Morgunblaðið - 24.11.2012, Qupperneq 36
36 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Kosningar til þings Katalóníu, sem
fram fara á morgun, ráða að öllum
líkindum úrslitum um hvort boðað
verður til þjóðaratkvæðis á næstu
árum um hvort sjálfstjórnarhéraðið
eigi að lýsa yfir stofnun sjálfstæðs
ríkis.
Artur Mas, forseti Katalóníu, hef-
ur lofað slíku þjóðaratkvæði ef flokk-
ur hans fer með sigur af hólmi í
kosningunum ásamt fleiri flokkum
sem eru hlynntir aðskilnaði frá
Spáni.
Mas boðaði til þingkosninganna
eftir að Mariano Rajoy, forsætisráð-
herra Spánar, hafnaði kröfu hans um
að sjálfstjórnarhéraðið fengi aukin
völd í fjármálum. Kosningunum var
flýtt um tæp tvö ár.
Mas fer fyrir flokki frjálslyndra
þjóðernissinna í Katalóníu, Conver-
gència i Unió (CiU). Skoðanakann-
anir benda til þess að flokkurinn fái
mest fylgi en ekki meirihluta á
þinginu. Samkvæmt síðustu könn-
unum fær flokkurinn 57-62 þingsæti
af 135. Hann er nú með 62 sæti en
þarf 68 til að fá meirihluta. Kann-
anirnar benda til þess að fylgi CiU
hafi minnkað frá því að Mas boðaði
til kosninganna.
Sósíalistaflokkurinn og Þjóðar-
flokkurinn, sem er til hægri, eru and-
vígir aðskilnaði frá Spáni og þeim er
spáð 21-22 þingsætum hvorum.
Vinstriflokknum Esquerra er spáð
16 sætum og þótt hann sé oft á önd-
verðum meiði við CiU er hann
hlynntur þjóðaratkvæði um sjálf-
stæði. Líklegt er því að stuðnings-
menn þjóðaratkvæðisins verði í
meirihluta á þinginu eftir kosning-
arnar.
Hafnar þjóðaratkvæði
Ríkisstjórn Spánar er andvíg
þjóðaratkvæðinu og segir að það
samræmist ekki stjórnarskránni að
efna til slíkrar atkvæðagreiðslu í
Katalóníu einni. Ef boðað verður til
þjóðaratkvæðisins ætlar spænska
stjórnin að skjóta málinu til stjórn-
lagaréttar Spánar sem hindraði svip-
að þjóðaratkvæði í Baskahéruðunum
fyrir fjórum árum.
Í nýlegri könnun sögðust 57%
þeirra sem tóku afstöðu styðja að-
skilnað frá Spáni. Um tveir þriðju,
eða 66,3%, sögðust þó vera hlynnt
því að spænska yrði opinbert tungu-
mál í Katalóníu ásamt katalónsku.
Flestir þeirra sem tóku afstöðu vildu
einnig að Lionel Messi og félagar
hans í Barcelona lékju áfram í
spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Um 38% aðspurðra vildu það en að-
eins 22,7% vildu nýja katalónska
deild.
Fréttaskýrendur eru ekki á einu
máli um hvaða afleiðingar aðskiln-
aður Katalóníu frá Spáni myndi hafa.
Sumir þeirra telja að afleiðingarnar
yrðu mjög alvarlegar fyrir efnahag
Spánar og jafnvelt allt evrusvæðið.
„Getur evran haldið velli án Kata-
lóníu? Ég tel að svarið sé nei eins og
staðan er núna,“ hefur fréttaveitan
AFP eftir Edward Hugh, hagfræð-
ingi í Barcelona. Hann bendir á að
Katalónía myndi þurfa að óska þegar
í stað eftir aðstoð frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum vegna þess að héraðið
er skuldum vafið og þyrfti að öllum
líkindum að taka á sig hluta af skuld-
um spænska ríkisins ef til aðskiln-
aðar kæmi.
Hugh segir að hagkerfi Katalóníu
sé mjög kraftmikið og líklegt til að
rétta úr kútnum. Verði héraðið sjálf-
stætt ríki geti það styrkt
samkeppnisstöðu sína í atvinnu-
greinum á borð við ferðaþjónustu á
kostnað Portúgals, Grikklands og
fleiri landa.
Fimmtán katalónskir hagfræð-
ingar birtu nýlega grein í dagblaðinu
La Vanguardia þar sem þeir segja að
Katalónía geti haldið evrunni verði
lýst yfir sjálfstæði. Ef spænska
stjórnin ákveði að hindra inngöngu
Katalóníu í Evrópusambandið verði
hægt að gera fríverslunarsamninga
við sambandið eins og Sviss hefur
gert. Hagfræðingarnir segja enn-
fremur að Katalóníumenn myndu
halda spænskum vegabréfum sínum
vegna þess að samkvæmt stjórnar-
skrá Spánar sé ekki hægt að svipta
fólk vegabréfum sínum.
Skoðanakannanir í Katalóníu
benda til þess að stuðningurinn við
sjálfstæði héraðsins hafi aukist frá
því að skuldakreppan skall á. Kata-
lóníumenn hafa kvartað yfir því að
þeir greiði miklu meira í skatta en
þeir fái frá spænska ríkinu, á sama
tíma og sjálfstjórnarhéraðið neyðist
til að segja upp starfsfólki og minnka
þjónustuna.
AFP
Sparnaði mótmælt Rifið kosningaspjald með mynd af Artur Mas, forseta Katalóníu, á útifundi sem nokkur samtök
stóðu fyrir í Barcelona til að mótmæla sparnaðaraðgerðum yfirvalda í sjálfstjórnarhéraðinu.
Sjálfstæðissinnum
spáð meirihluta
0
SpánnKatalónía
Íbúafjöldi
Forseti Katalóníu vill þjóðaratkvæði um hvort lýsa eigi yfir sjálfstæði
7,6 m
47,2 m
25,0
%
22,6
%
-1,1%
505.000
ferkm
31.900
ferkm
Atvinnuleysi**
Breyting á þjóðarframleiðslu*
Stærð
Katalónía
Heimild: INE
*Á öðrum fjórðungi ársins
**Á þriðja fjórðungi ársins
40
km
Barcelona
Tarragona
Lleida
Girona
FRAKKLAND
MADRÍD
SPÁNN
K ATA LÓ N Í A
-1,3%
Yrði meðal auðugustu
ESB-ríkjanna
» Um fimmtungur landsfram-
leiðslu Spánar kemur frá Kata-
lóníu. „Ef Katalónía væri sjálf-
stætt ríki myndi það vera á
meðal fimmtíu helstu útflutn-
ingsríkja heimsins,“ segir Art-
ur Mas, forseti Katalóníu.
» Mas segir að Katalónía yrði
sjöunda auðugasta ríki ESB
miðað við höfðatölu ef héraðið
lýsir yfir sjálfstæði.
Dómstóll í borg-
inni Malmö í Sví-
þjóð dæmdi Peter
Mangs í gær í
ævilangt fangelsi
fyrir tvö morð og
fjórar tilraunir til
manndráps.
Morðin og
árásirnar vöktu
mikinn óhug íbúa
í borginni á með-
an árásarmannsins var leitað en allar
beindust árásirnar að innflytjendum.
Mangs, sem er fertugur að aldri,
var ákærður fyrir þrjú morð en
dæmdur fyrir tvö. Þá var hann
ákærður fyrir fimm morðtilraunir.
Mangs var einnig gert að greiða
alls 1,175 milljónir sænskra króna,
jafnvirði 22,3 milljóna íslenskra
króna, í bætur til fórnarlambanna og
fjölskyldna þeirra.
Mangs var handtekinn í nóvember
árið 2010. Hann var fundinn sekur
nú í júlí og metinn sakhæfur en refs-
ing hans var ákveðin í gær.
Í niðurstöðu dómsins kemur fram
að glæpirnir sem Mangs framdi hafi
verið sérstaklega óhugnanlegir og
sýni að hann sé gjörsneyddur samúð
með öðrum.
Ævilangt fangelsi
Dæmdur fyrir tvö morð í Malmö
Peter Mangs í
réttarsalnum.
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
hátíðar-
útgáfa
af sígildri bók
Jólin koma kom fyrst út árið 1932
og hefur æ síðan verið ómissandi við
þjóðtrú og jólasiði fyrir hverri kynslóðinni á fætur
annarri. Fyrir þessa útgáfu voru teikningar Tryggva
Magnússonar myndaðar að nýju og hafa aldrei
birst lesendum skýrar en nú.
undirbúning jólanna.
Ljóð Jóhannesar úr Kötlum hafa kynnt íslenska
80 ÁRA
GERSEMI
– NÚ
INNBUNDIN