SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Qupperneq 21

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Qupperneq 21
„Er þá tryggt að þitt DNA sé á þeim?“ flýtir Aðalsteinn sér að spyrja. Kára er skemmt. Aðalsteinn veltir því upp að listmálarar virðist halda starfsorku lengur en flestar, ef ekki allar, aðrar stéttir manna. Margir máli fram í rauðan dauðann, meðan fing- urnir virka. Þó fatist geómetrískum mál- urum flugið fyrr en þeim sem aðhyllast abstraktlist, af tæknilegum ástæðum. Lúnum fingrum getur eðli málsins sam- kvæmt reynst erfitt að halda beinni línu. Sköpunin situr lengst Kári segir það heldur engan þröskuld þótt rökhugsunin sé farin. Innsæið sé henni hvort eð er æðra. „Rökhugsunin leiðir sjaldnast til þess að við finnum eitthvað nýtt,“ segir hann. „Það er mikið til í þessu,“ bætir Björn Davíð Kristjánsson, sonur listamannsins, við. „Sköpunin virðist sitja lengst í okkur. Í tilviki pabba hefur flæðið verið hindr- unarlaust.“ Spurður hvort nýju verkin eigi erindi á sýningu svarar Aðalsteinn stutt og lag- gott: „Á því leikur enginn vafi.“ Höfundarverkið leynir sér ekki. „Í þessum verkum er rými, hrynjandi og músík, eins og Kristján hefur alltaf verið þekktur fyrir. Hann er mjög næmur á tónlist enda hljóðfæraleikari sjálfur. Spilar á fiðlu.“ Þegar Aðalsteinn horfir yfir nýju mál- verkin veitir hann því athygli að græni liturinn er áberandi. „Það er merkilegt,“ segir hann. „Ég minnist þess nefnilega að hafa heyrt Kristján segja að hann hataði græna litinn. Maður veltir fyrir sér hvort náttúran sé orðin honum hugleiknari á síðari árum. Annars ræðir Kristján aldrei svoleiðis hluti. Færi maður þetta í tal glottir hann bara og heldur áfram að mála.“ Strúktúrinn tók völdin Kári vill ekki blanda sér í þessa umræðu en bendir á að blái liturinn sé líka fyr- irferðarmikill sem fyrr hjá Kristjáni enda hafi hann löngum haft dálæti á fjörunni. „Annars hættu litirnir að skipta máli hjá Kristjáni fyrir um tuttugu árum, strúkt- úrinn tók alfarið völdin.“ Björn segir að faðir sinn myndi eflaust hleypa brúnum yfir þessum vangaveltum, hann hafi aldrei látið umræður um list sína trufla sig. Hann hafi bara haldið sínu striki – og geri enn. „Meðan geómetrían gekk yfir dró hann sig bara þegjandi og hljóðalaust í hlé og byrjaði svo bara þegar hans tími var kominn aftur. Pabbi eyðir hvorki tíma né kröftum í nöldur og leið- indi.“ Já, geómetrían átti aldrei við Kristján Davíðsson. Og þó? Aðalsteinn upplýsir að nýverið hafi fundist geómetrískt verk eftir hann í heimahúsi í Reykjavík. Björn hefur séð ljósmyndir af því. „Hann var ekki alveg saklaus,“ segir Aðalsteinn kíminn. „Það er rétt en ég held hins vegar að hann hafi fljótt áttað sig á því að geó- metrían var ekki hans,“ segir Björn. „Það held ég líka,“ segir Aðalsteinn. „Hann vissi alveg hverju hann var að af- neita.“ Bara klessa á striga Kristinn Ingvarsson ljósmyndari gerir sig nú líklegan til að taka myndir af verk- unum á vinnustofunni og mikil rekistefna fer fram um það hver þeirra séu best til þess fallin að koma fyrir augu lesenda Sunnudagsmoggans. Einhugur ríkir um stórt verk á trönunum en Kári stígur skyndilega í veg fyrir annað verk á gólf- inu. „Kristján er alls ekki nægilega sáttur við þessa mynd,“ segir hann og kveðst sjálfur vera sama sinnis. „Þetta er bara klessa á striga sem meikar engan sens. Ég veit að Svanhildur er sammála mér,“ segir hann og gjóar augunum á tengdamóður sína. „Nei, nei, nei. Hvaða vitleysa,“ flýtir hún sér að segja. „Nú, jæja,“ segir Kári sposkur. „Það hefði þá verið í fyrsta skipti í 43 ár sem við erum sammála ...“ Kristján Davíðsson listmálari verð- ur að heiman á afmælisdaginn. Myndina tók Kristinn Ingvarsson við heimili hans fyrir fimm árum. ’ Maður veltir fyrir sér hvort náttúran sé orðin honum hug- leiknari á síðari árum. Annars ræðir Kristján aldrei svoleiðis hluti. Færi maður þetta í tal glottir hann bara og heldur áfram að mála. 29. júlí 2012 21

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.