SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Side 38
Noel og Liam Gallagher gerðu garðinn frægan meðhljómsveitinni Oasis á tíunda áratug síðustu aldar.Þeir eru þekktir fyrir lifandi lagasmíð, skapofsa ogvilltan lífsstíl. Oasis leið undir lok í ágúst árið 2009
en bræðurnir héldu ótrauðir áfram að vinna í tónlist
sinni. Hvert lá leið þeirra eftir Oasis og hver er forsaga
skaphundanna Noels og Liams Gallaghers?
Ofbeldisfullur faðir
Foreldrar bræðranna eru írskir, Thomas og Peggy
Gallagher. Noel fæddist árið 1967 en Liam er
fimm árum yngri. Þriðji og elsti bróðirinn heitir
Paul. Fjölskyldan bjó í Manchester á Englandi.
Faðirinn var ofbeldisfullur drykkjusjúklingur
og hafði það djúpstæð áhrif á bræðurna. Móðir
þeirra sótti um skilnað árið 1976 en yfirgaf
ekki eiginmann sinn fyrr en sex árum síðar.
Drengirnir flæktust ungir í slæman fé-
lagsskap og voru báðir reknir úr skóla á
unglingsaldri. Þeir störfuðu við bygging-
ariðnað á unglingsárunum og sökktu sér í
tónlistargeirann.
Liam stofnaði hljómsveitina The Rain
árið 1991 og bauð bróður sínum stöðu
gítarista. Noel fannst lítið til hljómsveit-
arinnar koma en féllst á að ganga til liðs
við hana með því skilyrði að hann væri
listrænn stjórnandi og aðallagasmiður.
Konungar Bretapoppsins
Í maí árið 1993 var hljómsveitinni, sem
hafði þá skipt um nafn og hét nú Oasis,
boðinn plötusamningur. Ári síðar kom
út fyrsta platan, sem bar nafnið Definitely
Maybe. Platan sló öll sölumet og hreppti
fyrsta sæti breska vinsældalistans. Tónleika-
ferðalög, áfengis- og fíkniefnaneysla og mikil eyðsla
peninga varð hluti af daglegu lífi bræðranna. Samvinna
þeirra gekk fljótlega brösuglega. Deilur þeirra væru efni í
heila bók en þeir börðust með orðum, kylfum og klóm.
Liam Gallagher leikur á ólympíuleikunum
en bróðir hans, Noel, er á tónleikaferðalagi
í Japan. Bræðurnir blómstra hvor í sínu
lagi en samvinnu þeirra lauk skyndilega
fyrir þremur árum.
Ingibjörg Friðriksdóttir if@mbl.is
REU-
TERS
’
Faðirinn var
ofbeldisfullur
drykkjusjúkling-
ur og hafði það djúp-
stæð áhrif á bræðurna.
Móðir þeirra sótti um
skilnað árið 1976 en
yfirgaf ekki eiginmann
sinn fyrr en sex árum
síðar.
Barátta bresku
bræðranna
38 29. júlí 2012
Erlendir gestir sem til landsins koma róma gjarnan sundlaugarlandsins og segja þær einstakar. Víst eru fágæt hlunnindi aðgeta komist í sund; taka sprett í lauginni eða láta vöðva-spennuna líða úr sér í snarpheitum potti og ræða þar við
menn um landsins gagn og nauðsynjar. Segja má að í laugunum
blómstri sjaldgæf alþýðumenning; þær eru algjör lukkupottur sem allir
sækja og fáklæddir á sundfötunum eru allir því sem næst jafnir – hver
fyrir öðrum. Það er því ekki að ófyrirsynju að erlendum gestum sem til
landsins, tignarfólki sem almúganum, hafi gjarnan verið boðið í laug-
arnar. Í safni Morgunblaðsins er að finna svona sundlaugamyndir og
má þar til dæmis nefna myndir úr heimsókn Karls Gústafs Svíakon-
ungs sem heimsótti Ísland snemma sumars árið 1975 og brá sér þá í
Laugardalslaugina með borgarstjóranum í Reykjavík, Birgi Ísleifi
Gunnarssyni. Hittu þeir þar fyrir einn af fastagestum lauganna, Bessa
Bjarnason, stórleikann sem svo margir dáðu, ekki síst yngri kynslóðin,
fyrir snilldarleik hans á Mikka ref í leikritinu um Dýrin í Hálsaskógi.Konungurinn, borgarstjórinn og Bessi Bjarnason í heita pottinum í Laugardalnum fyrir bráðum 40 árum.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Myndasafnið 14. júní 1974
Höfðingjarnir
og heita vatnið
Frægð og furður
Noel og Liam Gallagher eru
konungar Bretapoppsins.