Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 5
Illuga í 1. sæti
www.illugi.isPrófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík
Við höfum verk að vinna
Framundan eru einhverjarmikilvægustu
Alþingiskosningar lýðveldistímans og öflugir
framboðslistar Sjálfstæðisflokksins hér í höfuð-
borginni eru forsenda þess að flokkurinn okkar
nái glæsilegum árangri í næstu kosningum.
Núverandi ríkisstjórn hefurmistekist stjórn efnahagsmála og nú, við lok kjör-
tímabilsins, blasa við ónýtt tækifæri. Hagvöxtur er langt undir væntingum,
kjarasamningar eru í uppnámi, gjaldeyrishöftin hvíla á samfélaginu eins ogmara
og ríkisstjórnin er rúin öllu trausti. Það er litið til okkar um stefnu og svör og öllu
máli skiptir að Sjálfstæðisflokkurinn rísi undir þeim væntingum.
Ég hef gert grein fyrir skoðunummínum á efnahagsmálum og hvernig Sjálfstæðis-
flokkurinn á aðmarka trúverðuga stefnu í þeimmálum. Ég hef einnig haldið opinn
fund ummenntamál því ég tel að þar eigum við sjálfstæðismennmikil sóknarfæri.
Menntun og vísindi eru stóriðja okkar tíma og Sjálfstæðisflokkurinn á að taka for-
ystu í þeimmálum.
Þið sýnduðmérmikinn heiður og traust þegar þið völduðmig til að leiða
Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík í síðustu kosningum.
Ég óska nú eftir stuðningi ykkar í 1. sætið og fá þarmeð umboð til að berjast áfram
fyrir hugsjónum okkar og stefnumálum.
Ágætu sjálfstæðismenn, ég skora á ykkur að taka þátt í prófkjörinu. Við höfum verk
að vinna, nýtum tækifærið og hefjum kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins af afli.
Kær kveðja,
Illuga Gunnarsson til forystu í Reykjavík