Morgunblaðið - 01.10.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2012
það eina sem ég hef gert við myndina
er að skerpa hana og lýsa. Það er
skemmtilegt frá því að segja að vit-
inn á myndinni er byggður árið 1918
og er elsti steinviti landsins,“ segir
Finnur.
Minjagripir seldust upp
Finnur starfar hjá Omnis á
Akranesi sem sölumaður en fyr-
irtækið selur m.a. myndavélar, tölv-
ur og sjónvörp og segist Finnur því í
raun vera að vinna við áhugamálið.
Finnur er sjálflærður og segir
sér líða ágætlega sem áhuga-
ljósmyndara. Hann heldur úti Fa-
cebook-síðunni þar sem fólk getur
skoðað myndirnar en hann er í sam-
starfi við Hans Petersen og getur
fólk því pantað myndir Finns á því
formi og stærð sem það helst kýs.
víða um heim. Finnur sendi póst með
myndum á þann sem heldur utan um
myndbirtingarnar og barst skömmu
síðar svar þar sem honum var tjáð að
áhugi væri fyrir birtingu og að ein-
hver myndi fylgjast með honum.
Tveimur mánuðum síðar barst hon-
um síðan póstur þar sem honum var
tjáð að mynd hans hefði verið valin
ein af fimm bestu ferðamyndum árs-
ins.
„Báturinn sem ég myndaði er
einn af elstu trébátunum hér á Akra-
nesi, Höfrungur AK91, hann stendur
í slippnum og er mikið myndaður. Ég
ýkti aðeins litina í myndinni með því
að lýsa hana upp en annars bæti ég
engu inn í myndirnar mínar. Norður-
ljósamyndina tók ég hins vegar
hérna á Breiðinni síðastliðinn vetur.
Hún var tekin á þrífót með tíma og
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Á
hugaljósmyndarinn
Finnur Andrésson fékk
í ár viðurkenningu
CNN iReport en mynd
hans af norðurljósum
var valin ein af sex fallegustu mynd-
unum af himingeiminum. Þetta er í
annað sinn Finnur hlýtur slíka við-
urkenningu en í fyrra var mynd eftir
hann valin ein af fimm bestu ferða-
myndum síðustu ár.
Sífellt fleiri sjónarhorn
Finnur hefur tekið myndir í tvö
ár en áhuginn kviknaði þegar hann
keypti sér litla myndavél og fór að
keyra um sitt nánasta umhverfi.
Þannig fór hann smám saman að sjá
fleiri sjónarhorn sem honum fannst
flott að festa á mynd. Delluna fékk
hann þó fyrst fyrir alvöru þegar
hann flutti á Akranes og gekk þar í
Vitann, félag áhugaljósmyndara á
Akranesi.
„Ég gekk í félagið og fékk mér
betri myndavél og þá fékk ég delluna
fyrir alvöru. Ég er með Canon 5D
classic-myndavél núna en er reyndar
við að skipta yfir í Mark II Canon-
vél,“ segir Finnur.
Vitinn hefur verið starfræktur í
tæp þrjú ár og eru 100 meðlimir
skráðir í félagið þar af 40 sem taka
reglulega þátt og segir Finnur félag-
ið vera mjög virkt.
„Við hjálpum og styðjum hver
annan og erum með reglulega fundi.
Nú vonumst við til að fá húsnæði frá
Akranesbæ. Við höfum unnið mikið
fyrir þá og tekið myndir auk þess að
sjá um vitana tvo hér í bænum. Í öðr-
um þeirra stendur nú yfir ljós-
myndasýning en fyrsta stóra sýn-
ingin var á menningarhátíðinni
Vökudögum í fyrra. Þá komu 1.500
manns að skoða myndirnar okkar
sem var mjög gaman og verður há-
tíðin endurtekin nú í október,“ segir
Finnur.
Elsti steinviti landsins
Það var æskuvinur Finns sem
benti honum fyrst á að prófa að
senda mynd á CNN-fréttastofuna en
á vefsíðu hennar hafa verið birtar
ljósmyndir frá áhugaljósmyndum
Fékk delluna
í Vitanum
Áhugaljósmyndarinn Finnur Andrésson festir fegurðina í sínu nánasta umhverfi
á filmu. Hann hefur tvisvar hlotið viðurkenningu frá CNN iReport fyrir myndir
sínar. Í ár fyrir mynd af norðurljósum sem tekin var á Breiðinni á Akranesi.
Áhugaljósmyndari Finnur Andrésson er búsettur á Akranesi.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Gæsir eru helsta bráð íslenskra veiði-
manna, mest er veitt af gæs af allri veiði-
bráð sem hér er hægt að veiða og mest-
ur tími veiðimanna fer í veiðar á gæs.
Rjúpan hefur löngum verið vinsælasta
bráðin hér á landi, en rjúpnaveiðar hafa,
sem kunnugt er, dregist verulega saman
á síðari árum.
Gæsastofnarnir eru hinsvegar mjög
sterkir og þola vel veiðiálagið. Veiddar
eru um 58.000 grágæsir og var óttast
um tíma að þetta veiðiálag væri heldur
mikið, en svo reyndist ekki vera. Grá-
gæsastofninn er um 120.000 fuglar á
vetrarstöðvum að hausti. Heið-
argæsastofninn er firnasterkur, þó svo
að 2011 hafi verið lélegt varpár, stofninn
var um 360.000 fuglar 2009 en 2010
líklegast 300.000 fuglar. Heiðargæsin
verpir í gróðurvinjum á hálendinu og eru
frægastar þeirra Þjórsárver og
Guðlaugstungur.
Helstu ástæður fyrir mikilli fjölgun
gæsanna á síðari árum er betra veðurfar,
aukinn vetrarræktun í Skotlandi og aukin
ræktun hér á landi og þá ekki síst á
korni. Fjölgun gæsa hefur skapað ým-
isleg vandamál þó ekki sé meira sagt, nú
er svo komið að sumstaðar er farið á líta
á gæsirnar sem meindýr. Bændur á
Orkneyjum líta orðið á gæsirnar sem
meindýr, en þar hefur gæs fjölgað um
tæp 80% á síðastliðnum 10 árum. Nú er
svo komið að í Skotlandi, Danmörku,
Noregi og víða eru yfirvöld farin að
greiða mikið fé í skaðabætur til
bænda vegna gæsabeitar.
Greiðslurnar eru aðallega vegna
beitar friðaðra tegunda eins og
blesgæsar. Nánast ómögulegt
virðist vera að fæla gæsirnar í
burtu eða fækka þeim með
því að auka veiðar.
Meðal þess sem rætt
hefur verið um í Skot-
landi er að fá Íslendinga
til að eyðileggja egg
heiðargæsa hér á ís-
landi. Bændu ár Orkn-
eyjum hafa meira að segja lagt til að
gæsirnar verði drepnar með eitri eða
þær svæfðar og svo slátrað. Íslenskir
bændur hafa á síðari árum kvartað nokk-
uð yfir gróðurskemmdum af völdum
gæsa. Þess má geta í þessu sambandi
að fjórar heiðargæsir éta svipað magn
og ein sauðkind, það er að segja að
360.000 heiðagæsir valda svipuðu beit-
arálagi og 90.000 kindur. Ekki verður
séð að heiðarlönd á öræfum Íslands liggi
undir ofbeit vegna gæsa, þó er sum-
staðar farið að bera á því til dæmis í
Þjórsárverum og í Kringilsárrana. Innan
tíðar gæti orðið nokkur ofbeit að völdum
gæsa í Guðlaugstungum og í næsta ná-
grenni þeirra.
Telja sumir bændur að álftin sé að
verða meindýr því sumstaðar valda þær
talsverðum skemmdum á túnum og ökr-
um. Álftarstofninn hefur vaxið um 60% á
20 árum. 1986 var fjöldi álfta hér á landi
talinn vera 17.000 fuglar en árið 2010
29.000 fuglar. Stofninn hér er talinn
vera um 14 til 19% af Evrópustofni . Ekki
verður annað séð en að álftum og gæs
muni halda áfram að fjölga hér á landi.
Jafnvel eru líkur á að nýjar tegundir
gæsa gætu farið að nema hér land, í
þessu sambandi mætta nefna kan-
adagæs. Kanadagæs veldur meira beit-
artjóni en til dæmis heiðargæs, þetta er
harðgerður fugl sem gæti rekið aðrar
gæsir frá varpstöðvum sínum. Þess
vegna er mikilvægt að kanadagæsin
nái ekki að festa hér rætur og að
heimilt verði að skjóta þær kan-
adagæsir sem hingað kynnu að
koma. Víða á hálendi Íslands er
bannað að stunda gæsaveiðar þó
svo að friðanir svæðanna séu að-
alega vegna jarðmyndana
eða gróðurs. Þessu þarf
að breyta og heimila
veiðar á svæðum sem
nú eru friðuð, í því
sambandi mætti
nefna Guðlaug-
stungur og nágrenni.
Sigmar B. Hauksson
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Gæsir Helstu ástæður fyrir mikilli fjölgun gæsanna er betra veðurfar.
Gæsir – veiðar og náttúruvernd
Áhrifamiklar ljósmyndir segja meira
en mörg orð. Á fréttavefnum bost-
on.com má finna myndaalbúm sem
flokkuð eru eftir þemum og tímabili.
Myndirnar eru af ýmsum toga, marg-
ar átakanlegar en aðrar gefa
skemmtilega sýn á lífið og tilveruna.
Vefsíðan www.boston.com/
bigpicture/2011/12/
Api Sætar dýramyndir eru vinsælar.
Auga heimsins
Tri ehf.
Suðurlandsbraut 32
104 Reykjavík www.tri.is
Verslunin er opin:
Alla virka daga kl. 09:00-18:00
Laugardaga kl. 10:00-16:00
CUBE REACTION GTC PRO
Stell: 16, 18, 20, 22”, Carbonstell.Fox Evolu-
tion 32 Float RL 100mm. Shimano XT 30 gíra.
Vökvadiskabremsur. Þyngd 11,1 kg.
Listaverð: 399.990 kr.
Tilboð:
299.990 kr.
CARBON
Listaverð: 455.990 kr.
Tilboð:
341.990 kr.
CARBON
CUBE REACTION GTC RACE
Stell: 16, 18, 20, 22”, Carbonstell. Rock shox
Reba RL 100mm. Sram XO 30 gíra.
Vökvadiskabremsur. Þyngd 10,4 kg.
Listaverð: 525.990 kr.
Tilboð:
394.990 kr.
CARBON
CUBE REACTION GTC SL
Stell: 16, 18, 20, 22”, Carbonstell. Rock Shox
SID RL 100mm. Shimano XT 30 gíra.
Vökvadiskabremsur. Þyngd 10,3 kg.
Fjallahjóladagar
-25%
Meðan birgðir endast. Tri áskilur sér rétt til allra breytinga á verði.