Morgunblaðið - 24.11.2012, Qupperneq 71
MENNING 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
Háskólakórinn heldur upp á 40 ára
starfsafmæli sitt með tvennum tón-
leikum í Langholtskirkju. Fyrri tón-
leikarnir verða annað kvöld, sunnu-
dag, kl. 20 og þeir seinni þriðjudags-
kvöldið 27. nóvember kl. 20.
Kórinn, sem kemur fram ásamt
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins,
mun á tónleikunum frumflytja nýtt
verk eftir Þóru Marteinsdóttur,
Kvöldlokka, sem hún samdi í tilefni
afmælisins við ljóð Þorsteins Valdi-
marssonar.
Á efnisskrá eru auk þess orgel-
konsert eftir Francis Poulenc og
messa í As-dúr eftir Franz Schu-
bert. Einleikari á orgel er Guðný
Einarsdóttir en einsöngvarar eru
Helga Margrét Marzellíusardóttir,
Hildigunnur Einarsdóttir, Hlöðver
Sigurðsson og Jóhann Kristinsson.
Stjórnandi er Gunnsteinn Ólafsson.
Prúðbúin Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins á fyrstu sam-
eiginlegu tónleikum sínum í nóvember árið 2007 í Langholtskirkju.
Háskólakórinn fagnar 40
ára starfsafmæli sínu
Bandaríska tónskáldið Pauline
Oliveros verður heiðrað á tónleikum
á Kjarvalsstöðum í dag kl. 15. Tón-
leikarnir eru haldnir í samstarfi Jað-
arbers og Listasafns Reykjavíkur.
Í tilkynningu frá skipuleggj-
endum kemur fram að Oliveros er
eitt áhrifamesta tónskáld banda-
rískrar tilraunatónlistar á 20. öld-
inni.
„Í upphafi ferils síns samdi Oliv-
eros atónal kammerverk, en á 7. ára-
tugnum gerðist hún félagi í San
Francisco Tape Music Center, sem
var í senn hljóðver og tónlistarleg
hreyfing sem hýsti alls kyns til-
raunastarfsemi og listviðburði. Eftir
að vinna með sérstillta harmóníkku
og rafhljóðfæri í rauntíma fór hún að
kanna mörk spuna og tónsmíða og
þróaði út frá því hugmyndafræði
sem hún kallaði Deep Listening eða
djúphlustun. Undanfarnar vikur
hefur tónlistarhópurinn Fengja-
strútur æft og skoðað djúphlustun
og mun flytja nokkur slík verk með
Báru Sigurjónsdóttur saxófónleik-
ara, Tinnu Þorsteinsdóttur píanó-
leikara og fleirum,“ segir m.a. í til-
kynningu.
Tónleikar til heiðurs tón-
skáldinu Pauline Oliveros
Áhrifamikil Pauline Oliveros hand-
leikur sérstillta harmóníkku.
Þær Erla Sigurðardóttir, vatnslita-
málari og myndskreytir, og gler-
listakonurnar Katrín Pálsdóttir og
Steindóra Bergþórsdóttir bjóða
gestum í opið hús í vinnustofur sín-
ar í Galleríi Kletti á Hvaleyr-
arbraut 35 í Hafnarfirði um
helgina. Er húsið beint fyrir ofan
gömlu bátaskýlin. Verða þær stöll-
ur með opnar vinnustofur fyrir
gesti og gangandi laugardag og
sunnudag frá klukkan 13 til 17. Þá
verða þær með opið alla fimmtu-
daga til jóla, klukkan 14 til 18.
Steindóra segir þær hafa verið í
21 ár á sama stað í bænum en hafa
nú flutt sig um set eftir þennan
langa tíma. „Við erum með best
falda leyndarmálið í Hafnarfirði og
sambúð okkar hefur verið góð öll
þessi ár,“ segir Steindóra og lofar
að þær verði með heitt á könnunni.
Verk þeirra þriggja frá liðnum
misserum verða til sýnis og sölu.
Opið hús hjá listakonum í Galleríi Kletti
Húsið Gallerí Klettur er á nýjum stað.
Linda Persson hefur verið gestalista-
maður Skaftfells, miðstöðvar myndlistar
á Austurlandi, í október og nóvember.
Hún lýkur dvöl sinni á Seyðisfirði með
því að sýna gjörninga í Bókabúðinni -
verkefnarými í dag kl. 15.
Breski heimspekingurinn Liam Sprod
kynnir bók sína, Nuclear Futurism, á
Skaftfell Bistró í dag kl. 16. Höfundur
mun ræða um snertifleti bókmennta og
heimspeki. Kynningin fer fram á ensku. List Eitt verka Lindu Persson.
Gjörningur og bókakynning
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
-VOTTUN ER OKKAR GÆÐAMERKI
Sérfræðingar í gleri
… og okkur er nánast ekkert ómögulegt
Opið: 08:00 - 17:00alla virka daga
• Hert gler
- Í sturtuklefa
- Í handrið
- Í rennihurðir
- Í milliveggi
• Speglar
- Á baðið
- Á ganginn
- Á skápinn
- Í eldhúsið
- Í barnaherbergið
- Í svefnherbergiðSENDUM UM ALLT LAND