SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Side 31
29. júlí 2012 31
Stefán Pálsson fimleikamaður fæddist í Reykjavík20. ágúst árið 1989. Hann gekk í Laugarnesskóla ogLaugalækjarskóla og að loknu því námi lá leiðin íFjölbrautaskólann við Ármúla og Borgarholts-
skóla. Stefán var þróttmikið barn og var því sendur í fim-
leika hjá fimleikafélagi Ármanns. Fimleikahæfileikar hans
fengu að blómstra í félaginu en lið hans, sameiginlegt lið
Stjörnunnar og Ármanns, hlaut brons á Norðurlanda-
mótinu í hópfimleikum árið 2011. Hann keppir enn í fim-
leikum en samhliða því er hann fimleikaþjálfari og þjálfari
hjá líkamsræktarstöðinni Hreyfingu.
Foreldrar Stefáns eru ljósmyndararnir Páll Stefánsson og
Áslaug Snorradóttir. Hann erfir ferðafýsn og ævintýra-
mennsku foreldra sinna. Hann hefur því ferðast til hinna
forvitnilegustu landa á borð við Malasíu, Marakkó og
Mexíkó. Einnig hélt fjölskyldan jólin hátíðleg í Indlandi árið
2010.
Íþróttaáhugi Stefáns ber hann á vit ævintýranna en á
sunnudaginn leggur hann af stað til þess að fylgjast með
Ólympíumótinu í Lundúnum.
if@mbl.is
Stefán í hjólatúr á Hellisheiði í vor. Stefán nýtir fimleikatæknina á skíðunum. Hér er hann staddur í Noregi árið 2009.
Á fimleikaæfingu hjá Ármanni árið 1999.
Á fimleikaferð í Ungverjalandi rákust strákarnir á fimleikagoðið Marius
Urzica. Frá hægri: Stefán, Andri, Marius, Hjalti og Daði.
Fjölskylda Stefáns; Páll Stefánsson, Áslaug Snorradóttir og Kolbrún Pálsdóttir.
Flikk-flakk
og ferðalög
Stefán Pálsson leggur land undir
fót og fylgist með Ólympíuleik-
unum í Lundúnum.
Tæplega tveggja ára blómálfur. Stefán er fimleikamaður og þjálfari.
Stefán sjö ára í Sardiníu.
Sameiginlegt lið Stjörnunnar og Ármanns hlaut brons á Norðurlandamótinu í hópfimleikum árið 2011.
Myndaalbúmið
Jóla-Stefán í Indlandi 2010. Í hælaskóm á 3 ára afmælinu.
Sjö ára lopapeysumódel.