SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Síða 44

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Síða 44
44 29. júlí 2012 John Scalzi - Redshirts: A Novel with Three Codas bbbbn John Scalzi skrifar alla jafna harðar vís- indaskáldsögur þar sem alvara og dramatík drýpur af hverju strái, nefni sem dæmi þá fram- úrskarandi bók Old Man’s War, en hann skemmtir sér líka við að skrifa skelmislegar sög- ur eins og Android’s Dream og þá bók sem hér er tekin til kosta. Bókin hefst þar sem ungur mað- ur, Andrew Dahl, kemur til starfa í geimskipi, en hann er sérfróður í framandlegum geimveru- trúarbrögðum. Hann áttar sig snemma á því að ekki er allt sem sýnist, eða hvernig má skýra það hve margir láta líf- ið í stórundarlegum átökum við geimófreskjur, en aðrir komast allt- af af, sama hvað á gengur. Ýmsir aðrir um borð hafa áttað sig á hvað er á seyði og kunna að forða sér, en Dahl sættir sig ekki við það, hann vill komast að því hvað veldur og ná þannig að forða sjálfum sér, og félögum sínum, frá hræðilegum örlögum, eins og til að mynda því að vera étinn af borgovískum kjötætuormum, andsetinn geimsníkjudýri, verða fyrir banvænni geislun eða farast í sprengingu í brúnni svo fátt eitt sé talið. Ég spilli vonandi ekki ánægju tilvon- andi lesenda þegar ég ljóstra upp um það að Redshirts gerir mikið grín að Star Trek-sjónvarpsþáttaröðinni, en það grín er góðlátlegt og sagan að stórum hluta hylling þáttanna. Þeir sem þekkja þá þætti geta líka skemmt sér við að rekja þá ótal þræði sem liggja um alla bókina, en í henni eru líka ótal vísanir í vísindaskáldsagnasöguna. Endir bókarinnar er líka skemmtilega snúinn enda er hann þríeinn og kannski meira en það. Aðdáendur „harðra“ vísindaskáldsagna Scalzis hafi á sér vara, en skemmtunin er ósvikin. Allison Gaylin - And She Was bbmnn Söguhetja þessarar spennusögu er einkaspæj- arinn Brenna Spector sem glímir við þá raun að muna allt og þá meina ég allt; hún getur þannig rakið hvað hún fékk sér í morgunmat tiltekinn dag, í hverju hún var, farið með það frá orði til orðs sem hún las viðkomandi dag og rakið það sem hún heyrði. Þetta tiltekna heilkenni er þekkt í sjúkdómafræðunum, en víst sjaldgæft og skapar iðulega slík vandamál að mannleg sam- skipti eru þeim ofviða sem þjást af því. Spector er svo lánsöm að geta alla jafna ráðið við sífelldar endurminningar sín- ar, búin að þjálfa með sér tækni til að glíma við minnið, og líka svo lánsöm að minnið kemur að góðum notum við að upplýsa sakamál. Hún tekur að sér að rannsaka hvarf konu, sem snýst fljótlega upp í morðmál. Þegar morðmálið tekur að skarast við hvarf stúlkubarns áratug áður fer líkunum að fjölga og Spector kemst í hann krappan. Ekki ósnotur saga, fléttan er snúin og spennan helst út söguna. Víst eru á henni ýmsir gallar, til að mynda eru samskipti Spector og lög- reglumanns sem liðsinnir henni ósannfærandi. arnim@mbl.is Erlendar bækur New York Times 1. Fifty Shades of Grey - E.L. James 2. Fifty Shades Darker - E.L. James 3. Fifty Shades Freed - E.L. James 4. Shadow Of Night - Deborah Harkness 5. Gone Girl - Gillian Flynn 6. I, Michael Bennett - James Patterson 7. Backfire - Catherine Coulter 8. Bared to You - Sylvia Day 9. Fifty Shades Trilogy - E.L. James 10. The Great Escape - Susan Elizabeth Phillips Waterstone’s 1. Fifty Shades of Grey - E.L. James 2. Fifty Shades Darker - E.L. James 3. Fifty Shades Freed - E.L. James 4. Death Comes to Pemberley - P. D. James 5. Flash and Bones - Kathy Reichs 6. The Thread - Victoria Hislop 7. The Promise - Lesley Pearse 8. A Walk in the Park - Jill Man- sell 9. The Hunger Games Classic - Suzanne Collins 10. The Stranger’s Child - Alan Hollinghurst Amazon 1. Fifty Shades of Grey - E.L. James 2. Fifty Shades Darker - E.L. James 3. Fifty Shades Trilogy - E.L. James 4. Fifty Shades Freed - E.L. James 5. Gone Girl - Gillian Flynn 6. Wheat Belly - William Davis 7. Where We Belong - Emily Giff- in 8. To Heaven and Back - Mary C. Neal 9. Publication Manual of the American Psychological Association 10. Bared to You - Sylvia Day Bóksölulisti Lesbók bækur T he Secret Life of Walter Mitty er einfrægasta smásaga bandaríska rithöfund-arins James Thurber og birtist fyrst ítímaritinu The New Yorker í marsmánuði árið 1939. Sagan var kvikmynduð árið 1947 með Danny Kaye í aðalhlutverki en þar var einungis lauslega byggt á sögunni. Thurber mun hafa gert athugasemdir við handritið sem honum fannst ekki minna mikið á sögu sína og var lítt hrifinn af myndinni. Leikarinn Ben Stiller vinnur nú að nýrri kvikmynd eftir sögunni þar sem hann fer sjálfur með aðalhlutverkið og eins og margoft hefur komið fram mun hluti myndarinnar verða tekinn upp hér á landi. Í hinni meistaralegu og bráðskemmtilegu smásögu Thurbers eru Walter Mitty og eiginkona hans í bæjarleiðangri, hún á leið í hárgreiðslu og hann á að sjá um innkaup. Eiginkonan er, eins og konur eru svo oft í verkum Thurbers, yfirþyrmandi og hávær og kemur með aðfinnslur og kvartanir sem byggjast á því að eiginmaðurinn sé ómögu- legur. Meðan eiginkonan kvartar gleymir hinn hversdagslegi Mitty sér í ýmiskonar dagdraumum um ímyndaðar hetjudáðir en verður stöðugt fyrir óþægilegum truflunum frá konu sinni og öðrum persónum. Í lok sögunnar hallar hann sér upp að búðarvegg og fær sér sígarettu meðan hann ímynd- ar sér að hann standi hughraustur frammi fyrir af- tökusveit þar sem hann neitar að láta binda fyrir augun, fær sér síðustu sígarettuna og mætir síðan dauða sínum af sönnum hetjuskap. Allt frá því að sagan kom fyrst á prent árið 1939 hefur hún notið gríðarlegra vinsælda og hefur margoft verið endurprentuð og ratað í fjölmargar sýnisbækur um bandarískar bókmenntir. Höfundurinn James Thurber fæddist árið 1894 og lést árið 1961, 66 ára gamall. Þegar hann var barn að aldri var hann ásamt bróður að leika með borg og örvar og fyrir slysni skaut bróðirinn ör í annað auga Thurbers með þeim afleiðingum að fjarlægja varð það. Á seinni árum varð Thurber nær alblindur. Thurber sendi frá sér fjölda smásagna og sá sjálfur um myndskreytingar. Hann var einkar flinkur skopmyndahöfundur og naut ekki síður vinsælda sem teiknari en rithöfundur. Flestar sögur hans eru í gamansömum stíl og barátta kynjanna kemur þar mjög við sögu og þar eru konurnar sterkari aðilinn og karlarnir undirokaðir og bældir. Í verkum Thurbers má stundum finna myrka tóna, eins og til dæmis í stríðsádeilunni Síðasta blómið, smásögu sem hann tileinkaði einkadóttur sinni Rosemary. Heimsbyggðinni hefur verið eytt í stríði og ung stúlka finnur síðasta blómið á jörðinni sem er við það að deyja. Ásamt ungum pilti lífga þau blómið við og heimsbyggðin rís að nýju þar til nýtt alheimsstríð brýst út þar sem öllu er eytt. Það eina sem er eftir er einn piltur, ein stúlka og eitt blóm. Þessi saga er þekkt hér á landi en Magnús Ás- geirsson þýddi hana á sinn einstaka hátt yfir á bundið mál og hún kom út hér á landi árið 1946 í fallegri útgáfu, prýdd myndum Thurbers. Utan- garðsmenn gerðu svo seinna lag við textann. Síðasta blómið er það verk Thurbers sem hann sjálfur og seinni eiginkona hans, Helen, höfðu mest dálæti á. Sagt er að málarinn Henri Matisse hafi eitt sinn sagt: „Eini góði listamaðurinn í New York er maður að nafni James Thurber.“ Smásaga James Thurber um Walter Mitty verður senn að kvikmynd sem að hluta til er tekin upp hér á landi. Hver er Walter Mitty? Leikarinn Ben Stiller gerir kvikmynd eftir frægri smásögu James Thurbers um Walter Mitty. Hluti myndarinnar verður tekinn upp hér á landi. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.