Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Júlíus Sólnes skrif-
aði þarfa grein um
sóun hátt á þriðja
milljarð kr. af skatt-
peningum í lúx-
usfangelsi fyrir 54
fanga á Hólmsheiði.
Júlíus bendir á að í
USA kosti fangelsi
fyrir 50-100 fanga 1/
10 af þeirri upphæð.
Margar vikur eru
liðnar síðan grein Júlíusar birtist í
Mbl. og maður veltir fyrir sér,
hvert verður framhaldið? Þing-
menn virðast ekki geta hugsað sér
að taka mál upp aftur, hversu vit-
laus sem ákvörðunin var.
Helstu rök með byggingu nýs
fangelsis á Hólmsheiði voru, að of
langt væri að fara á Eyrarbakka
til að yfirheyra gæsluvarðhalds-
fanga. 40 mínútna styttri akstur
hafði meira vægi en að á Litla-
Hrauni er fangelsi í rekstri með
reynt starfsfólk og lóð, sem hægt
er að byggja á í sátt við íbúa stað-
arins. Líklega kostar helmingi
minna að stækka fangelsið á Litla-
Hrauni og byggja
annað minna á Kefla-
víkurflugvelli fyrir
gæsluvarðhaldsfanga
og þá sem eru hand-
teknir við komuna til
landsins.
Merkilegt er hvað
stjórnvöld standa fast
við ákvörðun um ný-
byggingu á Hólms-
heiði eftir að bæði
Steingrímur og Guð-
bjartur eru búnir að
fatta að hagstæðara
sé að reka sjúkrahús á einum stað
en tveimur. Sú staða mun koma
upp, að það borgi sig að flytja
fangelsið frá Litla-Hrauni á
Hólmsheiði, því sameiginlegur
rekstur á einum stað borgi sig svo
fljótt.
Fangelsi fyrir 54 fanga á 2,5
milljarða (= 2.500.000.000 kr.)
kostar um 50 milljónir kr. á hvern
fanga. Við fjármagnskostnaðinn
bætist rekstrarkostnaður með „All
included“ + dagpeningar í bónus.
Er hægt að sóa svona miklum
skattpeningum í þetta betr-
unarhús? Ég held ekki. Jafnvel þó
allt yrði í sama stíl og mötuneyti
Orkuveitunnar? Kostnaðaráætl-
unin hlýtur að vera allt of há.
Sama er ekki hægt að segja um 40
milljarða kostnaðaráætlun fyrir
sjúkrahús við Hringbraut, sem
ýmsir telja að muni kosta 100
miljarða. Þar er sóunin enn meiri,
því hægt er að byggja betra
sjúkrahús á öðrum stað fyrir
helmingi minna fé. Niðurstaða só-
unar sem staðið skal undir með
ofursköttum er fólksflótti og tap-
aðir skattpeningar.
Ég hefi velt fyrir mér, hvort eða
hvernig hægt sé að stoppa svona
óráðsíu. Blaðagreinar koma í
mesta lagi af stað umræðu, sem
svo lognast út af og næsta kyn-
slóð situr uppi með fangelsi á
Hólmsheiði og spítala við Hring-
braut. Í Sviss hefði aldrei farið
fram verðlaunasamkeppni um
nýtt fangelsi án þess að fyrst færi
fram þjóðaratkvæðagreiðsla um
staðarvalið eftir góða kynningu
með samanburði á kostum og
kostnaði á hverjum stað. Þar væri
heldur ekki teiknaður spítali eða
nokkur önnur bygging án þess að
fyrst væri samþykkt deiliskipulag.
Ég hefi líka spáð í hvaðan þeir
komi, sem sitja á þingi. Flestir
koma úr háskólanum. Margir hafa
verið á framfæri hins opinbera
allt frá útskrift. Fæstir hafa borið
ábyrgð á atvinnurekstri og þekkja
ekki af eigin raun ráðdeild, að-
hald og forgangsröðun, sem
reksturinn ræður við. Árangurinn
er svo eftir því og fráleitt að
nokkrum þeirra detti í hug að
bera ábyrgð á eigin gjörðum. Ég
man ekki eftir að neinn annar en
Guðmundur Árni Stefánsson hafi
axlað ábyrgð. Sighvatur Björg-
vinsson hneykslaðist á yngri þing-
mönnum og taldi skorta að þeir
eldri skóluðu þá til. Voru þessir
gömlu mikið betri? Hvar voru
þeir, þegar atlagan var gerð að
Ólafi Jóhannessyni?
Enginn atvinnurekandi myndi
líða að helmingur liðsins eða færri
væru á svæðinu eins og oft er,
þegar sýnt er frá þinginu. For-
sætis- og fjármálaráðherra gefa
þar slæmt fordæmi og sýna
þinginu um leið óvirðingu með því
að ganga úr sal, þegar stjórn-
arandstaðan tekur til máls. Við
atkvæðagreiðslur er sagt að svo
og svo margir hafi setið hjá. Mað-
ur veltir fyrir sér hvort þeir hafi
verið í einkaerindum úti í bæ í
stað þess að taka ákvörðun um
það, sem þeir voru kosnir til.
Verðugt verkefni væri að fækka
þeim í 32. Þá sæti væntanlega
skásta liðið áfram á þingi. Í leið-
inni yrði að fækka sendiráðum,
sem uppgjafaþingmenn sækja
gjarnan í. Við það lækkuðu strax
skattar.
Fyrir nokkrum árum hækkuðu
þeir eigin lífeyri. Þeir samþykktu
það allir, en hneyksluðust eftir á
og lofuðu margir leiðréttingu fyrir
næstu kosningar. Lítið hefur borið
á því. Það rifjast upp nú þegar
þeir hafa samþykkt ýmis fríðindi
sér til handa, eins og t.d. heyrnar-
tækjastyrk. Svo hlusta þeir ekki á
þjóðina, sem vill slíta aðlög-
unarviðræðum við ESB. Það hefði
verið auðvelt að fá það staðfest
með spurningu 7 í skoðanakönn-
uninni. „Viltu að aðlögunarferlinu
við ESB verði slitið?“
Kúlulánaþegar á þingi eru ekki
beint til að auka virðingu þingsins.
Sumir hafa þegið niðurfellingu
skulda. Á sama tíma er gengið
hart að Jóni og Gunnu. Mesta
virðingarleysið er þó, að það skuli
líðast að háttvirtir þingmenn
skreppi frá í vinnutímanum og
komi fullir til baka. Háseti á
frystitogara, sem mætti drukkinn
um borð væri umsvifalaust sendur
í land með pokann sinn. Svo eru
menn að hneykslast á að virðing
og traust þjóðarinnar til Alþingis
og þeirra sem þar sitja – stundum
– sé í algjöru lámarki.
Eftir Sigurð
Oddsson
Sigurður Oddsson
» Fangelsi fyrir 54
fanga á 2,5 millj-
arða (= 2.500.000.000
kr.) kostar um 50
milljónir kr. á hvern
fanga. Við fjármagns-
kostnaðinn bætist
rekstrarkostnaður…
Höfundur er verkfræðingur
og atvinnurekandi.
Ofurskattar + sóun skattpeninga = landflótti
Til sölu eða leigu
Einstök
staðsetning
Ein glæsilegasta bygging landsins er til sölu eða leigu.
Eignin er til afhendingar strax.
Húsið er alls um 2.800 fm og skiptist þannig:
Götuhæð og kjallari, um 800 fm, hýsir í dag
vinsælan veitinga- og skemmtistað.
Glæsilega innréttaðar skrifstofur með mikilli
lofthæð á fjórum hæðum ásam óinnréttuðu
risloft og turnherbergi sem býður upp
á mikla möguleika.
Tveir inngangar og lyfta.
Eignin býður upp á mikla möguleika
s.s. fyrir höfuðstöðvar fyrirtækja, stakar
skrifstofuhæðir eða sem hótelbygging
fyrir allt að 50 herbergi.
Hinn vinsæli veitinga- og skemmtistaður Esja
er á jarðhæð: Tækifæri fyrir kraftmikla aðila til
að hefja þar rekstur.
Einstakt tækifæri.
Nánari upplýsingar veitir
Óskar R. Harðarson, hdl og löggiltur fasteignasali
í síma 661 2100 eða 569-7005.