Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
enjulegir sundbolir eru
hannaðir fyrir fólk sem er
í góðu veðri að synda í
heitu vatni. En þegar
maður er í sjósundi í
frosti þá duga slíkar flíkur skammt,“
segir Elín Ebba Ásmundsdóttir þar
sem hún stendur í flæðarmálinu í
Nauthólsvík í frosti og bíður eftir sam-
starfskonum sínum sem ætla að skella
sér með henni í sjóinn. Hún skartar
glæsilegum röndóttum sundbol úr
lopa sem ein þeirra, Helga Ólafsdóttir
hannaði og prjónaði. „Þegar við byrj-
uðum að stunda sjósundið fyrir rúmu
ári sáum við heilan flokk karlmanna
hér sem voru í prjónuðum sund-
skýlum úr lopa og við tókum þá til fyr-
irmyndar, því það er eina vitið í sjó-
sundi að klæðast lopa. Við köllum
þessa karla alltaf Lopagengið.“
Útlendingar æpa af hrifningu
Helga er búin að prjóna tvo sund-
boli á sig sjálfa og einn á Elínu Ebbu,
en Kristín Sigursteinsdóttir, sú þriðja
í þessu kvennasjósundsgengi, prjón-
aði sinn bol sjálf. „Ég þæfi bolina og
þeir voru því mun stærri fyrir þæf-
inguna en þeir eru núna. Það tekur því
sinn tíma að prjóna hvern bol. Þessi
klæðnaður okkar vekur ævinlega
mikla lukku og útlendingarnir sem
koma hingað sífellt fleiri í sjósund æpa
upp yfir sig af hrifningu og spyrja
hvar sé hægt að kaupa svona. Því mið-
ur treysti ég mér ekki til að framleiða
svona boli á færibandi,“ segir Helga
Ólafsdóttir sem hefur þróað hug-
myndina eftir að hafa reynt klæðin í
sjónum. „Fyrsti bolurinn sem ég
prjónaði er með grönnum hlýrum og
stuttum skálmum, en nýjasti bolurinn
er heill yfir axlirnar og skálmarnar
síðari. Það veitir ekkert af að hafa
þetta klæðmikið í kuldanum.“
Sjósundsflíkur úr
lopa eru bestar
Þær láta kulda og trekk ekki stoppa sig sjósundskonurnar sem koma í hverri viku
í Nauthólsvíkina og baða sig í hafinu, enda eru þær vel búnar, hjúpaðar íslensku
ullinni. Þær segjast vera orðnar fíknar í sjósundið og þennan daginn eru þær svo
heppnar að selur veitir þeim óvæntan félagsskap.
Skítakuldi Sjávarlöðrið lék um leggi þar sem þær óðu í land eftir sjósund-
sprett. F.v Hafdís Hrund, starfsmaður í Nauthólsvík, Elín Ebba og Helga.
Svalir Óskar Jónasson og nokkrir af félögum hans í Lopagenginu, en þeir
hafa stundað sjósund undanfarin átta ár og synda allir í lopasundskýlum.
Söngstund verður í kaffihúsi Gerðu-
bergs sunnudaginn 25. nóvember kl.
14-16. Þar gefst kostur á að eiga
saman góða stund og syngja og hlýða
á söngva og sögu um fagurt sólarlag,
kvöldvökur, rómantík og ævintýri í
rökkrinu.
Afhent verða sönghefti með söng-
og kvæðalögum fyrir fjöldasöng en
lögin eru blanda af íslenskum og er-
lendum alþýðulögum.
Bára Grímsdóttir og Chris Foster
halda utan um söngstundirnar í sam-
vinnu við Kvæðamannafélagið Iðunni
og Menningarmiðstöðina Gerðuberg.
Auk þeirra koma fram að þessu sinni
m.a. Róbert Marshall, Davíð Arnórs-
son og systurnar Þorbjarnarson og
Veska Jónsdóttir frá Búlgaríu og
sagnakonan Rósa Þorsteinsdóttir.
Bára Grímsdóttir er af mörgum tal-
in vera einn allra besti túlkandi þjóð-
legrar tónlistar hér á landi og hefur
hún flutt margs konar þjóðlaga-
tónlist bæði hér heima og erlendis.
Chris Foster kynntist þjóðlögum í
uppvexti sínum í Somerset í Suð-
vestur-Englandi. Chris hefur sett
þjóðlagahefðina í nútímalegan bún-
ing með sérstæðum og frumlegum
gítarundirleik og sannfærandi söng-
túlkun.
Markmiðið með söngstundunum er
að gefa fólki tækifæri til að koma
saman í notalegu umhverfi og syngja
og hlýða á íslensk og erlend alþýðu-
lög. Viðburðurinn hæfir öllum aldurs-
hópum og er aðgangur ókeypis.
Söngstund í Gerðubergi
Söngvar og sögur um rómantík
og ævintýri í rökkrinu
Tónlistarhjón Bára Grímsdóttir og Chris Foster eru áhugfólk um þjóðlög.
Morgunblaðið/Golli
Ef þú ert áhugamanneskja um góðan
mat og vín getur verið skemmtilegt
að skyggnast inn í það sem matgæð-
ingar víða um heim eru að bralla. Vef-
síðunni www.twohotpotatoes.com-
halda úti vinkonurnar Angela
MonDragon og Sarah Wicker. Þær eru
báðar forfallnir sælkerar sem búa í
Dallas og deila með lesendum sínum
tilraunum í matargerð svo og ýmsum
matar- og vínuppgötvunum. Vefsíð-
una prýða fallegar myndir sem gam-
an er að skoða og þar má líka finna
uppskriftir fyrir þá sem langar að
prófa eitthvað nýtt um helgina. Góð-
ur matur og gleði í bland, þannig á líf-
ið að vera í skammdeginu!
Vefsíðan www.twohotpotatoes.com
Góðgæti Á aðventunni er rétti tíminn til þess að njóta í mat og drykk.
Sælkerar deila uppgötvunum
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Síðasti dagur listmálarans Elfars
Guðna Þórðarsonar á sýningunni Frá
Djúpi til Dýrafjarðar verður sunnu-
daginn 25. nóvember nk. Þar sýnir
Elfar Guðni Vestfjarðamyndir sem
hann málaði í haust þegar hann og
eiginkonan Helga Jónasdóttir dvöldu
í þrjár vikur í Mannlífs- og menning-
arsetri Önfirðingafélagsins að Sól-
bakka á Flateyri. Elfar Guðni hefur
sagt frá hinum mögnuðu áhrifum
sem vestfirska náttúran hefði á hann
og jafnvel gerði hann verklausan af
hrifningu. Til þess að gera betur
grein fyrir þessari upplifun og áhrif-
um verður boðið til „trönuspjalls“ í
sýningarsal Elfars Guðna, Svarta-
kletti í Menningarverstöðinni á
Stokkseyri kl. 15 á sunnudaginn og
eru allir hjartanlega velkomnir.
Endilega…
Listmálari Elfar Guðni Þórðarson.
…hlýðið á
trönuspjall