SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Side 42

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Side 42
42 29. júlí 2012 Þ að var árið 1837, í 3. árgangi tímaritsins Fjölnis að lista- skáldið okkar góða, Jónas Hall- grímsson, sagði rímunum stríð á hendur í þeim grimmasta ritdómi sem enn hefur birst um íslenskt skáldverk. Þar beindi hann sjónum að Sigurði Breið- fjörð og rímum hans um Tristran og Ís- önd sem út komu í Kaupmannahöfn árið 1831. Ritdómur þessi varð til þess að óorð komst á allan rímnakveðskapinn, að minnsta kosti í hugum ungra manna, einkum þeirra sem menntast höfðu í skólum. Jónasi þótti efni rímnanna fánýtt með öllu enda væri sýnt að það ætti lítið erindi til nútímafólks, gamlar lygisögur, sagðar í bundnu máli til afþreyingar alþýðunni. Verri útreið en efnið fékk hins vegar formið á rímunum og nefnir Jónas þrjár gerðir stílgalla; málleysur, hortitti og kenningar. Flestir kannast við hugtökin málleysur og kenningar – en hvað með hortitti, hvað skyldi vera átt við með því hugtaki? Um þá ritar Jónas: „Hortittirnir eru óþrjótandi; þeir úa og grúa svo eng- inn maður getur talið þá. Leirskáldin hafa nokkurs konar sérlegt lag á að troða þeim inn í hverja smugu á öllu sem þeir kveða og einkum eru þeir hnaskari en frá verði sagt að ná mátulega löngum lýsing- arorðum (adjectives) og keyra þau inn í götin á erindunum en hirða aldregi hvað þau þýða.“ Hér kemur það fram hjá Jónasi að þau lýsingarorð séu hortittir sem eru merk- ingarlítil, veikburða og slöpp og lýsa nánast engu. Þau eru eingöngu tæki til að fylla upp í línurnar svo að þær teljist rétt kveðnar; rím og ljóðstafir falli í réttar skorður. Í ritdómnum um rímur Sigurðar finnur Jónas einungis eitt lýsingarorð sem hann getur fellt sig við og ritar: „Í 24. erindinu er eina lýsingarorðið sem ég hefi getað fundið að gagni í öllum rímunum; það er tárafríð – „Gyðjan tára fríd“…“ Hér birtist ein þeirra krafna sem Jónas gerir til skálda hins nýja tíma: Forðist hin almennu orð (lýsingarorð) sem glatað hafa merkingu sinni og merkja nánast ekki neitt – verið skapandi, myndið ný lýsingarorð sem eru ykkar eign og mála mynd sem eftir stendur fyrir hugskots- sjónum lesandans, eða notið hin gömlu í nýju samhengi. Skáldskapur Jónasar leiðir í ljós að fyrir honum voru einmitt lýsingarorðin gulls ígildi; hvað eftir annað myndar hann sín eigin lýsingarorð, oft samsett, svo að les- andanum birtist óvænt sýn. Í Alþing hið nýja eru til dæmis þessi: „siglir særokinn / sólbitinn slær / stjörnuskininn stritar.“ Hér eru lýsingarorðin svo sláandi að eng- in þörf er á nafnorðum með þeim. Í sama ljóði: „Bera bý / bagga skoplítinn“. Skoplítill er nýtt lýsingarorð úr smiðju Jónasar og bregður skemmtilegu ljósi á byrði býjanna. Í erfiljóði eftir Bjarna Thorarensen, skáldið sem Jónas dáði og lærði af, er þetta: „grátþögull harma- fugl“. Og í Grátittlingnum talar Jónas um „lófalága þúfu“ og „óttabljúg augu“, hvorttveggja ný og vel heppnuð lýsing- arorð í því samhengi sem þau birtast. Allir veiðimenn geta og dáðst að lýsing- arorðunum „veiðitækir“ og „sporða- sprækir“ um silungana í Vorvísu Jónasar. Mörg skáld hafa nýtt sér áhrifamátt vel heppnaðra lýsingarorða. Nægir þar að minnast á Stein Steinar sem kallar fákana „stigháa“ í Haust í Þjórsárdal og ákveðin augu „horngul“ í The national bank of Iceland. Steinn er líka snillingur í því að finna ný og óvænt afbrigði hvíta litarins. Ég nefni þessi dæmi: „sólhvítur“, „brim- hvítur“, „mjólkurhvítur“ og „perluhvít- ur“. Í þessi spor Steins hafa fleiri farið. Í Sunnudagsmogganum síðustu helgi ritar Kristín Heiða grein um þá upplifun nokkurra starfsmanna Morgunblaðsins að verða vitni að samförum elskenda úti í frjálsri (næstum því) náttúrunni og „nutu þess í hvívetna að láta sólina verma beru bossana sem höfðu komið svona líka skyrhvítir undan vetri“. Skyrhvítur er frábært lýsingarorð. Það að tengja hvíta litinn við skyr bregður óvæntu ljósi á litinn. Skyr er góður heim- ilismatur, gamall og þjóðlegur. Hinir hvítu rassar verða því fremur viðkunn- anlegir þegar skyrið kemur með í för. Jónas Hallgrímsson hefði þegar í stað fallið fyrir Kristínu Heiðu! Af hortittum ’ Hér birtist ein þeirra krafna sem Jónas gerir til skálda hins nýja tíma: Forðist hin al- mennu orð (lýsingarorð) sem glatað hafa merkingu sinni og merkja nánast ekki neitt – verið skapandi, myndið ný lýsingarorð sem eru ykkar eign. Steinn Steinarr, sem situr hér með félögum á Hótel Borg, fann ný afbrigði hvíta litarins; sólhvítur, brimhvítur, mjólkurhvítur og perluhvítur, en hugkvæmdist ekki skyrhvítur. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Tungutak Þórður Helgason thhelga@hi.is Undanfari Tónlistarfélagsins varHljómsveit Reykjavíkur semvar stofnuð árið 1925. Til aðbyrja með var hljómsveitin aðallega skipuð sjálfmenntuðum áhuga- mönnum og talsvert vantaði af hljóð- færum til að fullskipa hana. Vegna þessa starfaði hún óreglulega fyrstu árin. Síðla hausts árið 1929 var fenginn hingað til lands austurríski stjórnandinn Franz Mixa. Nú dugðu engin vettlingatök því hljómsveitin átti að koma fram á Al- þingishátíðinni ári síðar en hátíðina opn- aði enginn annar en Kristján tíundi Dana- konungur. Fengnir voru lánshljóðfæraleikarar frá Konunglegu hljómsveitinni í Kaupmannahöfn og flutt var Hátíðarkantata eftir Pál Ísólfsson. Franz Mixa var lofaður í hástert fyrir frammistöðu hljómsveitarinnar. Eftir há- tíðarhöldin bauð hljómsveitin honum starf í tónlistarskóla, Tónlistarskólanum í Reykjavík, sem stóð til að stofna þá um haustið. Upphaflega var markmið tónlist- arskólans að ala upp hljóðfæraleikara fyrir hljómsveitina. Mixa féllst á að gerast tón- listarkennari í skólanum en Páll Ísólfsson tók við stöðu skólastjóra. Til að byrja með voru aðeins fjórir kennarar við skólann. Hljómsveit Reykjavíkur rak Tónlistarskól- ann í Reykjavík í tvö ár. Verkefnið var þungt í vöfum og því gafst hljómsveitinn upp á rekstrinum. Þá réðust í verkefnið tólf ungir at- hafnamenn og tónlistarunnendur. Í broddi fylkingar var menningarfrömuðurinn Ragnar Jónsson í Smára og skólastjóri tón- listarskólans Páll Ísólfsson. Áhugamenn- irnir tólf voru kallaðir Postularnir tólf. Þeir voru margir hverjir þjóðkunnir menn. Postularnir voru, ásamt Ragnari Jónssyni, Björn Jónsson kaupmaður, Haukur B. Gröndal verslunarmaður, Hálfdán Eiríks- son kaupmaður, Helgi Lárusson fram- kvæmdastjóri, Kristján Sigurðsson póst- fulltrúi, Óskar Jónsson prentari, Ólafur Þorgrímsson lögfræðingur, Sigurður E. Markan verslunarmaður, Stefán Krist- insson bókari, Tómas Albertsson prentari og Þórarinn Björnsson póstfulltrúi. Tónlistarhöll er takmarkið! Postularnir tólf stofnuðu Tónlistarfélag Reykjavíkur árið 1932. Markmið félagsins var að efla tónlist hér á landi og vinna að viðgangi hennar. Félagið vann ötult starf í uppbyggingu tónlistar, rak tónlistarskóla, hljómsveit, annaðist tónleikahald og glæddi þannig áhuga almennings á tónlist. Lengi vel sá félagið um innflutning allra erlendra tónlistarmanna til landsins. Flutti félagið inn frægustu tónlistarmenn heims þess tíma en þar má til dæmis nefna Busch-strengjakvartettinn og píanóleik- arann Rudolf Serkin. Tónlistarfélagið gerði sér grein fyrir bráðri þörf landsins á tónleikahöll. Í grein sem birtist í Vikunni árið 1944, „Tónlist- arhöll er takmarkið!“, er skrifað: „Tónlist- arfélagið berst nú fyrir því af miklu kappi, að Tónlistarhöll rísi í Reykjavík. Um þörf hennar dettur varla nokkrum manni í hug að deila. Auðvitað verður ekki hafist handa um bygginguna fyrr en skyn- samlegt er að ráðast í slíkar framkvæmdir. En þangað til að því kemur þarf að safna fé til hennar og hafa í því augnamiði mörg járn í eldinum. Þetta er meðlimum Tón- listarfélagsins fullkomlega ljóst enda láta þeir hendur standa fram úr ermum og hvatningarlúðra gjalla, svo að landsmenn megi heyra og geti tekið almennan þátt í þessari menningarstarfsemi. Hvergi er nauðsyn á góðum vilja og samtökum jafn- brýn eins og meðal smárra þjóða, þegar þær þurfa að lyfta menningarlegum Grett- istökum.“ Tónlistarfélagið og styrktarað- ilar réðust í söfnun í sjóð sem átti að renna til byggingar tónleikahallarinnar. Þeir gáfu út skrautlega útgáfu Passíusálma Hall- gríms Péturssonar, héldu styrktartónleika og stofnuðu meira að segja fimmtíu manna styrktarkór undir stjórn hljómsveit- arstjórans Urbantschitsch. Einnig rann allur ágóði af miðasölu fyrstu íslensku óperettunnar, „Í álögum“ eftir Sigurð Þórðarson og Dagfinn Sveinbjörnsson, til verkefnisins. Draumur félagsins varð að veruleika þegar Harpan reis rúmum sjötíu árum eftir að Tónlistarfélagið birti greinina Tónlistarfélag í 80 ár! Tónlistarfélagið í Reykjavík er eitt sögufrægasta félag á sviði menningar á Íslandi. Í ár eru áttatíu ár frá stofnun þess. Saga Tónlistarfélagsins er nátengd þróun íslenskrar tónlistarsögu. Í tilefni afmælisins minnumst við ötuls menningarstarfs félagsins. Ingibjörg Friðriksdóttir if@mbl.is ’ Hvergi er nauðsyn á góðum vilja og samtökum jafn- brýn eins og meðal smárra þjóða, þegar þær þurfa að lyfta menningarlegum Grettistökum … Tónlistarfélagið skrifaði baráttugrein í Vikuna fyrir byggingu tónlistarhallar. Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.