SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Qupperneq 30

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Qupperneq 30
30 29. júlí 2012 Þ að er áreiðanlega upplifun margra almennra borgara, sem eiga samskipti við heilbrigðis- þjónustuna, að það hafi verið gengið of nærri henni í niðurskurði út- gjalda. Þeir sem til hennar leita finna, að þar er ekkert svigrúm lengur til staðar. Þeir sem við hana starfa geti ekki veitt meira en lágmarksþjónustu. Það er kannski ekki auðvelt að rökstyðja þessa staðhæfingu en skynjun fólks í tilvikum sem þessum er oft býsna nálægt veru- leikanum. Heilbrigðisþjónustan er að bresta. Fyrir bráðum fjórum áratugum voru uppi hugmyndir um það í forystusveit Sjálfstæðisflokksins að taka upp gjald fyrir mat, sem sjúklingar fá á spítölum. Rökin voru mjög einföld. Hvers vegna ætti að vera í því fólginn sparnaður fyrir fólk að leggjast inn á spítala? Þessar hugmyndir urðu ekki að veruleika þá enda mikil and- staða við þær innan þess flokks. Hitt fer ekki á milli mála, að heilbrigðisþjónusta er ekki lengur ókeypis á Íslandi fyrir þá, sem á henni þurfa að halda. Þegar komið er inn á spítala þarf að borga nánast við hvert fótmál. Kannski ekki háar upphæðir – en samt. Þetta er ekki sagt í gagnrýn- istón en hins vegar mikilvægt að við átt- um okkur á að lengra má ekki ganga í gjaldtöku án þess að eitthvað láti undan. Lyfjakostnaður þeirra, sem á annað borð þurfa á lyfjum að halda er orðinn verulegur. Þetta þýðir að það kostar orðið tölu- verða peninga að verða veikur á Íslandi. Er það ekki umhugsunarefni? Sú var tíðin að það var markmið okkar að kostnaður þyrfti ekki að vera áhyggjuefni þeirra, sem yrðu veikir. Þegar rætt er við þá, sem bezt þekkja til í heilbrigðiskerfinu fer ekki á milli mála, að þeir hafa miklar áhyggjur af því að tækjakostur sé að verða úreltur, gamall og bili gjarnan. Nútímatækni er lykilþáttur í heilbrigðisþjónustunni. Viljum við drag- ast aftur úr öðrum þjóðum í þeim efnum? Erum við tilbúin til að sætta okkur við það? Er það viðunandi fyrir þessa eyþjóð að þurfa kannski að senda sjúklinga til annarra landa vegna þess, að við höfum ekki talið okkur hafa efni á því að endurnýja tækjabúnað? Sömu kunnáttumenn telja mikla hættu fólgna í því að læknastéttin sé að eldast. Að ungir læknar, sem hafa leitað til út- landa í sérnám komi ekki aftur vegna þess, að þeir fái ekki störf hér af því að það eru ekki til peningar til að borga þeim laun. Eða annars konar aðstöðu vantar. Þetta gerist á skömmum tíma en það getur tekið lengri tíma að snúa þeirri þróun við. Það eru ný vandamál að koma til sög- unnar, sem við höfum lítið vitað af fram að þessu. Einhverfa er vaxandi vandamál. Það er erfitt að finna skýringar á því en er engu að síður veruleiki. Íslenzk kona, Margrét Dagmar Ericsdóttir, hefur unnið einstakt og nánast ótrúlegt afrek við að kynna heim hinna einhverfu á heimsvísu. Ofvirkni og athyglisbrestur eru hugtök, sem við erum varla byrjuð að skilja en munum kynnast betur. Nágrannaþjóðir okkar eru að byrja að átta sig á að meðferð á geðsýki getur ekki einungis snúizt um sjúklinginn sjálfan. Það þarf að huga að fjölskyldum geðsjúkra með skipulegum hætti. Í Noregi eru að verða til sjálfshjálparhópar unglinga, sem hafa alizt upp í fjölskyldum, þar sem geð- sjúkdómar hafa herjað á. Þeir bera saman bækur sínar undir leiðsögn fagfólks. Er nokkur von til þess að hægt sé að þróa upp slíka sjálfshjálparstarfsemi hér? Verkefnin sem heilbrigðisþjónustan stendur frammi fyrir eru ekki að minnka. Þau eru að stóraukast og á nýjum sviðum, sem heilbrigðiskerfið hefur lítið þurft að sinna fram til þessa. En heilbrigðisþjónustan á Ísland er í spennitreyju. Hún getur varla hreyft sig. Hún getur ekki tekizt á við ný og aðkall- andi verkefni með þeim hætti, sem er bæði æskilegt og nauðsynlegt og flokkast undir það að geta kallast siðmenntuð þjóð. Það er kominn tími til að þjóðin ræði þessa stöðu, sem heilbrigðisþjónustan er komin í og geri upp við sig, hvort hún vill láta þetta danka svona nokkur ár í viðbót eða snúa sér að því að taka ákvarðanir um hvað er brýnt að gera nú og hvað má bíða á öðrum sviðum til þess að það sé hægt. Það þarf ekki að stafa ofan í mig rökin um það, sem hér gerðist fyrir fjórum ár- um. Það þarf heldur ekki að minna mig á, að forsenda þess að þjóðin geti gert þetta og hitt sé að auka landsframleiðsluna og þar með hagvöxt. Þetta vitum við öll. Það getur hins vegar verið álitamál, hvort forgangsröðun okkar sem samfélags sé rétt þessa stundina og hafi verið rétt. Það hafa ekki farið fram miklar umræð- ur um stöðu heilbrigðisþjónustunnar á síðustu árum. Þegar einhverjir talsmenn hennar hafa hafið upp raust sína eru þeir ýmist afgreiddir með því að þeir séu að sinna eigin hagsmunum eða þeim er hótað öllu illu á bak við tjöldin. (Þannig verkar „kerfið“ á Íslandi). Það er tímabært að þessar umræður fari fram. Það er mikilvægt að stjórnmála- flokkar, þingmenn og ráðherrar og sveit- arstjórnarmenn (sumt af félagslegri þjón- ustu sveitarfélaga getur í raun flokkast undir heilbrigðisþjónustu) lýsi afstöðu sinni. Ég hef stundum velt því fyrir mér og hreyft því opinberlega, hvort bezt fari á því að fjármagna opinbera heilbrigðis- þjónustu með sérstökum eyrnamerktum skatti. Og að það verði síðan lagt í vald þjóðarinnar sjálfrar í atkvæðagreiðslum, hvort hún er tilbúin til að hækka þann skatt við aðstæður eins og nú eru til stað- ar, þegar augljóslega þarf að auka fjár- framlög til heilbrigðiskerfisins umtals- vert. Segi hún nei er það hennar eigin ákvörðun. En ég hef enga trú á að hún mundi segja nei. Heilbrigðisþjónustan er að bresta Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Ólympíuleikarnir, þeir fyrstu sem haldnirvoru að sumarlagi, eftir hörmungarnar semseinni heimsstyrjöldin kallaði yfir þjóðir,ekki síst í Evrópu, voru settir í Lundúnum á þessum degi fyrir 64 árum. Næstu leikar á undan fóru fram í Berlín sumarið 1936. Ólympíuleikarnir 1940 voru slegnir af vegna stríðsins en fyrst átti að halda þá í Tókíó og síðar Helsinki. Lundúnum hafði verið úthlutað leik- unum 1944 en einnig var hætt við þá. Þrátt fyrir að vera í sárum eftir hildarleikinn sóttust Bretar eftir leikunum 1948 og fengu þá. Ekki voru allir á eitt sáttir um þá ráðstöfun og lögðu einhverjir til að leik- arnir yrðu framseldir til Bandaríkjanna. Georg konungur VI tók hins vegar af skarið og sagði leikana tilvalið tæki- færi til að reisa gamla heimsveldið úr öskustónni. Lundúnir urðu þar með önnur borgin í sögunni á eftir París til að halda Ólympíuleikana tvisvar, fyrst fóru þeir þar fram árið 1908. Fyrir helgi urðu Lundúnir síðan fyrsta borgin til að setja þriðju leikana. Bretland, eins og álfan öll, var að byggja sig upp eftir stríðið og synd væri að segja að íburður hafi verið mikill á Ólympíuleikunum í Lundúnum 1948. Þvert á móti ganga þeir jafnan undir nafninu „meinlætaleikarnir“ vegna efnahagsástandsins og skömmtunarinnar sem var við lýði. Venjulegu fólki í Bretlandi voru skammtaðar 2.600 kaloríur á dag á þessum tíma en keppendur á leikunum voru settir í sérflokk, ásamt námamönnum og hafn- arverkamönnum, og fengu fyrir vikið 5.467 kaloríur í sinn hlut. Ekkert ólympíuþorp var reist árið 1948, þess í stað gistu keppendur í húsnæði sem þegar var til staðar. Karl- arnir fengu inni hjá konunglega flughernum á Uxa- bryggju en konurnar á stúdentagörðum í Lundúnum. Engir vellir voru heldur byggðir sérstaklega fyrir leikana, aðeins notast við eldri velli. Þetta mótlæti kom ekki í veg fyrir metþátttöku á leik- unum, 59 þjóðir sendu samtals 4.104 keppendur til leiks, 3.714 karla og 390 konur. Vegna framgöngu sinnar í stríðinu var hvorki Þjóð- verjum né Japönum boðið að vera með og Sovétmenn ákváðu, þrátt fyrir boð um þátttöku, að senda enga íþróttamenn til Lundúna. Bandaríkjamenn báru, eins og svo oft, höfuð og herðar yfir aðrar þjóðir á leikunum, unnu alls til 84 verðlauna, þar af 38 gull. Heimamenn unnu til 23 verðlauna, þar af voru þrjú gull. Georg konungur setti leikana í björtu og fallegu veðri á Wembley-leikvanginum að viðstöddum 85 þúsund gest- um. Burghley lávarður flutti ávarp og sagði þar meðal annars að leikarnir væru vonarglæta fyrir heim sem hefði orðið illa úti. Opnunarhátíðin var sýnd í beinni sjón- varpsútsendingu í breska ríkissjónvarpinu, BBC, og jafn- framt sextíu klukkutímar frá keppninni sjálfri. Mörg frækin afrek voru unnin í Lundúnum sumarið 1948 en stjarna leikanna var „húsmóðirin fljúgandi“, Fanny Blankers-Koen frá Hollandi sem vann fern gull- verðlaun í frjálsum íþróttum. Blankers-Koen, sem var þrítug tveggja barna móðir, sigraði í 100 og 200 metra hlaupi, 80 metra grindahlaupi og 4 x 100 metra boð- hlaupi. Reglur komu hins vegar í veg fyrir að hún ynni til fleiri verðlauna en Blankers-Koen, sem var heims- methafi í bæði langstökki og hástökki, var meinað að taka þátt í þeim greinum þar sem hver keppandi mátti aðeins keppa í þremur einstaklingsgreinum. Medalíukóngur leikanna varð finnski fimleikamað- urinn Veikko Huhtanen sem vann þrjú gull, eitt silfur og eitt brons og Bandaríkjamaðurinn Bob Mathias varð yngsti gullverðlaunahafinn á Ólympíuleikum þegar hann bar sigur úr býtum í tugþraut aðeins sautján ára gamall. Þegar Mathias var spurður hvernig hann hygðist halda upp á áfangann varð honum að orði: „Ætli ég byrji ekki bara að raka mig!“ orri@mbl.is Ólympíu- leikarnir settir í Lundúnum „Húsmóðirin fljúgandi“, Fanny Blankers-Koen frá Hollandi. ’ Þvert á móti ganga þeir undir nafninu „meinlætaleikarnir“ vegna efnahagsástandsins og skömmtunarinnar sem var við lýði. Frá setningarathöfn Ólympíuleikanna í Lundúnum 1948. Á þessum degi 29. júlí 1948

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.