Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 45
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Vinningshafar í Sögulegri safnahelgi
á Norðurlandi vestra 2012
Á haustdögum var haldin Söguleg safnahelgi á Norðurlandi vestra,
nánar tiltekið 13.-14. október. Þá opnuðu nærri 30 söfn og setur dyr
sínar fyrir gestum og gangandi, frá Borðeyri í vestri til Hofsóss í austri.
Skipulagsnefnd helgarinnar vill þakka öllum þeim sem lögðu sitt að
mörkum til að gera helgina að þeim skemmtilega viðburði sem hún var.
Þeir sem nýttu sér tækifærið til að heimsækja söfnin og setrin skemmtu
sér vel og hægt er að hlakka til að ári. Stefnan er að þróa hugmyndina
áfram, þannig að helgin verði hluti af huggulegu hausti á Norðurlandi
vestra í framtíðinni. Við erum bara rétt lögð af stað.
Skemmtilegur hluti helgarinnar var stimplaleikurinn. Með því að safna
stimplum í heimsóknum á einstök söfn og setur gátu gestir tekið þátt í
leiknum og komist í lukkupottinn. Eftir helgina voru síðan heppnir þátt-
takendur dregnir út.
Vinningarnir eru veglegir úr héraði og óskum við vinningshöfum til
hamingju og megi þeir vel njóta.
1. Gisting og jólahlaðborð fyrir tvo á Hótel Varmahlíð.
Ragheiður Þorsteinsdóttir, Þverbraut 1, Blöndósi.
2. Riverrafting fyrir fjóra í Jökulsá vestari sumarið 2013 hjá Bakkaflöt
ferðaþjónustu.
Sigrún Einarsdóttir, Bjargshóli, Vestur - Húnavatnssýslu.
3. Málsverður fyrir tvo á Eyvindarstofu.
Sigríður Ósk Jónsdóttir, Gillastöðum, Laxárdal.
4. Frír aðgangur sumarið 2013 fyrir eina fjölskyldu á söfn
og setur sem taka þátt í Sögulegri safnahelgi.
Ingibjörg Sigurðardóttir, Auðólfsstöðum, Austur-Húnavatnssýslu.
Þátttakendur í Sögulegri safnahelgi 13.-14. október 2012
Riis hús, Borðeyri.
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna, Reykjasafn.
Grettistak, Laugarbakka / Spes sveitamarkaður.
Langafit handverkshús, Laugarbakka.
Selasetur Íslands, Hvammstanga.
Verslunarminjasafnið Bardúsa, Hvammstanga.
Þingeyrakirkja.
Eyvindarstofa, Blönduósi.
Þekkingarsetrið á Blönduósi.
Hafíssetrið Blönduósi.
Laxasetur Íslands, Blönduósi.
Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi.
Textílsetur Íslands, Blönduósi / Vatnsdæla á refli.
Rannsóknasetur HÍ á Norðurl. vestra, Skagaströnd.
Nes listamiðstöð Skagaströnd.
Árnes, Skagaströnd.
Spákonuhof, Skagaströnd.
Gestastofa Sútarans, Sauðárkróki.
Byggðasafn Skagfirðinga, Minjahúsið á Sauðárkróki.
Á Sturlungaslóð í Skagafirði.
Sögusetur íslenska hestsins, Hólum.
Samgönguminjasafn Skagafjarðar, Stóragerði.
Vesturfarasetrið, Hofsósi.
Söguleg safnahelgi á Norðurlandi vestra 13.-14. október 2012,
Styrktaraðilar:
Sjóðfélagafundur
27. nóvember 2012
Kynningar- og fræðslufundur verður haldinn fyrir sjóðfélaga
Gildis-lífeyrissjóðs þriðjudaginn 27. nóvember nk. kl. 17.00
á Grand Hótel, Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1.Starfsemi og staða Gildis
- Harpa Ólafsdóttir formaður stjórnar Gildis
og Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri.
2.Tryggingafræðileg athugun - hvað er verið að reikna?
- Vigfús Ásgeirsson tryggingafræðingur
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
lífeyrissjóður
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
Áhyggjufullur al-
menningur hlustar á
„alvitra“ fyrritíma
stjórnmálamenn
koma fram með kenn-
ingar eins og þeir
sem allt vita. Þeir eru
ekki farnir, ekki
skammast þeir sín og
enn eru þeir að
makka fyrir sig og
sína. Fátt breytist
hér á landi nema klukkan.
Sighvatur Björgvinsson, Jón
Sigurðsson, Halldór Ásgrímsson,
Þorsteinn Pálsson og fleiri geta
ekki á strák sínum setið og vilja
stýra og stjórna enn.
Í grein í Mogganum í dag, 22.
nóvember, kvartar Guðni Ágústs-
son yfir því að við Íslendingar lát-
um ljúga að okkur! Ja hérna,
hugsaði ég, þar fer nú sérfræðing-
urinn í að láta ljúga að sér en
mæli hann manna heilastur.
Mig setti hljóða, ákvað að beina
því til Guðna, í þessum grein-
arstúf, að njóta eftirlauna sinna.
Hætta að blanda sér í uppstilling-
arnefndir (sem reyndar eru ávísun
á spillingu), hætta að hringja í
fólk og blanda sér í prófkjör nýrra
aðila í flokknum, hætta að hræða
duglega starfsmenn flokksins (ég
sit í stjórn Framsóknarfélags
Reykjavíkur) og brigsla fólki um
óheiðarleg vinnubrögð. Við erum
nokkur sem styðjum stefnu
flokksins, skynsemisstefnuna, vilj-
um veg og vanda flokksins sem
mestan og viljum vinna fyrir nýjar
kynslóðir að því að endurreisa sið-
ferði, hugsjónir, vinnusemi, sam-
vinnu. Ég vil breyta Framsóknar-
flokknum með nýjum aðferðum en
fáir trúa því að það sé hægt.
Guðni Ágústsson sat 22 ár á
þingi og var í bankaráði Bún-
aðarbankans fyrir einkavæðingu
og lét jafnvel menn úr eigin flokki
ljúga að sér og gerir enn. Þessir
menn ljúga að fjölmiðlum, skatt-
inum, sérstökum saksóknara,
Kauphöllinni, fjárfestum og aldrei
hefur Guðni kvartað yfir lyga-
mörðum fyrr en nú að þeir ná
ekki í skottið á honum sjálfum,
semsagt útlenskir lygarar í ESB.
Guðni er mjög virkur í Fram-
sóknarflokknum enn
og vill ákveða hverjir
komast að hjá flokkn-
um í lykilstöður og
hverjir ekki. Fyrir
þessu hef ég margar
sannanir og fundið í
viðleitni minni við að
bjóða mig fram til Al-
þingis fyrir annars
frábæran flokk með
dásamlegu fólki víðast
hvar. Guðni hefur
gengið hart fram í að
styðja mágkonu sína,
sem honum er auðvitað heimilt, en
með aðferðum sem eru vafasamar
að mínu mati og afskaplega ólýð-
ræðislegar og tilheyra spilltri póli-
tík. En látum þetta vera.
Ég mótmæli því að hinn dáði
Guðni gerir lítið úr þekkingu
minni og að ég þorði á sínum tíma
að opinnbera lygina, líka fram-
sóknarlygina. Á krísutímum fyrir
hrun þegar þessir óprúttnu sam-
herjar hans í pólitík tóku til sín
eigur sem þeir áttu ekkert með að
taka. Þeir eiga þær allar enn og
hvernig þeim tekst það er efni í
langa grein.
Á fyrirlestri sem ég „fékk“ að
halda í Framsóknarhúsinu stóð
Guðni upp og gerði lítið úr ræðu
minni þvert á það sem aðrir á
staðnum sögðu. Hann tók af sér
grímuna sem ég hafði reyndar
dáðst að í mörg ár.
Af hverju, Guðni Ágústsson,
varaðir þú ekki þjóð þína og
flokksmenn við hættulegum sam-
herjum þínum í pólitík? Eru þær
lygar ómerkilegri en aðrar lygar?
Eigum við að gleyma þeim ógeðs-
legu lygum öllum og segja skrítl-
ur? Getur verið að enn séu stórir
hagsmunir í húfi, svo stórir að þú
þarft að velja þingmenn flokksins
sjálfur? Það mun ég aldrei líða.
Vissulega talaði hann, þessi
sami vinsæli Guðni Ágústsson, fal-
lega og skemmtilega í 22 ár um
gott íslenskt lambakjöt og undrar
mig af hverju hann fékk ekki frið-
arverðlaun Nóbels fyrir að verja
íslenskan landbúnað. Landbúnað
sem við elskum öll en þurfum að
niðurgreiða. Hvergi í heiminum
eru meiri möguleikar á því að
skapa verðmeiri afurðir í landbún-
aði. Viðskiptalega er galið að nið-
urgreiða eðalvörur heldur á að
gera þær arðbærar og auka fram-
leiðsluna þannig að hagnaður ná-
ist. Til þess þarf að leggja fjár-
magn í fjárfestingar en ekki
gamaldags niðurgreiðslur. Það er
vissulega meiri vinna að hugsa
frumlega og út fyrir rammann. Nú
heyrist af hanahaugnum: „Hún
veit ekkert, þessi stelpukjáni, um
landbúnaðarmál.“ Ég er reyndar
sammála því en ég er fljót að
læra.
Það væri nær að heyra í
útrásarvíkingunum og þeirra lík-
um um hvernig við getum komið á
lögum og reglum, byggt upp siðað
samfélag hér. Þeir þekkja lögin,
götin í þeim og aðferðafræði við-
skiptalífsins, stjórnvalda, dómstóla
og þurfa ekki að fela vankunnáttu
sína á bak við innihaldslausar
sjálfumglaðar sögur fornra pólitík-
usa sem höfðu það fyrir atvinnu
að rotta sig saman í hallærisleg lið
sem í dag heitir pólitík og ég vil
hjálpa til við að útrýma. Sennilega
er ég barnaleg.
Íslendingar, kjósum fólk sem
vill skilvirkt Alþingi, þorir að setja
varnir og brunaveggi án aðstoðar
þeirra sem hér gengu um sali
þingsins og sögðu skrítlur á kostn-
að annarra. Stöndum vörð um lýð-
ræðið og líka við framsóknarfólk.
Látum ekki fortíðardrauga moka
yfir meðvirkni sína með lyginni.
Það hefur verið of dýru verði
keypt.
Ég lofa að segja satt þótt það
drepi mig. Einnig að viðurkenna
þegar ég hef rangt fyrir mér en
það er jú erfiðara en allt annað.
P.s. Guðni, ég er sammála öllu
því sem þú skrifar í grein þinni.
Pólitísk spilling er vond og póli-
tísk hrossakaup mjög hættuleg. Á
það við um ESB sem og Fram-
sóknarflokkinn.
Þið gerðuð flest vitlaust, Guðni
Ágústsson, en vitið þó enn best
Eftir Jónínu
Benediktsdóttur » Látum ekki fortíð-
ardrauga moka yfir
meðvirkni sína gegn
lyginni. Það hefur verið
of dýru verði keypt.
Jónína Benediktsdóttir
Höfundur er í framboði í sæti á lista
Framsóknarflokksins.
Aukablað alla
þriðjudaga