SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Qupperneq 12
12 29. júlí 2012
Mánudagur
Aron Pálmarsson
Jæja... öll neikvæðni
og meiðslavesen sett
til hliðar, búinn að fá
grænt ljós á ÓL!!! eins
og einn góður maður sagði "I VÆK"
Þriðjudagur
Sölvi Tryggvason Tvö-
faldur espresso að
morgni dags er ekkert
minna en trúarathöfn.
Heilög stund!
Sigurður Hlöðversson
Hangi á Heathrow að
bíða eftir flugi heim.
Ferleg traffík hérna.
Ætli það sé eitthvað að
gerast í borginni?
Fimmtudagur
Hörður Hilmarsson
Fyrsti dagur Færeyja-
ferðar að baki. Tón-
leikar Karlakórsins
Lóuþræla í Vesturkirkj-
unni í Þórshöfn í gær-
kvöldi voru vel heppnaðir. Um 100
manns hlýddu á söng þrælanna
hennar Lóu og létu vel af. Í dag er á
dagskránni ferð til Götu, með heim-
sókn í Byggðasafnið, tónleikum í
Götukirkju og „komsammen med
middag aftaná“.
Fésbók
vikunnar flett
Lenovo ThinkPad vélin sem getið er hér
til hliðar notar Intel Core i7-3612QM
sem styðst við svonefnda Ivy Bridge
hönnun en Ivy Bridge leysir af hólmi
Sandy Bridge-örgjörva, sem hverfa
smám saman af markaði. Það getur
verið snúið að átta sig á muninum, en í
sem skemmstu máli má segja að
Sandy Bridge hafi verið stórt skref í ör-
gjörvahönnun, en Ivy Bridge lítið þó
það sé vissulega framfaraskref, enda
eru þeir smækkuð og uppfærð útgáfa
af Sandy Bridge.
Í Ivy Bridge örgjörvum er ýmisleg ný
tækni sem tryggir meðal annars að þeir
eru sparneytnari en fyrri gerðir, nota
jafnvel allt að 20% minni orku sem er
talsvert betra. Hvað hraðann varðar þá
er framförin minni, af mælingum má
ráða að hann er um 10% miðað við
sama klukkuhraða. Grafíkvinnsla er
líka hraðari og meira að segja talsvert
hraðari, en það fer þó vitanlega eftir því
hvort menn eru að nota grafíkina á
móðurborði eða með sérstök graf-
íkkort í vélinni. Þeir sem sýsla mikið
með myndir eða liggja í leikjum kjósa
væntanlega frekar sérstök skjákort og
þá skiptir grafíkhraðinn í örgjörvasett-
inu ekki svo miklu máli.
Lenovo ThinkPad Edge E530 er aðallega ætl-
uð fyrirtækjum og heimanotkun, en hentar
vitanlega prýðilega í hvaða tölvutösku sem
er. Hún er stílhrein, en frekar stór um sig,
enda skjárinn 15,6";
37,7 × 3,5 × 24,5 sm
og hálft þriðja kíló.
Öll tengi eru á hlið-
unum; HDMI, heyrn-
artól og hljóðnemi,
VGA tengi og 1 USB
2.0 tengi og þrjú USB
3.0. Minniskortales-
ari er á framhlið.
Upplausn á skjánum er
1600x900 og hann er mattur
sem eykur notagildi hans
sem um munar, ekki síst
þegar maður er ekki í
rökkri. Rafhlaðan er
gefin upp fyrir
tæpa sex tíma, en
ég náði ekki að
treina hana svo lengi.
Allskyns aukaforrit fylgja, þar á meðal Rapid
Boot, sem gerir kleift að ræsa vélina á nokkrum
sekúndum og virkar vel, þó það skerði notagildi
vélarinnar fyrstu andartökin.
Hún er vel spræk, reyndar verulega spræk
með Intel Core i7 Ivy Bridge örgjörva, 2,10
GHz. Það er GeForce GT 630M grafíkkort í
henni sem er meira en
nóg fannst mér. Það
er líka grafíkvinnsla í
örgjörvanum sem
vélin notar þegar hún
keyrir á rafhlöðu og
sparar þannig tals-
verða orku.
Minni í vélinni er 4 GB DDR3,
harði diskurinn 750 GB. Inn-
byggt er DVD RW-drif. Hljóm-
ur er Dolby Advanced Audio
og hún hljómar býsna vel
nema maður ætli að keyra
kerfið mjög hátt. Myndavél í
lokinu er 720p.
Er tímabært að skipta?
Á þessum árstíma eru býsna margir að velta fyrir sér fartölvum, hvort sem
það er fyrir skóla eða vinnu eða bara til gamans, og nýjum vélum snjóar inn á
markaðinn; nefni sem dæmi Lenovo ThinkPad Edge E530.
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Brú til framtíðar
Ivy Bridge leysir
af hólmi Sandy
Bridge örgjörva