Morgunblaðið - 21.07.2012, Síða 29

Morgunblaðið - 21.07.2012, Síða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012 að dansa kósakkadansinn aftur eins og þú gerðir stundum fyrir okkur, en þá varstu komin á átt- ræðisaldurinn. Þú varst ótrúlega kona. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til allra ættingja og vina. Steinunn Ó. Rasmus. Elskuleg tengdamóðir mín, Guðný Sæbjörg, er látin. Ég kynntist Sæbjörgu fyrst fyrir 25 árum þegar ég kom að Skerðings- stöðum með Karlottu Jónu dóttur hennar til að dvelja hjá þeim heið- urshjónum yfir jól og áramót. Strax þegar við hittumst fann ég hlýleika hennar umvefja mig og hefur sá hlýleiki og væntumþykja ávallt verið til staðar allar götur síðan. Á aðfangadag settum við Kar- lotta Jóna upp trúlofunarhringana og skynjaði ég þá að ég hafði eign- ast aðra móður. Sæbjörg var hlédræg kona en fylgdist vel með öllu á sinn hátt. Víðlesin var hún og fátt sem hún vissi ekki deili á, hvort sem það varðaði heimahagann í Húna- vatnssýslu, sveitina hennar Reyk- hóla, landsmálin eða það sem var að gerast erlendis. Hannyrðir léku í höndum henn- ar, hvort sem það var að prjóna, sauma eða skera út klukkur úr við. Ávallt mun ég heyra og geyma kveðjuorðin hennar þegar við kvöddumst, þá var hún vön að segja: „Þakka þér fyrir allt, Ás- geir minn.“ Það kom okkur á óvart er við heyrðum að hún hefði veikst og verið væri að flytja hana í sjúkra- bíl suður til skoðunar en hún var dáin áður en þangað var komið. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Ég vil votta ættingjum Sæ- bjargar mína innilegustu samúð. Elsku Sæbjörg mín, hafðu bestu þakkir fyrir allt og allt. Þinn tengdasonur, Ásgeir Þór Árnason. Hún var í hjarta prúð, hreinskilin, viðmótsþýð; hógværð var hennar skrúð, hófsemi, stillíng fríð; háttu og hegðan alla guðræknis skreytti birta blíð. Mannástin helg og hrein hennar í brjósti var, hún vildi hvers á mein hönd leggja fróunar, góðverk hún gjörði eigi sér til fánýtrar fordildar. Hún þolgóð þrautir bar, þá sterk, er reynd var mest; ástvinum engill var, af guði sendur bezt sorgþjáðan sefa’ að hugga og allan hugar bæta brest. Guð tók mitt góða víf, guð þekkir hrelldra tár; guð, sem er ljós og líf, ljósgeislum þerrar brár sinna syrgjandi barna, þegar upp rennur eilíft ár. (Jón Thoroddsen.) Takk fyrir allt. Þinn tengdasonur, Pálmi Jónsson. Elsku amma mín. Við Saga ætluðum að koma til þín í sumarfríinu. Ég ætlaði að prjóna með þér, drekka kaffi með molasykri og ræða hin ýmsu mál við þig, svona eins og við gerðum alltaf þegar við hittumst. Ég ætl- aði að sýna Sögu sveitina og njóta þess að vera með þér. Í staðinn fylgjum við þér til grafar. Helstu minningarnar mínar, með þér, eru frá því ég var lítil. Það var svo gott að vera hjá ykkur afa, fara í varpið, stelast á hest- bak, stela hveiti úr hveitiskúffunni til að nota í bakstur í búinu, taka á móti folöldum, jarða mýs sem tóku sér aðsetur í húsinu, hoppa í heyinu og ýmislegt fleira. Það var samt mun skemmtilegra að fara með þér í bíltúr því þú keyrðir svo hratt en mér fannst afi lúsast áfram. Þú varst svo mikill töffari á bílnum. Ég er leið yfir því að hafa ekki fengið að kveðja þig eins og maður vill kveðja þann sem aldrei kemur aftur. Saga varð líka mjög leið þegar ég sagði henni að amma væri farin til guðs. En hún varð allt í einu mjög glöð því hún sagði mér að nú værir þú komin til Nan- gíala og myndir hitta Snúð og Jón- atan. Elsku amma mín, ég elska þig og sakna þín og segi góða ferð. Knúsaðu Finn frænda frá mér. Þín sonardóttir, Sjöfn. Elsku amma, ég man þegar þú komst til Reykjavíkur og ég fékk alltaf að kúra með þér, fyrst í svefnsófanum í stofunni og svo inni í mínu herbergi. Ég man þeg- ar mamma var að vekja mig í skól- ann og ég vildi sofa lengur að þá potaðirðu í mig og sagðir: „Hlýddu nú mömmu þinni“ og þá yfirleitt gat ég ekki þrjóskast við lengur, ekki af því ég vildi hlýða mömmu heldur þér. Mikið er ég þakklát fyrir að hafa átt þig sem ömmu, falleg og yndisleg í alla staði. Þú máttir aldrei aumt sjá og er mér það mjög minnistætt þegar við vorum á Skerðingsstöðum ein jólin og jólasveinninn gaf mér kartöflu í skólinn, ég var svo sár og móðguð yfir þessu, þú varst ekki lengi að fara upp í skáp og ná í nammi fyrir mig í sárabætur. Elsku amma, ég trúi ekki að þú sért farin. Ég sakna þín. Það er tómlegt í kotinu en þó ekki of tóm- legt, því hér á Skerðingsstöðum er fullt af minningum, minningum sem aldrei munu gleymast. Ég fékk þann heiður að fá að búa hjá þér síðustu mánuði og er sá tími mér ómetanlegur. Kvöldin sem við sátum og horfðum á sjónvarpið og spjölluðum. Við töluðum um svo margt, mest fannst mér gam- an að tala um gamla tíma, þú hafð- ir frá svo miklu að segja, og örugglega margar sögur sem ég hef ennþá ekki heyrt. Ég vona að þú hafir fengið að vita hvernig Leiðarljós endaði, ég mun allavegana aldrei gleyma því að þegar Leiðarljós var í sjón- varpinu, það var þinn tími og mátti lítið sem ekkert trufla þig. Þetta vissi afi og man ég eitt skipti þegar hann hringdi á Leiðarljósa- tíma og sagði eiginlega strax þeg- ar ég svaraði: „Er amma þín að horfa á Leiðarljós?“ eða eitthvað í þá áttina. Ég var meira að segja dottin inn í þáttinn þinn og sat með þér og horfði, fannst hann vera spennandi. Ekki var nú verra að þú þekktir allar persónur inn og út og útskýrðir fyrir mér ef ég var ekki með á nótunum. Ég gæti skrifað endalaust meira, því minningarnar eru svo margar og skemmtilegar. En nú kveð ég þig og bið Guð að varð- veita þig. Ég elska þig. Þín dótturdóttir og nafna, Guðný Sæbjörg. Elsku amma mín. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Takk fyrir að leyfa mér og Bæron að vera hjá þér í sumar, ég mun aldrei gleyma þér eða stundunum okkar saman. Ég veit að þú ert núna hjá Finni frænda og Hrefnu, mömmu henn- ar Steinu. Kannski getið þið Hrefna horft á Leiðarljós saman. Elsku amma mín, ég skal passa afa fyrir þig. Blessuð sé minning þín. Þín Ásdís. Amma gefur alltaf ís. Hún amma hafði alltaf eitthvað að gefa, hvort sem það var ís, góð heilræði eða uppskrift af Góðustukökum. Það lifir svo sterkt í minningunni þegar amma leyfði okkur barna- börnunum að tína rabbabara og svo fengum við að dýfa honum í sykurkarið og borða. Við fengum líka öll að smakka kaffið hennar því hún dýfði sykurmola ofaní og laumaði að okkur. Hún var alltaf svo blíð og góð og aldrei skamm- aði hún okkur nema kannski ef upp úr okkur datt blótsyrði. Hún amma hafði ekki misst sjónar á barnatrúnni og hjá henni lærði ég ýmis kvæði og bænir og stundum fékk ég að heyra dæmi- sögur. Það var alltaf svo gott að vera í pössun á Skerðingsstöðum, horfa á gömul áramótaskaup og kúra hjá ömmu. Þá lásum við Pipp og alltaf fórum við með kvöldbæn og morgunbænina sem hún kenndi mér: Nú er ég klæddur og komin á ról, Kristur Jesús veri mitt skjól, í guðsóttanum gefðu mér, að ganga í dag, svo líki þér. (Höf. ók.) Elsku amma mín. Ég veit að þú óttaðist ekki, þú vissir að þín biði ekkert nema gott. Þú færð nú að hitta elsku Finn, son þinn, sem fór allt of fljótt. Ég veit að á móti þér tekur fjöldinn allur af fólki sem passar uppá þig alveg eins og þú passaðir alltaf upp á okkur. Ég gat alltaf leitað til þín og þú hlust- aðir alltaf. Það var svo gott að sitja hjá þér og skoða fallegu peysurn- ar, sem þú prjónaðir svo listavel fyrir barnabarnabörnin, og spjalla um allt milli himins og jarðar. Þú varst svo sterk og sjálfstæð. Ég vona að ég fái þó ekki sé nema vott af styrk þínum og ákveðni. Elsku amma, þín verður sárt saknað og minning þín mun alltaf lifa í huga mér. Guð geymi þig. Hrefna Jónsdóttir. Ég man þegar hún amma var að prjóna peysur á okkur barna- börnin. Ég man þegar hún amma var að stinga sykurmolum í kaffið sitt og gefa mér. Ég man þegar hún var að passa mig og hún gaf mér alltaf ís þegar ég kom í heim- sókn. Ég man líka þegar hún var að spila við mig og kenna mér fullt af köplum. Ég man þegar hún var að gefa okkur rabarbara og leyfði okkur að stinga honum í sykur- karið. Elsku amma mín, mér þykir rosalega vænt um þig og ég er alltaf með þig í hjartanu. Guðný Sæbjörg Jónsdóttir. Elsku besta amma mín, það er erfitt að hugsa til þess að maður fái ekki að sjá þig aftur. Þú varst langbesta amma í heimi. Þú varst svo hlý og góð og vildir allt fyrir alla gera. Ég man sérstaklega eft- ir því þegar ég var að fylgjast með ömmu hekla í stólnum sínum og ég bað hana um að kenna mér. Þetta gekk ekki alveg nógu vel hjá mér en þú varst svo þolinmóð og góð við mig. Hádegismaturinn hjá ömmu var sá besti. Þegar við fjölskyldan fórum vestur til ömmu og afa þá gat maður alltaf treyst á það að amma myndi elda besta lamba- læri í heimi. Eftir matinn var allt- af borinn fram ís og ávextir. Öll barna- og barnabarnabörnin vissu það að amma Sæbjörg átti alltaf nóg af ís í frystikistunni. Ég á frekar erfitt með að trúa því að þú sért farin, en mér hlýnar við tilhugsunina um að núna eruð þið Finnur frændi saman að fylgj- ast með okkur. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Góða ferð, elsku amma mín. Sjáumst seinna. Harpa Rán. Elsku amma mín. Mér finnst enn svo skrýtið að þú sért farin frá okkur. Að ég fái aldrei aftur að heimsækja þig á Skerðingsstaði. Ég var þó svo heppin að fá að vera hjá þér og afa í nokkra daga yfir sumartímann þegar ég var lítil. Fara með afa í fjárhúsin og fylgjast með þér gera vöfflur í eldhúsinu. Ég man þó sérstaklega eftir því þegar ég ætl- aði í göngutúr upp að húsinu hans Halla en kem hlaupandi og öskrandi til baka. Það var geit á túninu sem ætlaði að stanga mig! Þú varst heldur betur ekki að kaupa það enda voru engar geitur á svæðinu. Þú labbaðir með mig upp á tún og sýndir mér að þetta var bara venjulegur hrútur. Eftir það gat ég andað léttar en var þó alltaf smeyk við þennan sama hrút. Árin liðu og ég byrjaði að æfa á franskt horn í tónlistarskóla. Þeg- ar þú varðst sjötug langaði mig svo að spila handa þér afmælislag- ið í veislunni sem var haldin heima í Hafnarfirðinum. Ég var 10 ára, nýbyrjuð að æfa og var því ansi feimin að spila fyrir svona mörg andlit sem ég þekkti. Við fyrsta tón byrjaði ég að flissa og út kom ansi skrýtið hljóð. Ég reyndi aftur og aftur en fór alltaf að flissa. Þetta fannst þér hin mesta skemmtun og hlóst dátt með mér. Mig minnir að ég hafi aldrei kom- ist í gegnum lagið en fyrir þér skipti hugurinn mestu máli. Elsku besta amma, takk fyrir allar góðu stundirnar sem við höf- um átt saman. Ég veit að Finnur frændi tók vel á móti þér og að þið hafið það gott saman á ný. Særún Ósk. Sendum frítt hvert á land sem er Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, KRISTRÚN GUÐNADÓTTIR, lengst af til heimilis á Fornhaga 11, Reykjavík, sem lést 16. júlí á Droplaugarstöðum, verður jarðsungin frá Neskirkju þriðjudaginn 24. júlí kl. 15. Guðni Harðarson, Helga Harðarson, Grétar Hrafn Harðarson, Sigurlína Magnúsdóttir, Sverrir Harðarson, Sólrún Harðardóttir, Skúli Skúlason, Elva Harðarson, Lilja Harðarson, Styrmir Grétarsson, Berglind Elíasdóttir, Björk Grétarsdóttir, Arnheiður Gróa Björnsdóttir, Kristrún Sverrisdóttir, Salka Sif Styrmisdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG PÁLSDÓTTIR frá Refstað í Vopnafirði, Stigahlíð 36, lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands miðvikudaginn 11. júlí. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. júlí kl. 13.00. Margrét Steinarsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Steingerður Steinarsdóttir, Guðmundur Bárðarson, Helen Sjöfn Steinarsdóttir, Svanhildur Steinarsdóttir, Ragnar Ólafsson, Svava Svanborg Steinarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, mágkonu, ömmu og langömmu, INGIGERÐAR ÞÓRÖNNU MELSTEÐ BORG hjúkrunarfræðings, Freyjugötu 42, Reykjavík, sem lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn 22. júní. Sérstakar þakkir fá starfsmenn Grundar fyrir framúrskarandi umönnun og hjúkrun Ingu. Anna Elísabet Borg, Rein Norberg, Elín Borg, Benedikt Hjartarson, Óskar Borg, Berglind Hilmarsdóttir, Páll Borg, Ingunn Ingimarsdóttir, Anna Borg, Eva Dögg, Rakel Björk, Thelma Hrund, Inga, Hildur Emma og Elín Ósk. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR PÉTUR ÞORLEIFSSON, kaupmaður, Egilsgötu 12, Reykjavík, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 19. júlí. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 26. júlí kl. 15.00. Valgerður Auður Elíasdóttir, Þorleifur Sigurðsson, Brynja Dagbjartsdóttir, Hjalti Sigurðsson, Þórey Dögg Pálmadóttir, Margrét Sigurðardóttir, Þórður Jónsson, Sigurður Sigurðsson, Guðrún Björk Reykdal, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐRÚN MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR, Faxatúni 14, Garðabæ, andaðist þriðjudaginn 17. júlí í Holtsbúð, Vífilsstöðum. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 25. júlí kl. 13.00. Kjartan Friðriksson, Ingibjörg Kjartansdóttir, Salomon Kristjánsson, Kristín Kjartansdóttir, Sigurður Þ. Sigurðsson, Anna Kjartansdóttir, Brynja Kjartansdóttir, Albert B. Hjálmarsson, barnabörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.