Morgunblaðið - 21.07.2012, Side 33

Morgunblaðið - 21.07.2012, Side 33
auðvitað mjög góðir tímar en engu að síður kafli sem er liðinn og sem ég ætlaði mér aldrei að festast í. Plötu- bransinn var grasrótarstarf og ég hafði ákveðið, löngu áður en ég hætti, að hefja nýjan feril í nýrri grasrót, eða eins og Savanatríóið orðaði það: „Ég ætla að hefja annað líf – á annarri stöð“. Ég held að ég hafi söðlað um á góðum tíma. Við keyptum jörðina hérna fyrir ellefu árum, höfum búið hér í níu ár og verið með ferðaþjón- ustuna hér í Fossatúni í átta ár. Við erum ánægð með staðinn og okkur líður mjög vel hér.“ En þú ert samt ekki hættur að hlusta á tónlist? „Nei, nei. Við erum einmitt með sérstakt kaffihús hér sem heitir Kaffi Vinyll. Þar er gamla vinyl- safnið mitt, 3.000 vinylplötur sem gestir geta flett í og beðið um að láta spila fyrir sig. Ég hef nú ennþá gaman af gamla blúsnum sem við hlustuðum á í kringum 1970, Fleetwood Mac, John Mayall og Cream. En ég finn að ég er að færast nær alþýðlegri tónlist með aldrinum, svona samblandi af rokki og sveitatónlist. Svo hlusta ég auðvitað alltaf á frumkvöðla rokks- ins, og Bítlana og Stones.“ Steinar er nú kominn hinum meg- in við borðið í tónlistinni því hann stofnaði hljómsveitina Grasasnana, árið 2012 sem nú þegar hafa sent frá sér stuttplötuna Stutt í brosið og munu senda frá sér nú í haust tólf laga LP-plötu, Til í tuskið. Þá er hann nú meðlimur í Rithöfunda- sambandi Íslands, skrifar af kappi og hefur sent frá sér eftirfarandi bækur: Tryggðatröll, útg. 2007; Töllagleði, útg. 2009, og Hringaló og Grýla, f. 2010. Steinar gegndi ýmsum trún- aðarstörfum fyrir Samband hljóm- plötuframleiðenda og Samband flytjenda og hljómplötuframleið- enda, var formaður beggja sam- bandanna um árabil, gegndi einnig trúnaðarstörfum fyrir Samtök myndabandaútgefenda, þ.á m. for- mennsku og sat í stjórn Bókabúða Máls og menningar hf. um skeið. Fjölskylda Steinar kvæntist 2.12. 1972 Ingi- björgu Pálsdóttur, f. 1.2. 1952, stjórnarformaður Fossatúns. For- eldrar hennar: Páll H. Pálsson, var forstjóri Happdrættis HÍ og Bryndís Guð- mundsdóttir húsfreyja en þau eru bæði látin. Börn Steinars og Ingibjargar: Páll Arnar, f. 14.6. 1973, MA í As- íufræðum; Alma, f. 29.8. 1981, skrif- stofumaður hjá Hringdu, búsett í Reykjavík; Dagný, f. 25.10. 1987, há- skólanemi í Kaupmannahöfn. Systkini Steinars: Ólafur, f. 28.8. 1953, bílamálari í Reykjavík; Alma, f. 21.11. 1954, skrifstofumaður í Reykjavík; Guðbergur, f. 11.11. 1960, ritstjóri Myndbanda mánaðar- ins, búsettur í Guelin í Kína. Foreldrar Steinars: Ísleifur Run- ólfsson, f. 24.4. 1927, d. 2.9. 1998, verslunarmaður og framkvæmda- stjóri Vöruflutningamiðstöðvarinnar og Iðnverks hf., og k.h., Ólafía Guð- bergsdóttir, f. 4.12. 1931, d. 4.5. 2011, húsfreyja. Úr frændgarði Steinars Berg Ísleifssonar Kristinn Ásgrímsson steinsm. í Rvík, af Húsafellsætt Ólafía S. Jónsdóttir húsfr. í Rvík. Kristmundur Guðmundsson b. í Laugalandi við Djúp af Ormsætt Etelríður Pálsdóttir húsfr. Alvilda Thomsen af Knudsenætt Björn Sigfússon alþm. á Kornsá af Blöndalsætt Ingunn Jónsdóttir rith. frá Melum í Hrútafirði Steinar Berg Ísleifsson Ísleifur Runólfsson framkvæmstj. í Rvík. Ólafía Guðbergsdóttir húsfr. Steinunn Kristmundsdóttir húsfr. í Rvík. Guðbergur Kristinsson sjómaður í Rvík. Runólfur Björnsson b. á Kornsá í Vatnsdal Anna A. Möller húsfr. á Kornsá Jóhann G. Möller kaupm. á Blönduósi Tómas Möller símstöðvarstj. í Stykkish. Agnar Möller fulltr. í Rvík. Ásta Möller fyrrv. alþm. Jóhann Möller skrifstofustj. Helga Möller söngkona Guðrún Möller húsfr. Berti Möller söngvari Steinn Steinarr skáld Hjörtur Kristmundsson skólastj. Afmælisbarnið, aldrei brattari. ÍSLENDINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2012 Jón Helgi Guðmundsson, rit-stjóri Vikunnar, fæddist íReykjavík 21.7. 1906. For- eldar hans voru Guðmundur Jóns- son, trésmiður í Reykjavík, og k.h., Margrét Ásmundsdóttir húsmóðir. Jón stundaði prentnám í prent- smiðjunni Gutenberg 1923-28. Að námi loknu vann hann um hríð í Gutenberg, var síðan vélsetjari í Herbertsprenti í fimm ár og starf- rækti eigin prentsmiðju í eitt ár. Hann vann síðan í Steindórsprenti í stuttan tíma. Jón hætti prentstörfum er hann tók við ritstjórn Vikunnar vorið 1940. Hann var síðan ritstjóri blaðs- ins meðan hann lifði, eða næstu tólf árin. Vikan kom fyrst út á sumardaginn fyrsta, árið 1912, og var þá viku- útgáfa dagblaðsins Vísis. Var blaðinu ætlað í upphafi að vera nokkurs konar vikusamantekt á helstu fréttum og greinum Vísis frá undangenginni viku og einkum ætl- að landsbyggðarfólki, enda dýrt á þeim árum að senda dagblað um allt land á hverjum degi. Á ritstjórnarárum Jóns var Vikan mjög vinsælt vikurit fyrir alla fjöl- skylduna og líklega útbreiddasta tímarit sinnar tegundar hér á landi fram til 1970 eða lengur. Annað þekkt vikurit frá þessum árum sem lengi stóð í harðri samkeppni við Vikuna var Fálkinn sem þó seldist ekki í eins stóru upplagi og Vikan. Jón sendi frá sér ritin Frá liðnum kvöldum, 1937, og Vildi ég um Vest- urland, kvæði og ferðasögur, 1943. Jón sinnti ýmsum félagsmálum, var ritari Hins íslenska prentara- félags, sat í ritstjórn Prentarans, málgagns prentara,og var ritstjóri blaðsins 1930 og aftur 1936-38, sat í fyrstu stjórn Prentnemafélagsins, sat í skólanefnd Laugarnesskóla 1936-42 og í stjórn Menningar- og fræðslusambands alþýðu. Fyrri kona Jóns var Guðný Magn- úsdóttir en seinni kona hans var Guðrún Halldórsdóttir. Jón lést fyrir aldur fram, 12.6. 1952. Merkir Íslendingar Jón Helgi Guðmundsson 80 ára Guðrún G. Sæmundsdóttir Gunnar A. Þormar Karólína Kristinsdóttir 75 ára Kristján Richter Stefán A. Magnússon Ulrich Falkner 70 ára Alfreð Óskar Alfreðsson Gíslína Gunnarsdóttir Gunnar Hjaltason Hilmar Ágústsson 50 ára Hallfríður Sveinsdóttir Lilja Björk Högnadóttir Matthildur Halla Jónsdóttir Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir Steingrímur Steingrímsson Þröstur Már Björgvinsson 40 ára Arnheiður Hjálmarsdóttir Eygló Inga Bergsdóttir Guðbjarni Karlsson Hjalti Jónsson Hrefna Guðmundsdóttir Linda Björk Vilhelmsdóttir Stefán Árni Auðólfsson 30 ára Arnar Víðir Jónsson Ásta Kristín Árnadóttir Benjamín Magnússon Friðrik Guðmundsson Helena Arnardóttir Hildur Viðarsdóttir Kristín M. Kristjánsdóttir Sóley Ósk Óttarsdóttir 90 ára Jens Albert Pétursson 80 ára Björn B. Birnir Guðný Kristjánsdóttir Kristín Jónsdóttir Pétur Valdimarsson Sigurjón Guðnason 75 ára Árni Ólafsson Helgi Björn Einarsson Helgi Helgason Páll Ólason Sigurjón Valdimarsson 70 ára Jónína Björgvinsdóttir Kristján Sigurðsson Sigrún Margrét Ragnarsdóttir 60 ára Aldís Jónsdóttir Guðmundur Heiðar Frímannsson Sigurbjörg Karlsdóttir 50 ára Andrea Maria Henk Ásdís Ásgeirsdóttir Jóna Diego Jón Árni Halldórsson Svanhildur Skúladóttir 40 ára Anna Mjöll Líndal Arnhildur Pálmadóttir Árni Árnason Hrefna Björnsdóttir Jón Axelsson Perla Rúnarsdóttir Sigrún Eiríksdóttir 30 ára Andri Guðmundsson Anna Katrín Jónsdóttir Fríða Jóhannesdóttir Gestur Þ Þórhallsson Viðar Kristinsson Til hamingju með daginn 30 ára Fjalarr ólst upp í Svíþjóð og á Höfn, lauk MSc-prófi í fjármálaverk- fræði 2012 og starfar hjá Landsvirkjun. Systkini: Guðrún Beta Mánadóttir, f. 1978, bóka- safnsfræðingur; Gunnar Steinn Mánason, f. 1980, læknir í Svíþjóð. Foreldrar: Máni Fjal- arsson, f. 1954, læknir í Reykjavík, og Gunnþóra Gunnarsdóttir, f. 1948, blaðam. við Fréttablaðið. Fjalarr Páll Mánason 30 ára Helga fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 2010 og er nú læknir við LSH. Maki: Jón Þór Pétursson, f. 1979, þjóðfræðingur. Foreldrar: Steinunn Stef- ánsdóttir, f. 1961, aðstoð- arritstjóri við Fréttablaðið, búsett í Reykjavík, og Tryggvi Þórhallsson, f. 1962, lögfræðingur í Reykjavík. Helga Tryggvadóttir 30 ára Sigríður fæddist á Egilsstöðum, ólst þar upp, lauk stúdentsprófum frá ME, hússtjórnarprófi frá Hallormsstað, og er deildarstjóri við leikskóla. Maki: Ingþór Guðmunds- son, f. 1978, starfsmaður hjá Optima. Sonur: Egill Hrafn Ing- þórsson, f. 2010. Foreldrar: Jóna Ósk- arsdóttir, f. 1956, sjúkra- liði og Benedikt Þórð- arson, f. 1949 rafvirki. Sigríður Harpa Benediktsdóttir Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst ALVÖRU MÓTTAKARAR MEÐ LINUX ÍSLENSK VALMYND Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.