SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Qupperneq 23

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Qupperneq 23
29. júlí 2012 23 Ég man Allan Wells. Hvíti maðurinn sigraði – af því það voru engir svartir.Ég man neglurnar á Florence Griffith-Joyner.Ég man þegar Kiprotich frá Kenýu sigraði í 800 metrunum. Nema hvað hann sigraðiekki, heldur landi hans Paul Ereng. Ég man þegar Greg Louganis rak höfuðið í stökkbrettið svo blæddi úr hvirflinum. Ég man Nadiu Comaneci. Ég man þegar nafn eins keppandans í undanrásum í spretthlaupi náði þvert yfir sjónvarpsskjáinn. Bjarni Fel. leysti það snilldarlega að vanda, sagði alltof langt mál að nefna nafn keppandans. Ég man dýrslega ásýnd Bens Johnsons. Hann var stútfullur af sterum. Ég man Pieter van den Hoogenband. Þvílíkt nafn! Ég man flugið á Völu Flosa. Þá var þjóðin stolt – og Samúel Örn æstur. Ég man þegar ég sá keppni í göngu í fyrsta sinn. Fékk klums. Ég man þegar Daley Thompson mölvaði stöngina í miðju stökki. Til allrar hamingju fór það vel. Ég man skeggið á Jóni Arnari Magnússyni. Ég man Sergey Bubka. Hann hóf jafnan keppni þegar allir hinir voru hættir. Ég man Strákana okkar og dansinn hjá Óla Stef. við móttökuathöfnina hér heima. Ég man fyrsta „Draumaliðið“, Jordan, Bird, Magic. Svalt! Ég man þegar Rósa Ingólfs færði Jóni Óskari Sólnes kaffi í þularstofu seint um nótt. Hann þakkaði pent fyrir enda þótt hann drykki ekki kaffi. Ég man Merlene Ottey. Hún fékk alltaf silfur eða brons. Er hún hætt keppni? Ég man þegar Carl Lewis jafnaði afrek Jesse Owens, fjögur gull í frjálsum. Ég man þegar afríski sundkappinn Eric Moussambani Malonga var hér um bil drukknaður. Ég man yfirburði Michaels Johnsons. Furðulegur stíll. Ég man Albatrossinn. Ég man eftir að hafa verið vakinn árla morguns við stórfréttir: Íslendingur fékk brons, Íslend- ingur fékk brons! Bjarni Friðriksson var ekkert blávatn. Ég man þegar hin berfætta Zola Budd rakst á Mary Decker. Þeirri síðarnefndu var ekki skemmt. Ég man þegar írskur prestur réðst á Vanderlei Cordeiro de Lima í miðju maraþonhlaupi. Hann slapp úr prísundinni en missti af gullinu. Ég man að Michael Phelps vann átta gull á einum og sömu leikunum og skaut þar með sjálfum Mark Spitz ref fyrir rass. Síðan fékk hann sér í haus. Ég man þegar Usain Bolt hljóp inn í framtíðina. Hvað gerist nú? Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Hraðar, hærra, sterkar Rabb „Þetta er orðið heilmikið af fólki.“ Guðrún Jónsdóttir, 101 árs, spurð hvað niðjar hennar séu orðnir margir. „Maður þarf oft að velja hvor er í meiri hættu, þá hleypur maður þangað.“ Sigríður Beinteinsdóttir en tvíburarnir hennar, fimmtán mánaða, eru frekar fyrirferðarmiklir. „Mér finnst alltaf gaman að setja mig í spor annarra þó svo að ég kannist ekkert við skóbúnaðinn.“ Skáldkonan Didda spurð hvernig hún kunni við leiklistina. „Hvað varð eiginlega um hljómsveitina ykkar?“ Starfsmaður Ólympíuleikanna í Lundúnum við útsendara Morgunblaðsins. Hann átti við Sigur Rós. „Bjarki er nátt- úrlega líkamlegt undur.“ Heimir Guðjónsson þjálfari FH um hinn 39 ára gamla Bjarka Gunn- laugsson sem lék þrjá leiki á einni viku. „Hver í fjandanum er Árni Johnsen?“ Lundi Pysjuson í samtali við Monitor. „Ákvörðun þjálfarans er hreinn kjána- skapur.“ Bítillinn Sir Paul McCartney um þá ákvörðun Stuarts Pe- arce, þjálfara breska knattspyrnuliðsins á ÓL, að velja David Beckham ekki í lið sitt. „Vogue og allt þetta lið var þarna.“ Aníta Hirlekar fatahönnuður sem vakti athygli á sýningu í Lundúnum. „Það urðu oft og tíðum ánægjuleg slys.“ Sigtryggur Baldursson um þátt sinn Hljómskálann á RÚV. „Ég horfði þá á það sem var að gerast í raun og veru og komst að því mér til mikillar undr- unar að um mína daga hafa rauntekjur með- almanneskju þrefald- ast, barnadauði minnk- að um tvo þriðju og meðallífslíkur aukist um einn þriðja.“ Breski rithöfundurinn Matt Ridley. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Samningar sem Ísland er aðili að eru skýrir. Þeir segja að senda eigi slíka „flóttamenn“ án ástæðulausrar tafar til þess staðar sem þeir komu síðast frá. En það gengur gegn tískunni og pólitíska rétttrúnaðinum að fylgja umsömd- um reglum. Flóttamennirnrir koma sumir á fölskum skírteinum og það þykir siðferðislegur glæpur að mati háttsettra embættismanna að neita að trúa því að þeir séu börn! Öll þessi mál eru komin í miklar ógöngur og Útlendingastofnun er að bresta undan þeim. Nýlega brutu tveir „flóttamenn“ sér leið inn í íslenska þotu í Keflavík með miklum kostnaði og álitshnekki fyrir alla sem urðu fyrir því.“ Fróðlegur samanburður Það er fróðlegt að bera þennan texta saman við oflátungs-útúrsnúningatextann að ofan. Aug- ljóst verður þá öllum að sá sem telur sig eiga vera gæslumann rétttrúnaðarins, hvað sem öllu líður, nær ekki að halda þræði í þessari um- ræðu frekar en svo margri annarri sem hann tekur þó þátt í. Það var þó ótrúlega langt seilst að líkja umræddum „flóttamönnum“ sem hingað koma undantekningarlaust eða lítið frá löndum ESB, sem margoft hefur verið undir- strikað að sambandið hafi tryggt frið og vel- sæld í síðustu áratugi, við gyðinga á flótta undan böðlum og gasklefum Hitlers, þegar meginland Evrópu nánast allt var undir hæl hans eða ógnaráhrifum. Þannig vill til að þessir flóttamenn hafa, að eigin sögn, haldið til í fjöl- mörgum löndum Evrópu áður en þeir komu hingað, löndum sem hafa sambærilegar skyldur gagnvart flóttamönnum og Ísland. Að auki eru þeir margoft staðnir að því að „flýja“ hið frið- sama íslenska draumaríki og skaða fjölmarga hagsmunaaðila við það, um leið og þeim þykir lítið koma til þeirra framlaga sem veitt eru til uppihalds þeirra hér. En það kemur hins vegar ekki á óvart þótt góðkunningjar hlaupi til og afhjúpi, rétt einu sinni, að þeir séu með öllu ófærir um að taka þátt í málefnalegri umræðu í landinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skýjahjálmur Esjunnar. á

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.