SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Blaðsíða 40
Vegahandbókina greip ég með mér í ferða-
lagið um daginn. Er hún góður ferðafélagi
til að taka með sér í fríið enda þar að finna
ógrynni upplýsinga um landið eins og það
leggur sig. Í bókinni má lesa fróðleik um
hina ýmsu staði á þjóðveginum en einnig
nálgast ýmsar upplýsingar um þjónustu
innan bæjarfélaga. En kort af bæjunum
reynast vel fyrir ferðalanga og þar er t.d.
merkt inn á matarverslanir, sundlaugar og
tjaldstæði. Aftast í viðaukum má svo lesa
um hraunhella á Íslandi, heitar laugar og
fleira forvitnilegt. Vegir eru vel merktir á
kortum bókarinnar og hægt að sjá í bókinni
hæð fjallvega á Íslandi. Afar ítarleg bók
sem hiklaust má mæla með að taka með
sér í ferðalagið.
Góður ferðafélagi
40 29. júlí 2012
Lífsstíll
Mikið sem það er skemmti-legt að búa á landi sem sí-fellt er hægt að sjá nýjarhliðar á. Líkt og fram kom í
síðasta pistli mínum hélt ég fyrir tveimur
vikum síðan á Vestfirði í fyrsta sinn á ævi
minni. Verður að segjast að ég heillaðist
algjörlega af þessu landsvæði. Firðirnir
eru endalausir, fjöllin ótrúleg, náttúran
almennt stórbrotin og þorpin falleg.
Strikar þetta allt saman út fjallvegina sem
mér þóttu á köflum einum of brattir.
Að öllu öðru ólöstuðu fannst mér
standa upp úr að keyra út í Selárdal og
skoða þar listaverk Samúels Jónssonar.
Listamannsins með barnshjartað eins og
hann er gjarnan kallaður. Samúel var
bóndi í þessum afskekkta dal þar sem í
næsta nágrenni bjó Gísli nokkur á Upp-
sölum. Skálavík, í grennd við Bolung-
arvík, stendur einnig upp úr. Friðsæll
staður og kjörinn til að á og fá sér göngu-
túr um fjöruna. Af tjaldstæðum má helst
nefna tjaldstæðið við Dynjanda sem er
einmitt það sem maður vill á Vest-
fjörðum. Dálítið afskekkt, lítið og ekki
fjölfarið. Kvöldsólin skartaði sínu feg-
ursta og rammaði inn fossinn ægifagra
sem rennur ótrúlega formfagur eftir
bjarginu. Svo verð ég nú að skjóta inn
línu um vöfflurnar á Simbakaffi á Þing-
eyri. Bústnar með einhverju leynibragði
sem var afar gómsætt og góður bolli af
heitu súkkulaði með.
Á ferðum okkar skemmdi veðrið held-
ur ekki fyrir. Sólin skein í heiði og hita-
mælirinn sýndi vel upp undir 20 stig.
Svona á þetta að vera á sumrin og um að
gera að njóta frísins til að skoða landið
sitt og kynnast því enn betur.
Sem áður sagði þóttu mér vegirnir á
Vestfjörðum á köflum fremur brattir og
beinlínis glæfralegir með augum Reykja-
víkurbarns. Keyrsla um þá er þó al-
gjörlega þess virði og margt að sjá fyrir
vegfarendur. Þó vissulega skuli ökumað-
ur ekkert gera annað en að horfa fram á
veginn. Enda veitir ekki af.
Á leiðinni til Skálavíkur, útsýnið af veginum er víða fallegt á Vestfjörðum og náttúran nýtur sín vel í góðu sumarveðrinu.
Um fjöll og fagra bæi
Lífið og
tilveran
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Loks kom að því að
pistlahöfundur hélt til
Vestfjarða í sumarfrí-
inu og varð síður en svo
fyrir vonbrigðum með
það sem fyrir augu bar.
’
Kvöldsólin skartaði
sínu fegursta og
rammaði inn fossinn
ægifagra sem rennur ótrú-
lega formfagur eftir bjarginu.
Sundfatnaðurinn úr smiðju Reds Carters sem sýndur
var á Mercedes-Benz Fashion-tískuvikunni á Miami
Beach í Flórída var skemmtilega litríkur eins og sést
hér á þessum myndum. Carter er þekktur fyrir að
hanna í fáguðum stíl en um leið vera duttlunga-
fullur og því aldrei að vita hvaða beygju hann tekur
á tískuhraðbrautinni. Sundfötin sem sýnd voru í
Miami eru samkvæmt þessu. Sniðin eru einföld og
látlaus en mynstrið nokkuð exótískt og jafnvel
dálítið í anda nútíma-amasóna, en þær voru
þekktar í grískri goðafræði fyrir að vera
mjög færar bardagakonur.
Amasónur á strönd
AFP