Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 76
LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 329. DAGUR ÁRSINS 2012
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 699 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. „Drukku frá sér ráð og rænu“
2. Haldið sofandi í öndunarvél
3. Verjandi sofnaði við málflutning
4. „Af hverju á þetta ekki við …?“
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
Listaháskólans, mun ekki sækjast
eftir endurráðningu þegar ráðning-
artímabili hans lýkur í lok næsta árs.
Hjálmar hóf störf í janúar 1999 og er
að ljúka sínu þriðja ráðningartímabili.
Í bréfi til starfsmanna skólans segir
Hjálmar m.a. að hann telji mikilvægt
að fá svigrúm til að endurnýja sig
sem tónskáld og byggja upp fyrri
starfsferil á því sviði. Starf rektors
LHÍ verður auglýst á næstu dögum.
Morgunblaðið/RAX
Hjálmar sækist ekki
eftir endurráðningu
„Ég held heim
um jólin“ nefnist
nýtt jólalag hljóm-
sveitarinnar Loft-
skeytamanna. Lag
og texta sömdu
feðgarnir Guð-
mundur Ingi Þor-
valdsson og Aðalsteinn Ingi Guð-
mundsson. Aðalsteinn raulaði
laglínuna stöðugt í sumar, þá aðeins
18 mánaða, og úr varð jólalag. Mynd-
band við það má nú finna á YouTube.
18 mánaða gutti tók
þátt í gerð jólalags
Hin sígilda jóla-
bók Jólin koma,
sem hefur að
geyma ljóð Jó-
hannesar úr Kötl-
um og teikningar
Tryggva Magn-
ússonar, er komin
út í sérstakri há-
tíðarútgáfu í til-
efni af því að 80 ár eru liðin frá því
hún kom fyrst út, þ.e. árið 1932. Bók-
in hefur nú verið prentuð í 27. sinn.
Jólin koma 80 ára
og prentuð í 27. sinn
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt. Rigning eða slydda með
köflum um landið sunnanvert og slydda af og til á Vestfjörðum. Hiti víða 0 til 4 stig.
Birgi Leif Hafþórsson vantaði smá
heppni í púttunum á Spáni en veikindi
settu strik í reikninginn í Flórída.
Fremsti kylfingur landsins hefur lokið
keppni á þessu ári eftir að hafa tekið
þátt í úrtökumótum fyrir stóru móta-
raðirnar beggja vegna Atlantshafsins.
„Ég hef spilað mjög vel í allt haust og
vantar bara herslumun til að ég fari í
mjög lágar tölur,“ segir Birgir. »1
Vantar bara herslumun
í mjög lágar tölur
Snæfell og Tindastóll leika
til úrslita í Lengjubikar
karla í körfuknattleik í dag í
íþróttahúsinu í Stykk-
ishólmi. Tindastóll, sem er á
botni úrvalsdeildar, vann
Þór Þorlákshöfn í undan-
úrslitum í gærkvöldi í æsi-
spennandi leik með eins
stigs mun, 82:81, og Snæ-
fell lagði Íslandsmeistara
Grindavíkur með 11 stiga
mun, 99:88. »2
Tindastóll og
Snæfell í úrslit
„Það eru tveir góðir leikmenn í hverri
einustu stöðu og samkeppnin er því
hörð. Það er bara af hinu góða, held-
ur manni á tánum og gerir mig von-
andi að betri fótboltamanni,“ segir
landsliðsmaðurinn
Rúrik Gíslason sem
skoraði sigurmark
fyrir FC Köben-
havn í Evr-
ópudeild
UEFA í fyrra-
kvöld. »3
Hörð samkeppni sem
heldur manni á tánum
VEÐUR » 8 www.mbl.is
Á sunnudag Norðvestlæg átt, víða 5-10 og él norðanlands en bjartviðri að mestu á sunn-
anverðu landinu. Heldur kólnar.
Á mánudag NV 8-15 m/s með éljum við NA-ströndina, en hægviðri og léttskýjað víðast
hvar annars staðar. Frostlaust við suðurströndina, en annars frost 0 til 8 stig.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
„Það halda margir að gönguskíði séu
bara fyrir eldra fólk sem röltir áfram
á breiðum skíðum með bakpoka og
kakó í brúsa. En svo koma þeir hing-
að og komast að því að þetta er hrika-
leg áreynsla,“ segir Kristinn Hall-
dórsson, formaður göngunefndar
Skíðafélags Ísfirðinga. Á Ísafirði er
gönguskíðamennska sannkölluð al-
menningsíþrótt en á góðum dögum er
algengt að yfir 100 manns séu á
skíðagöngusvæðinu í Seljalandsdal.
Yngstu skíðamennirnir eru á leik-
skólaaldri en þeir elstu á níræðisaldri.
Þegar Kristinn flutti til Ísafjarðar
árið 2007 til að taka við embætti dóm-
stjóra Héraðsdóms Vestfjarða hafði
hann aðeins einu sinni stigið á göngu-
skíði og hafði engin sérstök áform um
að breyta því. En þá greip Bobbi –
Kristbjörn Róbert Sigurjónsson – í
taumana en Bobbi er mikil driffjöður
í íþróttastarfi fyir vestan. „Bobbi
öskraði bara á mig að það væru bara
aumingjar sem væru ekki á göngu-
skíðum þannig að ég keypti mér bara
gönguskíði,“ segir hann.
Fyrsta flokks æfingaaðstaða
Skíðafélagið ræður yfir góðum
skála í Seljalandsdal og þar hefur
verið byggð upp fyrsta flokks æf-
ingaaðstaða, sú besta á landinu, eftir
því sem Kristinn fullyrðir og Jó-
hanna Oddsdóttir, formaður
Skíðafélagsins, og aðrir sem voru
nærstaddir þegar viðtalið var
tekið í skíðaskálanum í gær voru
fljót að taka undir það. Á Ísafirði
er mikil hefð fyrir gönguskíða-
mennsku og varla að Ísfirðing-
arnir í skálanum hefðu tölu á öll-
um ísfirsku ólympíuförunum.
Ekkert lát er heldur á áhug-
anum en þau Kristinn og Jó-
hanna benda m.a. á að um 45
krakkar í 1.-10. bekk æfi skíða-
göngu 3-4 sinnum í viku. „Ég
held að þetta sé hvergi annars staðar
svona mikið,“ segir Kristinn.
Skíðaganga er erfið íþrótt en hún
fer vel með líkamann sem sannast
m.a. á því að hægt er að stunda hana
af krafti fram eftir öllum aldri. Marg-
ir eldri Ísfirðingar stunda sportið,
m.a. Gunnlaugur Jónasson sem er 81
árs. Gunnlaugur gekk 20 km í Fossa-
vatnsgöngunni í vor og Kristinn
kveðst hafa heyrt að þegar Gunn-
laugur var spurður hvort hann hefði
hugsað um styttri vegalengdir hefði
hann sagt að hann ætlaði ekki að
stytta leiðina fyrr en hann yrði gam-
all.
Varð að fá sér gönguskíði
Oft yfir 100
manns við æfingar
á Ísafirði
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Æfingar Kristinn Halldórsson, formaður göngunefndar Skíðafélags Ísfirðinga, var ásamt um 50 öðrum í Seljalands-
dal þar sem nú er æft stíft fyrir Fossavatnsgönguna sem haldin er í maí. Aðstæður voru með besta móti.
Í gær voru um 50 manns í Seljalandsdal í árlegum æfingabúðum
fyrir Fossavatnsgönguna sem voru settar á fimmtudag. Í æf-
ingabúðunum er kennt flest það sem lýtur að göngutækni en
einnig farið yfir ýmis önnur atriði, s.s. hvernig bera skal áburð á
skíðin og hvernig velja skal rétta áburðinn. Æfingabúðunum
verður slitið á morgun og skíðamennirnir geta síðan æft sig
fram til 4. maí þegar ræst verður í Fossavatnsgönguna. Í henni
er hægt að velja um að ganga 7, 10, 20 og 50 km.
Tækni, átök og áburður
ÆFINGABÚÐIR Í SELJALANDSDAL