Morgunblaðið - 21.07.2012, Side 31
MESSUR 31Á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur er sr. Svavar Al-
freð Jónsson. Félagar úr kór Akur-
eyrarkirkju syngja. Organisti er
Eyþór Ingi Jónsson. Halla Steinunn
Stefánsdóttir og Guðrún Óskars-
dóttir leika á fiðlu og sembal.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi
Þórarinsson. Organisti Kristina
Kalló Sklenár. Kaffisopi eftir stund-
ina.
BESSASTAÐAKIRKJA | Sam-
eiginleg messa Bessastaða- og
Garðasóknar í Garðakirkju kl. 11.
Sjá www.gardasokn.is
BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl.
11. Tónlist í flutningi félaga úr Kór
Bústaðakirkju og kantor Jónas Þórir
við hljóðfærið. Messuþjónar aðstoða.
Prestur er sr. Pálmi Matthíasson.
Kaffi á eftir.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl.
11 í Kópavogskirkju. Lokað vegna
sumarleyfa í Digraneskirkju. Sjá
www.digranekirkja.is
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr.
Þórir Stephensen fyrrv. dómkirkju-
prestur prédikar, sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson þjónar fyrir altari.
Sönghópur úr Dómkórnum syngur,
organisti er Kári Þormar. Dóttur-
dóttir sr. Þóris, Dagbjört Andrés-
dóttir syngur einsöng.
GARÐAKIRKJA | Sumarmessan
kl. 11. Sr. Friðrik J. Hjartar prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Organisti er
Sólveig Einarsdóttir. Sjá
www.gardasokn.is
GLERÁRKIRKJA | Gönguguðs-
þjónusta kl. 20. Létt ganga um
hverfið, sem hefst og endar með
stuttri helgistund í Glerárkirkju.
Umsjón Arna Ýrr Sigurðardóttir.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Séra Sigurður Grét-
ar Helgason prédikar og þjónar fyrir
altari. Forsöngvari: Björg Þórhalls-
dóttir. Organisti: Hilmar Örn Agn-
arsson.
Kaffi eftir messu.
GRENSÁSKIRKJA | Lokað til 7.
ágúst.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafar-
holti | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur
sr. Sigríður Guðmarsdóttir, organ-
isti Arnhildur Valgarðsdóttir og
Ágústa Dómhildur spilar á fiðlu.
Meðhjálpari Aðalsteinn D. Októs-
son, kirkjuvörður Lovísa Guðmunds-
dóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA |
Sumarmessa kl. 11, organisti er
Bjartur Logi Guðnason. Sr. Guð-
björg Jóhannesdóttir þjónar.
HALLGRÍMSKIRKJA | Orgel-
tónleikar laugardag kl. 12, Roger Sa-
yer frá Englandi leikur. Messa og
sögustund fyrir börn kl. 11. Sr. Birg-
ir Ásgeirsson prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt Rev. Leonard As-
hford. Messuþjónar aðstoða. Fé-
lagar úr Mótettukórnum syngja org-
anisti er Guðný Einarsdóttir.
Tónleikar kl. 17, Roger Sayer frá
Englandi leikur á Klais-orgelið.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Félagar úr Kammerkór Háteigs-
kirkju syngja. Organisti Kári Allans-
son. Prestur sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykja-
vík | Samkoma kl. 17. Umsjón:
Margaret Saue Marti.
HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Ólafur Hallgrímsson messar.
Organisti Jóhann Bjarnason. Tón-
leikar kl. 14. Hallfríður Ólafsdóttir
leikur á flautu, Ármann Helgason á
klarinett og Eydís Franzdóttir á óbó.
HVALSNESSÓKN | Eiríksreið.
Hjólað frá Útskálakirkju kl. 10 milli
kirkna á Suðurnesjum. Farið í
Hvalsneskirkju, Innri-Njarðvíkur-
kirkju og Keflavíkurkirkju. Stutt
stopp með andlegri næringu á hverj-
um stað. Umsjón hefur sr. Sigurður
Grétar Sigurðsson.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 20 með lofgjörð og fyrir-
bænum. Unnar Erlingsson predikar.
Kaffi á eftir.
KAÞÓLSKA kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa
kl. 11 og laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa
kl. 11. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa
kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30
(nema föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði |
Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík |
Messa kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa
kl. 10.30, kl. 13.00 á pólsku og á
ensku kl. 18. Virka daga er messa kl.
18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk |
Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30.
Laugardaga er messa á ensku kl.
18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Hjólað
á milli kirkna á Suðurnesjum: Út-
skála-, Hvalsnes, Kirkjuvogs- og
Keflavíkurkirkja heimsóttar. Einn
liður guðsþjónustunnar lesinn á
hverjum stað. Ferðin er farin til
minningar um sr. Eirík Brynjólfsson
sem þjónaði þessu svæði á fyrri hluta
20. aldar og notaðist við hjólhest í
embættiserindum sínum. Lagt af
stað kl. 10 frá Útskálakirkju. Prest-
ur er sr. Sigurður Grétar Sigurðs-
son.
KLYPPSSTAÐARKIRKJA í Loð-
mundarfirði | Messa kl. 14. Sr. Lára
G. Oddsdóttir, prédikar. Sr. Jóhanna
Sigmarsdóttir þjónar fyrir altari.
Kaffi eftir messu í Ferðafélags-
skálanum.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Guðni Már Harðarson
prédikar og þjónar fyrir altari. Org-
anisti er Zbigniew Zuchowich.
LANGHOLTSKIRKJA | Bent er
á messu í Bústaðakirkju kl. 11.
LÁGAFELLSKIRKJA | Messa kl.
20. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir þjón-
ar fyrir altari og fer með hugvekju.
Organisti Arnhildur Valgarðsdóttir.
Arnþrúður Ösp Karlsdóttir söng-
kona leiðir söng.
LINDAKIRKJA í Kópavogi |
Sunnudagaskóli kl. 11. Útileikir ef
veður leyfir.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Örn Bárður Jónsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Kaffisopi eftir
messu á Torginu.
SALT kristið samfélag | Sam-
koman fellur inn í kristniboðsmót
SÍK að Löngumýri Skagafirði
helgina 20.-22. júlí.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11.
Kirkjukór Selfoss leiðir söng undir
stjórn Jörgs Sondermann. Súpa,
brauð og kaffi í umsjón kvenfélags-
kvenna eftir messuna. Prestur sr.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 20. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórs-
son prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Seljakirkju leiðir söng.
Organisti: Tómas Guðni Eggerts-
son. Altarisganga.
SELTJARNARNESKIRKJA |
Helgistund kl. 11. Toshiki Toma leið-
ir stundina.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA |
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Hátíðar-
messa á Skálholtshátíð, kl. 14. Sr.
Kristján Valur Ingólfsson, Skál-
holtsbiskup prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Agli Hallgrímssyni
sóknarpresti. Skálholtskórinn syng-
ur. Margrét Bóasdóttir syngur ein-
söng. Organisti Jón Bjarnason.
Kaffiveitingar í Skálholtsskóla eftir
messuna. Hátíðarsamkoma kl. 16.
Biskup Íslands sr. Agnes Sigurðar-
dóttir flytur ávarp.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Eiríksreið.
Hjólað frá Útskálakirkju kl. 10 milli
kirkna á Suðurnesjum. Farið í
Hvalsneskirkju, Innri-Njarðvíkur-
kirkju og Keflavíkurkirkju. Stutt
stopp með andlegri næringu á hverj-
um stað. Umsjón hefur sr. Sigurður
Grétar Sigurðsson.
VÍDALÍNSKIRKJA | Sameigin-
leg messa Garða- og Bessastaða-
sóknar í Garðakirkju kl. 11. Sjá
www.gardasokn.is
ÞINGEYRAKLAUSTUR-
SKIRKJA | Helgistund kl. 14 í
umsjá Kristínar Árnadóttur djákna
Húnavatns- og Skagafjarðarpró-
fastsdæmis. Orgelleikari Elinborg
Sigurgeirsdóttir. Kaffi og kleinur í
boði að helgistund lokinni.
ORÐ DAGSINS:
Jesús mettar 4 þús.
manna. (Mark. 8)
ljósmynd/Magnús R. Jónsson
Klyppsstaðarkirkja í Loðmundarfirði
Hún er látin hún
Sigrún, tengda-
mamma, og með
henni er genginn einn besti vin-
ur minn. Sigrún var Thoraren-
sen og gift Auðuns, og þar með
rækilega vígð inn í íslenskan
landsbyggðaraðal, þann hluta
samfélagsins sem fer ört þverr-
andi en stóð sterkum fótum
þegar sú sem fallin er frá var
upp á sitt besta. Og í hverju
skyldi aðalsmerki þessarar ynd-
islegu konu hafa verið falið?
Sigrún var svo hæglát og
geðgóð að ég sá hana aldrei
skipta skapi. Þótt tengda-
Sigrún
Thorarensen
✝ Sigrún Thor-arensen fædd-
ist á Flateyri 9. des-
ember 1927. Hún
andaðist á Drop-
laugarstöðum 15.
júní 2012.
Útför Sigrúnar
fór fram í kyrrþey.
mömmubrandar-
arnir skiptu þús-
undum átti enginn
þeirra við um hana.
Okkur Sigrúnu
varð aldrei sundur-
orða öll þau fjöru-
tíu ár, sem við
þekktumst. Það
segir ekkert um
skaplyndi mitt en
allt um geðprýði
hennar, sem ég
held að allir geti samsinnt, sem
hana þekktu að hafi átti drjúg-
an þátt í hve heillandi hún var
og aðlaðandi.
Í heimi sem telur á áttunda
milljarð fullum af tjóni út af til-
gangslausum átökum er hróp-
legur skortur á aðli eins og Sig-
rúnu. Ekki var það vegna þess
að lífið væri henni svo hliðhollt,
öðru nær. Hún missti elskuleg-
an eiginmann sinn, Árna, áður
en einkadóttir þeirra, eiginkona
mín Margrét, fæddist. Í staðinn
fyrir að binda trúss við annan
mann flutti hún suður og vann
hörðum höndum fyrir örfjöl-
skyldu sinni meðan hún glímdi
við alvarlegan sjúkdóm, sem á
endanum rændi hana öðru lung-
anu.
Sigrún kaus fremur að fara
halloka fyrir vonsku heimsins
en tapa skapfestu sinni og hóg-
værð. Hún sneri erfiðleikum
æskunnar í sigur með dyggum
stuðningi foreldra sinna, Ingi-
bjargar og Ragnars, sem eins
og hún voru hógværðin og elju-
semin uppmáluð. Hún gerði
ekki mikið úr erfiðleikum bú-
skaparáranna og örvæntingu
ekkjukostsins í mín eyru heldur
bar sig höfðinglega og tók mót-
lætinu með aðdáanlegri reisn.
Þannig skein í aðalskonuna
undir hæglátu æðruleysinu,
prúðbúna, sposka, fordómalausa
og hugljúfa.
Þegar ég hugsa til hennar
minnist ég síðustu samveru-
stundanna á Droplaugarstöðum,
þar sem hún dvaldi undir lokin.
Hún rifjaði upp brot úr barn-
æsku sem staðfesta kjarnann í
henni. Þegar móðurafi hennar,
Markús Gissurarson, bóndi og
sjómaður úr Álftafirðinum,
neyddist til að bregða búi vegna
blindu og flytjast þvert yfir
landið til Vestfjarða varð hann
aufúsugestur á æskuheimili Sig-
rúnar heitinnar á Flateyri þótt
þar væri rúmmetrafjöld ekki
fyrir að fara. Barnung annaðist
Sigrún hann með því að ljá hon-
um sjón sína þegar hann þurfti
að ferðast um heimili og þorp.
Hafi eitthvað komið íslenskri
þjóð gegnum aldalangar þreng-
ingar er það ekki fólk sem slær
um sig með digurbarka og
hamagangi. Það eru hvorki
hetjur fornritanna né höfðingja-
lýður sá sem gekk að þjóðveld-
inu dauðu heldur venjulegt,
hæglátt fólk sem líkt og Sigrún
var tilbúið að ljá sínum nánustu
augu sín þegar þeir þurftu á
annarra skilningarvitum að
halda til að komast fetið. Það er
nefnilega fetið sem hefur komið
okkur áfram í aldanna rás en
ekki langstökkið eða hástökkið.
Þetta fékkstu mig til að
skilja Sigrún mín, með fordæmi
þínu og óendanlegri hugprýði.
Og söknuðurinn er þeim mun
meiri eftir því sem svo fáir
standa eftir sem farið geta í föt-
in af þér.
Halldór Björn Runólfsson.
Þann 15. júní síðastliðinn
kvaddi elsku amma mín, Sigrún
Thorarensen, þennan heim. Frá
því að ég var kornungur hefur
amma verið stór þáttur í mínu
lífi og sjálfsagt aldrei eins mikið
og á uppvaxtarárum okkar
systkinanna þar sem hún var til
staðar fyrir okkur sem þriðja
foreldri. Ég minnist ófárra
skipta sem hún passaði okkur
þegar við vorum lítil og hvað
við hlökkuðum mikið til að vera
hjá henni þar sem hún vildi allt
fyrir okkur gera. Örlæti hennar
átti sér engin mörk og þurftum
við sjaldnast að biðja um nokk-
uð þar sem hún varð alltaf fyrri
til að bjóðast til þess að gera
hluti fyrir okkur, hvort sem það
var að segja okkur sögur, laga
pönnukökur eða kaupa handa
okkur hvað sem hugurinn girnt-
ist.
Jafnvel þegar við fjölskyldan
fluttum til Finnlands í þrjú ár
gat ég ávallt treyst á að amma
mín á Íslandi myndi leggja leið
sína í hverri viku á pósthús og
senda mér eitt stykki Andrés-
blað svo ég myndi örugglega
ekki missa af nýjustu fréttum
úr Andabæ. Í raun skipti engu
máli hvað það var sem okkur
vantaði, amma okkar fór alltaf
úr vegi sínum til að ég og systir
mín hefðum það sem best því
svo lengi sem við vorum ánægð
þá var hún það líka. Jafnvel
þegar hún var ekki upp á sitt
besta var henni ávallt meira
umhugað um okkur en sjálfa
sig. Þessi eiginleiki hennar var
án efa sá sem einkenndi hana
hvað mest og ég er henni æv-
inlega þakklátur fyrir. Í mínum
huga er ekki hægt að hugsa sér
betri ömmu.
Eftir að við systkinin uxum
úr grasi héldum við alltaf
sterku sambandi við ömmu okk-
ar og síðustu árin heimsóttum
við hana vikulega sem ég veit
að gladdi hana mikið. Þessar
stundir með henni voru mér
ómetanlega kærar og finnst
mér mikilvægt að hafa getað
endurgoldið henni smábrot af
þeim tíma, þeirri orku og þeim
óteljandi hlutum sem hún gaf
okkur á okkar yngri árum. Ég
mun sakna hennar mikið en líð-
ur vel vitandi að hún hvílir nú í
faðmi afa míns og þrátt fyrir að
hún sé farin munu þær ljúfu
minningar sem ég á um hana
fylgja mér til æviloka.
Árni Halldórsson.
MINNINGAR