SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Side 8
8 29. júlí 2012
Sú leikkona sem situr á toppi
listans er kólumbíska leikkonan
Sofía Vergara. Hin fertuga Vergara
byrjaði ekki sinn leiklistarferil fyrr
en árið 2002, þá þrítug að aldri.
Hún hafði hinsvegar áður meðal
annars unnið sem fyrirsæta og
sjónvarpskona.
Vergara hefur slegið í gegn í
sjónvarpsþáttunum Modern Fa-
mily þar sem hún fer með hlutverk
Gloriu Pritchett. Ásamt því að fá
tekjur þaðan hefur hún miklar aug-
lýsingatekjur en hún hefur meðal
annars komið fram í auglýsingum
fyrir Diet Pepsi og K-Mart. Á síð-
asta ári þénaði hún meira en tvo
milljarða íslenskra króna og færði
það henni titillinn tekjuhæsta sjón-
varpskona Bandaríkjanna.
Sofia Vergara á toppi listans
Leikkonan hefur þénað mikið.
AFP
Það er líklegast orðiðeitt elsta sport lands-manna að hrauna yf-ir það hversu vinsæl-
ar Kim Kardashian og stöllur
hennar eru; samt sem áður
njóta þær gríðarlega vinsælda.
Það vill nefnilega svo til að öll
sú umfjöllun, og einnig sú sem
hér er skrifuð, eykur athygli
loftsteinanna sem brátt munu
brenna upp í miður fallegu
stjörnuhrapi þar sem enginn
endanlegur hæfileiki er til
staðar.
Hvað sem því líður þá birti
tímaritið Forbes á dögunum
lista yfir tekjuhæstu konur
sjónvarpsiðnaðarins vestanhafs. Athygli vekur að
bæði Kim Kardashian og systir hennar Khloe eru
meðal fimm hæstu með samanlagt meira en þrjá
og hálfan milljarð íslenskra króna í árslaun. Aftar á
listanum kemur síðan einhver hæfileikaríkasti
einstaklingur skemmtanabransans, Tina Fey. Það
þarf engan snilling til að benda á hversu fjar-
stæðukennt það er að Kardashian-systur fái meira
borgað fyrir sinn miður þokkafulla lífsstíl en Tina
Fey fyrir sitt framlag til skemmtanaiðnaðarins.
Fey hefur meðal annars verið einn aðalhöfundur
eins vinsælasta sjónvarpsþátts í heimi, Saturday
Night Live, í níu ár. Hún skapaði einnig, skrifaði
og lék aðalhlutverkið í einum besta sjónvarpsþætti
síðustu ára, 30 Rock, auk þess sem hún hefur
skrifað handrit að kvikmynd-
um og gefið út vinsæla bók.
Kynlífsmyndband af Kim
Kardashian skaut henni upp á
stjörnuhimininn árið 2007.
Síðan þá hefur hún komið
fram í raunveruleikaþáttum
og sýnt umheiminum hversu
grunnhyggin, einföld og til-
gerðarleg hún er.
Þegar saman fer kostulegur
vöxtur, skortur á siðferði, fé-
græðgi, hégómagirnd og
ágætis viðskiptavit þá getur
útkoman orðið ansi svæsin.
Það væri áhugavert að sjá,
með þá staðreynd í huga að
Tina Fey býr yfir meiri hæfi-
leikum í litla putta sínum en þær systur til sam-
ans, hversu mikið hún myndi þéna ef hún læki
kynlífsmyndbandi af sér á netið. Fey býr þó sem
betur fer yfir sómakennd og sjálfsvirðingu og því
tel ég að engar líkur séu á því að hún muni leggjast
svo lágt.
Þetta er hinsvegar mjög einfalt. Því meira áhorf
sem þáttur fær, því meiri verða tekjurnar fyrir þá
sem standa að honum. Það má spyrja sig að því
hvort það sé einungis þessi skortur á sæmd sem
valdi vinsældum Kardashians. Mögulega er það
breyskleiki mannsins sem færir honum hugarfró
af því að fylgjast með jafn lítt þroskandi sjón-
varpsefni; allt veltur þetta á því sem neytandinn
vill.
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian þénaði meira en tvo milljarða
íslenskra króna á síðasta ári. Systir hennar þénaði álíka mikið.
AFP
Lágmenningin
malar gull
Forbes birti lista yfir tekju-
hæstu sjónvarpskonurnar
Vikuspegill
Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is
Handritshöfundurinn og leikkonan Tina
Fey var ofarlega á listanum.
Reuters
Þess má til gamans geta að launahæsti
leikari Hollywood á síðasta ári var Íslands-
vinurinn Tom Cruise sem gerði lands-
mönnum það til geðs fyrir nokkru að skilja
við eiginkonu sína hér á landi. Hann þén-
aði meira en níu milljarða íslenskra króna
frá maí 2011 til maí 2012.
Tom Cruise þénar
dágóða summu.
Tom Cruise
þénar mikið
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst
NÁÐU ÓLYMPÍULEIKUNUM
Í HÁSKERPU MEÐ GERVIHNATTABÚNAÐI
FRÁ OKKUR
VERÐ Á BÚNAÐI FRÁ 44.300,-