Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 30
FRÉTTASKÝRING
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ný byggingarreglugerð sem tekur að
fullu gildi um áramótin eykur kostnað
við byggingu dæmigerðs fjölbýlis um
tæp 10% að lágmarki.
Þetta er niðurstaða ráðgjafarstof-
unnar Hannars sem vann athugun á
því fyrir Samtök iðnaðarins og Búseta
hvaða áhrif reglugerðin hefði haft á
kostnað við byggingu íbúða á vegum
Búseta í fjölbýlishúsi sem þegar er
risið við Litlakrika í Mosfellsbæ.
Friðrik Á. Ólafsson, forstöðumaður
hjá Samtökum iðnaðarins, greindi frá
niðurstöðunum á fundi samtakanna
um áhrif reglugerðarinnar í Reykja-
vík í gær en auk fulltrúa SI fluttu
fulltrúar Mannvirkjastofnunar, Arki-
tektafélagsins og Félags bygginga-
fulltrúa erindi.
Horft til fjölmargra þátta
Sérfræðingar Hannars litu til fjöl-
margra þátta í greiningu sinni á áhrif-
um breytinganna, m.a. kostnaðar
vegna aukinnar einangrunar út-
veggja, þaks og neðsta gólfs, aukinn-
ar stærðar húsa vegna meiri einangr-
unar, aukins rýmis í íbúðum og aukins
rýmis í bílageymslu. Þá var horft til
viðbóta vegna aukinnar loftræsting-
ar, stærri innihurða, sjálfvirkrar opn-
unar dyra og varaaflgjafa (ef raf-
magnið fer af) og stækkunar
svalaganga.
Jafnframt var horft til viðbóta
vegna hækkunar á bílakjallara,
stækkunar á bílastæðum fatlaðra úti
og aukins fjármagnskostnaðar sam-
fara hærri byggingarkostnaði. Var
jafnframt horft til aukakostnaðar
vegna gerðar nýrra handbóka og
kennslu. Var niðurstaðan sem fyrr
segir sú að þetta yki kostnað við fjöl-
býlið í Litlakrika um tæp 10%.
Þar með er ekki öll sagan sögð því
ef fjölbýlishúsið hefði verið einangrað
og klætt að utan í takt við nýjar kröf-
ur reglugerðarinnar hefði samanlagð-
ur kostnaðarauki hennar orðið 12,4%.
Friðrik tiltók ekki hvað íbúðir Bú-
seta í Litlakrika myndu kosta ef þær
yrðu seldar á opnum markaði. Sé
gengið út frá því að meðalverðið yrði
25 milljónir króna er kostnaðarauk-
inn hins vegar frá 2,5 milljónum og
upp í 3,1 milljón króna, þannig að
söluverðið færi í 27 til 28,1 milljón.
Kaupendur með lítið eigið fé þyrftu
því að taka hærri fasteignalán og bæt-
ist það ofan á aukinn fjármagnskostn-
að vegna vaxtahækkana Seðlabank-
ans að undanförnu.
Fram kom í erindi Friðriks að
Samtök iðnaðarins hefðu sent Mann-
virkjastofnun fyrirspurn um hvaða
áhrif reglugerðin, sem kveður á um
svonefnda algilda hönnun, hefði á
kostnað við að reisa umrætt fjölbýli.
Var svarið að sögn Friðriks að því
fylgdi óverulegur kostnaðarauki að
uppfylla ákvæði reglugerðarinnar.
Upphitun á bílastæðum
Undir lok erindisins vék Friðrik að
nokkrum atriðum sem hefðu getað
aukið kostnað við byggingu fjölbýlis-
hússins enn frekar.
Nefndi hann þar bílastæði fyrir
fatlaða í kjallara, upphitun á bílastæð-
um og gönguleiðum, viðbótarmerk-
ingar, líkt og krafist sé í algildri hönn-
un, og auknar kröfur um hljóðvist og
brunavarnir.
Friðrik tiltók síðan ýmis bein þjóð-
hagsleg áhrif reglugerðarinnar.
Húsnæði yrði dýrara og það ynni
gegn húsnæðisstefnu velferðarráðu-
neytis. Umfang nýframkvæmda yrði
minna og það ynni gegn endurreisn
efnahagslífsins og stofnkostnaður
hins opinbera í framkvæmdum ykist.
Afleidd áhrif yrðu þau að allar vísi-
tölur hækkuðu og það kæmi aftur nið-
ur á lántakendum. Þá myndi byggðin
hækka með hærri húsum, flöt þök
hverfa úr nýbyggingum og þriggja
hæða fjölbýlishús verða óhagstæð-
asta byggingarformið. Er það líklega
m.a. vegna kvaða um að í þeim séu
lyftur. Undanþágur hafa verið veittar
frá reglugerðinni en þær falla sem
fyrr segir úr gildi um áramótin.
Íbúðir verða minnst 10% dýrari
Morgunblaðið/Golli
Framkvæmdir í Kópavogi Nýja reglugerðin kveður m.a. á um bætt aðgengi fatlaðra og betri einangrun húsa.
Samtök iðnaðarins kynna rannsóknir á áhrifum nýrrar byggingarreglugerðar á byggingarkostnað
Rannsókn ráðgjafarstofunnar Hannars bendir til að kostnaður við byggingu fjölbýlis aukist um 10%
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Þessi rannsókn leiðir í ljós að það verður að framlengja
bráðabirgðaákvæði í byggingarreglugerð sem leyfir að
hanna tiltekinn hluta mannvirkis á grundvelli eldri
reglugerðar. Það vantar meiri aðlög-
un og kynningu á reglugerðinni. Þá
teljum við hjá Samtökum iðnaðarins
að þjóðfélagið hafi ekki efni á að
framleiða íbúðarhúsnæði með þeim
kostnaðarauka sem hlýst af reglu-
gerðinni,“ segir Friðrik Á. Ólafsson,
forstöðumaður hjá SI, um niðurstöð-
urnar sem fjallað er um í greininni
hér fyrir ofan.
Spurður hvort fjölbýlið í Litla-
krika teljist dæmigert segir Friðrik
það hafa verið byggt að hluta á
grundvelli nýju reglugerðarinnar á árunum 2007 til
2008. Samanburðurinn sé því varfærnislegur og að því
megi álykta að kostnaðurinn sé meiri ef hús þar sem
ekkert tillit er tekið til algildrar hönnunar eru höfð til
samanburðar.
Neytendur velji hvort þeir vilja algilda hönnun
Hann segir reglugerðina of róttækt skref.
„Okkur finnst það of stórt skref að allt húsnæði
skuli vera hannað samkvæmt algildri hönnun. Að okkar
mati á að flokka húsnæði þannig að fólk viti að hverju
það gengur, að fólk eigi val um hvort það kaupi húsnæði
með algildri hönnun. Bjóða mætti upp á flokk 2 sem
væri að hluta hannaður á grunni algildrar hönnunar.
Síðan mætti bjóða flokk 3 sem væri algjörlega hannaður
á grunni slíkrar hönnunar. Flokkur 1 væri með gamla
laginu. Við teljum ekki rétt að fólk sem er að kaupa sínu
fyrstu eign þurfi að kaupa hús með algildri hönnun.“
Spurður hvers vegna Samtök iðnaðarins telji að
klassísk hönnun húsa muni líða undir lok ef reglugerðin
tekur að fullu gildi um áramótin segir Friðrik að vegna
krafna um bætta einangrun muni t.d. hraunuð hús
hverfa. „Hinn hefðbundni íslenski veggur sem er ein-
angraður að innan og múraður að utan mun heyra sög-
unni til,“ segir Friðrik og bendir á að SI hafi reiknað út
að reglugerðin leiði til þess að neysluvísitalan hækki um
3,5%. Það kyndi undir verðbólgu.
Telja þjóðfélagið ekki hafa
efni á nýju reglugerðinni
SI krefjast þess að bráðabirgðaákvæði verði framlengd
Morgunblaðið/Ómar
Frá Hallgrímskirkjuturni Nýju reglugerðinni er m.a.
ætlað að tryggja bætt aðgengi fatlaðra að húsnæði.
Friðrik Á.
Ólafsson
Vikið er að þeim þjóðhagslegu áhrifum af reglugerð-
inni sem Friðrik tiltók í fyrirlestri sínum í greininni
hér fyrir ofan. Þar eru ónefnd fleiri atriði sem Friðrik
nefndi eins og að ýmsir klassískir þættir í íslenskri
byggingarlist hyrfu, t.d. hefðbundin múruð hús.
Slíkt hlyti að ganga gegn verndun byggingararfs.
Þá kallaði nýja reglugerðin á verulega aukna
notkun hráefnis í byggingar, ásamt því sem sparn-
aðurinn af lægri húshitunarkostnaði vegna aukinnar
einangrunar standi ekki undir stofnkostnaði, jafnvel
að teknu tilliti til líftíma mannvirkisins.
Þá taldi Friðrik þau rök ekki standast skoðun að
með hinni algildu hönnun geti fólk búið lengur í eig-
in húsnæði. Hann útskýrir það hér til hliðar.
Hefðbundin múruð
hús munu hverfa
ÖNNUR ÁHRIF REGLUGERÐARINNAR
Rabarbarakaramellur,
tvær tegundir af
rabarbarasultum,
greni- og fiflasíróp.
RABARBÍA
Löngumýri, 801 Selfoss
www.rabarbia.is
rabarbia@rabarbia.is
sími: 486 5581 / 893 5518
Sértilboð fyrir
fyrirtæki.
Kjörin í gjafakörfur og í jólapakka