SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Page 45

SunnudagsMogginn - 29.07.2012, Page 45
29. júlí 2012 45 LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar Listasafn Reykjanesbæjar MILLILANDAMYNDIR 45 verk eftir ýmsa listamenn 2. júní – 19. ágúst Bátasafn Gríms Karlssonar 100 bátalíkön og ýmsar sjóminjar Byggðasafn Reykjanesbæjar VERTÍÐIN - Ný sýning um sögu svæðisins til 1940 Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Kvikmyndasýning sunnudaginn 29. júlí kl. 15: Björgunarafrekið við Látrabjarg Fjölbreyttar sýningar: TÍZKA - kjólar og korselett Björgunarafrekið við Látrabjarg - ljósmyndir Óskars Gíslasonar Aðventa á Fjöllum - ljósmyndir Sigurjóns Péturssonar Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár Einvígi aldarinnar. Fischer og Spassky - 40 ár Damaskushnífar og dálkar Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið alla daga kl. 10-17. Síðasta abstraktsjónin Eiríkur Smith 1964 - 1968 Hús Hreinn Friðfinnsson Sýningarnar standa til 19. ágúst Opið 12-17 fimmtudaga 12-21 lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 - Aðgangur ókeypis Húsið á Eyrarbakka í borðstofu: Sunnlendingar á Ólympíuleikum sumarsýning Byggðasafns Árnesinga Sjóminjasafnið á Eyrarbakka Draumur um bát sýning í forsal Opið alla daga kl. 11-18 Sími 483 1504 www.husid.com SAGA TIL NÆSTA BÆJAR Úrval íslenskrar vöruhönnunar Opið alla daga nema mán. kl. 12-17. Verslunin KRAUM í anddyri. Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is NAUTN OG NOTAGILDI myndlist og hönnun á Íslandi Kaffistofa – Leskró – Barnakró Opið alla daga kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði ÖLVUÐ AF ÍSLANDI 19.5. - 4.11. 2012 DÁLEIDD AF ÍSLANDI 19.5. - 4.11. 2012 HÆTTUMÖRK 19.5. - 31.12. 2012 „SJÁLFSTÆTT FÓLK“ 19.5. - 2.9. 2012 HÁDEGISLEIÐSÖGN ÞRIÐJUDAGA OG FÖSTUDAGA KL. 12:10-12:40 SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR BERGSTAÐASTRÆTI 74 FORNMENN UMHVERFIS LANDIÐ Á FÁEINUM ÁRATUGUM OPIÐ 10-14 ALLA VIRKA DAGA TIL 1. SEPTEMBER SAFNBÚÐ, listaverkabækur og gjafavara. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, OPIÐ daglega kl. 10-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is Meðalbókin er um 350 síður, en svo hefur þaðverið undanfarin ár og áratugi. Þegar skoski rit-höfundurinn Denise Mina tók við Old Theak-stone-verðlaununum um daginn fyrir reyfara ársins, The End of the Wasp Season, hafði hún orð á því að þessi hefðbundna bókarlengd væri brátt úr sögunni, því þó lesandi rafbókar viti hvað bók er löng, svona nokkurn veg- inn, þá hefur hann glatað þeirri tilfinningu að vega bókina í hendi sér, meta það hversu lesefnið er mikið og jafnvel hvað hann sé að fá mikið, þ.e. margar síður, fyrir peningana. Nú er það svo að sumar af bestu bók- um sem ég minnist að hafa lesið um dag- ana eru stuttar, jafnvel örstuttar, og að sama skapi eru aðrar frábærar bækur langar, hnausþykkar mætti jafnvel segja. Síðufjöldinn segir nefnilega lítið sem ekkert um það hversu góð viðkomandi bók er, hversu heimurinn sem felst inni í henni er ríkulega skapaður, persónurnar lifandi eða atburðarásin heillandi. Þrátt fyrir það er okkur eðlilegt að þreifa á hlutum, snerta þá og vega í hendinni og þó við eigum að vita betur hefur það örugglega áhrif á okkur í bókavali hvernig bókin fer í hendi, hversu þung hún er eða létt. Rafbækur eru allar jafn léttar og á skjánum fær maður litla tilfinningu fyrir því hve löng hún er þó það megi í sjálfu sér sjá það á hlutföllunum á stöðulínunum á upphafsskjánum. Sumir sjá því margt til foráttu, en rétt að spyrja hvort það sé nokkur ástæða til að sjá eftir því að geta metið með hönd- unum hve löng bók er. Verður það ekki bara til þess að bækur verða betri, knappari? Kannski hætta höfundar þá að teygja lopann vegna þess að bókin er „bara“ 200 síður þegar þeim finnst þeir vera búnir að segja söguna alla og útgefendur að pína menn til að skrifa meira svo hægara sé að selja viðkom- andi bók. Hin hliðin á peningnum er að kannski ættum við frekar að hafa áhyggjur af því að höfundar hirði ekkert um að sníða bækur í hæfilega lengd til útgáfu, hætti að skrifa sím- skeyti til Falklandseyja. Hve löng er löng bók? ’ Kannski hætta höf- undar þá að teygja lopann þegar þeim finnst þeir vera búnir að segja söguna alla. Orðanna hljóðan Árni Matthíasson arnim@mbl.is Flestir eru sammála um að bókmenntir hafi mikil áhrif á samfélag okkar. Þær geta breytt sýn fólks á lífið og er ég engin undantekning frá þessum áhrifa- mætti þeirra. Þegar ég var 15 ára og í uppreisn gerðist ég svo kræfur að stela Kommúnistaávarpinu af hér- aðsbókasafninu (ég vona að forstöðumaðurinn sé ekki áskrifandi Morgunblaðsins). Rit þeirra Marx og Eng- els hafði gríðarleg áhrif á mig, eftir orðin „öreigar allra landa, sameinist!“ var ég orðinn kommúnisti í húð og hár. Arðrán auðvaldsins varð mér þyrnir í augum og þurfti að stöðva, jöfnuður manna ætti að vera sjálfsagður hlutur. Framlag mitt til bylting- arinnar miklu var þó ekki mikið, tíma mínum var að- allega varið í að leggja mig og horfa á sjónvarpið, og varð ég fljótlega afhuga hugsjón þessari. Hin ýmsu rit um Sovétríkin studdu þessa ákvörðun, þá helst skrif Alexanders Solzhenitsyn um Gúlag-eyjarnar. Skáld- sögurnar Animal Farm og 1984 eftir George Orwell settu svo punktinn yfir i-ið enda sígild varnarrit gagnvart alræðistilburðum stjórnvalda. Þá var ekkert í stöðunni nema að halda lengra á vit byltingakenndra hugmynda. Pönkið átti stóran þátt í því að ég fór kynna mér hugmyndir anarkista. Skrif Bakunins, Kropotkíns, Goldmans og félaga um sam- félag án yfirvalds voru svo heillandi að ég gerðist an- arkisti. Eitthvað hefur slaknað á pólitískum hug- sjónum mínum yfir árin, enda farinn að verja enn meiri tíma í að leggja mig og horfa á sjónvarpið. Uppi í hillu fann ég þó nýlega Um anarkisma eftir Nicolas Walter sem ég keypti á einhverjum bókamark- aðinum. Hef ég verið að glugga í hana af og til og verð að segja að það hljómar ennþá ágætlega að vera laus við tilgerðarlega stjórnmálamenn, tilgangslausa vinnu og ofuráhersluna á peninga. Gallharðir anark- istar myndu þó líklega hrista hausinn yfir þessari af- stöðu minni enda er hún lítið annað en orðin tóm. Það mætti segja að ég sé anarkisti í orði en stjórn- málaleiður letingi á borði. Lesarinn Brynjólfur Þorsteinsson Áhrifamáttur bókmenntanna Karl Marx, faðir Kommúnistaávarpsins.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.