Morgunblaðið - 01.10.2012, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2012
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný
með bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir
taka fagnandi á móti þér.
Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Hreyfill/Bæjarleiðir er styrktaraðili árveknisverkefnis
Krabbameinsfélagsins í október og nóvember
Tökum bleikan bíl!
Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl!
Á milli 2000 og 3000 þúsund manns
voru í Laufskálaréttum sem fram
fóru í Skagafirði á laugardag. Stóð-
réttirnar eru þær stærstu sem fram
fara á landinu en auk fólksins voru
þar 450-500 hross. „Það sem ein-
kenndi réttirnar að þessu sinni var
ofsalega gott veður og mikil ró yfir
mannskapnum, enda ekki annað
hægt í þessari blíðu. Fólk var mikið
að velta sér upp úr kaupum en lítið
var selt. Kreppan kemur niður á
hrossakaupmennsku eins og öðru.
Svo virðist sem kreppan sé farin að
bíta meira en hún gerði strax eftir
hrun,“ segir Haraldur Þór Jóhanns-
son, bóndi á Enni í Skagafirði.
Á föstudagskvöldið voru um 600
manns í Hestaveislu þar sem menn
hituðu upp fyrir helgina með tölt-
sýningu, skeiðkeppni og stóðhesta-
sýningu. Jafnframt var kvöldið
brotið upp með skemmtiatriðum.
Á laugardagskvöld var haldin há-
tíð á stóðréttarballi á Sauðárkróki.
Þar voru saman komnir um 1900
manns og skemmtu sér vel. Stefán
Hilmarsson og Björgvin Hall-
dórsson sungu fyrir viðstadda.
vidar@mbl.is
Fjöldi fólks og hrossa
í Laufskálarétt
Ljósmynd/Sigurður Aðalsteinsson
Hestastóð 450-500 hestar voru samankomnir í Laufskálarétt sem er stærsta stóðrétt landsins.
Ásmundur Frið-
riksson, fyrrver-
andi bæjarstjóri í
Garði, sækist eft-
ir 3. sæti á lista
Sjálfstæðis-
flokksins í Suð-
urkjördæmi fyrir
næstu alþing-
iskosningar.
Meðal þess sem
Ásmundur hefur
í hyggju að berjast fyrir má nefna
öflugt atvinnulíf, menntun og ný-
sköpun, tengsl atvinnulífs og skóla,
framtíð ungs fólks, virkni og þátt-
töku fatlaðra í samfélaginu og
sanngjarna leiðréttingu verð-
tryggðra lána. „Í störfum mínum
sem þingmaður vil ég ná árangri
undir þjónandi forystu Sjálfstæð-
isflokksins fyrir hinn vinnandi
mann,“ segir í framboðsyfirlýsingu
frá Ásmundi.
Ásmundur Friðriks-
son vill þriðja sætið
Ásmundur
Friðriksson
Erna Indriða-
dóttir, stjórn-
sýslufræðingur
og starfsmaður
Alcoa Fjarðaáls,
hefur ákveðið að
gefa kost á sér í
annað sætið á
framboðslista
Samfylking-
arinnar í Norð-
austurkjördæmi, í prófkjöri flokks-
ins sem fram fer dagana 9. og 10.
nóvember. Erna var í tíunda sæti á
lista Samfylkingarinnar í kjördæm-
inu í síðustu alþingiskosningum.
Í yfirlýsingu frá Ernu telur hún
brýnt að endurreisn landsins verið
haldið áfram á grundvelli jafn-
aðarstefnunnar. Hún vill ljúka að-
ildarviðræðum við Evrópusam-
bandið. Þá vill hún bæta umræðu-
hefðina á Alþingi og stuðla að
faglegri vinnubrögðum á þeim vett-
vangi.
Erna Indriðadóttir
vill annað sætið
Erna Indriðadóttir
Vigdís Hauks-
dóttir, þingmað-
ur Framsókn-
arflokksins,
sækist eftir
fyrsta sæti í
Reykjavíkur-
kjördæmi suður
og segist hún
finna fyrir mikl-
um meðbyr með
framboði sínu. „Ég kem til með að
vinna af heiðarleika og festu í þágu
lands og þjóðar, hér eftir sem hing-
að til, og standa vörð um grunngildi
samfélagsins,“ segir í framboðs-
yfirlýsingu Vigdísar sem leiddi
listann fyrir Framsóknarflokkinn
fyrir fjórum árum.
Guðlaugur Gylfi Sverrisson,
verkefnastjóri hjá Úrvinnslusjóði,
og Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi
forstjóri Nýherja og stjórnarfor-
maður CCP, sækjast einnig eftir því
að leiða listann.
Vigdís Hauksdóttir
vill leiða lista
Vigdís Hauksdóttir