SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Síða 26
K vískerjabræður eru löngu landskunnir fyriródrepandi áhuga á rannsóknum á náttúru ogsögu Austur-Skaftafellssýslu. Til marks um þaðvar stofnaður Kvískerjasjóður árið 2003 þeim til
heiðurs, en styrkirnir renna til rannsókna á náttúru- og
menningarminjum í sýslunni. Tveir bræðranna eru á lífi, þeir
Helgi og Hálfdán Björnssynir, en báðir eru komnir mitt á ní-
ræðisaldur og miklir vísindamenn. Einnig stóðu þeir Flosi og
Sigurður að rannsóknarstarfinu, en þeir eru fallnir frá eins og
systkini þeirra Ari, Páll, Ingimundur, Guðrún og Guðrún,
sem skírðar voru í höfuðið sín á hvorri ömmunni! María
Ingimarsdóttir var í sveit á Kvískerjum, eins og kemur fram í
viðtalinu við hana hér á næstu opnu. Og þar var Ragnar Ax-
elsson áður mörg sumur í sveit, þar af eitt með Björgvini
bróður hennar. Hann tók þá meðfylgjandi myndir. Sú nýj-
asta var hinsvegar tekin í september árið 2004 af því þegar
bræðurnir þrír Hálfdán, Helgi og Sigurður komu í fyrsta
skipti að flaki breska togarans Banffshire. Hálfdán og Helgi
búa enn að Kvískerjum í Öræfasveit.
Helgi skoðar hvernig klettarnir gægjast upp úr jöklinum og hvernig brotnar í kringum þá og myndast nýtt landslag eftir því sem hann þynnist meira.