SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Síða 6
6 29. júlí 2012
Bradley Wiggins er mikill tónlist-
aráhugamaður, hlustar á The
Who, The Jam og Oasis. Franska
blaðið L’Equipe segir hann skarta
frægustu börtum sögunnar síðan
Elvis Presley var og hét. „Ég tek
alltaf gítar með mér þegar ég er á
ferðalögum. Gítararnir mínir veita
mér slökun.“
Auk þess þykir hann mikill bó-
hem bæði í hugsunarhætti og út-
liti. Í ævisögu sinni viðurkenndi
Wiggins að hafa háð sínar við-
ureignir við Bakkus. Í bókinni
greinir hann frá því að hafa verið
drukkinn í eigin brúðkaupi. „Ég
mætti hífaður í brúðkaupið eftir
að hafa fengið mér nokkra afrétt-
ara, eftir að hafa verið úti á lífinu
kvöldið áður. Ég var í engu
ástandi til að bera Cath (eigin-
konu sína) yfir þröskuldinn um
brúðkaupsnóttina. Mig grunar
frekar að það hafi verið ég sem
var borinn inn á hótelherbergi.“
Hann hætti hins vegar að
drekka fyrir tveimur árum og
breytti æfingaáætlunum sínum í
kjölfarið. „Ég æfi stöðugt yfir árið,
sem er ekki dæmigert fyrir hjól-
reiðamenn. Ég reyni að vera að
minnsta kosti 97% allt árið og
þarf því sífellt að vera að æfa.
Gallinn er sá að það tekur virki-
lega á andlegu hliðina.“ Í samtali
við breska fjölmiðla fyrir utan
heimili sitt daginn eftir sigurinn í
Frakklandi sagðist Wiggins að-
eins þurfa að teygja úr sér. „Ég fer
út og hjóla 30 km, ætli ég verði
ekki svona klukkutíma.“
Gítarspilandi hjólreiðamaður
sem hætti að drekka
Wiggins fagnar með konu sinni og
tveimur börnum við endamarkið.
AFP
Jæja, núna munum viðdraga í lottóinu,“ sagðihúmoristinn BradleyWiggins í hljóðnemann í
byrjun þakkarræðunnar á miðju
Champs-Élysées í kjölfar sig-
ursins í Tour de France. Wigg-
ins varð um liðna helgi fyrsti
Bretinn til að vinna sigur í einni
þekktustu hjólreiðakeppni
heims.
Breskir blaðamenn hlupu upp
til handa og fóta og hófu að líkja
afreki Wiggins við önnur afrek
breskra íþróttamanna. Margir
þeirra vilja setja afrekið í sama
flokk og þrennu Geoffs Hurst í
úrslitaleik HM 1966, sigra Len-
nox Lewis á Holyfield og Tyson
og heimsmet Paulu Radcliffe í maraþonhlaupi.
Ólst upp hjá einstæðri móður
Bradley Wiggins fæddist í Ghent í Belgíu. Faðir
hans, Garry Wiggins, hafði atvinnu af hjólreiðum
og átti farsælan feril á þeirri braut sem sonur hans
síðan fetaði. Hins vegar varð hann áfengi að bráð og
yfirgaf fjölskylduna þegar Bradley var aðeins
tveggja ára að aldri. Samskipti þeirra feðga voru
frekar stopul einkum vegna drykkju og óreglu föð-
urins. Garry fannst látinn á gangstétt í Ástralíu árið
2008. Alltaf lá grunur um að Garry hefði verið
myrtur en málið var aldrei upplýst.
Wiggo eins og hann er kallaður af bresku press-
unni ólst upp í London hjá móður sinni Lindu.
Hann fékk snemma áhuga á hjólreiðum og þegar
hann var 12 ára fékk hann sitt
fyrsta alvöru keppnishjól. Það
kom ekki til af góðu, hann not-
aði tryggingafé til að kaupa hjól-
ið eftir að hafa lent í reið-
hjólaslysi. Hann fékk 1.700 pund
út úr tryggingum, keypti sér
keppnishjól fyrir 1.000 pund og
gaf móður sinni afganginn.
Drengurinn hefur ekki litið til
baka síðan. Á fyrri hluta ferilsins
einbeitti hann sér að brautar-
hjólreiðum og á þrjú ólympíu-
gull auk fjölda heimsmeist-
aratitla í þeirri grein. Hin seinni
ár hefur Wiggo frekar einbeitt
sér að götuhjólreiðum en í þeirri
grein hefur hann ekki hlotið
verðlaun á Ólympíuleikum.
Kirsuberið vantar
Margir hugsa eflaust með sér að erfitt sé að keppa á
Ólympíuleikum aðeins níu dögum eftir að hafa
keppt í Tour de France en Bradley Wiggins er á öðru
máli. „Við erum atvinnumenn í hjólreiðum, við
tökum þátt í svo mörgum keppnum á ári að níu
daga frí fyrir okkur hljómar eins og orlof.“
Blaðamenn hafa hundelt Wiggins eftir sigurinn í
Frakklandi og hann brá á það ráð að koma sér í felur
í byrjun vikunnar þar sem hann hyggst æfa í friði
frá blaðamönnum. Sjálfur hefur hann viðurkennt
að ekki sé frá neinu að hverfa og hann setji stefnuna
ótrauður á gullverðlaun á Ólympíuleikunum. Sjálf-
ur orðaði hann markmið sín skemmtilega: „Kremið
er komið á kökuna, það vantar bara kirsuberið.“
Bóhem kom, sá,
hjólaði og sigraði
Fyrstur Breta til að vinna
Frakklandshjólreiðarnar
Bartarnir hans Bradley Wiggins skörtuðu sínu fegursta á verðlaunapall-
inum á Champs-Élysées þar sem hjólreiðakapparnir koma í mark ár hvert.
AFP
Wiggins og félagar hans í Sky
liðinu sigurreifir við Sigurbogann.
Vikuspegill
Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is
AFP
Ólögleg lyfjanotkun hefur sett svip sinn á hjólreiðaheiminn und-
anfarin ár. Bradley Wiggins er hluti af hreyfingu sem berst gegn
ólöglegri lyfjanotkun í íþróttum. „Það sem ég elska er að gera
mitt besta og leggja hart að mér. Ef mér fyndist ég þurfa að
taka ólögleg lyf þá myndi ég hætta,“ segir Wiggins. „Með
neyslu ólöglegra lyfja væri ég að hætta á að missa allt, orð-
sporið, lifibrauðið, hjónabandið og fjölskylduna.“
Á móti ólöglegum lyfjum
TREFJARÍKAR PRÓTEINSTANGIR
FYRIR KREFJANDI AÐSTÆÐUR