Morgunblaðið - 28.11.2012, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.11.2012, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Barnavörur Hoppiskoppi-dýrin Tilvalin jólagjöf fyrir krakkana. Kíktu inn á hoppiskoppi.is. Dýrahald Hún Þöll strauk úr pössun 13.nóv. Hún er lítil svört og hvít tík, enskur cocker spaniel, blue roan. Hún strauk frá sveitabæ í Vestur-Landeyjum, ekki langt frá Hvolsvelli, og er sárt saknað Ef einhver hefur séð til hennar eða veit um hana, vinsamlegast hringið í síma: 864 0923, Agnes eða 8919864 Guðfinnur. Fundarlaun Gisting Hvataferðir, fyrirtækjahittingur, óvissuferðir, ættarmót Frábær aðstaða fyrir hópa. Líka fjölskyldur. Heitir pottar og grill. Opið allt árið. Sími: 486 1500. Minniborgir.is Gisting á góðum stað.                                     Snyrting Babaria-snyrtivörur loksins á Íslandi. Babaria er fjölbreytt vörulína sem er unnin úr náttúrulegum hráefnum og hentar þörfum allrar fjölskyldunnar fyrir alla daglega umhirðu húðar. Vörurnar fást í netversluninni www.babaria.is Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Til sölu Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Kristall ljósakrónur - Nýtt sending Glæsileg ný sending af kristalsljósakrónum og veggljósum. Klassísk og nýtísku stíll. Sjón er sögu ríkari. BOHEMIA KRISTALL Glæsibær, s. 571 2300 Saumavélar- saumavélaviðgerðir Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali. Viðgerðir á flestum gerðum sauma- véla. Skoðaðu úrvalið á saumavelar.is eða hringdu í s. 892 3567 eftir hádegi alla daga. Kæli- og frystiklefar - lausfrystar Lausfrystar, kæli- og frystiklefar sem eru auðveldir í uppsetningu. Hægt er að fá klefana með eða án vélakerfis. Íshúsið ehf, www.ishusid.is S. 566 6000. Verslun Jólavörur í úrvali Erum með mikið úrval af fjarstýrðum þyrlum, skipum, skýjaluktum, plast- módelum ásamt úrvali af skotveiði- vörum. Erum í Verslunarmiðstöðinni Glæsibæ. Sími 517 8878. Tactical.is KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. Staðgreiðum gull, demanta og úr. Hringar, hálsmen, armbönd, rolex,cartier, patek philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu. www.kaupumgull.is upplýsingar í síma 661 7000 KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Ýmislegt Teg. GABE - Flottur push up í C,D,DD,E,F,FF,G,GG,H skálum á kr. 8.680. Teg. CORNELIA - Glæsilegur push up í C D,DD,E,F,FF,G,GG,H skálum á kr. 8.680. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-föst. 10-18, opið á laugardögum kl. 10-14. Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald Glerjun og gluggaviðgerðir Lása- og hurðaviðgerðir ásamt öðrum smíðaverkefnum. Glugga- og hurðaþjónustan, s. 895 5511, smidi.is. Múr- og lekaviðgerðir Sveppa- og örverueyðing Vistvæn efni notuð Húsaviðgerðir www.husco.is Vönduð vinna Áratuga reynsla Sími 555-1947 Gsm 894-0217 Óska eftir Kaupi silfur Vantar silfur til bæðslu og endurvinn- slu. Fannar verðlaunagripir, Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is - sími 551 6488.- með morgunkaffinu Nú hefur faðir minn farið frá okkur, löngu fyrir sína tíð. ✝ FriðfinnurÁrni Kjærne- sted Steingrímsson fæddist 9. febrúar 1959 á Flateyri við Önundarfjörð. Hann varð bráð- kvaddur 12. nóv- ember síðastliðinn. Friðfinnur var jarðsunginn frá Bú- staðakirkju 26. nóvember 2012. Hjartahlýr, heið- arlegur, róman- tískur og glettinn, þessi orð lýsa hon- um best. Já, pabbi var mjög heiðarlegur og bjóst ávallt við því sama frá öðr- um. Hann vildi allt fyrir alla gera, hafði mikla samúð með fólki og setti sjálfan sig gjarnan í annað sæt- ið. Pabba var margt til lista lagt. Hann var frábær kokkur, ég lærði ýmislegt í elda- mennsku frá honum, enda fannst honum mjög gaman að elda og þá sérstaklega fyrir aðra. Þær eru ófáar máltíðirnar sem við borðuðum saman. Góð- ar stundir. Hann var líka mjög handlag- inn og var mér oft innan hand- ar þegar kom að flutningum um búsetu. Þar bar hann húsgögn- in af miklu afli þó hann ætti að vera að hlífa bakinu sínu, bor- aði, negldi og sagaði. Elsku pabbi, alltaf að hugsa um aðra. Við pabbi ferðuðumst nokk- uð um landið og voru þá barna- börn hans með í för. Það var mikil gleði í þeim ferðum. Pabbi flippaður og hress eins og honum einum var lagið, músíkin tjúnuð í botn á milli staða og passað sig að missa ekki af neinum merkum stað í ferðinni. Pabbi var með þetta allt á hreinu. Góðar stundir. Pabbi fór mikið í sund, synti mikið sem barn og vann þá til þónokkurra verðlauna og stóð til að hann og sonur minn færu saman í sund þrisvar í viku nú yfir vetrarmánuðina. Pabba vantaði afsökun til að leika sér í rennibrautunum, en fyrst og fremst var hann að hugsa um að barnabarnið fengi þá útrás sem það þurfti. Núna sit ég hér með barnasundkortið sem pabbi keypti fyrir tveimur vik- um síðan, átta göt eftir. Það sem ég var einna stolt- ust af með pabba var hversu flinkur listamaður hann var. Hann teiknaði og málaði, en ekki til að sýna heldur fyrir aðra. Hann hafði líka eina fal- legustu rithönd sem ég hef nokkurn tímann séð. Elsku pabbi, þín verður sárt saknað. Kristín Lillý Kjærnested. Friðfinnur Árni Kjærnested Steingrímsson Margt kemur upp í hugann þegar við minnumst elsku Jóa afa okkar. Hann var alltaf svo ljúfur og blíður við okkur systurnar. Ávallt var tekið á móti okkur í Njörvasundinu með hlýju og væntumþykju. Við áttum ótal góðar stundir með afa og ömmu og dvöldum ófáar helgar þegar við fengum að gista á efri hæð- inni. Þá var dekrað við okkur. Allt látið eftir. Samveran með afa og ömmu setti ógleymanlegan svip á æskuárin. Bílskúrinn var eins og ævintýraheimur þar sem við fengum að smíða og prófa öll verkfærin. Öllum hugmyndum var vel tekið. Allt var mögulegt. Þú varst svo laginn og hjálpaðir fólki með gömul húsgögn. Þau öðluðust nýtt líf í þínum höndum. Neftóbakið og rauðu og bláu nef- klútarnir voru óborganlegir. Stundum meira að segja strauj- aðir af ömmu. Þú áttir alltaf fyllt- an brúnan Opal-brjóstsykur og gafst okkur krökkunum. Það var svo skemmtileg athöfn. Stundum fengum við að fara Jóhann Kristján Árnason ✝ Jóhann Krist-ján Árnason fæddist í Reykjavík 23. mars 1923. Hann lést á Landa- kotsspítala 9. nóv- ember 2012. Útför Jóhanns Kristjáns var gerð frá Langholts- kirkju 19. nóv- ember 2012. upp á háaloftið og þar var annar heim- ur með gömlum munum. Þar var lykt af gamalli fortíð og við gátum gleymt okkur tímunum sam- an. Kompan var búr- ið hennar ömmu og þangað stálumst við stundum og kíktum á allar sultukrukk- urnar, kruðeríið og gosið eftir stórinnkaup í Mikla- garði, Hagkaupum eða Bónus. Garðurinn var eins og skúð- garður, þar vorum við oftar en ekki eins og prinsessur í aðalhlut- verki. Afi var einn sá allra besti afi sem hægt er að hugsa sér, hvort sem hann var að segja frá gömlum tímum kreppunnar eða stríðsáranna í Reykjavík, borg- inni hans afa. Það var líka alltaf stutt í grínið hjá Jóa afa og húm- orinn var hans aðalsmerki. Oft fórum við í Kolaportið og alltaf var afi til í að fara á rúntinn. Oft- ast eina bunu niður Laugaveginn, út á gömlu höfnina og út á Granda. Við fórum í ófá ferðalög saman þar sem við sátum aftur í í gömlum R-8845 og seinni arftök- um. Alltaf skemmtum við okkur konunglega. Elsku afi, þú ert kominn á betri stað og við vitum að þér líður aft- ur vel. Guð blessi þína minningu elsku Jói afi okkar. Þínar afastelpur, Sara Björk, Elín Sigríður og Lilja Rún Kristjánsdætur. Kári Guðmundsson ✝ Kári Guð-mundsson fæddist í Reykjavík 11. apríl 1929. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 5. nóvember 2012. Útför Kára var gerð frá Hallgríms- kirkju í Reykjavík 15. nóvember 2012. traustur og hlýr pabbi og afi og mér afar kær. Sjálfs- traust og sterkur vilji voru hans sterku persónuei- kenni. Að leiðarlokum var pabbi farinn að þreki og veikindin erfið. Þannig fór að hvíldin kom honum sem líkn. Þar til yf- ir lauk minntist hann góðra stunda og gladdist ætíð þegar talið barst að liðnum tímum. Nú hef ég kvatt föður minn Kára Guðmundsson. Ég minnist hans með söknuði. Hann var Tímabilin voru mörg á langri ævi; æskuárin, skólaárin, árin til sjós, Víkurárin, Keflavíkurárin og loks efri árin. Ég vil þakka þeim fjölmörgu sem heiðrað hafa minningu föð- ur míns og sýnt fjölskyldunni hluttekningu. Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. Ó, Jesús, séu orðin þín andláts síðasta huggun mín. Sál minni verður þá sælan vís með sjálfum þér í paradís. (Hallgrímur Pétursson) Margrét Káradóttir. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morg- unblaðslógóið efst í hægra horn- inu og velja viðeigandi lið. Lengd | Hámarkslengd minn- ingargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.