SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Qupperneq 4
4 29. júlí 2012
Bruce Springsteen ólst sjálfur
upp við kröpp kjör og hefur oftar
en ekki gert aðstæður fólks sem
á erfitt uppdráttar í lífinu að yrk-
isefni, sannkölluð alþýðuhetja.
Hann þótti hlédrægur í æsku og
kunni best við sig með gítar í
hendi. Átrúnaðargoð hans á þeim
tíma var Elvis nokkur Presley.
Eftir að Springsteen sló í gegn
flutti hann til Los Angeles en fann
sig aldrei almennilega þar um
slóðir.
Eftir að hann tók saman við
seinni eiginkonu sína, Patti Sci-
alfa, fyrir rúmum tveimur áratug-
um flutti hann aftur búferlum til
New Jersey til að stofna fjöl-
skyldu. Þau eiga þrjú börn saman,
fædd 1990, 1991 og 1994. Fjöl-
skyldan lifir rólegu lífi á hestabú-
garði, fjarri „papparössum“ þessa
heims.
Springsteen hefur aldrei verið
elskur að fjölmiðlum og blaða-
mannafundurinn sem hann hélt til
að kynna hálfleikssýninguna á Su-
per Bowl 2009 mun hafa verið sá
fyrsti sinnar tegundar í aldarfjórð-
ung. Heldur hefur hann þó fjölgað
viðtölum á allra seinustu árum og
þar með veitt betri innsýn í sitt líf.
Hlédrægt alþýðuskáld
Bruce Springsteen gleymir gjarnan stund og stað á tónleikum.
Reuters
Í áratugi hefur hann verið holdgervingurheilbrigðis, hreysti og almenns hressleikaí rokkheimum. Selt ógrynni platna, mal-að gull og fyllt íþróttaleikvanga oftar en
flestir aðrir. Úthaldið er raunar með ólík-
indum, hann hefur sjaldan verið vinsælli en
einmitt nú, orðinn 62 ára. Í því ljósi brá mörg-
um í vikunni þegar bandaríski tónlistarmað-
urinn Bruce Springsteen upplýsti að hann hefði
glímt við þunglyndi undanfarin þrjátíu ár og
sætt meðferð hjá sérfræðingum af þeim sökum.
Hann fer sannarlega ekki í manngreinarálit,
svarti hundurinn.
Springsteen ræddi í fyrsta skipti opinberlega
um veikindi sín í tímaritinu The New Yorker í
vikunni. Spurður hvers vegna honum hefði
tekist að halda þessu leyndu fyrir heiminum
svo lengi sagði hann skýringuna að hluta liggja
í því að hann hefði aldrei neytt fíkniefna.
„Mín vandamál voru aldrei eins augljós og
fíkniefni,“ trúði Springsteen David Remnick
ritstjóra The New Yorker fyrir. „Það bar minna
á þeim. Vandamál þessi voru eigi að síður alveg
jafnsnúin, fóru bara ekki eins hátt.“
En hvernig fer maður sem glímt hefur svona
lengi við depurð og þunglyndi að því að rífa sig
upp til að standa á sviði í þrjá tíma í senn,
frammi fyrir þúsundum og tugum þúsunda,
kvöld eftir kvöld?
„Það er eins með alla listamenn, vegna
þyngsla sögunnar og sjálfsfyrirlitningarinnar er
enginn staður betri en sviðið til að má sjálfan
sig út ... Þar er maður laus við sjálfan sig í
þessa klukkutíma sem tónleikarnir standa yfir
og raddirnar í höfðinu á manni þagna, einfald-
lega þagna. Það er ekkert pláss fyrir þær. Það er
bara ein rödd, sú sem þú syngur með,“ upp-
lýsir Springsteen.
Fleira þarf til, alltént sagði samstarfsmaður
Springsteens til fjölda ára, Steve van Zandt,
nýlega við rokktímaritið Rolling Stone að lyk-
illinn að velgengni og úthaldi vinar síns væri
öðru fremur heilbrigt líferni. „Hann notar ekki
fíkniefni, hugsar um mataræðið og stundar lík-
amsrækt. Þess vegna rokkar hann ennþá, 62
ára gamall.“
Einmitt það, hægt er að finna verri meðul við
þunglyndi en hreyfingu og reglusemi.
Í umfjöllun The New Yorker kemur fram að
Springsteen hafi verið svo illa haldinn af þung-
lyndinu meðan hann vann að breiðskífu sinni
Nebraska árið 1982 að hann hafi verið í sjálfs-
vígshugleiðingum. „Þunglyndið vakti ekki
óhug, út af fyrir sig,“ segir vinur og ævi-
söguritari Springsteens, Dave Marsh. „Hann
var í geimflaugarferð, úr engu í eitthvað, og nú
var verið að taka hann í gegn dag sem nótt. Við
þær aðstæður fyllast menn efasemdum um eig-
ið ágæti.“
Springsteen viðurkennir einmitt að hafa ver-
ið grátt leikinn af sjálfsfyrirlitningu og sjálfs-
hatri. „Greiningin hefur staðið yfir í þrjátíu ár
og ég hugsa stöðugt, ég kann ekki að meta það
sem ég sé og kann ekki að meta neitt sem ég
geri. Ég verð að breyta sjálfum mér, gerbreyta
sjálfum mér.“
En í því ástandi er líka fólginn styrkur. „Ég
þekki engan listamann sem gengur ekki fyrir
því eldsneyti. Ef maður er yfir sig ánægður með
það sem maður er að gera endist maður ekki
lengi. Brando hefði ekki leikið. Dylan hefði
aldrei samið Like a Rolling Stone og James
Brown hefði aldrei brostið í „unh“. Þar er
hvatinn, ég verð að endurnýja mig, bæinn
minn, hlustendahópinn minn.“
Svei þér,
svarti
hundur!
Springsteen
hefur lengi glímt
við þunglyndi
Bruce Springsteen á tónleikum í Noregi um liðna helgi til minningar um fórnarlömb ódæðanna í Ósló og Útey.
AFPVikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Bruce Springsteen
fæddist í New Jersey
í Bandaríkjunum 23.
september 1949.
Hann sló í gegn
snemma á áttunda
áratugnum og hefur
haldið vinsældum
sínum allar götur síð-
an. Springsteen hef-
ur komið tíu plötum á
topp bandaríska vin-
sældalistans, þeirra
á meðal The River
(1980), Born in the
USA (1984), The Ris-
ing (2002), Working
on a Dream (2009)
og Wrecking Ball
(2012).
Ótrúlegar
vinsældir
Taustir lásasmiðir í yfir 24 ár
Verslun, Laugavegi 168 • www.neyd.is • laugavegur@neyd.is
s: 510 8888 • Opið alla virka daga 8:00-18:00
Bíllyklar
Smíðum og forritum flestar
gerðir bíllykla.
Komdu við í verslun okkar á
Laugavegi 168 og kynntu þér
hvað við höfum að bjóða.
Betra verð
Mikið úrval