SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Page 33

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Page 33
Morgunblaðið/Kristinn Þú hefur ferðast um allt Ísland. Áttu þér uppáhalds- stað á landinu? „Uppáhaldsstaðirnir mínir eru margir. Ég mynda þá aftur og aftur. Konan mín segir oft þegar ég fer aftur á sömu staðina til að taka myndir: „Ertu ekki búinn að taka þessa mynd? Ólíkt því sem margir kynnu að halda þá fæ ég aldrei sömu mynd af sama stað. Landslagið og birtan eru svo fjölbreytileg og aldrei eins. Ég fer oftast af stað með það að markmiði að taka myndir, en mér er alveg sama þó ég komi ekki heim með mynd, bara ef það hefur verið gaman í ferðinni. Það er mjög gott að leggja af stað með þetta hugarfar því þá verður maður ekki vonsvikinn.“ Meira um magn en gæði í ferðaþjónustunni Þú ert mikið á ferðinni úti í náttúrunni, er ekki alls staðar troðfullt af ferðamönnum á þessum tíma árs? „Á sumum stöðum á Íslandi er allt krökkt af ferða- mönnum, en fari maður á Vestfirði þá eru fáir ferðamenn þar og það er frábært. Ég var á Vestfjörðum á dögunum. Þeir sem keyra í gegnum stað eins og Hólmavík segja kannski við sjálfa sig: „Mikið er þetta nú lítið spennandi staður!“ En þeir sem hafa viðkomu á Hólmavík og gista í tvo eða þrjá daga, eins og ég gerði, komast að því að þeir eru á flottum stað. Maður gengur um og skoðar höfnina og plássið og þessa undarlega samsettu byggð og upp- götvar heillandi þorpsbrag.“ Hefurðu skoðun á þróun ferðaþjónustu í landinu? „Já, það er verið að gera mikið fyrir ferðamenn og ekki er það allt til góðs, þó margt sé vel gert. Í ferðaþjónust- unni sýnist mér að verið sé að gera meira út á magn en gæði. Í stað þess að fara með ferðamenn á færri staði og leyfa þeim að njóta hvers staðar fyrir sig er þeyst með þá hringinn í kringum landið á sjö dögum með þeim afleið- ingum að þeir verða gjörsamlega uppgefnir. Við þurfum líka að íhuga hvað við erum að selja út- lendingunum. Ég held að margir Íslendingar hafi hrokkið í kút þegar þeir áttuðu sig á því að Kínverji vildi kaupa Grímsstaði til að búa þar til golfvöll. Útlendingar heillast af óspilltri náttúru Íslands, þeir koma hingað til að sjá náttúruna, en ekki til að skoða rafmagnslínur og virkj- anir. Það er okkar að gæta þess að varðveita hina óspilltu náttúru. Ferðamenn sem koma til Íslands eru ekki að leita að sól og sumri þegar þeir koma hingað. Ég man að þegar ég stakk upp á því að nota sem kápumynd á bókina Lost in Iceland dökka og drungalega mynd sem var tekin í míg- andi rigningu á leið inn í Veiðivötn þá leist engum á For- laginu á það. Menn töldu að það væri ekki söluvænlegt að nota slíka mynd á forsíðu ljósmyndabókar. En bókin rokseldist vegna þess að ferðamenn sem koma hingað muna eftir auðninni og söndunum og þeirri tilfinningu sem umlykur mann á svona stöðum. Stundum verða til góðar myndir við ólíklegustu skil- yrði. Tvær myndir sem ég tók út um bílgluggann hafa ratað á forsíður. Önnur er kápumyndin á Lost in Iceland, sem ég var að segja þér frá, og hin er forsíðan á Iceland Small World sem er af húsi á Hofsósi en þegar ég tók þá mynd óttaðist ég mest að húsið væri einhvers konar listagerningur, tilbúið listaverk sem ég gæti ekki notað. En húsið reyndist vera raunverulegt og myndin kemur manni í gott skap, auk þess sem hún segir ýmislegt um íslenskt þjóðfélag og sjálfstætt fólk. Það er eitthvað mjög sjarmerandi við þessa glöðu mynd.“ Í lífshættu á Seychelles-eyjum Þú hefur ferðast mikið erlendis. Hvaða land heillar þig mest fyrir utan Ísland? „Það sem heillar mig mest við útlönd er fjölbreytt mannlíf. Skemmtilegast er að koma til Austurlanda þar sem mannmergðin er bæði landslagið og lífið. Það er ein- stök blanda. Ég hef komist að því á ferðum mínum til annarra landa að Ísland býr yfir einstakri náttúrufegurð. En sama má segja til dæmis um þjóðgarða í Ameríku sem sumir eru engu líkir en bara á allt annan hátt. Ég hef gengið milli fjallaþorpa í Norður-Taílandi og Nepal sem eru einstæð en verða mjög sennilega horfin eftir tíu ár. Við Helga konan mín höfum myndað mikið á þessum ferðalögum okkar erlendis og kannski verður til bók um þetta heimshornaflakk – eða kannski ekki. Þessar ferðir hafa óneitanlega þroskað mig en líka þroskað sýn mína á mitt eigið land. Við Sæmundur Norðfjörð og Helga gerðum á sínum tíma bók um Argentínu og vorum þar í fjóra mánuði. María Kodama, ekkja Jorge Luis Borges, skrifaði formál- ann að bókinni. Það var fínn og háfleygur texti sem var miklu meira um Ísland en Argentínu því þau hjónin voru svo miklir Íslandsvinir. Við Sæmundur höfðum hugsað okkur að kalla bókina Lost in Argentina en urðum sam- mála um að það myndi ekki ganga því þarna týndu um 40.000 manns lífinu í pólitískum hreinsunum. Það var flogið með fólk og því kastað út úr þyrlum í hafið. En for- lagið þarna úti gerði enga athugasemd við þennan titil og bókin kom út þar í landi og gekk ágætlega. En það er langt á milli staða í Argentínu ég held að við höfum keyrt 14.000 km fyrir utan allt flug. Hér á landi tekur eitt við af öðru. Það er einstakt fyrir ferðamann að koma til Íslands og sjá sífellt eitthvað nýtt.“ Það var ráðist á þig á Seychelles-eyjum í Indlands- hafi fyrr á þessu ári. Segðu mér frá því svona í lokin. „Ég hef oft orðið fyrir ónæði þegar ég er að mynda. Stundum vill fólk vernda mann og passa – og fá borgað fyrir. Þá fýkur oft í mig. En þarna á Seychelles-eyjum varð mjög alvarlegt atvik. Við Helga vorum í þjóðgarði sem við töldum öruggan, búin að ganga um þrjá tíma eft- ir göngustígi upp á fjall. Ég var nýbúinn að segja við kon- una mína: „Helga, ef við heyrðum ekki í fuglunum þá væri eins og við værum ein í heiminum. Í þeim töluðu orðum birtist skyndilega grímuklæddur maður í her- mannabuxum, vopnaður sveðju. Hann hótaði að drepa okkur ef við létum hann ekki fá peninga og myndavélina. Ég brást ekki skynsamlega við. Ég var með allar mynd- irnar mínar í vélinni og vildi ekki missa þær. Þannig að ég veitti viðnám og hrópaði til konu minnar að kalla á hjálp. Ræninginn skar mig í bakið og annan fótinn. Þegar ég var við það að gefast upp þá var eins og úr honum væri allur máttur og hann lét sig hverfa. Þetta mál vakti mikla at- hygli og komst í pressuna þar og ég fékk afsökunarbréf frá forsætisráðherra Seychelles-eyja. Refsingar voru þyngdar og löggæsla aukin í kjölfarið á eyjunum. Ef ég hefði ekki veitt viðnám þá hefði þessi árás aldrei vakið athygli. Það tók mig um viku að átta mig á því sem hafði gerst. Heldur óskemmtileg lífsreynsla.“ ’ Ég var nýbúinn að segja við konuna mína: „Helga, ef við heyrðum ekki í fuglunum þá væri eins og við værum ein í heiminum. Í þeim töluðu orðum birtist skyndilega grímuklæddur maður í hermannabuxum, vopnaður sveðju. Hann hótaði að drepa okkur ef við létum hann ekki fá peninga og myndavélina. Ég brást ekki skynsamlega við. Hús á Hofsósi. „Myndin kemur manni í gott skap, auk þess sem hún segir ýmislegt um íslenskt þjóðfélag og sjálfstætt fólk.“ Ljósmynd/Sigurgeir Sigurjónsson Forsíða Lost in Iceland. „Menn töldu að það væri ekki söluvænlegt að nota slíka mynd á forsíðu ljósmyndabókar.“ Ljósmynd/Sigurgeir Sigurjónsson 29. júlí 2012 33

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.