún við útibús-
stjórastöðunni í Kaupfélagi
Króksfjarðar á Reykhólum og
gegndi því starfi í rúm 10 ár en
þá hóf hún störf við dvalarheim-
ilið Barmahlíð og vann þar til
1996 er hún hætti störfum
vegna aldurs.
Sæbjörg og Finnur eignuðust
saman 4 börn en fyrir átti Sæ-
björg soninn Jón Árna sem
fæddur er 13. mars 1954, faðir
hans er Sigurður Árnason. Kona
Jóns Árna er Steinunn Ólafía
Rasmus, hennar börn af fyrra
hjónabandi eru Björk, hún á 2
börn og Hlynur. Sonur Jóns
Árna og Margrétar Sveins-
Elsku mamma.
Þú kvaddir svo snöggt þennan
heim. Hefði viljað fá tækifæri til
að kveðja þig, halda í hönd þína og
þakka þér fyrir svo ótal margt. Þú
varst ávallt kletturinn í lífi mínu
og til þín leitaði ég þegar illa gekk
og eitthvað bjátaði á. Ég sakna
samverustundanna sem við áttum
saman vestur á Skerðingsstöðum
þegar ég kom þangað einn og við
sátum og spjölluðum saman um
lífið og tilveruna. Ég sakna símtal-
anna sem við áttum saman seinni
árin. Samtölin voru mörg en oftast
stutt, það var bara svo gott að
heyra í þér og vita að þér liði vel.
Þú komst sem ráðskona til
Skerðingsstaða vorið 1955 og
fljótlega eftir það fellduð þið pabbi
hugi saman og giftuð ykkur 14.
ágúst 1956 (þann sama dag var ég
skírður) og hafið lifað saman í
gegnum súrt og sætt alla tíð síðan.
Þið eignuðust saman fjögur börn
og af þeim hópi er ég elstur en þú
áttir fyrir Jón Árna. Þú átt nú hóp
glæsilegra afkomenda sem ég veit
að þú ert mjög stolt af og hefur
fylgst með af kostgæfni eins og
sannri ættmóður sæmir.
Sambúðin með pabba var þér
ekki alltaf auðveld (hann örlyndur
og ofur viðkvæmur) og tók stund-
um á en þú stóðst þig ávallt eins og
hetja og ekki síðast nú seinni ár
eftir að pabbi fluttist á elliheimilið
og þú heimsóttir hann þangað
hvern einasta dag, akandi á þínum
eigin bíl, 85 ára gömul (geri aðrir
betur).
Áföllin í lífi þínu urðu mörg. En
það þyngsta var fráfall og veikindi
bróður okkar Finns Inga sem lést
um aldur fram í desember 2005.
Sá atburður skildi eftir stór sár í
hjörtum okkar allra en ekki síst
þínu stóra og sterka móðurhjarta.
Þú lagðir ávallt mikið upp úr
því að vera sjálfstæð og þinn eigin
herra og ekki upp á aðra komin og
þú fékkst þá ósk þína uppfyllta að
fá að búa á Skerðingsstöðum til
síðasta dags. Það hefði ekki verið
mögulegt án óeigingjarnar hjálp-
ar Jóns Árna bróður míns og hans
fjölskyldu. Búskapur pabba síð-
ustu árin hefði heldur ekki verið
mögulegur ef hans hefði ekki not-
ið við. Kæri Jón, hafðu guðs þökk
fyrir allar þær stundir sem þú
gafst af þínu lífi og til að gera líf
mömmu og pabba lífið bærilegt
síðustu árin sem mamma lifði.
En móðurumhyggjan er sem óvinnanleg
borg. Móðirin er alltaf söm við sig; hún
gleymir aldrei sínu.
(Halldór Laxness.)
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Kærar þakkir fyrir allt og allt.
Guð blessi minningu þína, kæra
móðir.
Kær kveðja frá Möggu.
Þinn sonur,
Kristján.
Elsku mamma mín.
Þá ertu farin í síðustu ferðina
þína. Sorgin nístir hjarta mitt og
ég vil ekki trúa því að þú sért farin
en samt er ég líka glöð að þú hefur
fengið hvíld. Þú sagðir alltaf að þú
værir ekki hrædd við að deyja og
við töluðum um það ekki alls fyrir
löngu að við tryðum því báðar að
dauðinn væri ekki endir heldur
upphaf að einhverju nýju.
Ég er óendanlega glöð yfir því
að Guðný mín fékk að búa hjá þér
þessa síðustu mánuði og að Ásdís
mín var hjá þér nú í sumar. Fyrir
þær eru þetta ómetanlegar stund-
ir að fá að kynnast þér. Þegar ég
talaði við þig síðast frá Noregi
sagðir þú mér að þær væru grein-
lega alveg vissar um að þú ann-
aðhvort kynnir ekki að elda eða þá
að þú værir svo fátæk að þú ættir
ekki fyrir mat því að þú mættir
ekkert gera fyrir þær. Þú varst
líka svo glöð þegar ég sagði þér að
börnin hans Finns kæmu í sumar
og myndu koma vestur að heim-
sækja ykkur pabba.
Þegar ég hugsa til þín þá er
mér efst í huga hvað þú vildi alltaf
að við systkinin stæðum saman,
það var þín heitasta ósk að við
værum sátt hvort við annað og
hjálpuðum hvort öðru ef eitthvað
var að og ef við systkinin vorum
eitthvað ósátt sem stundum kom
fyrir þá varst þú ekki í rónni fyrr
en það var lagað. Ég verð líka að
minnast á þrjóskuna þína, þú fórst
það sem þú ætlaðir þér sama hvað
tautaði. Pabbi hafði einu sinni á
orði að þú værir svo þrjósk að ef
þú dyttir í Heyána þá mundi hann
leita að þér fyrir ofan foss því með
straumnum færir þú ekki.
Þú varst líka snillingur í hönd-
unum og peysurnar sem liggja eft-
ir þig eru óteljandi. Þú skarst líka
út klukkur fyrir okkur öll börnin
þín og gafst okkur nokkrum dög-
um áður en þú varst skorin við
heilaæxli. Þú varst ekki pólitísk en
hafðir nú samt þínar skoðanir þó
þú værir ekki endilega að flíka
þeim. Eitt var þó sem þú hafðir
sterkar skoðanir á og það var að
ganga ekki í Evrópubandalagið
því þá myndum við missa sjálf-
stæði okkar sem við hefðum barist
svo fyrir. Þú varst búin að biðja
Guðnýju mína að koma þér á kjör-
stað þegar kosið yrði hvernig sem
þú værir og þó hún þyrfti að bera
þig því þú ætlaðir að segja nei. Ég
get ekki notað atkvæðið þitt en
mitt færðu sama hvað tautar.
Síðustu árin hafa ekki verið þér
létt elsku mamma mín og getur
enginn sett sig í þau spor. Þegar
Finnur bróðir dó þá fór stór hluti
af þér með honum og eftir voruð
þið pabbi sem var farinn að heilsu
og flutti stuttu seinna á Barma-
hlíð. Á næstum hverjum einasta
degi fórstu til hans sama hvernig
þér leið, kannski örfáir dagar sem
þú komst ekki vegna eigin veik-
inda. Ég spurði þig oft hvort þér
leiddist að vera ein á Skerðings-
stöðum en þú sagðir svo ekki vera.
Samt held ég nú að þér hafi ekki
þótt það verra að hafa nöfnu þína
hjá þér í vor og sumar. Þú varst
búin að panta þér vist í Barmahlíð.
Ég er ekki alveg viss um að þú
hafir virkilega viljað þetta en
ákvörðunin var tekin. Þangað
ferðu ekki nema þú laumist inn að
handan og kyssir kallinn þinn á
kvöldin. Hver veit?
Guð blessi þig.
Þín dóttir,
Karlotta Jóna.
Elsku hjartans mamma mín.
Það er harla ótrúlegt að þú sért
farin frá okkur.
Alltaf kemur það manni jafn
mikið á óvart þegar kallið kemur.
Þú varst ofurhetja í mínum
augum, þú gast allt, þegar ég var
lítil gastu lagað dúkkurnar mínar
þegar þær löskuðust, þú kenndir
mér að lesa og prjóna og bara allt
sem lítið barn þurfti að læra.
Þið pabbi gáfuð okkur börnun-
um fallegt og gott heimili. Þú vild-
ir alltaf hafa fínt í kringum þig.
Hafðir yndi af pottablómum og
öllu sem var fallegt og skrautlegt.
Gestagangur var mikill á sumr-
in og stundum var sofið á öllum
auðum blettum sem fundust í hús-
inu. Þú bakaðir líka bestu smá-
kökur í heimi. Þegar ég fór að búa
og ætlaði að baka eftir uppskrift-
unum hennar mömmu, urðu mín-
ar nú aldeilis ekki eins góðar og
þínar voru alltaf. Það vantaði allt-
af mömmubragðið.
Þú varst mikil handavinnu-
kona, þú varst eiginlega alger
listamaður í höndunum. Allar
peysurnar sem þú prjónaðir um
dagana og fötin sem þú saumaðir
á okkur systkinin, oft upp úr
gömlum fötum. Fórst einnig á út-
skurðarnámskeið og gerðir klukk-
ur sem prýða veggi allra barna
þinna.
Það sem stytti þér stundir núna
síðustu ár var prjónaskapurinn.
Þú hafðir það markmið að prjóna
peysur á öll langömmubörnin sem
nú eru orðin tíu og gefa þeim í
jólagjöf. Þær flíkur eru alltaf hver
annarri fallegri og mikil natni lögð
í.
Ég var alltaf mikil mömmu-
stelpa. Þú sagðir mér oft söguna
af því þegar ég hafði sagt að ég
ætlaði að deyja þegar mamma
dæi. Eftir smátíma hugsaði ég
mig um og sá að það væri nú
kannski of mikið og sagði þá að ég
ætlaði allavega ekki að gifta mig
fyrr en mamma dæi. Hvorugt stóð
ég nú við sem betur fer.
Þú hafðir alltaf sterkar taugar
til æskuheimilis þíns, Sölvabakka.
Ég man að í hvert skipti sem þú
fórst með mig norður fórum við
niður í fjöru og þú sýndir mér
meyjardoppurnar sem voru á
Bóndakletti. Steininum fyrir neð-
an bæinn.
Elsku mamma mín, takk fyrir
að koma mér í þennan heim og
veita mér þá hlýju sem þú gafst
mér. Þú varst líka frábær amma,
spurðir alltaf eftir stelpunum mín-
um og honum Pálma þegar við töl-
uðum saman.
Pabbi á eftir að sakna þín mik-
ið, en við börnin þín og fjölskyldur
reynum að gera allt sem við get-
um fyrir hann þar til þið pabbi
hittist aftur.
Elsku mamma, ég sakna þín
óendanlega mikið en ég veit að þú
ert hjá mér. Þú varst besta
mamma í heimi. Nú ertu líka kom-
in til elsku Finns Inga bróður.
Megir þú hvíla í friði.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Þín dóttir,
Agnes.
Það er skammt stórra högga á
milli. Fyrir tveimur mánuðum
kvaddi móðir mín þetta tilveru-
stig. Nú kveður elsku tengdamóð-
ir mín einnig. Kall hennar bar
mjög brátt að. Daginn áður fór
hún að venju inn í Barmahlíð til
Finns eins og hún var vön að gera,
nánast upp á hvern dag síðastliðin
ár. Þetta fór hún allt sjálf á litla,
sæta, rauða bílnum sínum sem
hún sagði að brosti alltaf við sér
þegar hún kæmi út. Já, hún vildi
helst gera allt sjálf og ekki vera
upp á aðra komin. Hún var ekki að
kvarta frekar en móðir mín, það
var svo fjarri henni.
Fyrir 27 árum flutti ég til
Reykhóla með börnin mín tvö,
Björk og Hlyn, og urðum við fljót-
lega hluti af hennar fjölskyldu.
Okkur var tekið opnum örmum og
Björk og Hlynur eignuðust sko
ömmu og afa á Skerðingsstöðum.
Elsku Sæbjörg mín, þín er sárt
saknað en núna ertu eflaust farin
Guðný Sæbjörg
Jónsdóttir
MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum
við fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu og
fría pökkun á legsteinum sem fara út á land
Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð
Sími 892 4650
Gísli Gunnar
Guðmundsson
Guðmundur
Þór Gíslason
Elfar Freyr
Sigurjónsson
Netfang: foldehf@simnet.is - Vefsíða: foldehf.is
Vistvænar íslenskar kistur
Þjónusta allan sólarhringinn.
Komum heim til aðstandenda ef óskað er.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, vinkona, amma
og langamma,
JÓNÍNA MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
sunnudaginn 15. júlí, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 24. júlí kl. 11.00.
Hörður Halldórsson, Þórgunnur Skúladóttir,
Gunnlaugur Halldórsson,
Bryndís Halldórsdóttir, Hany Hadaya,
Matthías Bjarnason,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN ÞORKELL HÁKONARSON,
Kristnibraut 49,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 15. júlí verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 24. júlí kl. 15.00.
Helga Ívarsdóttir,
Ívar Guðjónsson, Urður Njarðvík,
Sævar Guðjónsson, Guðrún Jónsdóttir,
Guðný Svandís Guðjónsdóttir, Halldór Guðfinnsson,
Viðar Guðjónsson, Ástríður Viðarsdóttir
og barnabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar
HREINS SNÆLANDS HALLDÓRSSONAR
bifvélavirkjameistara,
Lautasmára 1.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Drafnarhúss í
Hafnarfirði og hjúkrunarheimilisins Markar
fyrir alúð og umhyggju í veikindum hans.
Elín Kristinsdóttir,
Anna Kristín og Halldóra Hreinsdætur.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
HAFDÍS BJÖRK HERMANNSDÓTTIR,
Einilundi 2f,
Akureyri,
er látin.
Stefán Böðvar Þórðarson,
Þórður Stefánsson, Margrét Hildur Kristinsdóttir,
Hermann Stefánsson, Ragnheiður María Harðardóttir,
Böðvar Stefánsson, Karólína Dóra Þorsteinsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR,
síðast til heimilis að Sólvangi,
Hafnarfirði,
lést fimmtudaginn 19. júlí.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Hilmar Karlsson, Kristín Ingvadóttir,
Þorleikur Karlsson, Áslaug Hringsdóttir,
Kristján Karlsson,
ömmubörn og langömmubörn.