Morgunblaðið - 01.10.2012, Síða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2012
Á forsetastóli Susanne Bier hlaut um helgina verðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listfengi og fór afhendingin fram á Bessastöðum. Páll Óskar brá á leik á skrifstofu forsetans af þessu tilefni.
Golli
Þegar ákveðið var
árið 2009 að halda
byggingu tónlistar-
hússins áfram af full-
um krafti þrátt fyrir
efnahagsþrengingar
og gjaldeyrisskort,
var því lofað að ekki
þyrftu að koma til
frekari framlög frá
skattgreiðendum til
byggingar og rekstr-
ar hússins, umfram þær skuld-
bindingar, sem þegar höfðu verið
gerðar og nema nú um einum
milljarði króna á ársgrundvelli í
35 ár. Ýmsir höfðu efasemdir um
að verkinu yrði haldið áfram á
fullri ferð og vildu fresta fram-
kvæmdum við húsið þar til betur
áraði eða a.m.k. draga verulega úr
framkvæmdahraða. Mjög var var
hins vegar þrýst á menn um að
styðja lúkningu hússins og því lof-
að að ekki þyrftu að koma til frek-
ari opinber framlög til þess um-
fram þegar gerðar skuldbindingar.
Almenningur borgar brúsann
Nú, þegar ljóst er orðið að hin
samningsbundnu framlög duga
ekki, þarf að leiða í ljós án und-
anbragða hvort einhverjar for-
sendur frá 2009 brugðust og þá
hverjar, eða hvort stjórn-
málamenn voru hreinlega gabb-
aðir.
Reykjavíkurborg á 46% í Hörp-
unni og ber því mikla ábyrgð á
húsinu og rekstri þess. 3. nóv-
ember 2011 óskaði borgarráð eftir
því að gerð yrði úttekt á rekstri
Hörpunnar ,,til að
skýr staða liggi fyrir
og hægt sé að meta
hvernig verkefnið hef-
ur farið af stað“.
Jafnframt lagði borg-
arráð áherslu á að
strax yrði farið í ein-
földun á stjórnarfyr-
irkomulagi þeirra fé-
laga, sem koma að
rekstrinum og að ekki
yrði farið í frekari
framkvæmdir við hús-
ið, sem ekki leiddu af
sér tryggar viðbótartekjur, meðan
á úttektinni stæði.
Vilji borgarráðs hundsaður
Búist var við því að brugðist
yrði án tafar við ósk borgarráðs
um rekstrarúttekt og einföldun á
stjórnskipulagi. Vinna við rekstr-
arúttekt hófst hins vegar ekki fyrr
en fimm mánuðum eftir umrædda
ósk borgarráðs eða í apríl sl. þeg-
ar Austurhöfn – TR fól KPMG
verkið og lauk því í maí.
Rekstrarúttekt KPMG er nauð-
synlegt plagg fyrir þá, sem vilja
átta sig á því hvað hefur farið úr-
skeiðis í rekstri hússins og ræða
tillögur til úrbóta, ekki síst alþing-
ismenn og borgarfulltrúa, sem
vinna nú að fjárhagsáætlunum
næsta árs. Þá eiga mörg atriði í
umræddri skýrslu ekki síður er-
indi við almenning, sem borgar
brúsann.
Ljóst er að ósk borgarráðs frá
3. nóvember um að strax yrði far-
ið í einföldun á stjórnarfyr-
irkomulagi þeirra félaga sem
koma að rekstrinum, var hundsuð.
Í ágúst sl. komu enn a.m.k. átta
félög að rekstri Hörpu. Sama fólk-
ið sat þá meira og minna í stjórn-
um allra þessara félaga og fékk
greidda þóknun fyrir setu í hverri
stjórn.
Vegna þess völundarhúss félaga,
sem byggt hefur verið upp í
kringum Hörpu, hefur verið mun
flóknara og erfiðara en ella fyrir
stjórnmálamenn og fréttamenn að
rýna og fjalla um rekstur hússins.
Rekstrarúttekt KPMG er að
mörgu leyti vel unnin og auðveld-
ar hlutaðeigandi að rýna rekst-
urinn.
Embættismenn á hálum ís
Í ljósi þess hve KPMG-skýrslan
er mikilvæg er það afar óeðlilegt
hvernig stjórn Austurhafnar – TR
hefur ítrekað neitað að láta und-
irrituðum hana í té. Jafnvel eftir
að aðstoðarmaður mennta- og
menningarmálaráðherra sendi
fjölmiðlum skýrsluna, neitaði
stjórnin að afhenda undirrituðum
hana.
Eftir því sem næst verður kom-
ist, studdu þrír fulltrúar Reykja-
víkurborgar í stjórn Austurhafnar
umrædda ákvörðun. Tveir af þess-
um stjórnarmönnum eru embætt-
ismenn, sem heyra beint undir
borgarstjórann í Reykjavík en
hinn þriðji er pólitískur fulltrúi
meirihluta Samfylkingar og Besta
flokksins.
Með ólíkindum er að stjórn
Austurhafnar, sem er að fullu í
eigu ríkisins og Reykjavík-
urborgar, skuli leggja sig í líma
við að halda mikilvægum upplýs-
ingum um fjárhag Hörpu frá
kjörnum fulltrúum. Ekki er síður
ámælisvert að tveir af æðstu emb-
ættismönnum Reykjavíkurborgar,
sem sitja í stjórninni, taki fullan
þátt í því með þessum hætti að
halda umræddum upplýsingum frá
kjörnum borgarfulltrúa.
Ef ekki væri fyrir atbeina
mennta- og menningarmálaráð-
herra, væri KPMG-skýrslan sjálf-
sagt enn leynileg. Enn hefur eng-
inn haldið því fram svo ég viti að
birting skýrslunnar hafi með
nokkrum hætti skaðað rekstur
Hörpu. Hins vegar hefur almenn-
ingur fengið gleggri upplýsingar
en áður um óviðunandi vinnubrögð
og jafnvel spillingu í tengslum við
byggingu og rekstur hússins.
Grundvallarregla brotin
Í þessu máli er vegið að þeirri
grundvallarreglu að embætt-
ismenn starfi í þágu kjörinna full-
trúa og útvegi þeim án und-
anbragða allar umbeðnar
upplýsingar, sem fyrirfinnast um
fjármál stofnana borgarinnar og
fyrirtækja í hennar eigu. Í um-
ræddu máli var þessari reglu snú-
ið á haus og embættismenn tóku
fullan þátt í því að halda mik-
ilvægum upplýsingum frá kjörnum
borgarfulltrúa.
Á borgarstjórnarfundi 4. sept-
ember sl. spurði ég um afstöðu
Jóns Gnarrs Kristinssonar borg-
arstjóra til þeirrar ákvörðunar
stjórnar Austurhafnar að neita
þráfaldlega óskum kjörins borg-
arfulltrúa um aðgang að um-
ræddri úttekt KPMG. Spurði ég
jafnframt hvort borgarstjóri eða
staðgengill hans, Dagur B. Egg-
ertsson, hefðu með einhverjum
hætti komið að ákvörðun stjórn-
arinnar, t.d. með samráði við full-
trúa Reykjavíkurborgar í stjórn
fyrirtækisins.
Allt í boði Samfylkingarinnar
Þrátt fyrir að spurningarnar
væru afar skýrar, treysti borg-
arstjóri sér ekki til að svara þeim
fyrr en hann hefði skoðað málið
betur. Tæpur mánuður er nú síðan
spurningarnar voru lagðar fram
og enn hefur borgarstjóri ekki
svarað. Rétt er að minna á að
borgarstjóri er sjálfur embætt-
ismaður, sem ber að svara slíkum
spurningum og veita öllum borg-
arfulltrúum upplýsingar óháð
flokkslínum.
Þetta mál er aðeins eitt dæmi
um gersamlega óviðunandi vinnu-
brögð, sem nú viðgangast í Ráð-
húsi Reykjavíkur. Ef til vill er
ekki hægt að búast við miklu af
borgarstjóra, sem sjálfur hefur
lýst yfir að hann sé trúður. En
mikil er ábyrgð Samfylking-
arinnar, sem er í meirihluta-
samstarfi með ,,trúðnum“ og legg-
ur blessun sína yfir slík
vinnubrögð.
Eftir Kjartan
Magnússon »Undir stjórn borg-
arstjóra hafa æðstu
embættismenn borg-
arinnar tekið fullan
þátt í því að halda
mikilvægum upplýs-
ingum frá kjörnum
borgarfulltrúum.
Kjartan Magnússon
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Leyndarhyggja um Hörpu