Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 73
MENNING 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2012
þessu sinni, jörð, vatn, ljósvaki, loft og eldur.
Yfirskrift fyrsta kaflans er „Marr“ þar sem
unnið er með hægferðug stef og marr, einkum
í slagverki. Vatnið var frosið í öðrum kaflanum
með ískrandi og glitrandi áferð og svo mætti
áfram telja. Haukur tefldi síður fram ein-
stökum hljóðfærahópum í konsertforminu
heldur tíndi saman óskyld hljóðfæri til þess að
ná fram blæbrigðum, sem tókst ákaflega vel.
Fjórði kaflinn fannst mér mest heillandi með
sinni loftkenndu og dempuðu áferð. Verkið var
skemmtileg og vel mótuð tónsmíð, stundum
dálítið kaótísk, og var prýðisvel flutt af sveit-
inni.
Næst sté Christian Tetzlaff á svið og flutti
báða fiðlukonserta Szymanowskis, fyrir og eft-
ir hlé. Má segja að þetta hafi verið nokkuð stór
skammtur af krefjandi tónlist Szymanowskis
en jafnframt ómetanlegt tækifæri til þess að
bera saman þessa tvo konserta, sem samdir
eru með 16 ára millibili. Höfundurinn leikur
sér í fyrri konsertinum einnig með kons-
ertformið og kýs reyndar að kalla verkið frem-
ur tónaljóð, án hefðbundinna tengsla við tón-
tegundir. Þó að verkið sé frá miðri starfsævi
Szymanowskis var tónlistin rómantísk og
myndræn, svo minnti stundum á kvikmynda-
tónlist. Síðari konsertinn var aftur á móti
meira í anda impressjónistanna, mun hægferð-
ugri og jarðbundnari. Christian Tetzlaff lék
báða konsertana af miklu öryggi og geislandi,
smitandi leikgleði, svo unun var á að horfa og
hlýða. Sveitin lék verkin vel, samspil sveitar og
einleikara undir stjórn Storgårds var stórgott
enda stjórnandinn fiðluleikari sjálfur og þekk-
ir því verkin væntanlega frá öllum sjón-
arhornum.
Að lokum var komið að Sibelius og síðustu
sinfóníu hans, nr. 7 í C-dúr. Einnig hér leikur
tónskáldið sér með formið. Þó að skipta megi
verkinu í fimm kafla í anda sinfóníunnar er
verkið ein flæðandi heild. Sibelius kynnir mó-
tífin hvert af öðru og samþættir síðan glæsi-
legan tónvef með því að finna „hina djúpu, rök-
rænu framvindu, sem skapar innri tengsl milli
allra stefjanna“ svo vitnað sé til meistarans
sjálfs. Þó fannst mér flutningur kvöldsins ekki
ná þeim hæðum sem skyldi. Vera má að hljóm-
sveitin, stjórnandinn eða e.t.v. ég hafi verið úr-
vinda eftir Szymanowski en mér fannst túlk-
unina vanta þann neista, sem gerir
gæfumuninn og breytir nótum í upplifun.
Yfirskriftin „Þrír konsertar og sin-fónía“ á tónleikum Sinfóníuhljóm-sveitarinnar sl. fimmtudag virtist viðfyrstu sýn ákaflega einföld og lýs-
andi en verk kvöldsins voru sem betur fer þó
ekki rígnegld í þessi hefðbundnu form klass-
ískrar tónlistar.
Haukur Tómasson sótti efniviðinn í konsert
sinn í höfuðskepnurnar, sem voru fimm að
Ljósmynd/Giorgia Bertazzi
Leikgleði Tetzlaff lék af miklu öryggi.
Harpa – Eldborg
Sinfóníuhljómsveit Íslandsbbbnn
Haukur Tómasson (f. 1960): Höfuðskepnur, kons-
ert fyrir hljómsveit (2012, frumflutningur). Karol
Szymanowski (1882-1937): Fiðlukonsert nr. 1, op.
35 (1916) og fiðlukonsert nr. 2, op. 61 (1933). Jean
Sibelius (1865-1957): Sinfónía nr. 7 í C-dúr, op. 105
(1924). Christian Tetzlaff, fiðla. Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Stjórnandi: John Storgårds. Fimmtudag-
inn 22. nóvember kl. 19:30.
SNORRI VALSSON
TÓNLIST
Þrír konsertar og sinfónía
EGILSHÖLL
L
L
L
L
14
12
712
ÁLFABAKKA
VIP
VIP
16
16
16
14
L
L
L
L
L
POSSESSION KL. 5:50 - 8 - 10:10
POSSESSION LUXUS VIP KL. 10:30
TWILIGHT: BREAKING DAWN 2 KL. 1 - 3 - 5:30 - 8 -
10:30
TWILIGHT : BREAKING DAWN 2 VIP KL. 3 - 5:30 - 8
WRECK IT RALPH ÍSL.TALI3D KL. 1:30 - 3:40 - 5:50
WRECK IT RALPH ÍSL.TALI KL. 1 - 1:30 - 3:40 - 5:50
WRECK IT RALPH ENS.TALI KL. 8 - 10:10
ARGO KL. 5:40 - 8 - 10:30
HOPE SPRINGS KL. 3:40 - 8
BRAVE ÍSL.TALI KL. 1:30 - 3:40
END OF WATCH KL. 10:10
12
16
L
L
L
L
AKUREYRI
14
THE POSSESSION KL. 8 - 10:20
WRECK-IT RALPH ÍSL.TALI3D KL. 2 - 4
WRECK-IT RALPH ENS.TALI KL. 6
TWILIGHT: BREAKING DAWN 2 KL. 8
ARGO KL. 10:20
BRAVE HIN HUGRAKKA ÍSL.TALI KL. 2 - 4
HOPE SPRINGS KL. 6
KEFLAVÍK
7
L
L
L
L
16
16
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
12
12
12
POSSESSION KL. 5:50 - 8 - 11
TWILIGHT KL. 5:30 - 8 - 10:30
SKYFALL KL. 2 - 5 - 8 - 10:10
WRECK IT RALPH ÍSL.TALI KL. 1:30 - 3:40
WRECK IT RALPH ÍSL.TALI3D1:10 - 3:20
TWILIGHT KL. 5:30 - 10:20
THE POSSESSION KL. 8 - 10
HERE COMES THE BOOM KL. 8
WRECK IT RALPHÍSL.TALI3D KL. 2
BRAVE ÍSL TALI KL. 2 - 4 ENSTAL KL. 6
TWILIGHT: BREAKING DAWN PART 2
KL. 1 - 3:10 - 5:30 - 8 - 10:30
HERE COMES BOOM 5:40 - 8 - 10:20
ARGO KL. 8 - 10:30
CLOUD ATLAS KL. 8
WRECK-IT RALPH ÍSL3D KL.1-3:20-5:30
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 1:30 - 3:40
WRECK-IT RALPH ENSTALKL. 5:50
BRAVE KL. 1 - 3:20
-FBL
-FRÉTTATÍMINN
-B.O. MAGAZINE
- NEW YORK DAILY NEWS
-VARIETY
-HOLLYWOOD REPORTER
Í 2D OG 3D MEÐ ÍSLENSKU TALI
Í 2D MEÐ ENSKU TALI/ÍSL TEXTA
L
BOXOFFICE MAGAZINE
12
- KVIKMYNDIR.IS
- ROGER EBERT
16
ROGER EBERT CHICAGO SUN-TIMES
16
MÖGNUÐ HROLLVEKJA BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
EKKI FYRIR VIÐKVÆMA
ALVÖRU HROLLVEKJA
7
80/100
VARIETY
BOXOFFICE MAGAZINE
LOKAMYNDIN Í EINNI STÆRSTU KVIKMYNDASERÍU ALLRA TÍMA
80/100
THE HOLLYWOOD REPORTER
12
14
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
ÍÓ Á Á Í
SPARBÍÓ