SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Qupperneq 39

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Qupperneq 39
Eitt sinn gengu þeir svo langt að þeir tættu í sundur gítara hvor annars. Noel hótaði ítrekað að yfirgefa hljómsveitina en það gerði hann endanlega í ágúst árið 2009. Ástæðu þess sagði hann vera að ómögu- legt væri að vinna með Liam. Hljómsveitin er enn í dag ein þekktasta hljómsveit Bretlands og hafa bræðurnir verið nefndir konungar Bretapoppsins. Andi Noels á ólympíuleikum Bræðurnir hafa aldrei sæst. Þeir vinna nú hvor í sínu lagi að glæstum ferli. Noel hefur vegnað vel á einleiksferli en plata hans, Noel Gallagher’s High Flying Birds, sat í fyrsta sæti breska vin- sældalistans. Í sumar er hann á tónleikaferðalagi með hljómsveitinni Snow Patrol. Um helgina spilar Noel á Fuji-tónlistarhátíð- inni í Japan á meðan litli bróðir hans leikur í höfuðborg heimalandsins, Lundúnum. Liam kemur fram með hljómsveit sinni, Beady Eye, á ólympíuleikunum. Upphaflega vonuðust stjórnendur íþróttaleikanna til þess að geta sameinað bræðurna en Noel þvertók fyrir að spila með hljómsveitinni. Hann verður þó með í anda því Beady Eye mun flytja tónsmíð hans, Oasis-slagarann Wonderwall. Fyrri eiginkona Noel Gallagher var Meg Matthews. Myndin er tekin árið sem að þau giftu sig, 1997. Reuters 29. júlí 2012 39 „Gekk konungur um og skoðaði mannvirkin, en fékk síðan léða sundskýlu og brá sér í gufubað og síðan í laugina ásamt þeim Birgi borgarstjóra, Bertil Daggfeldt kommendörkapten og dr. Sigurði Þór- arinssyni, sem er sérstakur fylgdarmaður konungs í heimsókninni. Tóku þeir sér sundsprett, en settust síðan í einn heita pottinn um stund. Síðan smelltu þeir sér aftur í laugina, en fóru svo og klæddu sig. Á meðan drukku forseti Íslands og aðrir í fylgdarliðinu kaffi og horfðu svo á sundkappana,“ segir í hnyttinni frétt Morgunblaðsins um kon- ungskomuna. Í heimsóknum erlendra gesta hingað til lands er þeim gjarnan sýnt það besta sem landið hefur uppá að bjóða. Heita vatnið er eitt af því. Þegar Winston Churchill kom í skyndiheimsókn til Íslands árið 1941, í kjölfar fundar síns við Franklin D. Roosevelt Bandaríkjaforseta, var brunað með hann upp í Mosfellssveit og að Reykjum „ ... og skoðaði þar hverina og gróðurhúsin og fannst mikið til um að sjá þarna full- þroskuð vínber og suðræn aldini,“ eins og segir í hinu gagnmerka ann- álariti, Öldinni okkar. Og þetta hefur ekki breyst ýkja mikið. Eitt af því sem vekur mestan áhuga erlendra ferðamanna á Íslandi er enn í dag og einmitt hvernig við nýtum jarðhitann. Nesjavallavirkjun hefur verið fjölsóttur staður og sama má segja um Hellisheiðarvirkjun, þar sem framleitt er raf- magn og heitt vatn – sem flýtur þaðan til Reykjavíkur og fyllir hana af birtu og yl. Hafa vísir menn komist svo að orði að heita vatnið eigi stóran þátt í velmegun Íslendinga – aukinheldur sem veiturnar víða um land séu í raun félagslegt framtak fólksins sem með samtakamætt- inum hefur gert landið bláa að grænum reit. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is ’ Gekk konungur um og skoðaði mannvirkin, en fékk síðan léða sundskýlu. Winston Churchill Glæpakvendið Aishana Clay- ton kann að koma sér úr klípu. Síðastliðinn laugardag var Clayton gripin við þjófnað í búðinni Pathmark í borginni Fíladelfíu, stærstu borg Pennsylvaníuríkis í Banda- ríkjunum. Vörðurinn leiddi Clayton inn á lager búð- arinnar en þar kýldi, klóraði og beit glæpakvendið frá sér. Þegar hún gerði sig lík- lega til að flýja greip vörð- urinn í skyrtu hennar. Hún var fljót að sjá við því og reif sig úr toppnum. Ber- brjósta flúði hún af vettvangi og er enn eftirlýst. Aishana Cayton er á skilorði þar til í nóvember en hún var dæmd fyrir þjófnað og tilraun til manndráps. Berbrjósta þjófur Aishana Clayton er enn eftirlýst. Ársgamall björn kom gest- um verslunarmiðstöðv- arinnar Mill Mall í Pitt- sburgh í Bandaríkjunum að óvörum um liðna helgi. Vegfarendur urðu varir við húninn á bílastæði versl- unarmiðstöðvarinnar um áttaleytið á laugardags- kvöldið. Forvitnir versl- unarfarar reyndu að keyra í átt að húninum með þeim afleiðingum að dýrið flúði inn í verslunarmiðstöðina. Gestum hennar var lítt skemmt að mæta birni. Hún var því tæmd á auga- bragði og dýraeftirlitið kallað á svæðið. Húnninn var króaður af milli tveggja hurða, skotinn með svefnlyfi og fluttur á brott. Hann gerði engum mein en rann- sakað er hvaðan hann kom. Húnn í heimsókn Húnninn var króaður af milli tveggja hurða. Ungur maður að nafni Kevin Beaudette féll niður í 12 metra djúpa gjótu er hann reyndi að laumast óséður inná Nickelback-tónleika í Bandaríkjunum á dög- unum. Að sögn tónleikahaldaranna var hinn 22 ára gamli Kevin undir áhrifum vímuefna og alfarið á eigin ábyrgð. Menn virðast ekki á einu máli um það hvort sé í raun undarlegra, að maðurinn hafi farið svo ógætilega nálægt sprungu eða að hann hafi yfirhöfuð viljað fara á Nickelback-tónleika. Glöggir menn hafa bent á það að þarna hafi náttúruval Darwins mögu- lega haft sitt að segja. Maðurinn hlaut einungis skrámur og mar og má því teljast heppinn. Áhangandi féll í gjótu Sveitin Nickelback er vinsæl á meðal sumra. Maður í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum var handtek- inn fyrir fremur furðulegar sakir. Hinn 37 ára gamli Rod- ney Dwayne Valentine losn- aði úr fangelsi á dögunum en var handtekinn aftur eftir að hann neitaði að fara úr fanga- klefanum. Valentine bað lög- reglumenn um að skutla sér á vegahótel í grenndinni og þegar ekki var brugðist við bón hans neitaði hann að hreyfa legg né lið. Maðurinn hefur nú verið ákærður fyr- ir að vera á landareign annarra í leyfisleysi og verður réttað yfir honum 9. ágúst næstkomandi. Vill ekki fara úr fangelsi Valentine sættir sig við rimlalífið.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.