Morgunblaðið - 28.11.2012, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012
Heilsa & lífsstíll
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 12, miðvikudaginn 19. desember.
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað umHeilsu og lífstíl
fimmtudaginn 3. janúar
Í blaðinu Heilsa og lífsstíll verður kynnt
fullt af þeim möguleikum sem í boði eru
fyrir þá sem stefna á heilsuátak og
bættan lífsstíl.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Jólaverslunin er rétt að hefjast en
ætla má að hún muni ná auknum
skriðþunga frá mánaðamótum eða
næstu helgi, segja miðborgarstjóri
og framkvæmdastjóri Smáralindar.
Þá virðast Íslendingar ætla að
ferðast utan fyrir jólin í svipuðum
mæli og í fyrra en ferðum erlendra
ferðamanna hingað til lands í nóv-
ember og desember hefur hins veg-
ar fjölgað mjög.
Samkvæmt upplýsingum frá Ice-
landair eru Boston, Glasgow, Wash-
ington, München og Frankfurt með-
al vinsælustu áfangastaða
Íslendinga í verslunarhugleiðingum,
auk Kaupmannahafnar og Lundúna.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir flugfélagið
ekki greina erindagjörðir farþega
sinna og því sé erfitt að leggja mat á
hversu margir fari utan til að versla
en það stefni í að fjöldi Íslendinga á
faraldsfæti verði svipaður í nóv-
ember og desember og var í fyrra.
„Framboðið milli Íslands og þess-
ara helstu staða er töluvert meira en
í fyrra en við sækjum vöxtinn fyrst
og fremst til útlanda, þ.e.a.s. ferða-
menn á leið til landsins og yfir hafið
með viðkomu í Keflavík,“ segir Guð-
jón.
Hann segir ferðamönnum
frá Bretlandi og Bandaríkj-
um hafa fjölgað einna mest
en norðurljósin séu meðal
þess sem trekkir, sér-
staklega þessa mánuði frá og
með nóvember og fram í
febrúar.
Rannsóknarsetur versl-
unarinnar áætlar að jólaverslun
muni aukast um 7% frá síðasta ári
Miklar breytingar verða á
útgjaldahlið fjárlagafrumvarpsins
skv. tillögum meirihluta fjár-
laganefndar sem nema 7,2 millj-
örðum og verulegar breytingar eru
einnig boðaðar á tekjuöflun rík-
issjóðs 2013 skv. frumvarpi fjár-
málaráðherra um ráðstafanir í rík-
isfjármálum.
Dregið hefur verið úr áformum
um öflun tekna með sölu eigna á
næsta ári. Afla átti átta milljarða
með eignasölu skv. frumvarpinu en
nú er lagt til að eignir verði seldar
fyrir fjóra milljarða á næsta ári.
Katrín Júlíusdóttir fjármála- og
efnahagsráðehrra staðfesti þetta
eftir ríkisstjórnarfund í gær. „Við
gerum ekki endilega ráð fyrir því
að selja jafnmikið. Við þurftum að
taka þann lið niður í fjárlaga-
frumvarpinu, þ.e. söluhagnað af
eignum um fjóra milljarða, því við
gerum ekki ráð fyrir því að selja
svo stóra bita af bönkunum á næsta
ári að við getum innleyst slíkan
söluhagnað. Hins vegar höldum við
eftir fjórum milljörðum því við ger-
um ráð fyrir því að geta mögulega
selt einhverja minni hluta eða selt
aðrar eignir ríkisins eins og jarðir
og húsnæði,“ sagði hún.
Sækja á stórauknar tekjur með
arðgreiðslum fyrirtækja og banka í
eigu ríkisins. Í fjárlagafrumvarp-
inu voru þær áætlaðar 2,9 millj-
arðar 2013 en nú er gert ráð fyrir
að arðgreiðslurnar aukist um 13
milljarða og er skv. heimildum þar
af gert ráð fyrir að Landsbankinn
greiði 9,6 milljarða í arð til ríkisins
og Seðlabankinn 2,6 milljarða.
Reiknað er með arðgreiðslum frá
Landsvirkjun, RARIK, Orkubúi
Vestfjarða, ÁTVR og Íslandspósti.
Stór hluti þessara tekna á að renna
í fjárfestingaráætlun ríkisins.
omfr@mbl.is heimirs@mbl.is
Áform um sölu ríkis-
eigna lækka úr átta
í fjóra milljarða
Ríkið hyggst sækja 9,6 milljarða tekjur
með arðgreiðslu Landsbankans 2013
efni. Það var gert ráð fyrir því að
gera það í tveimur áföngum, árin
2013 og 2014. Það sem ég legg til er
að við lögfestum eingöngu fyrri hlut-
ann,“ segir Katrín.
„Það á að halda að fullu í það sem
áður var fyrirhugað í álögum á okk-
ur. Það verður enginn afsláttur gef-
inn á næsta ári. Þegar rætt var sam-
an í haust reiknuðu menn með
samdrætti upp á allt að 50% í inn-
kaupum á nýjum bílum,“ segir Berg-
þór Karlsson, formaður bílaleigu-
nefndar Saf og framkvæmdastjóri
Bílaleigu Akureyrar.
Skattur á gistingu verði 14%
Ágætis lending segir fjármálaráðherra „Fögnum ekki tvöföldun virðisaukaskatts,“ segir fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar Vörugjöld á bílaleigur aukast minna en áætlað var
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Katrín Júlíusdóttir fjármálaráð-
herra ætlar að leggja til að virðis-
aukaskattur á gististaði verði hækk-
aður í 14% en ekki 25,5% eins og
áður hafði verið stefnt að. „Við skul-
um segja að þetta sé ákveðin lend-
ing. Það hafa allir fylgst með þessari
umræðu undanfarnar vikur og mán-
uði. Mín niðurstaða er að þetta sé
ágætis lending, að fara aftur til árs-
ins 2007 þegar skatturinn var 14%,
þess vegna legg ég það til við þingið
að við tökum það þrep upp aftur,“
sagði Katrín Júlíusdóttir eftir ríkis-
stjórnarfund í gærmorgun.
Taka á sig mikið högg
„Við fögnum ekki tvöföldun virð-
isaukaskatts á gistingu. Upphafleg
tillaga Oddnýjar Harðardóttur var
fullkomlega galin. Við megum ekki
gleyma að meðalvirðisaukaskattur á
gistingu í Evrópu er 10% og helstu
ferðamannaþjóðirnar eru með
7-8%,“ segir Erna Hauksdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar.
Erna segir að gistiaðilar þurfi að
taka á sig mikið högg á næsta ári, bú-
ið sé að selja stóran hluta gistingar
næsta sumar og erlendir ferðaheild-
salar löngu búnir að prenta bækl-
inga. „Það er augljóst að gististaðir
þurfa að taka á sig hluta þessarar
hækkunar og allan hluta þess sem
þegar er búið að selja,“ segir Erna.
Fjármálaráðherra leggur einnig
til að afsláttur bílaleigna á vöru-
gjöldum verði ekki afnuminn að
fullu. Skrefið verði aðeins stigið til
hálfs miðað við fyrri áætlanir. „Ég
legg til að við göngum hálfa leið í því
Morgunblaðið/Ómar
Skattar Gistiaðilar hafa selt stóran
hluta gistingar fyrir næsta ár.
Frá og með laugardeginum 8. desember verður opið til klukkan 22 í Smára-
lind alla daga til jóla, nema á Þorláksmessu, en þá verður opið til klukkan
23 og á aðfangadag verður opið frá 10-13. Lokað verður á jóladag og annan
í jólum en hefðbundinn afgreiðslutími verður í gildi milli jóla og nýárs.
Í Kringlunni lengist afgreiðslutími verslana sömuleiðis frá og með 8.
desember, nema sunnudaginn 9. desember verður venjulegur sunnu-
dagstími, þ.e. til klukkan 18. Á Þorláksmessu verður opið til klukkan
23, á aðfangadag verður opið frá 10-13 en lokað á jóladag og ann-
an í jólum.
Í miðborginni verður afgreiðslutíminn lengdur frá og með
fimmtudeginum 13. desember. Verslanir verða opnar til
klukkan 22 alla daga fram að jólum nema sunnudaginn 16.
desember, þá verður opið til 18, og á Þorláksmessu, þá verður
opið til klukkan 23. Á aðfangadag verður opið frá 10-12.
Í öllum tilvikum er um að ræða almennan afgreiðslutíma og
geta einstaka verslanir verið opnar á öðrum tímum.
Lengri afgreiðslutími verslana
JÓLAVERSLUN
og að heildarvelta í smásöluverslun í
nóvember og desember muni nema
tæpum 67 milljörðum án virð-
isaukaskatts. Jakob Frímann Magn-
ússon, framkvæmdastjóri Miðborg-
arinnar okkar, segir jólaverslunina
rétt vera að fara í gang.
„Þetta fer fallega af stað og núna
um helgina er langur laugardagur
framundan og þá kannski fyrst, get-
um við sagt, byrjar alvöruhasarinn
að öllu jöfnu. Kringum þessa fyrstu
helgi. En það skynja allir að stóru jól
eru í aðsigi,“ segir hann.
Jakob Frímann segir verslunar-
og veitingahúseigendur í miðbænum
ekki hafa farið varhluta af þeirri
fjölgun ferðamanna sem hafi orðið á
þeim vetrarmánuðum síðan átakinu
Ísland allt árið var hleypt úr vör.
„Gott dæmi um það er að ég var
með útlendinga sem ég ætlaði að
fara með út að borða á Grillmark-
aðinn á þriðjudagskvöldið en það var
hvert einasta borð setið í húsinu og
obbinn af því útlendingar. Það, á
þriðjudagskvöldi um hávetur, hefði
þótt saga til næsta bæjar fyrir fáein-
um árum,“ segir hann.
Í Smáralind fer jólatréð upp 1.
desember og gerir Sturla Gunnar
Eðvarðsson, framkvæmdastjóri
verslunarmiðstöðvarinnar, ráð fyrir
að jólaverslunin hrökkvi í gang um
sama leyti.
„Það er nú alltaf ákveðið stress í
kaupmönnum um hvenær jólaversl-
unin byrjar af alvöru og það er ekk-
ert öðruvísi núna. En ég held að
þetta byrji fyrstu helgina í desem-
ber, þá fer þetta af stað fyrir alvöru.
Þá lengist afgreiðslutíminn og fólk
hefur lengri tíma og er komið í gír-
inn,“ segir Sturla.
Morgunblaðið/Golli
Jólagjafainnkaup Jólagjöfin í ár er íslensk tónlist, ef marka má Rannsóknasetur verslunarinnar.
Jólaverslunin í fullan
gang um mánaðamót
„Fer fallega af stað“ Mikið af erlendum ferðamönnum