SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Síða 2
2 29. júlí 2012
Við mælum með …
Nú um helgina fagnar skemmti-
staðurinn Faktorý tveggja ára
afmæli sínu með pomp og prakt.
Í kvöld, 28. júlí, verður reggí-
kvöld og afmælisgrill klukkan
20:00. Sveitirnar Ojba Rasta og
Amaba Dama munu spila fyrir
dansi og hefst sú gleði klukkan
23:00. 29. júlí verður síðan jazz-
kvöld. Frítt er inn á alla viðburði
um helgina sökum afmæl-
isalgleymis.
Afmælishelgi á Faktorý
13 Valdahlutföll birtast skýrt
Veruleikinn var í sparifötunum, segir Stefán Jón Hafstein um Ólympíu-
leikana í Moskvu árið 1980. Þeir lituðust af kalda stríðinu rétt eins og
leikarnir í Los Angeles fjórum árum síðar þar sem Bjarni vann bronsið.
14 Ekki einhliða skopmynd
Tómas Lemarquis nýtur velgengni sem leikari í Evrópu og eru þau hlut-
verk sem hann tekur að sér sífellt að stækka.
24 Lesið í náttúruna
Bræðurnir á Kvískerjum hafa löngum lesið landslagið í Öræfasveit
eins og opna bók.
28 Áhuginn kviknaði á Kvískerjum
Í æsku eyddi María Ingimarsdóttir sumrum á
Kvískerjum þar sem hún fékk áhuga á líf-
fræði. Nú hefur hún nýlokið doktorsverkefni
sínu frá Háskólanum í Lundi sem fjallar um
landnám í jökulskerjum.
32 Aldrei sama myndin
Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndari hefur ein-
beitt sér að því að mynda íslenskt landslag
og hefur sent frá sér fjölda ljósmyndabóka
sem hafa orðið metsölubækur.
Lesbók
42 Tónlistarfélag í 80 ár
Tónlistarfélagið í Reykjavík er eitt sögufrægasta félag á sviði menn-
ingar á Íslandi. Í ár eru áttatíu ár frá stofnun þess.
44 Hver er Walter Mitty?
Leikarinn Ben Stiller gerir kvikmynd eftir frægri smásögu James Thur-
bers um Walter Mitty. Hluti myndarinnar verður tekinn upp hér á landi.
34
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Kristjáni Davíðssyni listmálara.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Árni Matthíasson, arnim@mbl.is, Einar Falur Ingólfsson,
efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Krist-
insdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir og Skapti Hallgrímsson
8
Augnablikið
Ert þú bara ein á ferð, væna?“ spurðimaðurinn í vegabréfseftirlitinu á Stan-sted-flugvelli í Englandi sextán áragamla dóttur mína.
„Nei, mamma og pabbi eru þarna fremst í röð-
inni,“ svaraði hún.
„Komið þá öll saman,“ sagði hann.
Því næst tók hann vegabréf okkar í sína vörslu
og æðisgengin rannsókn hófst. Eftirlitsmaðurinn
rýndi og skannaði, rýndi og skannaði. Leit upp á
okkur þess á milli, íbygginn á svip. Rýndi og
skannaði.
Ætli hann sé nýbyrjaður, hugsaði ég með mér.
Þetta getur ekki verið svona mikið mál.
Eftirlitsmaðurinn virkaði eitthvað ósáttur og að
því kom að hann lét vaða:
„Eru þetta örugglega mamma þín og pabbi?“
spurði hann dóttur mína.
„Já,“ svaraði hún og skellti lítið eitt upp úr.
Hvaða vitleysa er þetta eiginlega, hugsaði ég
með mér, sér maðurinn ekki svipinn?
Enn leit hann af okkur og niður í vegabréfin.
„Hvernig stendur þá á því að ekkert ykkar er
með sama eftirnafnið?
Bingó! Þar lá hundurinn grafinn.
Í augum venjulegs Breta er það vitaskuld meira
en lítið loðið að þrjár manneskjur, sem bera hver
sitt föðurnafnið, séu að ferðast milli landa undir
því yfirskini að þær séu fjölskylda.
Sjáðu nú til, útskýrði ég fyrir eftirlitsmann-
inum. Nafnakerfið er svolítið öðruvísi á Íslandi en
hér í Bretlandi. Fyrir það fyrsta tekur eiginkonan
ekki upp nafn manns síns við giftingu nema í und-
antekningartilvikum, þegar um ættarnafn er að
ræða – og sennilega sjaldnast þá. Síðan kenna börn
sig við foreldri, oftast föðurinn en stundum móð-
urina. Sjáðu, ég heiti Orri og dóttir mín er Orra-
dóttir.
Þegar hér er komið sögu var aumingja maðurinn
alveg týndur. Af augnaráðinu að dæma var hann
ekki að kaupa þessa útskýringu.
Enn spurði hann: „Eru þetta mamma þín og
pabbi?“
„Já,“ svaraði dóttirin ákveðin.
„Jæja, velkomin til Bretlands!“
Ég varpaði öndinni léttar enda farinn að sjá fyrir
mér ítarlega yfirheyrslu í dimmu afdrepi.
„Hvað hefði gerst hefði ég í gríni sagt nei?“
spurði dóttir mín þegar við vorum komin á þurrt.
Það vil ég ekki hugsa til enda, svaraði ég, og
brýndi fyrir henni að slá aldrei á létta strengi við
vegabréfseftirlitsmenn. Það gæti kostað dýr-
mætan tíma og mikil leiðindi.
Það góða sem hlaust af þessari uppákomu er
hins vegar það að eftirlitsmaðurinn verður von-
andi betur upplýstur næst þegar hann fær
Íslendinga upp að borðinu til sín.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Grunsemdir geta vaknað við vegabréfseftirlit, t.d. þegar enginn fjölskyldumeðlimur hefur sama eftirnafnið.
Morgunblaðið/Kristinn
Eru þetta virkilega
foreldrar þínir?
Mikið hefur verið rætt og ritað um öryggi keppenda og gesta á Ól-
ympíuleikunum í Lundúnum, sem settir voru í gærkvöldi. Þúsundir
hermanna verða á vettvangi og í viðbragðsstöðu og umsjónarmenn
leikanna segja ekkert að óttast. Danska tennisdrottningin Caroline
Wozniacki hefur varla fundið til ótta þegar hún áritaði bolta í gær.
Veröld
AFP
Wozniacki áritar
Akureyri
Versl-
unarmanna-
helgin er
næstu helgi og
hátíðin hefst sumsstaðar í
næstu viku. Til að mynda hefst
Ein með öllu á Akureyri á
fimmtudaginn. Þar verður glatt
á hjalla og margt í boði; tívolí,
tónleikar og skemmtikvöld.
Artíma
Sýningin
Suðvestan sex
og myrkur á
annesjum
verður opnuð í dag, 28. júlí,
klukkan 20:00 í Artíma galleríi
að Skúlagötu 28. Þær Hildur
Jörundsdóttir og Stefanía R.
Ragnarsdóttir munu þar sýna
verk sín og mun Gígja Jóns-
dóttir sinna starfi sýning-
arstjóra.