Morgunblaðið - 01.10.2012, Side 17

Morgunblaðið - 01.10.2012, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2012 Á forsetastóli Susanne Bier hlaut um helgina verðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listfengi og fór afhendingin fram á Bessastöðum. Páll Óskar brá á leik á skrifstofu forsetans af þessu tilefni. Golli Þegar ákveðið var árið 2009 að halda byggingu tónlistar- hússins áfram af full- um krafti þrátt fyrir efnahagsþrengingar og gjaldeyrisskort, var því lofað að ekki þyrftu að koma til frekari framlög frá skattgreiðendum til byggingar og rekstr- ar hússins, umfram þær skuld- bindingar, sem þegar höfðu verið gerðar og nema nú um einum milljarði króna á ársgrundvelli í 35 ár. Ýmsir höfðu efasemdir um að verkinu yrði haldið áfram á fullri ferð og vildu fresta fram- kvæmdum við húsið þar til betur áraði eða a.m.k. draga verulega úr framkvæmdahraða. Mjög var var hins vegar þrýst á menn um að styðja lúkningu hússins og því lof- að að ekki þyrftu að koma til frek- ari opinber framlög til þess um- fram þegar gerðar skuldbindingar. Almenningur borgar brúsann Nú, þegar ljóst er orðið að hin samningsbundnu framlög duga ekki, þarf að leiða í ljós án und- anbragða hvort einhverjar for- sendur frá 2009 brugðust og þá hverjar, eða hvort stjórn- málamenn voru hreinlega gabb- aðir. Reykjavíkurborg á 46% í Hörp- unni og ber því mikla ábyrgð á húsinu og rekstri þess. 3. nóv- ember 2011 óskaði borgarráð eftir því að gerð yrði úttekt á rekstri Hörpunnar ,,til að skýr staða liggi fyrir og hægt sé að meta hvernig verkefnið hef- ur farið af stað“. Jafnframt lagði borg- arráð áherslu á að strax yrði farið í ein- földun á stjórnarfyr- irkomulagi þeirra fé- laga, sem koma að rekstrinum og að ekki yrði farið í frekari framkvæmdir við hús- ið, sem ekki leiddu af sér tryggar viðbótartekjur, meðan á úttektinni stæði. Vilji borgarráðs hundsaður Búist var við því að brugðist yrði án tafar við ósk borgarráðs um rekstrarúttekt og einföldun á stjórnskipulagi. Vinna við rekstr- arúttekt hófst hins vegar ekki fyrr en fimm mánuðum eftir umrædda ósk borgarráðs eða í apríl sl. þeg- ar Austurhöfn – TR fól KPMG verkið og lauk því í maí. Rekstrarúttekt KPMG er nauð- synlegt plagg fyrir þá, sem vilja átta sig á því hvað hefur farið úr- skeiðis í rekstri hússins og ræða tillögur til úrbóta, ekki síst alþing- ismenn og borgarfulltrúa, sem vinna nú að fjárhagsáætlunum næsta árs. Þá eiga mörg atriði í umræddri skýrslu ekki síður er- indi við almenning, sem borgar brúsann. Ljóst er að ósk borgarráðs frá 3. nóvember um að strax yrði far- ið í einföldun á stjórnarfyr- irkomulagi þeirra félaga sem koma að rekstrinum, var hundsuð. Í ágúst sl. komu enn a.m.k. átta félög að rekstri Hörpu. Sama fólk- ið sat þá meira og minna í stjórn- um allra þessara félaga og fékk greidda þóknun fyrir setu í hverri stjórn. Vegna þess völundarhúss félaga, sem byggt hefur verið upp í kringum Hörpu, hefur verið mun flóknara og erfiðara en ella fyrir stjórnmálamenn og fréttamenn að rýna og fjalla um rekstur hússins. Rekstrarúttekt KPMG er að mörgu leyti vel unnin og auðveld- ar hlutaðeigandi að rýna rekst- urinn. Embættismenn á hálum ís Í ljósi þess hve KPMG-skýrslan er mikilvæg er það afar óeðlilegt hvernig stjórn Austurhafnar – TR hefur ítrekað neitað að láta und- irrituðum hana í té. Jafnvel eftir að aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra sendi fjölmiðlum skýrsluna, neitaði stjórnin að afhenda undirrituðum hana. Eftir því sem næst verður kom- ist, studdu þrír fulltrúar Reykja- víkurborgar í stjórn Austurhafnar umrædda ákvörðun. Tveir af þess- um stjórnarmönnum eru embætt- ismenn, sem heyra beint undir borgarstjórann í Reykjavík en hinn þriðji er pólitískur fulltrúi meirihluta Samfylkingar og Besta flokksins. Með ólíkindum er að stjórn Austurhafnar, sem er að fullu í eigu ríkisins og Reykjavík- urborgar, skuli leggja sig í líma við að halda mikilvægum upplýs- ingum um fjárhag Hörpu frá kjörnum fulltrúum. Ekki er síður ámælisvert að tveir af æðstu emb- ættismönnum Reykjavíkurborgar, sem sitja í stjórninni, taki fullan þátt í því með þessum hætti að halda umræddum upplýsingum frá kjörnum borgarfulltrúa. Ef ekki væri fyrir atbeina mennta- og menningarmálaráð- herra, væri KPMG-skýrslan sjálf- sagt enn leynileg. Enn hefur eng- inn haldið því fram svo ég viti að birting skýrslunnar hafi með nokkrum hætti skaðað rekstur Hörpu. Hins vegar hefur almenn- ingur fengið gleggri upplýsingar en áður um óviðunandi vinnubrögð og jafnvel spillingu í tengslum við byggingu og rekstur hússins. Grundvallarregla brotin Í þessu máli er vegið að þeirri grundvallarreglu að embætt- ismenn starfi í þágu kjörinna full- trúa og útvegi þeim án und- anbragða allar umbeðnar upplýsingar, sem fyrirfinnast um fjármál stofnana borgarinnar og fyrirtækja í hennar eigu. Í um- ræddu máli var þessari reglu snú- ið á haus og embættismenn tóku fullan þátt í því að halda mik- ilvægum upplýsingum frá kjörnum borgarfulltrúa. Á borgarstjórnarfundi 4. sept- ember sl. spurði ég um afstöðu Jóns Gnarrs Kristinssonar borg- arstjóra til þeirrar ákvörðunar stjórnar Austurhafnar að neita þráfaldlega óskum kjörins borg- arfulltrúa um aðgang að um- ræddri úttekt KPMG. Spurði ég jafnframt hvort borgarstjóri eða staðgengill hans, Dagur B. Egg- ertsson, hefðu með einhverjum hætti komið að ákvörðun stjórn- arinnar, t.d. með samráði við full- trúa Reykjavíkurborgar í stjórn fyrirtækisins. Allt í boði Samfylkingarinnar Þrátt fyrir að spurningarnar væru afar skýrar, treysti borg- arstjóri sér ekki til að svara þeim fyrr en hann hefði skoðað málið betur. Tæpur mánuður er nú síðan spurningarnar voru lagðar fram og enn hefur borgarstjóri ekki svarað. Rétt er að minna á að borgarstjóri er sjálfur embætt- ismaður, sem ber að svara slíkum spurningum og veita öllum borg- arfulltrúum upplýsingar óháð flokkslínum. Þetta mál er aðeins eitt dæmi um gersamlega óviðunandi vinnu- brögð, sem nú viðgangast í Ráð- húsi Reykjavíkur. Ef til vill er ekki hægt að búast við miklu af borgarstjóra, sem sjálfur hefur lýst yfir að hann sé trúður. En mikil er ábyrgð Samfylking- arinnar, sem er í meirihluta- samstarfi með ,,trúðnum“ og legg- ur blessun sína yfir slík vinnubrögð. Eftir Kjartan Magnússon »Undir stjórn borg- arstjóra hafa æðstu embættismenn borg- arinnar tekið fullan þátt í því að halda mikilvægum upplýs- ingum frá kjörnum borgarfulltrúum. Kjartan Magnússon Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Leyndarhyggja um Hörpu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.