Morgunblaðið - 28.11.2012, Page 23

Morgunblaðið - 28.11.2012, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2012 MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Rvk • s. 587 1960 • www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum við fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu og fría pökkun á legsteinum sem fara út á land Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít ✝ Ásthildur Sig-urgísladóttir fæddist í Reykja- vík 30. júlí 1923. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir 19. nóvember 2012. Foreldrar henn- ar voru Hólm- fríður Jónsdóttir, f. 1888 á Ísafirði, d. 1958 og Karl Oscar Hedlund, f. 1891 í Sví- þjóð, d. 1959. Fósturfaðir hennar var Sigurgísli Jónsson, f. 1892, d. 1930. Ásthildur var áttunda barn Hólmfríðar en hún eignaðist alls 13 börn. Systkini Ásthildar eru: Ragnar Þ. Guðmundsson, f. 1908, d. 1969; Jón G. Sólnes, f. 1910, d. 1986; Áróra Guðmundsdóttir, f. 1912, d. 1990; Jens Guð- mundsson, f. 1914, d. 1955; Garðar Guðmundsson, f. 1916; inmaður hennar var Björn Þór- leifsson, f. 1947, d. 2003. Dæt- ur þeirra eru: Þórhildur, f. 1983, maki Jóhann Þórhallsson og Sigríður Ásta, f. 1986, sam- býlismaður Arnar Kristinn Hilmarsson. Sonur Júlíönu er Lárus Arnór, f. 1976, maki Þóra Sif Ólafsdóttir. 2) Þóra, f. 1957. Var í sambúð með Er- lingi Páli Ingvarssyni. Dætur þeirra eru Ásthildur, f. 1981, sambýlismaður Axel Ein- arsson, Ólöf Auður, f. 1985, sambýlismaður Snorri Eng- ilbertsson, Ragnheiður f. 1989. Barnabarnabörnin eru sjö. Ásthildur ólst upp í Reykja- vík. Eftir hefðbundið barna- skólanám var hún einn vetur í Héraðsskólanum á Núpi í Dýrafirði. Að námi loknu vann hún við ýmiss konar skrifstofu- og verslunarstörf. Þegar dæt- urnar voru uppkomnar hóf hún störf hjá Tollstjóraembættinu í Reykjavík en varð frá að hverfa eftir nokkur ár vegna lungnasjúkdóms. Útför Ásthildar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 28. nóv- ember 2012 og hefst athöfnin kl. 13. Hulda Guðmunds- dóttir, f. 1917, d. 2004; Sigurlaug Guðmundsdóttir, f. 1919, d. 2002; Hrefna Sig- urgísladóttir, f. 1925, d. 2008; Guðný Sig- urgísladóttir, f. 4.12. 1926; Hrafn- kell Sigurgíslason, f. 1927, d. 1929; Sigríður K. Sigurgísladóttir, f. 1929, d. 1997; og Hrafnhildur Sigurgísladóttir, f. 1930, d. 2007. Ásthildur giftist 27. júlí 1947 Lárusi Gunnari Arnórssyni heildsala, f. 25. mars 1919, d. 8. júní 2002. Hann var sonur hjónanna Þóru Sigurðardóttur og Arnórs Björnssonar frá Upsum í Svarfaðardal. Dætur Ásthildar og Lárusar eru: 1) Júlíana Þórhildur, f. 1947. Eig- Árið er 1994 og við systur sitj- um í eldhúsinu í Blönduhlíðinni að borða soðinn fisk stappaðan í kartöflur, úr Kolaportinu, með miklu íslensku smjöri og mótað- ur á disknum í lönd. Af og til lít- um við upp og tilkynnum hvaða land var að hverfa ofan í okkur. Í eftirrétt eigum við von á að fá niðursoðnar perur frá Del Monte með rjóma sem rennur ekki út fyrr en eftir minnsta kosti viku. Amma vissi alltaf hvar bestu vör- urnar fengust og líka bestu til- boðin. Hún kenndi okkur að besti grjónagrauturinn kæmi úr River Rice hrísgrjónum, besti silung- urinn frá Geiteyjarströnd og sól- berjasultan verður að vera undir merkjum Den gamle fabrik. Þegar líða tók á kvöld lögð- umst við á dívaninn við hlið hjónarúmsins þar sem amma söng fyrir okkur „Ó Jesú bróðir besti“ og „Ástarfaðir himin- hæða“. Hún fór síðan með bænir og endaði á því að signa okkur í svefninn með orðunum „Guð og allir englarnir veri með ykkur í nótt“. Nú þegar við kveðjum ömmu okkar er gott að eiga minningar á borð við þessar. Amma hafði óbilandi trú á okkur barnabörn- unum og stoltið leyndi sér ekki. Hún hafði einstaklega gaman af því að segja öðrum frá því hverju við höfðum áorkað og oftar en ekki fengu ókunnugir að heyra allt um okkar hagi. Þrátt fyrir mikið álit ömmu á okkur fannst henni samt sem áður ögn skemmtilegra að spjalla við ókunnuga. Sérstaklega karl- menn á besta aldri. Þeir höfðu líka svo gaman af því að spjalla við hana, að hennar eigin sögn. Hún eignaðist vini og vanda- menn á ótrúlegustu stöðum, má þá nefna Eirík í bankanum, læknanemana Þóri og Hálfdán, Ögmund í bókabúðinni og svo núna undir það síðasta ungan herramann sem vann í bókhald- inu á Eir. Alla tíð fylgdist amma mjög vel með öllu fréttnæmu, meira að segja íþróttum sem henni þóttu nú yfirleitt tóm vitleysa. Sérstak- lega í ljósi þess að hinir ýmsu íþróttaviðburðir tóku svo oft af henni Leiðarljós. Sjónvarpsdag- skrána hafði sú gamla á hreinu og sá um að enginn missti af því sem henni þótti áhugaverðast. Ragnheiður, sú yngsta af barna- börnunum kallaði ömmu lifandi fréttablað sem hún svo sannar- lega var. Hún var einnig ansi lunkin við að afla sér frétta af sínum nánustu og tókst oft eftir hinum ótrúlegustu leiðum að ná sér í upplýsingar sem hún átti helst ekki að fá. Oft var eins og hún fyndi á sér þegar eitthvað fréttnæmt hafði skeð. Nú munu tímarnir heldur bet- ur breytast og hér eftir neyð- umst við sjálfar til að afla okkur upplýsinga og frétta. Við kveðj- um ömmu okkar með söknuði og biðjum guð og alla englana að vaka yfir henni. Þórhildur og Sigríður Ásta (Sigga Ásta). „Enn birtist mér í draumi sem dýrðlegt ævintýr …“ sungum við nöfnurnar fullum hálsi á leið okk- ar um Ölfusið góðviðrisdaginn 27. júní 2009. Þann dag ákváðum við að taka almennilegan rúnt og þá kom ekki annað til greina en að rifja upp öll þau ógrynni af sönglögum sem amma hafði kennt mér gegnum tíðina. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vera mikið hjá ömmu og afa í Blönduhlíðinni. Ég var hjá þeim fram að hádegi fyrstu skólaárin og amma stjanaði við mig: á hverjum degi fórum við í bakarí og ég fékk birkirúnnstykki með miklu smjöri og sólberjasultu og hnausþykkan grjónagraut með rúsínum og rjóma. Ég dundaði mér, æfði mig á píanóið og oft spilaði amma við mig og kenndi mér að leggja kapal. Þegar við lögðum leið okkar í kjörbúðina á horninu leiddi amma mig með sínum heitu höndum og krækti gjarnan litla fingri um úlnliðinn á mér. Amma var barngóð og ljómaði upp þegar hún hitti barnabarna- börnin sín. Hún lagði sig fram um að gleðja sína nánustu og koma þeim á óvart með því að „gauka að þeim einhverjum glaðningi“. Fallegt dæmi um það er að fyrir skemmstu höfðu þær mamma keypt konfekt fyrir ömmu að eiga uppi á Eir og þá hafði amma beðið mömmu um að láta þriggja ára frumburðinn minn erfa kassann ef hún skyldi ekki lifa það að klára hann. Þannig er minning þess stutta um það hvernig langamma varð veik og dó í rúminu sínu nú ná- tengd þeirri gleði að eiga hálft kíló af súkkulaði sem hann ætlar að bjóða okkur upp á um jólin. Bróðir hans er enn of lítill til að hægt sé að troða hann út af sæl- gæti en í staðinn fékk amma þá frábæru hugmynd að setjast með hann í hjólastólinn og láta mig rúlla þeim út og suður um hjúkr- unarheimilið. Lífið var ömmu ábyggilega ekki alltaf auðvelt og það væri synd að segja að hún hefði sjálf alltaf verið auðveld í umgengni. En hún hafði létta lund og bjó yf- ir einstökum viljastyrk og dugn- aði sem aflaði henni vina og virð- ingar. Hún var klók og útsjónarsöm og gat framkvæmt flóknustu útréttingar með sím- ann einan að vopni allt fram á síðasta dag. Hún var sannkall- aður „haukur í horni“, bæði fyrir sína nánustu og alla sem minna máttu sín. Hún lagði metnað sinn í að sjá til þess að okkur farn- aðist öllum vel og þrátt fyrir að manni hafi á tímabilum þótt um- hyggjan keyra úr hófi fram á maður eftir að sakna þess að ein- hver hafi einlægan áhuga á því (og skoðun) hvernig maður eyðir deginum, hvort maður hafi séð hitt eða þetta í sjónvarpinu, hvað manni finnist um framferði ákveðinna persóna í Leiðarljósi, hvort maður sé með kreditkort, hvort maður viti hvað hinir í fjöl- skyldunni séu að aðhafast ein- mitt núna og umfram allt hve- nær maður geti komið næst í heimsókn. Amma mín og nafna hefur skipað svo stóran sess í lífi mínu að erfitt er að ímynda sér annað en að nú muni myndast mikið tómarúm. Ennþá er það rúm samt svo fullt af kærleiksríkum minningum að kannski verður ekkert tómarúm. Bara risastórt rúm fyrir ömmu og allt það fal- lega sem hún hefur gefið mér. Ásthildur Erlingsdóttir. Amma mín, Ásthildur Sigur- gísladóttir, lést mánudaginn 19. nóvember síðastliðinn. Mín fyrsta minning um ömmu er strætóferð. Ég var haldinn þeirri áráttu sem ungur drengur að vilja fara sem oftast í strætó. Og amma, verandi gæðablóðið sem hún var, lét þetta ævinlega eftir mér og fór í tilgangslausar strætóferðir með mér mun oftar en ég man. Að minnsta kosti var tilgangurinn ekki að komast á neinn sérstakan áfangastað held- ur ferðin sjálf. Þannig stigum við amma oft uppí strætó og stigum svo út, löngu síðar, á sama stað. Amma fékk því að kynnast leiða- kerfi Hlíðastrætóanna eins ná- kvæmlega og mögulegt var þeg- ar ég var í heimsókn. Strætóferðin sem ég vísaði í hér í byrjun endaði svo þannig að það var orðið dimmt úti og skyndi- lega stoppaði tómur strætóinn og bílstjórinn benti okkur vinsam- lega á að fara út þar sem hann væri hættur að ganga. Svo við amma gengum heim úr vestur- bænum í Blönduhlíðina. Þessa ferð átti amma eftir að minna mig mjög reglulega á uns yfir lauk. Ásta amma var gallharðasti sjálfstæðismaður sem ég hef nokkurn tímann kynnst en jafn- framt var hún einn ötulasti bar- áttumaður gegn leyndarhyggju sem Ísland hefur alið, löngu áður en sú barátta varð að tísku eft- irhrunsáranna. Má með nokkr- um sanni segja að amma hafi tal- ið að upplýsingar ættu að flæða eins og vatn, óstíflað og öllum að- gengilegt. Eftir að afi dó fórum við í marga bíltúra saman, á Jómfrúna að fá okkur rauð- sprettu, á Mokka í kakóbolla og í verslunarferðir í Kringluna. Undantekningalaust spjallaði amma við starfsfólkið og aðra í grennd. Eftir samtölin vissi mað- ur yfirleitt hjúskaparstöðu við- komandi, barnafjöld og nöfn for- eldra, námsferil og framtíðarplön. Í einu eftirminni- legu samtali komst hún að því hvað viðmælandinn var með í mánaðarlaun. Ég var ekki alltaf undanskilinn úr samræðunum. Eitt sinn sagði hún við þjóninn á Jómfrúnni þegar hann kom með matinn: „Ég er hér stödd með barnabarninu mínu. Hann féll í læknisfræði og hefur ekki at- vinnu. Veist þú um einhverja vinnu handa honum?“ Annað samtal við afgreiðslustúlku á kassanum í Hagkaup var nokk- urn veginn svona: „Þetta er nú hann dóttursonur minn, uppá- haldið mitt. Hann var að skilja við kærustuna sína og er ein- hleypur. Finnst þér hann ekki myndarlegur?“ Amma var þeirrar náttúru að hún vildi allt gera fyrir sína nán- ustu. Það eru ófá símtölin sem við áttum þar sem hún kom með ýmsar uppástungur um hvernig ég gæti aukið við mín lífsgæði og þeir voru sennilega enn fleiri þúsundkallarnir sem hún gauk- aði að mér við hvert tækifæri. Heiðarleiki og hreinskilni ein- kenndu hennar gjörðir. Kæra amma, takk fyrir minningarnar. Lárus Arnór Guðmundsson. Hún amma veitti okkur öryggi og annað heimili í Blönduhlíðinni en við áttum heima neðar í sömu götu um nokkurt skeið. Við gát- um ávallt farið til ömmu og afa í ristað brauð og kókómalt eftir skóla eða komið til þeirra í há- deginu og fengið góða grjóna- grautinn sem var eitt mesta lost- æti sem við höfðum smakkað. Svo dunduðum við okkur tímun- um saman á heimilinu þeirra, ýmist inni í „litla herbergi“, eins og við kölluðum það, við að lesa gömlu bækur Júllu og mömmu, eða inni í stofu við að glamra á píanóið og leika á tafltölvuna hans afa. Á milli leikjanna fór maður fram í eldhús til ömmu og fékk mola úr nammidósinni. Annars hafði maður mesta skemmtunina af því að spila á spil við ömmu en hún hefur kennt okkur flest öll spilin sem við kunnum og smitað okkur af ævarandi áhuga hennar á korta- spilum. Það var líka alltaf notalegt að fá að gista á beddanum inni í hjónaherbergi hjá afa og ömmu. Ólöfu þótti fátt jafn skemmtilegt og að sitja yfir ömmu og afa á meðan þau tóku síðdegisblund- inn sinn og lesa fyrir þau upp úr ljóðabókum Davíðs Stefánsson- ar. Nú sefur jörðin er eitt þeirra sem voru í uppáhaldi hjá ömmu og sungu þær það reglulega sam- an. Nú sefur jörðin sumargræn. Nú sér hún rætast hverja bæn og dregur andann djúpt og rótt um draumabláa júlínótt. (Davíð Stefánsson) Amma var gáfuð og útsjón- arsöm og bar einnig mikla um- hyggju fyrir barnabörnunum sínum. Hún lagði sig fram um að fylgjast með og taka þátt í lífi okkar og störfum, kynnast vin- um okkar og áhugamálum. Amma var í raun fyrirtaks efni í einkaspæjara, því að það var ekki neitt sem fór fram hjá henni og ekki neitt sem hún ekki gat komist að í gegnum sínar eigin óútskýrðu leiðir. Þeir sem við höfum umgengist í gegnum tíð- ina, hvort sem er í vinnu eða skóla, hafa flestir fengið að kynnast ömmu í gegnum okkur því hún var daglegur liður í sam- tölum og lífinu frá degi til dags. Börnin, barnabörnin og barna- barnabörnin áttu hug hennar all- an og það er mikill missir að henni úr lífi okkar. Við erum samt vissar um að amma hafi kvatt þennan heim örugg og sátt í sínu hjarta. Hún átti langt og gott líf, sýndi fólki óbilandi áhuga og hafði skoðanir á flestu sem var í gangi í þjóðlíf- inu. Hún var forvitin og mikill húmoristi. Fólkinu í kringum ömmu þótti líka mjög vænt um hana og sóttu í að vera í kringum hana, heimsóttu hana eða hringdu reglulega til að heyra í henni hljóðið. Hún gerði vini úr öllum sem hún hitti allt frá bankastarfsmanninum og mann- inum í kjötborðinu til nánustu ættingja. Það er sannarlega skrítið að manneskja sem hefur verið svona snar þáttur í lífi okkar sé farin en hún verður alltaf með okkur í anda og minningunni. Okkar börn munu fá að heyra sögurnar af Ástu ömmu sem okkur þótti svo vænt um. Ólöf Auður Erlingsdóttir og Ragnheiður Erlingsdóttir. Ástu Sigurgísladóttur hef ég þekkt í meira en þriðjung aldar og átt að tengdamanni og mál- vini. Hennar minnist ég með mikilli virðingu. Ásta var merk- iskona. Í viðræðum við hana kom maður aldrei að tómum kofun- um, hún vissi deili á mörgu og kunni skil á flestu sem krafist verður af hugsandi og skynugu fólki. Þau Lárus Arnórsson, eig- inmaður hennar, voru samvalin fyrir sínar góðu gáfur og mynd- arskap og aðrar eigindir sem gera vinakynni við fólk ánægju- leg. Dætrum Ástu, Þóru og Júl- íönu, og börnum þeirra og barna- börnum sendi ég samúðarkveðju. Í þeim hópi eru þær sem næst mér standa, Ásthildur Erlings- dóttir, Ólöf Auður og Ragnheið- ur, sonardætur mínar. Guð blessi minningu Ásthildar Sigurgísladóttur. Ingvar Gíslason. Látin er í Reykjavík vinkona mín Ásthildur Sigurgísladóttir, eða Ásta eins og hún var jafnan nefnd. Henni kynntist ég þegar eldri dóttir hennar kom í bekkinn minn 9 ára gömul um miðbik síð- ustu aldar. Fljótlega varð ég heimagang- ur hjá Ástu, Lárusi, Júllu og Þóru. Þar sem ég kom úr stórum systkinahópi naut ég þess að tilheyra þessari góðu fjölskyldu, ferðaðist með henni norður í land, að Laugarvatni og víðar. Þetta var ævintýri í þá daga. Seinna varð ég þess áskynja, að Júllu fannst álíka gaman að koma heim til mín, borða með skaranum undarlegan mat svo sem brodd og fleira. Vinkona mín var hrein og bein, viljasterk og bráðvel gefin eins og hún átti kyn til. Auk þess virtist hún sjá hið ókomna, valdi sér góðan eiginmann, öðlinginn Lárus Arnórsson. Sameiginlega farnaðist þeim vel, eignuðust tvær dætur, sem erft hafa bestu kosti beggja foreldra. Þau réttu og hjálparhönd þar sem þurfti. Hún var afburða smekkleg, fyr- irhyggjusöm og listræn. Lét út- búa fjölda listaverka, sem hún annað hvort átti eða gaf við réttu tækifærin. Ásta var mér afar góð og hef ég reynt að tileinka mér ýmsa þætti úr fari hennar. Hjá okkur Júllu er til orðatiltækið „að hafa verið Ásthildur í dag“. Það merk- ir að undirbúa morgundaginn eins vel og hægt er, svo sem að leggja á borðið og gera allt nema að kveikja á kertunum. Þetta hagkvæma fyrirkomulag hefur mér lærst á langri ævi og merkir það í orðsins fyllstu merkingu að hafa vaðið fyrir neðan sig. Þar sem ég sit í dag og horfi í kring um mig sé ég fjölda hluta sem hún hefur gefið mér. Þeir eiga það sameiginlegt að vera valdir af kostgæfni og góðum smekk. Nú hefur Ásta kvatt þennan heim og fer sátt til fundar við þá sem á undan eru gengnir og voru henni kærir. Ég vil minnast hennar eins og hún var þegar hún var upp á sitt besta, glæsi- legrar með glettinn svip í augum. Blessuð sé minning minnar kæru vinkonu. Ingibjörg Jóhannesdóttir (Imma). Ásthildur Sigurgísladóttir Elsku amma, nú ertu farin til afa. Ég á margar góðar minningar sem ylja mér um hjartarætur. Ég man alltaf að ég vildi frekar vera hjá þér á Grund en að fara í þessi ferðalög með pabba og mömmu, sem mér fannst þreytandi. Þú tókst mér alltaf opnum örmum. Guðbjörg Guðnadóttir ✝ GuðbjörgGuðnadóttir, Grund 1, Hofsósi fæddist í Svínavalla- koti í Unadal 3. mars 1924. Hún andaðist á Heilbrigðisstofn- uninni á Sauð- árkróki 18. október 2012. Útför Guðbjargar var gerð frá Hofs- óskirkju 27. október 2012. Og nú veit ég að þú vakir yfir mér, meira get ég ekki sagt vegna veik- inda minna en minnið er ekki svo gott. Allar stundir ævi minnar ertu nálæg, hjartans lilja. Þó er næst um næðis- stundu návist þín og angurblíða, ástarljós og endurminning. Allar stundir ævi minnar, yndistíð og harmadaga, unaðssumur, sorgarvetur sakna ég og minnist þín. (Hulda) Ég sakna þín, elsku amma. Guðbjörg Kristinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.