Morgunblaðið - 24.11.2012, Qupperneq 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Brynjar
Níelsson
Sigurður
Sigurðarson
Hafsteinn
Númason
Áslaug
Friðriksdóttir
Jakob F.
Ásgeirsson
Birgir Örn
Steingrímsson
Guðjón
Sigurbjartsson
Sigríður Á.
Andersen
Gunnar Kristinn
Þórðarson
Elí
Úlfarsson
Dr. Pétur H.
Blöndal
Elínbjörg
Magnúsdóttir
Þórhalla
Arnardóttir
Ingibjörg
Óðinsdóttir
Illugi
Gunnarsson
Teitur Björn
Einarsson
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Birgir
Ármannsson
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Nánari upplýsingar á www.xd.is Sjálfstæðisflokkurinn
1. kjörhverfi Vestur- og Miðbæjarhverfi, Nes- og Melahverfi og Austurbæjar- og
Norðurmýrarhverfi. Öll byggðin vestan Rauðarárstígs að Miklubraut.
Kjörstaður: Hótel Saga, Katla (gengið inn norðan megin).
2. kjörhverfi Hlíða- og Holtahverfi, Laugarnes- og Túnahverfi og Langholtshverfi.
Öll byggð er afmarkast af 1. kjörhverfi í vestur og suður. Öll byggð vestan
Kringlumýrarbrautar að Suðurlandsbraut og öll byggð norðan Suðurlandsbrautar.
Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
3. kjörhverfi Háaleitishverfi, Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi. Hverfið afmarkast
af Kringlumýrarbraut í vestur, Suðurlandsbraut í norður og Reykjanesbraut í austur.
Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
4. kjörhverfi Árbæjar- og Seláshverfi, Ártúns- og Norðlingaholt.
Kjörstaður: Félagsheimili sjálfstæðisfélagsins, Hraunbæ 102b.
5. kjörhverfi Hóla- og Fellahverfi, Bakka- og Stekkjahverfi, Skóga- og Seljahverfi.
Kjörstaður: Félagsheimili sjálfstæðisfélaganna, Mjódd, Álfabakka 14 a.
6. kjörhverfi Grafarvogur, Bryggjuhverfi, Grafarholt, Úlfarsárdalur og Kjalarnes.
Kjörstaður: Félagsheimili sjálfstæðisfélagsins í Grafarvogi, Hverafold 5.
Kjörstaðir í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Kjörstaðir verða opnaðir í dag, laugardaginn
24. nóvember kl. 9.00 og lokað kl. 18.00.
Bændur og fjölskyldur þeirra í Skagafirði og
Húnavatnssýslum sem lentu vandræðum í
óveðrinu í september fá ekki áfallahjálp og eft-
irfylgni vegna hugsanlegra sálrænna erfiðleika
með sama hætti og fjölskyldur í Þingeyj-
arsýslum. Þegar lýst var yfir almannavarna-
ástandi tók starfshópur um áfallahjálp í Þing-
eyjasýslum til starfa og er enn að.
Starfshópurinn í Þingeyjarsýslum skipulagði
aðstoð við bændur og fjölskyldur þeirra, meðal
annars í grunnskólunum. Sem dæmi má nefna
að fréttir bárust af því að börn í Hafralækj-
arskóla væru óörugg og liði ekki vel, þau stæðu
í röð við kaffistofuna til að fá að hringja heim
og athuga stöðuna. Fulltrúar hópsins fræddu
fólk á íbúafundum. Þá er fólki áfram boðið upp
á stöðufundi, í minni hópum.
Sigríður Jónsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingar
heilsugæslu á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga,
telur að ágætlega hafi til tekist. Hún áætlar að
40-50 manns hafi komið í viðtöl eða fengið aðra
hjálp, til dæmis við að koma reglu á svefn.
Áætlar hún að fylgja þurfi 8-10 fullorðnum eft-
ir auk starfs meðal barna. Enginn björg-
unarsveitarmaður er í þeim hópi. „Það er mikil
geðvernd í þessu fólgin og síður hætta á að
málin þróist í alvarlega sjúkdóma,“ segir Sig-
ríður.
Sambærileg þjónusta hefur ekki verið veitt í
Skagafirði og Húnavatnssýslu, þótt óveðrið hafi
ekki valdið minna tjóni þar. Það er vegna þess
að ekki var lýst yfir almannavarnaástandi.
Vernharð Guðnason, formaður almannavarna-
nefndar Skagafjarðar, segir að stofnaður hafi
verið starfshópur til að fara yfir aðdraganda
og afleiðingar óveðursins og gera tillögur í
framhaldinu, meðal annars um viðbragðsáætl-
un. Reiknar hann með að fjallað verði um sál-
ræna hjálp í starfi nefndarinar enda sé það
langtímaverkefni. Vernharð segist hafa verið í
miklu sambandi við bændur og telur að þeir
beri sig almennt vel. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Eftir óveður Mikið mæddi á bænd-
um og fjölskyldum þeirra.
Misjöfn hjálp eftir landshlutum
Áfallahjálp ekki sinnt eftir óveðrið í Skagafirði og Húnavatnssýslu