Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mótmælendur kveiktu í nokkrum
skrifstofum stjórnmálaflokks
Bræðralags múslíma í Egyptalandi í
gær eftir að Mohamed Morsi, forseti
landsins, gaf út tilskipun sem veitir
honum aukin völd. Andstæðingar
forsetans og bandamanna hans í
Bræðralagi múslíma segja að með
tilskipuninni sé Morsi orðinn ein-
ræðisherra. Hann sé nú með meiri
völd en Hosni Mubarak, sem var
steypt af stóli í uppreisninni á síð-
asta ári.
Morsi ávarpaði þúsundir stuðn-
ingsmanna sinna fyrir utan forseta-
höllina í Kaíró í gær og varði tilskip-
unina á sama tíma og andstæðingar
hans efndu til fjöldamótmæla á
Tahrir-torgi í Kaíró. Hann sagði að
markmið sitt væri að stuðla að „frelsi
og lýðræði“ í Egyptalandi og tryggja
„pólitískan, samfélagslegan og efna-
hagslegan stöðugleika“ í landinu.
Stuðningsmenn hans segja að til-
skipunin sé nauðsynleg til að flýta
fyrir því að ný stjórnarskrá verði
sett og nýtt þing kosið. Tilskipunin á
að falla úr gildi þegar ný stjórnar-
skrá hefur verið sett, en stefnt er að
því að það verði um miðjan febrúar.
Dómstólar geta ekki
ógilt tilskipanir forsetans
Tilskipunin kveður m.a. á um að
dómstólarnir geti ekki ógilt tilskip-
anir og ákvarðanir forsetans eða
leyst upp stjórnlagaþing sem á að
semja nýja stjórnarskrá. Fulltrúar
frjálslyndra flokka, kristinna
Egypta og samtaka blaðamanna
höfðu sagt sig úr stjórnlagaþinginu
og sakað það um að vera ólýðræðis-
legt. Brotthvarf þeirra úr þinginu
jók líkurnar á því að dómstóll myndi
leysa þingið upp, þannig að skipa
þyrfti nýtt stjórnlagaþing og fresta
þingkosningum. Áður höfðu dóm-
stólarnir leyst upp löggjafarþing þar
sem íslamskir flokkar voru með
meirihluta.
Í tilskipuninni lengdi forsetinn
frest stjórnlagaþingsins til að semja
stjórnarskrá um tvo mánuði. Gert
hafði verið ráð fyrir því að niðurstöð-
ur þess lægju fyrir í desember en
störf þingsins hafa tafist vegna
deilna um samsetningu þess. Þegar
skjalið liggur fyrir á að bera það
undir þjóðaratkvæði og ef það verð-
ur samþykkt á að halda þingkosn-
ingar tveimur mánuðum síðar.
Sagður svipta
dómstólana sjálfstæði
Andstæðingar forsetans segja að
hann hafi tekið sér enn meiri völd en
Mubarak einræðisherra hafði. Hann
ætli sér að „einoka allar þrjár grein-
ar ríkisvaldsins“ og „taka sjálfstæði
dómstólanna af lífi“, eins og leiðtog-
ar andstæðinga Bræðralags músl-
íma orða það. „Hann hefur gert sjálf-
an sig að nýjum faraó Egyptalands.
Þetta er mikið áfall fyrir byltinguna
og gæti haft mjög alvarlegar afleið-
ingar,“ sagði Mohamed ElBaradei,
einn leiðtoga andstæðinga forsetans
og fyrrverandi yfirmaður Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar.
Andstæðingar Bræðralags músl-
íma tortryggja loforð forsetans um
að koma á lýðræði, einkum vegna
þess að samtök hans hafa stefnt að
því að koma smám saman á íslömsk-
um lögum í landinu.
Morsi fyrirskipaði einnig ný
réttarhöld yfir mönnum sem höfðu
verið sýknaðir af ákærum um að
bera ábyrgð á drápum öryggissveita
á mótmælendum í byltingunni.
Götumótmæli
gegn „nýjum
faraó“ Egypta
Morsi ver þá ákvörðun sína að auka
völd sín Með meiri völd en Mubarak
AFP
Barsmíðar Egyptar berja pilt í Alexandríu þegar til átaka kom í borginni milli stuðningsmanna og andstæðinga
Bræðralags múslíma eftir að Mohamed Morsi forseti jók völd sín. Lögreglan beitti táragasi gegn mótmælendum.
Átök og íkveikjur
» Til átaka kom milli lögreglu-
manna og mótmælenda í
nokkrum borgum þegar and-
stæðingar Bræðralags músl-
íma mótmæltu auknum völd-
um forsetans.
» Mótmælendur kveiktu í
skrifstofum flokks Bræðralags
múslíma í Ismailiya, Port Said
og Alexandríu og réðust inn í
höfuðstöðvar flokksins í Súez.
Miklar truflanir
urðu á bílaum-
ferð í miðborg
Lundúna í gær
eftir að allsnak-
inn maður klifr-
aði upp á styttu
af hertoganum
af Cumberland,
við Whitehall.
Maðurinn stóð á styttunni í þrjár
stundir og lék ýmsar jafnvægis-
listir. Lögregla girti svæðið af frá
hádegi til klukkan 15 en tókst þá
loks að telja manninn á að koma
niður. Hann var síðan fluttur á
sjúkrahús.
Embættisbústaður breska for-
sætisráðherrans og margar
stjórnarskrifstofur eru á svæðinu.
BRETLAND
Nakinn maður olli
umferðaröngþveiti
Samkvæmt rann-
sókn, sem birt
var í Frakklandi
í gær, hafa fjórar
af hverjum fimm
konum þar í
landi horft á
klámmynd. Þar
af hefur önnur
hver kona horft á
slíkar myndir án þess að makinn
væri viðstaddur.
Samkvæmt könnuninni, sem
IFOP stofnunin gerði í september,
sögðust 82% kvenna og 99% karla
hafa horft á klámmynd. Í samskon-
ar könnun árið 2006 sögðust 73%
kvenna hafa horft á slíkar myndir
og 23% árið 1992.
Netið er sagt skýra þessa þróun.
FRAKKLAND
Klám höfðar til
beggja kynjanna
Þúsundir manna flúðu í gær frá bæjum í Austur-Kongó vegna sóknar upp-
reisnarhreyfingar í austurhluta landsins. Talið er að um hálf milljón
manna hafi flúið heimkynni sín á svæðinu. Tvær mannskæðar borgara-
styrjaldir áttu upptök sín í þessum landshluta á árunum 1996 til 2002.
AUSTUR-KONGÓ
Þúsundir manna flýja ófriðinn