Morgunblaðið - 21.07.2012, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 21.07.2012, Qupperneq 44
LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 203. DAGUR ÁRSINS 2012 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Einkahúmor sem gekk of langt 2. Hélt veislu eftir hjartaaðgerð 3. Ánægður með íslenska vatnið 4. Til fyrirmyndar á Facebook  Hallvarður Ásgeirsson spilar and- rýmistónlist ásamt kammersveit sinni á portretttónleikum í Slátur- húsinu á Egilsstöðum kl. 20 í dag. Aðgangur er ókeypis. Andrýmistónlist í Sláturhúsinu  Í Listagilinu á Akureyri er opið gestastúdíó í dag og á morgun, kl. 14 til 17. Þar geta gestir skoðað verk svissnesku listamannanna Verenu Lafarguer myndlistarkonu og Christins Wildbolz tónlistarmanns þar sem þau hafa opnar vinnustofur og „sýna hvað upplifanir þeirra á Akureyri og nágrenni hafa gert þeim kleift að skapa“. Vinnustofur opnar í Listagilinu  Roger Sayer, dómorganisti í Rochester í Bret- landi kemur fram á tvennum tón- leikum á Al- þjóðlega orgel- sumrinu í Hallgrímskirkju, í dag kl. 12 og á morgun kl. 17. „Sayer er í fremstu röð breskra organista, og ætlar að leika skemmtilegt og aðgengilegt pró- gramm um helgina,“ segir í tilkynn- ingu. Aðgangseyrir í dag er 1.500 kr., og 2.500 kr. á morgun. Sayer dómorganisti í Hallgrímskirkju FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi austan- og suðaustanátt árla dags með rigningu, 10-15 m/s S- og SV-til á landinu um hádegi, en 15-23 þar með kvöldinu og talsverð rigning. Á sunnudag Sunnan og suðaustan 8-15 m/s en norðaustan 8-15 um landið norðvestan- vert. Rigning um allt land, einkum S-til. Hægari og úrkomuminna N-til síðdegis. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast nyrðra. Á mánudag Norðlæg átt, 5-13 m/s, en sums staðar hvassari NV-til. Bretinn Bradley Wiggins er með góða forustu í Tour de France en næstsíð- asti áfanginn verður hjólaður í dag. Wiggins er mikið hjólreiðanörd og horfði á myndbandsspólur af hjól- reiðum í æsku á meðan vinir hans spiluðu fótbolta. Áfanginn í dag er sprettur en Wigg- ins vann hinn sprettáfangann sem var á níunda keppnisdegi. »1 Nördið að vinna Frakk- landshjólreiðarnar Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í handbolta mæta Argentínumönnum í tveimur æfingaleikjum í Kaplakrika í dag og á mánudaginn. Snorri Steinn Guðjóns- son, leikstjórnandi liðsins, segir að ekki megi vanmeta Argentínumenn en þeir muni þó fá skýr skilaboð um að íslenska liðið sé betra. »2 Fá skýr skilaboð frá strákunum Nú þegar landsmóti hestamanna er nýlokið og ólympíuleikar á næstu grösum er ekki úr vegi að rifja upp einstakt afrek úr sögu frjáls- íþróttakeppni Ólympíuleikanna sem unnið var af manni sem bar við- urnefnið „hest- urinn“ eða „El Caballo“ á máli landa hans á Kúbu. Maðurinn er Alberto Juanto- rena sem tókst að verða ólympíu- meistari í 400 og 800 m hlaupi á Ólympíu- leikunum í Montréal í Kanada 1976 og gera þar með nokkuð sem ól- ympíumeistarinn í 800 m hlaupi frá leikunum 1996, Vebjörn Rodal, seg- ir að muni aldrei verða leik- ið eftir. »4 Afrek í Montréal sem aldrei verður endurtekið Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Sigríður Sigurðardóttir bjó á bæn- um Vaðbrekku ásamt eiginmanni sínum Aðalsteini Aðalsteinssyni í um 40 ár. Allar götur síðan hefur hún gengið með þann draum í mag- anum að klífa Snæfell, fjallið sem hún hafði fyrir augunum á hverjum degi þegar hún bjó á Vaðbrekku. Sigríður lét svo drauminn rætast síðasta mánudag þegar hún fór ásamt hluta fjölskyldu sinnar upp á topp Snæfells. „Ég flutti í nágrenni Snæfells þegar ég var tvítug og hef haft þann draum að ganga upp á fjallið en ekki haft tök á því fyrr að láta hann ræt- ast,“ segir Sigríður, sem er 75 ára gömul. Tildrög ferðarinnar voru þau að Ragnhildur, yngsta dóttir þeirra Sigríðar og Aðalsteins, stakk upp á því að farið yrði í fjölskylduferð upp á Snæfell og að allir mættu koma með sem vildu. „Þá náttúrlega rétti ég strax upp höndina.“ 70 ár milli elsta og yngsta Fjölmenni var í ferðinni en alls voru 22 í hópnum að leiðsögumanni meðtöldum. „Þetta vorum við hjón- in, börn, barnabörn, tengdabörn og svo gestir, sem voru að koma úr ný- afstöðnu afmæli og ákváðu að koma með okkur,“ segir Sigríður. Hún segir að hópurinn hafi verið þægi- legur og vel samstiga um að fara frekar hægt. Fjölskyldan var rúm- lega fimm klukkustundir á leiðinni upp og í heildina tók ferðin upp og niður níu tíma. Sá elsti í hópnum var Aðalsteinn maður hennar, sem er áttræður, en sá yngsti var Brynjar Leó Hreiðars- son, barnabarn þeirra Sigríðar og Aðalsteins en hann er 10 ára gamall. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Aðal- steinn fer á Snæfell en Sigríði telst svo til að þetta hafi verið níunda ferðin hans upp á tind fjallsins. Sigríður segir að ferðalagið upp á toppinn hafi verið óskaplega skemmtileg upplifun fyrir fjölskyld- una, en upphafspunktur ferðarinnar var skammt innan Snæfellsskála. „Þetta var draumaferð. Veðrið var eins og best verður á kosið, sól og logn, en þó smáandvari þannig að fólki varð ekki of heitt við gönguna.“ Hún segir gönguna erfiða en að hóp- urinn hafi verið mjög vel búinn. „Bóndinn minn fór þó bara á vað- stígvélunum, honum finnst þægileg- ast að ganga í þeim,“ segir Sigríður og hlær. Að endingu vill Sigríður þakka leiðsögumanninum, Skúla Júlíus- syni, alveg kærlega fyrir frábæra leiðsögn. Draumurinn rættist að lokum  Komst á topp Snæfells eftir rúmlega hálfa öld Ljósmynd/Lilja Vigfúsdóttir Fjölskylduferð Hér sjást Sigríður og Aðalsteinn ásamt fimm af sex börnum sínum. Frá vinstri: Sigurður, Snorri, Ingibjörg, Sigríður og Aðalsteinn, Ragnhildur og Aðalsteinn yngri. Yngstur í ferðinni var Brynjar Leó, 10 ára. Snæfell er 1.833 metrar á hæð, og er því hæsta fjall landsins sem er ekki innan jökla. Fjallið er nokkuð keilulaga, úr líparíti og móbergi og var áður virk eldstöð, en það myndaðist seint á síðustu ísöld. Síðasta gos í Snæfelli var fyrir um 10.000 árum. Efsti hluti fjallsins er fyrir ofan snælínu og hverfur því aldrei alveg fönn úr fjallinu. Frá toppi Snæfells er víðfeðmt útsýni á góðviðrisdögum. Hæsta fjall Íslands utan jökla

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.