SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Page 43

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Page 43
29. júlí 2012 43 í Vikunni. Fimmtíu embættismenn leika fyrir þjóðina Tónlistarfélagið í Reykjavík er einkarekið. Á upphafsárum sínum nýtti það fjöl- breyttar og frumlegar leiðir til þess að afla tekna en ríkið og einkafyrirtæki stóðu einnig á bak við það. Áhugi Reykvíkinga fyrir starfsemi félagsins varð fljótt mikill en þegar félagið var stofnað voru styrkt- araðilar átta hundruð. Þrjátíu árum síðar hafði fjöldi þeirra tvöfaldast en það voru þá rúmlega tvö prósent borgarbúa Reykjavíkur. Jafnframt rak félagið kvik- myndahús, fyrst Trípólí-bíó, sem var í bragga á Melunum þar sem áður stóð leik- hús hersins, og síðar Tónabíó í Skipholti. Ágóði miðasölu rann til Tónlistarfélagsins. Samband Ragnars í Smára við aðrar list- greinar styrkti stöðu félagsins en hann var einn helsti velunnari myndlistamanna og rithöfunda á þessum tíma. Málverkaup- pboð var því hluti af fjáröflun Tónlistar- félagsins. Einstakt var þetta samstarf list- greinanna. Mikið hjartans mál fyrir Tónlistarfélagið og Hljómsveit Reykjavíkur var að stofnuð yrði sinfóníuhljómsveit á Íslandi. Félagið reiknaði út viðskiptaáætlun fyrir sinfón- íuhljómsveit og fyrir tilstilli kapps og þrautseigju félagsins varð Sinfón- íuhljómsveit Íslands til árið 1950. Íslenska ríkið tók við rekstri sinfóníuhljómsveit- arinnar en um reksturinn var mikið deilt af ráðamönnum þjóðarinnar. Til að mynda leit Jónas frá Hriflu svo á að undarlegt væri að fimmtíu embættismenn lékju fyrir þjóðina, en hann kallaði hljómsveit- armeðlimi embættismenn þar sem þeir hlutu laun frá ríkinu. 80 ára afmælisár Ný stjórn Tónlistarfélags Reykjavíkur var kosin fyrir ári en í henni sitja Guðrún Nor- dal, formaður, Andri Árnason, Elín Hirst, Friðrik Már Baldursson og Runólfur Ólafs- son. Síðastliðin ár hefur helsta verkefni Tón- listarfélags Reykjavíkur verið að vera bak- hjarl Tónlistarskólans í Reykjavík. Tón- listarskólinn í Reykjavík er elsti tónlistarskóli landsins en hann er einnig talinn með bestu tónlistarskólunum. Skólinn hefur alið af sér marga af helstu tónlistarsnillingum Íslendinga. Þar má til dæmis nefna Guðnýju Guðmundsdóttur, fyrrum konsertmeistara Sinfóníunnar, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur söngkonu, Jór- unni Viðar tónskáld, Bergþór Pálsson söngvara og síðast en ekki síst Grétu Sal- óme Evróvisionfara en svo mætti lengi telja. Á áttatíu ára afmælisárinu hyggst Tónlistarfélagið efla stuðning við skólann, bæta húsnæðiskost og afla tekna til að fjárfesta í hljóðfærum. Jafnframt mun fé- lagið tengja sig við tvo tónleika í haust. Páll Ísólfsson, organisti og tónskáld, var brautryðjandi í tónlistarlífi Íslendinga. Hann var fyrsti skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík. Ragnar í Smára stofnaði bókaútgáfuna Helgafell sem gaf m.a. út Hall- dór Laxness. Tenging Ragnars við listgreinar styrkti stöðu félagsins. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnú Tónlistarfélagsins setti saman kostnaðaráætlun fyrir resktur sinfoníuhljómsveitar í eitt ár. Í álögum, fyrsta íslenska óperettan, var frumsýnd árið 1944 í Iðnó. Söguþráður óperettunnar fjallar á táknræn- an hátt um viðreisnarbaráttu þjóðarinnar og álög þess að vera undir erlendri kúgun. Dietrich Fischer-Dieskau og Gerald Moore voru meðal erlendra tónlistar- manna sem komu til landsins á vegum Tónlistarfélagsins.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.