Morgunblaðið - 01.10.2012, Qupperneq 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2012
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhanns-
son, sem búsettur er í Kaupmanna-
höfn, gaf nýverið út plötuna Copen-
hagen Dreams sem inniheldur
frumsamda tónlist úr samnefndri
mynd eftir Max Kestner, en myndin
var sýnd á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík í fyrra. Flytj-
endur á plötunni auk Jóhanns eru
meðal annarra Hildur Guðnadóttir,
Ólafur Björn Ólafsson, Una Svein-
bjarnardóttir, Guðni Franzson og
Hrafnkell Orri Egilsson. Jóhann get-
ur ekki kvartað undan viðtökum því
platan hefur fengið einkar góða dóma.
Það eru 12 Tónar sem gefa út Co-
penhagen Dreams á Íslandi, en
plötuútgáfa sem Jóhann stofnaði
sjálfur, NTOV, gefur plötuna út er-
lendis. „Í þessu ákveðna tilfelli
ákvað ég að gefa plötuna út sjálfur í
samstarfi við stórt fyrirtæki í
Bandaríkjunum sem dreifir henni,“
segir Jóhann. „Hún kemur út á diski
á Íslandi en erlendis kemur hún ein-
göngu út á vínyl og á stafrænu sniði.
Stór hópur hefur áhuga á vínyl sem
mér finnst sjálfum kjörið form til að
gefa út tónlist á. Ég væri alveg til í
að gefa bara út vínylplötur og staf-
rænar útgáfur. Ég ekkert mjög
spenntur fyrir geisladisknum sem
formi, en hann er þægilegur og hef-
ur mikla útbreiðslu.“
Tónlist við fræga þögla mynd
Er eitthvað sérstakt sem þú þarft
að hafa í huga þegar þú semur kvik-
myndatónlist?
„Kvikmyndatónlist er krefjandi
form að því leyti að þá þarf ég að
vinna innan ákveðins ramma því
kvikmyndaverkið sjálft setur manni
ákveðnar skorður. Ég hef ekki full-
komið frelsi til að gera hvað sem er
heldur þarf ég að semja tónlist sem
þjónar verkinu. Ég set kvikmynda-
tónlistina mína hins vegar aldrei á
plötu nákvæmlega eins og hún er í
bíómyndinni, heldur aðlaga og end-
urgeri að hluta og bý til tónlist sem
vonandi virkar ein og sér.“
Jóhann vinnur nú að því, ásamt
Hildi Guðnadóttur, að semja tónlist
við þöglu myndina Pandora’s Box
sem leikstjórinn G.W. Pabst gerði
árið 1929 með leikkonunni Louise
Jóhann Jóhannsson tónlistarmaður var
að gefa út plötu og er að semja kvik-
myndatónlist, auk annarra verkefna.
» „Ég bað HildiGuðnadóttur að
semja tónlistina með
mér og við erum að
vinna þetta saman núna
og förum síðan til Eng-
lands og æfum með
fjögurra manna hljóm-
sveit. Við munum síðan
spila undir myndinni í
fjórum borgum í Eng-
landi. Þetta er frábær
mynd og Louise Brooks
alveg ótrúleg.“
Jóhann Jóhannsson „Það á vel við
mig að vinna að nokkrum hlutum í
einu. Það virkar sem hvíld fyrir mig
að stökkva á milli verkefna.“
Verkefnin
nærast
hvert á öðru
Listakonan Ulrike Ottinger opnaði
sýningu á verkum sínum í Norræna
húsinu fimmtudaginn sl. og er hún
einn af sérviðburðum Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar í Reykjavík,
RIFF, sem hófst sama dag.
Ottinger er þýsk og „svífur milli
landamæra og listmiðla“, eins og
því er lýst í tilkynningu. „Ulrike
Ottinger hefur ferðast um allan
heiminn og ljósmyndar það sem
fyrir augu ber. Áhorfandinn kann-
ast við sjálfan sig í hinu fram-
andlega en samt svo nálægu mynd-
efninu. Sjónarhorn Ulrike Ottinger
skautar milli hins skáldaða og hins
rauverulega og mörkin þar á milli
eru oft mjög óljós þar sem súrreal-
ískt myndefnið er líkast leikhús-
senum. Ulrike er ekki að reyna að
vera óhlutlægur ljósmyndari eða
skrásetjari, hennar sjónarhorn og
fókus eru alltaf áberandi í myndum
hennar. Sagt hefur verið um mynd-
ir hennar að þar mætist hið fundna
og hið skáldaða,“ segir m.a. um
verk hennar. Hún hafi unnið með
ljósmyndir, innsetningar og kvik-
myndir og ein kvikmynda hennar,
Unter Schnee, verði sýnd á RIFF í
Norræna húsinu, 3. október kl. 20.
Ottinger mun taka þátt í umræðum
að lokinni sýningu.
Frekari upplýsingar um lista-
konuna má finna á ulrikeott-
inger.com.
Doppótt Ein ljósmynda Ottinger, Der Bote der Inquisition.
Óljós mörk veruleika og skáldskapar
Ert þú frjáls?
Handfrjáls höfuðtól
SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
Dasan
Létt og þægilegt höfuðtól frá Dasan sem hægt er
að teng ja með USB við tölvu eða hefðbundnu síma-
tengi við borðsíma.
Jabra Pro 920 / 930 - þráðlaust
Þráðlaust DECT höfuðtól sem tengist nær öllum
gerðum símtækja og skiptiborða. Allt að 120m
drægni. Falleg og stílhrein hönnun.
USB 12.900 kr. Borðsíma eða USB - 33.900 kr.Borðsíma 9.900 kr.
Við bjóðum mikið úrval af handfrjálsum og
þráðlausum höfuðtólum. Kíktu til okkar, við
tökum vel á móti þér.