Morgunblaðið - 01.10.2012, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2012
Fjöldi hlaupara tók þátt í Hjarta-
hlaupinu sem fram fór í gær.
Hlaupið hófst á Kópavogsvelli en
keppt var í tveimur greinum, 5
og 10 kílómetra hlaupi.
Ingvar Hjartarson og Fríða
Rún Þórðardóttir sigruðu í 10 km
hlaupinu en þau hlupu vega-
lengdina á annars vegar 34:26
mínútum og hins vegar 41:36
mínútum. Sigurvegarar í 5 km
hlaupinu voru þau Anna Þuríður
Pálsdóttir, á 20:46 mínútum, og
Hlynur Andrésson, á 16:33 mín-
útum. Hjartahlaupið var haldið í
tilefni af alþjóðlegum hjartadegi
sem haldinn var hátíðlegur í rúm-
lega 150 löndum í gær og fyrra-
dag.
Þá fór hjartagangan um Laug-
ardal einnig fram í gær en um
sextíu manns tóku þótt í henni og
nutu þar útiverunnar að hausti
til.
Félögin Hjartavernd, Hjarta-
heill, Neistinn og Heilaheill sáu
um að halda sameiginlegan
hjartadag á Íslandi. skulih@mbl.is
Fjöldi hlaupara tók
þátt í Hjartahlaupinu
Morgunblaðið/Golli
Hjartahlaup Fjöldi hlaupara tók þátt í Hjartahlaupinu sem fram fór í gær í tilefni Hjartadagsins.
Ríkisendurskoðun keypti endur-
skoðunarþjónustu, auk annarrar
þjónustu, fyrir um 260 milljónir
króna af fjórum stærstu endur-
skoðunarfyrirtækjum Íslands á ár-
unum 2004-2011.
Ríkisendurskoðun annast lögum
samkvæmt endurskoðun ríkis-
reiknings sem og aðila sem fara
með rekstur og fjárvörslu á veg-
um ríkisins en stofnunin útvistar
hluta af þessum verkefnum sínum
til þriðja aðila. Fyrirtækin sem
um ræðir eru PwC hf., KPMG hf.,
Deloitte hf. og Ernst og Young
ehf. en stofnunin greiddi þeim
samtals sem nemur 32,5 milljónum
króna að meðaltali á ári, á árunum
2004-2011, fyrir endurskoð-
unarþjónustu auk annarrar þjón-
ustu á borð við ýmiss konar ráð-
gjafarþjónustu og námskeið, að
því er fram kemur í tilkynningu
frá Ríkisendurskoðun.
Stofnunin efndi nýlega til örút-
boðs á hluta fyrrnefndra verkefna
en frestur til að skila tilboðum í
þau rennur út hinn 23. október
næstkomandi. Í útboðum af þessu
tagi geta einungis fyrirtæki sem
eiga aðild að rammasamningum
Ríkiskaupa boðið í viðkomandi
verkefni. Gert er fyrir að nýir
samningar gildi um endurskoðun
fyrir árin 2013-2017, þá verða
fleiri verkefni af þessu tagi boðin
út á næstunni. skulih@mbl.is
Þjónusta
keypt fyrir
260 milljónir
Morgunblaðið/Golli
Séra Kristján Val-
ur Ingólfsson,
vígslubiskup í
Skálholti, hefur
skipað séra
Bjarna Þór
Bjarnason í emb-
ætti sóknarprests
í Seltjarnarnes-
prestakalli,
Reykjavíkur-
prófastsdæmi
vestra, frá og með 1. október nk.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís-
lands, vék sæti að ósk eins umsækj-
andans.
Auk Bjarna sóttu Sigurður Árni
Þórðarson, Sveinbjörn Dagnýj-
arson og séra Þórir Jökull Þor-
steinsson um stöðuna. skulih@mbl.is
Bjarni skipaður
sóknarprestur
Séra Bjarni
Þór Bjarnason