Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Gegn minknum duga engin vettlingatök
stofnsins. Reynir sagði athyglisvert
að sjá að veiðst hefðu 1.040 steggir á
móti 630 læðum hver sem skýringin
er á því.
Reynir segir að minkaveiðarnar í
ferlinu sem náði yfir Ölfus, Sogið,
Þingvallavatn og Grímsnes hafi ver-
ið aukaafurð í rannsóknarverkefn-
inu. Mikil vinna hafi farið í vett-
vangsvöktun, gagnvinnslu og aðra
skrifstofuvinnu.
Í öðrum sveitarfélögum hefur það
tekið að minnsta kosti jafn langan
tíma að skrapa saman aurum fyrir
því sem hann var að gera og sá tím-
inn sem fór í sjálfar veiðarnar.
„Peningahliðin hefur ekki verið
mín sterka hlið,“ sagði Reynir. Hann
kvaðst verða var við það í sveitar-
félögunum að því meir sem hann
veiði í minkasíurnar því erfiðara
verði að semja við þau. Reynir tekur
fram að þarna spili inn í hagsmunir
ráðinna veiðimanna í sveitarfélög-
unum sem telji sig missa spón úr
aski sínum.
Nýjar léttsíur prófaðar
Reynir hefur annast alla þætti til-
raunaverkefnisins Ölfus - Öxará -
Grímsnes. VSÓ Ráðgjöf vann
skýrslu um fyrstu fjögur ár verkefn-
isins sem m.a. var send til umhverf-
isráðuneytisins.
Reynir er nú að hefja nýtt rann-
sóknarverkefni sem kallast „Kúgild-
islækur“ og fer það af stað með
rannsóknarstyrk frá Fiskirækt-
arsjóði.
„Af minni hálfu snýr það að því að
varðveita og endurheimta silungs-
stofna í smærri ám sem hafa verið
þar frá alda öðli,“ sagði Reynir.
„Verkefnið gengur meðal annars út
á að auka veiðiálag á mink og yfir-
vinna stofnstærðina. Einnig er ætl-
unin að finna tölulegt form til þess
að greina álagið og árangurinn.“
Ljósmynd/Rannveig Magnúsdóttir
Sogið Jakub Skorupski, verkefnisstjóri Baltic Greenbelt, og Reynir með afla úr minkasíum. Jakub kom til Íslands
til að kynna sér veiðar á mink. Hann starfar við átak til að bæta skilyrðin á strandsvæðum Eystrasaltsins.
Minkar veiddir í minkasíur við Þingvallavatn
2004-2011 Steggir Læður Fjöldi minkasía
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011
1
4
Alls:
5
Alls:
37
Alls:
51
Alls:
73
Alls:
89 Alls:
81
Alls:
36
10
27
31
20
29
44
56
33
35
46
30
28
12
24
Heimild: Reynir Bergsveinsson
Alls:
58
70
5
„Það leynir sér ekki að minknum
hefur fækkað,“ sagði Jóhann Jóns-
son, bóndi í Mjóanesi við Þingvalla-
vatn. „Ég hef ekki orðið var við
mink undanfarin tvö ár. Fuglalífið
hefur alveg gjörbreyst. Mikið af
öndum með unga eins og var hér í
sumar. Það er allt annað en var
upp á fuglalífið að gera.“
Jóhann sagði að mikið væri af
fugli í Mjóanesi, meðal annars óð-
inshanar og margar andategundir.
„Það virtist vera mikið af ungum
hjá þessum fuglum í sumar,“ sagði
Jóhann. Hann sagði alveg greini-
legt að þessi umskipti megi þakka
minni mink á svæðinu. „Þegar
minkur er hérna þá kemst ekki
upp neitt eða mjög lítið af ungum.“
Jóhann segir að menn finni
minna fyrir breytingu á lífríkinu í
sjálfu vatninu. Minkurinn veiði að-
allega fisk á veturna. Hann kafi þá
undir ísinn. Í gamla daga sást
stundum minkur uppi á ísnum að
éta fisk. Jóhann kvaðst ekki vera
viss um að minkurinn veiddi svo
mikinn fisk yfir sumarið, þá sé
hann aðallega í fuglinum.
„Það er alveg hægt að halda
minknum niðri, en það þarf elju-
semi og kostnað,“ sagði Jóhann.
„Svo er refnum að fjölga og það er
enn ein plágan.“
Fækkun minka olli breytingu
„Við sjáum alveg greinilegan
mun á fuglalífinu og heyrum það
sama á sumarhúsaeigendum,“
sagði Ólafur Örn Haraldsson, þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum. Hann
kvaðst hafa haldið uppi spurnum á
meðal sumarhúsaeigenda um
breytinguna. „Ég held að það sé
samdóma álit að fuglalíf við vatnið
og á vatninu sé fjölskrúðugra og
ríkulegra en það var.“ Ólafur segir
að breytingin sé þökkuð fækkun
minka og að hún sjáist best á
vatnafuglum.
„Ég er mjög ánægður með fram-
takssemi og árangur Reynis,“
sagði Ólafur um minkaveiðar
Reynis Bergsveinssonar. Hann hef-
ur farið með Reyni að vitja um
minkasíur og eins farið með mönn-
um sem unnu minkagreni með
hefðbundnum aðferðum. Ólafur
kvaðst telja að veiðiaðferð mink-
asíunnar sé mun mannúðlegri, sé
yfirhöfuð hægt að tala um mannúð
í þessu sambandi.
gudni@mbl.is
Leynir sér ekki að
minknum hefur fækkað
Morgunblaðið/Ómar
Þingvellir Fuglalífið er orðið fjölskrúðugra og ríkulegra við Þingvallavatn en það var áður en minkum var fækkað.
LINNETSSTÍG 2 | SÍMI: 565-4854
Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardagur 11:00 - 14:00
www.s i ggaog t imo . i s