Morgunblaðið - 28.11.2012, Blaðsíða 17
Líf án súrefnis í brimsöltu jökulvatni
Heimild: NewScientist/PNAS
Fundist hafa örverur sem lifa án súrefnis í vatni undir jökli í 13˚C frosti
og þykir það auka líkurnar á því að líf þrífist á öðrum hnöttum
Gerlar sem njóta
ekki sólarljóss kunna
að fá orku frá efnahvörfum
milli salts og steinda í bergi
Einstakt vistkerfi
í lokuðu umhverfi
Nokkrar tegundir hafa
fundist í miklum mæli
Ríkt af vetni, nituroxíði
og kolefni
Sex sinnum saltara en sjór,
helst ófrosið
Nýfundnir gerlar
Hefur verið í 2.800 ár
undir 20 m þykku íslagi
SUÐURSKAUTSLANDIÐ
Suðurskautið
1.000 km
Vida-vatn
Vísindamenn hafa fundið örverur í
brimsöltu vatni, í frosti og algeru
myrkri, undir 20 metra þykkum
jökulís á Suðurskautslandinu. Þeir
telja þennan fund auka líkurnar á
því að líf þrífist á öðrum hnöttum,
til að mynda Mars eða Evrópu,
tungli Júpíters.
Vísindamennirnir segjast hafa
fundið fjölbreytt og furðulegt vist-
kerfi gerla í 13 stiga frosti og al-
gerri einangrun í vatni undir ísn-
um. Þeir telja að vatnið hafi verið
einangrað í um það bil 2.800 ár.
Vatnið nefnist Vida og er stærst
af nokkrum einstæðum vötnum á
einu af köldustu og einangruðustu
svæðum jarðar. Örverurnar þrífast
án súrefnis í vatni sem er um það bil
sex sinnum saltara en sjórinn. Þar
er einnig meira nituroxíð en fundist
hefur í nokkru öðru vatni í heim-
inum, að því er fram kemur á
fréttavef breska ríkisútvarpsins.
Vísindamennirnir telja að svipaðar
aðstæður geti hugsanlega verið í
vötnum á Mars og undir þykkri ís-
skorpu á Evrópu, tungli Júpíters.
Vísindamennirnir þurftu að bora
allt að 27 metra í gegnum ísinn til
að sækja sýni úr Vida-vatninu. Ör-
verurnar sem fundust eru af áður
óþekktum gerlategundum.
Alison Murray, sem stjórnar
rannsókninni, segir að verið sé að
rannsaka örverurnar frekar með
því að rækta þær. „Við getum notað
þessar ræktuðu örverur til að skilja
betur eðlisfræðilegu og efnafræði-
legu öfgarnar sem þær þola og
gætu verið í öðrum ísköldum heim-
um eins og Evrópu,“ hefur tímarit-
ið New Scientist eftir Murray.
Vísindamenn eru undrandi á því
hversu mikið er af vetni, nituroxíði
og kolefni í vatninu. Þeir leiða get-
um að því að þessi efni megi rekja
til efnahvarfa milli salts og steinda
sem innihalda nitur. Gerlarnir hafi
þróast þannig í súrefnisleysinu að
þeir hafi orðið algerlega háðir þess-
um efnum til að fá orku. bogi@mbl.is
Eykur líkur á lífi
á öðrum hnöttum
Fundu örverur í frosti, myrkri og
algerri einangrun í vatni undir jökulís
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012
AFP
Þúsundir evrópskra bænda á hundruðum dráttarvéla
hafa mótmælt lágu mjólkurverði í Brussel síðustu
daga. Bændurnir hafa m.a. sprautað mjólk á byggingu
Evrópuþingsins og lögreglumenn sem vörðu hana.
Bændurnir segjast þurfa að selja mjólk undir kostn-
aðarverði og vilja að verð hennar hækki um 25%.
Mjólk sprautað á lögreglu og þinghús
Evrópskir bændur mótmæla í Brussel
Stjórnvöld í Frakklandi staðfestu í
gær að þau hygðust greiða atkvæði
með tillögu á allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna um að Palestína
fengi stöðu „áheyrnarríkis án aðild-
ar“ hjá samtökunum.
Laurent Fabius, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagði að Frakkar
hefðu lengi stutt stofnun sjálfstæðs
Palestínuríkis og hygðust greiða at-
kvæði með tillögunni þegar hún yrði
borin undir atkvæði á allsherjar-
þinginu á morgun eða á föstudaginn
kemur. Frakkland er með fastafull-
trúa í öryggisráði SÞ og fyrsta stóra
Evrópuríkið sem lýsir yfir stuðningi
við tillöguna.
Ísraelar andvígir tillögunni
Verði tillagan samþykkt geta
fulltrúar Palestínumanna tekið þátt í
umræðum á allsherjarþinginu. Fái
þeir stöðu „áheyrnarríkis án aðildar“
eykur það einnig líkurnar á því að
Palestínumenn fái aðild að stofnun-
um Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða-
sakamáladómstólnum (ICC). Það
myndi þó ekki gerast sjálfkrafa og
ekki er víst að þeir fengju aðild að
þessum stofnunum.
Ísraelar eru andvígir því að Pal-
estína fái stöðu áheyrnarríkis og
segja að það mynda vera brot á
friðarsamkomulagi Ísraela og Pal-
estínumanna sem undirritað var í
Ósló árið 1993. bogi@mbl.is
Frakkar styðja
Palestínumenn
Vilja að þeir fái stöðu „áheyrnarríkis“
Danir styðja tillöguna
» Danir ætla að greiða at-
kvæði með því að Palestína fái
stöðu „áheyrnarríkis“ hjá SÞ.
» Utanríkisráðherra Dana
sagði að þetta yrði gert með
stuðningi borgaralegu
stjórnarandstöðuflokkanna
Venstre og Íhaldsflokksins.
Í fjárlögum, sem samþykkt voru í
Danmörku á síðasta ári, var gert ráð
fyrir því að varið yrði alls 46 millj-
ónum danskra króna, rúmum millj-
arði íslenskra, í sérstakt átak til að
fá vændiskonur til að hætta að
stunda vændi. Markmiðið var að ná
til allt að 150 vændiskvenna í fyrstu
atrennu en nú þegar ár er liðið frá
því að átakið hófst hefur ekki verið
haft samband við eina einustu
vændiskonu, að því er fram kemur á
fréttavef danska dagblaðsins Politi-
ken.
Talið er að um 3.200 konur stundi
vændi í Danmörku. Stefnt er að því
að þeir sem annast átakið hafi sam-
band við 100-150 vændiskonur í fjór-
um sveitarfélögum – Kaupmanna-
höfn, Óðinsvéum, Árósum og
Álaborg.
Ríkisstjórn Helle Thorning-
Schmidt, forsætisráðherra Dan-
merkur, hafnaði í vikunni sem leið
tillögu um að vændiskaup yrðu
bönnuð í landinu. Ráðherrar og aðr-
ir forystumenn stjórnarflokkanna
sögðu þá að stjórnin hefði þegar
hafið umfangsmikið átak til að
hvetja vændiskonur til að hætta að
stunda vændi.
Dönsku samtökin LivaRehab, sem
aðstoða vændiskonur og konur sem
sæta ofbeldi, hafa sakað stjórnina
um metnaðarleysi í baráttunni gegn
vændi og segja að allt átakið virðist
vera „eintóm skrifborðsvinna“.
„Þegar aðeins er stefnt að því að ná
til 100 kvenna með 46 milljónum
króna [danskra] jafngildir þetta því
að átakið kosti hálfa milljón [tæpar
11 milljónir íslenskra] á hverja
konu,“ hefur Politiken eftir Floru
Gosh, leiðtoga samtakanna. Hún
segir að LivaRehab sé með miklu
minna fé til ráðstöfunar og hafi ver-
ið í sambandi við 135 konur. Þar af
hafi 100 sagt að þær vilji aðstoð til
að hætta vændi. bogi@mbl.is
Milljarður í að reyna að fá
150 konur til að hætta vændi
Danska stjórnin sökuð um metnaðarleysi Ári eftir að
átakið hófst hefur ekki verið haft samband við eina konu
AFP
Vændi Margar vændiskvennanna í Danmörku koma frá öðrum löndum.
Andstæðingar Bræðralags múslíma
efndu til fjöldafunda í borgum í
Egyptalandi í gær til að mótmæla
auknum völdum sem Mohamed
Morsi, forseti landsins, hefur tekið
sér. Á meðal þeirra voru tugir þús-
unda manna sem gengu að Tahrir-
torgi í Kaíró. Þeir hrópuðu sömu
vígorð og heyrðust í mótmælunum
sem urðu til þess að Hosni Mubarak
hrökklaðist frá völdum fyrir tæpum
tveimur árum: „Fólkið vill að
stjórnin falli.“
Bræðralag múslíma hætti við
fjöldafundi til stuðnings forset-
anum til að „forðast átök“.
EGYPTALAND
AFP
Ólga Mótmælendur nálægt Tahrir-torgi.
Fjölmenn mótmæli
gegn forseta Egypta
TIL HAMINGJU
VINNINGSHAFAR
Yfir 2O háskólabyggingar hafa
risið fyrir happdrættisfé.
Milljónaveltan
20 milljóna króna vinningur: Dregið er úr öllum miðum, bæði númer og bókstaf. Tromp-
miði margfaldar ekki vinningsupphæð en fimmfaldar vinningslíkur.
1 milljónar króna vinningar: Dregið er aðeins úr seldum miðum, bæði númer og bók-
staf. Tromp-miði margfaldar ekki vinningsupphæð en fimmfaldar vinningslíkur.
Birt með fyrirvara um villur
11. flokkur, 27. nóvember 2012
Kr. 20.000.000,-
8567 B
11962 G
25018 F
32520 B
46095 H
15043 B
Kr. 1.000.000,-