SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Qupperneq 11

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Qupperneq 11
29. júlí 2012 11 Þótt Jónas Jónsson fráHriflu sæist stundumekki fyrir, var hann rit-fær og mikilhæfur stjórnmálamaður, sem kunni að velja hugmyndum sínum nöfn. Hafði hann hér mikil áhrif og jafnvel stundum víðtæk völd árin 1916-1944. Frjálslyndir nútímamenn geta ekki verið samþykkir því, hvern- ig Jónas dró taum landbúnaðar á kostnað sjávarútvegs, en útgerð- armenn kallaði hann „Grimsby- liðið“, enda var íslenskum fiski þá oft landað í Grimsby í Norður- Englandi. Nokkrar aðrar hugmyndir Jón- asar eru merkari. Ein er „Leifs- línan“, en svo kallaði hann nauð- synina á nánu samstarfi við Bandaríkin. Hún hét að sjálfsögðu eftir Leifi heppni, sem fann Vest- urheim. Jónas var sannfærður um, að Íslendingum kæmi best að leita skjóls hjá Bretum og Banda- ríkjamönnum, enda dáðist hann að engilsaxneskri menningu. Jónas áttaði sig einnig snemma á hættunni, sem stafaði af ítökum kommúnista í listum og bók- menntum. Hann blandaði kommúnismanum þó saman við ýmsar tilraunir, sem listamenn gerðu til að brjóta upp lögun, snið og hrynjandi verka sinna og heppnuðust misjafnlega. Fræg urðu ummæli Jónasar um „hvíld- artíma í listum og bókmennt- um“, sem hann skrifaði í Tímann í árslok 1941: „Í bókmenntum og listum samtíðarinnar má greina fjórar kvíslir sömu elfu. Í bók- menntum er það kynóra- eða klámstefnan, í húsagerðarlist kassastíllinn, í höggmyndagerð klossastefnan, en í málaralist klessugerðin. Hér á landi má sjá dæmi um kynórastefnuna í ritum kommúnista og nokkurra ann- arra viðvaninga, sem tekið hafa þá til fyrirmyndar.“ Hér er hressilega að orði kom- ist. Í fagurfræði var Jónas róman- tískur íhaldsmaður, sem taldi listina eiga að vera leit að hinu fagra. Jónas varaði líka við opinberri forsjá í atvinnulífinu, þegar at- vinnurekendur hirða gróðann, en tapið er þjóðnýtt. Þótt sumir hafi talið þetta kunna orðalag fengið frá öðrum ritfærum manni, Vil- mundi Jónssyni landlækni, er það úr ræðu, sem Jónas hélt á Alþingi 1946.  Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Forsjálni Jónasar frá Hriflu Árið 2000 gerði Miðbaugs-GíneubúinnEric Moussambani garðinn frægan ásumarólympíuleikunum í Sydney. Áll-inn Eric, eins og hann var gjarnan kall- aður, keppti í 100 metra sundi með frjálsri aðferð og vakti mikla athygli. Hana fékk hann þó ekki sökum þess hversu góður sundmaður hann var heldur varð hann frægur fyrir að vera einhver slakasti keppandi Ólympíuleikanna frá upphafi. Eric, sem lá við drukknun í lauginni, lauk 100 metrunum á einni mínútu og 52 sek- úndum sem er meira en helmingi lengri tími en heimsmetið var á þeim tíma. Hann vann þó keppnina sem hann tók þátt í þar sem þeir tveir sundmenn sem áttu að keppa við hann voru dæmdir úr leik sökum þjófstarts. Ekki nóg með það heldur bætti hann sitt eigið persónulega met og setti nýtt landsmet í Miðbaugs-Gíneu. Eric fór fremur óhefðbundna leið á Ólympíuleikana en hann komst í gegnum niðurskurð án þess að ná tilsettu lágmarki. Hann komst á leikana sökum átaks sem lagst var í þetta árið og gekk út á það að fá fólk í vanþróuðum ríkjum til að taka þátt í Ólympíuleikunum og þannig stuðla að uppbyggingu íþróttastarfs og aukinni alþjóðavæð- ingu þar í landi. Eric hóf að æfa sund aðeins átta mánuðum áður en keppnin var haldin og hafði til að mynda aldrei séð 50 metra ólympíska sundlaug þar sem hann hafði aðeins æft sig í 20 metra sundlaug í hótelgarði í höfuðborg Miðbaugs- Gíneu, Malabo. Það er því engin furða þótt Eric hafi ekki verið háll sem áll þrátt fyrir viðurnefnið. Aðeins einn annar keppandi frá Miðbaugs-Gíneu var á leikunum, sundkonan Paula Barila Balopa. Eftir frammistöðu Erics beindist kastljósið að henni. Hún keppti í 50 metra sundi með frjálsri aðferð og átti erfitt með að klára sundið. Hún komst þó í mark á einni mín- útu og þremur sekúndum og setti þar met: hægasta sund allra tíma á leikunum. Eric var neitað um þátttöku á Ól- ympíuleikunum árið 2004 þrátt fyrir stórfellda framför en met hans var þá komið niður undir 57 sekúndur. Eric hefur þó ekki sett sundskýluna í þurrk- arann og syndir enn þann dag í dag. Hann hefur þjálfað aðra sundmenn í heimalandi sínu og fyrir skemmstu var hann skipaður aðalþjálfari sundl- iðs Miðbaugs-Gíneu fyrir Ólympíu- leikana sem voru að hefjast í Lund- únum á dögunum. davidmar@mbl.is Hvað varð um … Methafinn Eric Moussambani er þjálfari landsliðs Miðbaugs-Gíneu í sundi á Ólympíuleikunum í Lundúnum. AFP Eric Moussambani? Hvert mannsbarn er með hug- ann við Ólympíuleikana þessa dagana. Michelle Obama for- setafrú Bandaríkjanna er þar engin undantekning en hún er mætt til Lundúna, þar sem hún brá á leik með börnum í gær í tengslum við uppákomuna „Flytjum Lundúnir“ við Win- field House. Þótti frúin sýna fádæma fóta- fimi og gaf til dæmis knattundr- inu David Beckham, sem einnig var á svæðinu, lítið eftir. AFP Fótafimi frú Obama Veröld Kappinn hefur bætt sig mikið. Þjónustum allar gerðir ferðavagna Bílaraf www.bilaraf.is Strandgötu 75 • 220 Hafnarfjörður • Sími 564 0400 • bilaraf.is Opnunartími verslunar í sumar: 8–18 virka daga, 10-14 á lau. Gott verð, góð þjónusta! Umboðsaðilar fyrir Truma & Alde hitakerfi á Mover undir hjólhýsi 249.900 kr. Tilboð Tilboð áTruma E-2400 Gasmiðstöð 159.900 kr. Tilboð Mikið úrval vara- og aukahluta! Markísur á frábæru verði Ísskápur: Gas/12 Volt/ 220V – Mikið úrval Sólarsellur á góðu verði – Fáið tilboð með ásetningu

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.